Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1991, Blaðsíða 44
64
MIÐVIKUDAGUR 27. MÁRS 1991.
Afmæli
Margrét K. Sigurðardóttir
Margrét Kristín Sigurðardóttir,
húsmóðir ogháskólanemi, Laugar-
ásvegi 12, Reykjavík, er sextug í dag.
Starfsferill
Margrét fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp en hún hefur alla tíð
verið búsett í Reykjavík ef frá eru
talin samtals fimm ár er hún bjó í
fjórum Evrópulöndum. Margrét
lauk verslunarprófi frá VÍ áriö 1949,
einkaritaraprófi frá St. Godridge
College í London árið 1950, prófi frá
Húsmæðraskólanum í Holte við
