Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1991, Blaðsíða 2
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1991.
Benedikt Hallgrímsson, skipstjóri á Jósep Geir, sem var bjargað úr sjónum:
Okkur þremur var öllum
svipt upp í Flróða í einu
„Þaö er ótrúlegt hvaö maður haföi
mikla öryggistilfinningu að velkjast
í flotgallanum í þetta slæmu sjólagi.
Maður var ekki einu sinni hræddur
og Fróöi var auðvitaö viö hliöina á
okkur. Þegar ég kom um borð var
ég þurr og sjóðandi heitur. Skipstjór-
inn á Fróða stóö geysilega vel að því
aö bjarga okkur. Hann náöi okkur
þremur sem vorum í sjónum eins og
skot. Hann lét bátinn reka að okkur
hlémeginn. strákarnir hans voru
klárir á síðunni og þeir bókstaflega
sviptu okkur öllum þremur inn fyrir
í eimi. Þaö var ótrúlega vel aö þessu
staðið. Við erum mjög þakklátir öll-
um þessum mönnum,“ sagöi Bene-
dikt Hailgrímsson, skipstjóri á Jósep
Geir ÁR 36, í samtali við DV í gær.
Benedikt og áhöfn hans, sjö manns,
var bjargað úr sjónum um sjö mílur
suður af Knarrarásvita í gærmorgun
þegar Jósep Geir sökk. Engan sakaði.
„Það leið um klukkutími frá því
við urðum fyrst varir við lekann þar
til báturinn sökk. Maður sá þó með
góðum fyrirvara í hvaö stefndi. Við
höfðum allir góðan tíma til að fara í
björgunarflotgailana. Við urðum
ekkert smeykir, það fór vel um okkur
og við keyrðum á hægustu ferð upp
í á meðan við biðum eftir Fróða,“
sagði Benedikt.
„Strákarnir voru sofandi frammí
en ég og vélstjórinn vorum í brúnni.
Það kom viðvörunarljós sem gaf til
kynna að ákveðið magn af sjó væri
komið í bátinn. Það var nýbúið að
lensa. Vélstjórinn fór þá niður og
setti dælu á því það lak mikið. Viö
vitum ekki hvar en það kom upp með
gólfmu niöri. Ekkert óhapp kom þó
upp á sem hægt er að rekja lekann
til. Við vorum bara á stimi. Hann
hlýtur að hafa slegið úr sér eða jafn-
vel eitthvað meira en það. Þetta er
trébátur með plönkum sem hggja
saman. Á milh plankanna eru raufar
og í þeim er eins konar hampur eða
ísláttur meö biki á. Við höldum þó
að eitthvað meira en ísláttur hafi
geflð sig. Lekinn var það mikih. Það
varð ekki við neitt ráðið,“ sagði
Benedikt. Báturinn er 47 tonn og
smíðaður í Stykkishólmi árið 1972..
„Ég kallaði í Vestmannaeyjar og
Fróða. Síðan gerðum við tvo gúmmí-
báta klára. Fjórir af strákunum fóru
yfir í Fróða fljótlega eftir að hann
kom. Við urðum þrír eftir og ætluð-
um að bíða eftir dælum með þyrl-
unni en urðum að hætta við þaö þeg-
ar við sáum að það þýddi ekki. Við
sáum á dekkinu að sjórinn var kom-
inn hátt upp í bátinn. Hann var far-
inn að halla. Þá ákváðum við að
stökkva í sjóinn. Þegar við vorum
komnir yfir í Fróöa sáum við bátinn
sökkva,“ sagði Benedikt.
-ÓTT
Þrír skipverjar af Jósep Geir fara í land úr Fróða við komuna til Þorlákshafnar. Frá vinstri Guðjón Þór Pálsson,
Benedikt Hallgrímsson skipstjóri og Sigurður Borgarsson háseti. DV-myndir Brynjar Gauti
Um 700 mættu til
að hlusta á Davíð
Fundað á Akureyri:
Harðbakur fór
ekkitilveiða
Gyifi Kristjáitæon, DV. Akureyri;
„Það stóð aldrei tiltyá fyrirtæk-
inu að senda skipið til veiða í
gærkvöldi án þeirra manna sem
hafa veriö þar um borð,“ sagði
Davíð Haraldsson, talsmaöur sjó-
manna á togaranum Harðbak á
Akureyri, í samtah við DV í gær-
kvöldi. Mikil spenna hafði verið
um daginn vegna þess að Útgerð-
arfélag Akureyringa hafði aug-
lýst brottför skipsins kl. 21 og
virtist þá sem manna ætti skipið
nýjum undirmönnum í stað
þeirra sem sagt hafa upp. Svo
reyndist ekki vera og virðist sem
fyrirtækið hafi með þessu verið
að fullkanna samstööu sjómann-
anna.
„Við vorum á fundi með ráða-
mönnum ÚA í dag og fundum
aftur með þeim á morgun. Efúr-
það fara línur væntanlega að
skýrast," sagði Ðavíð. Sem kunn-
ugt er hafa undirmenn á 5 ís-
fisktogurum fyrírtækisins sagt
upp störfum vegna óánægju meö
launakjör og skipin munu nú
stöðvast eitt af öðru finnist ekki
lausn á deilunni.
Útgerðarfélagiö hefur boðið sjó-
mönnum hækkim á heimalönd-
unaráiagi úr 30% í 40%, en sjó-
menn eru ekki til viöræöu um
slíkt, vilja þess í staö fá verulega
hækkun fiskverðs, 50 til 70%.
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Troðfullt var út úr dyrum á veit-
ingastaönum „1929“ á Akureyri í
gærkvöldi er Sjálfstæðisflokkurinn
efndi þar th kosningafundar meö
Davíð Oddsson, formann flokksins,
sem aöalræðumann. Þetta var af
mörgum talin frumraun Davíðs sem
stjórnmálamanns utan höfuðborgar-
innar og það var ljóst að marga fýsti
að hlýða á mál hans. Hátt í 700 manns
voru í húsinu, hvert sæti setið og
staðið á öllum göngum. Samt sem
áður urðu fjölmargir frá að hverfa
vegna plássleysis.
Davíð flutti nokkuð yfirgripsmikla
ræðu á fundinum og eyddi talsverö-
um tíma í að ræða viðskilnaö ríkis-
stjómar Steingríms Hermannssonar,
Regína Thorarensen, DV, Eskifirði:
Það er ahtaf gaman að koma á
æskustöövamar og á leið minni til
Eskifjarðar höfðum við hjónin við-
komu á Eghsstaðaflugvehi. 'Þar var
rjómalogn og sjö stiga hiti þegar við
komum þar föstudaginn 22. mars.
Það er vel tekið á móti gestum í flug-
skattamál, byggðamál og ríkisfjár-
mál svo eitthvað sé nefnt. Hann sagði
að andstæöingar Sjálfstæðisflokks-
ins spyrðu í sífellu hvar Sjálfstæðis-
flokkurinn ætlaði að skera niður ef
flokkurinn kæmist th valda og lækk-
aði skatta. Svarið við þeirri spurn-
ingu væri hins vegar einfalt, hér
væri fyrst og fremst um að ræða
spumingu um hugarfar og vilja.
Davíð sló talsvert á létta strengi i
ræðu sinni og sagði í lokin að kjós-
endur í komandi kosningum skyldu
ganga þannig frá kjörseðlum sínum
aö þeir breyttust ekki í skattseðla að
kosningum loknum, en það myndi
gerast ef þeir kysu yfir sig áfram-
haldandi setu þeirrar ríkisstjórnar
sem nú situr.
vaharhúsinu - Þráinn Jónsson og
eiginkona hans Ingveldur eru með
veitingastaðinn þar og nýta flugfar-
þegar sér þjónustu þeirra mjög. Þau
em oft bæði í móttökunni, panta
leigubíla og veita gestum sínum
ýmiss konar upplýsingar, kát og glöö
með bros á vör.
Góð þjónusta á Egilstöðum
Guðfinnur Karlsson, skipstjóri á Fróða:
Þeir stóðu á
síðunni þegar
báturinn valt
„Jósep Geir kahaði fyrst í okkur,
við vorum næstir honum. Þaö voru
um fjórar og hálf míla í hann - ann-
ars flýtti ég mér svo mikið aö ég man
það ekki alveg. Þeir sögðu að það
væri kominn mikill leki að bátnum
og þeir:vissu ekki hvernig þetta færi.
Við vorum um 10-15 mínútur á stað-
inn. Þegar við-komum að Jósep Geir
var hann ahur talsvert siginn, eins
og hann væri mikiö hlaðinn. Bátur-
inn var þó alveg réttur. Það hafa
verið suðsuðvestan sjö vindstig
þarna og töluverður sjór. Við keyrð-
um síðan upp að afturendanum á
bátnum, eins nálægt og við þorðum.
Þeir köstúðu út gúmmíbát og fjórir
þeirra fóru í hann,“ sagði Guöfinnur
Karlsson, skipstjóri á Fróða ÁR 33, í
samtali við DV í gær.
Guðfinnur og áhöfn hans bjargaði
sjö sjómönnum af netabátnum Jósep
Geir ÁR 36 sem sökk um sjö mhur
suður af Knarrarásvita um klukkan
9.45 í gærmorgun.
„Við tókum fjórmenningana um
borð en þrír urðu eftir, skipstjórinn,
vélstjóri og stýrimaöur. Þeir settu
annan gúmmíbát út en haxm shtnaði
frá og fór á hvolf. Þá.ákváöum við
að reyna að láta þremenningana fá
hinn bátinn aftur. Þegar við vorum
búnir að brasa viö aö koma línu yfir
th mannanna valt Jósep Geir á hliö-
ina. Mennimir þrír stóðu þá bara
uppi á siðunni að aftanverðu. Þeir
Gúmmíbáturinn úr Jósep Geir híföur
í land.
Guðfinnur Karlsson, skipstjóri á
Fróða.
stukku svo í sjóinn. Jósep Geir sökk
örstuttu síðar. Þegar þarna var kom-
ið var stefnið á Fróða komið upp að
mönnunum. Það voru varla nema
4-5 metrar í þá. Þeir hafa ekki verið
nema 2-3 mínútur í sjónum og okkur
gekk vel að taka þá um borð th okk-
ar. Við kipptum þeim bara inn á velt-
unni - hönd í hönd. Báturinn er ekki
svo hár hjá okkur. Ég held að þeir
hafi ekkert rekist utan í - allavega
kvörtuðu þeir ekkert undan því,“
sagði Guðfinnur Karlsson.
Fróði ÁR hélt aftur út á miðin
skömmu eftir hádegiö í gær eftir að
siglt haföi verið með skipbrotsmenn-
ina af Jósep Geir th Þorlákshafnar.
Guðfinnur sagði að áhöfn hans liði
mjög vel eftir björgunina:
„Viö erum allir sammála inn það
hér aö þetta hafi verið okkar besti
róður. Það er skrýtið að veiða menn
upp úr sjónum en það er mjög
ánægjulegt þegar svona vel tekst th.
Ég get hins vegar ekki hugsað th
enda hvemig þetta heföi farið ef þre-
menningarnir hefðu ekki verið í
flotgöhum. Ég held að fjármálaráð-
herra ætti að sjá th þess að sjómenn
geti keypt galla með góðu móti. Það
eru átta karlar hér um borð og það
þarf að kaupa þrjá galla á mann á
ári. Það yrði mjög til bóta ef skattur
yrði felldur niöur af flotgöllum,"
sagöi skipstjórinn á Fróða sem gerð-
ur er út frá Þorlákshöfn.
-ÓTT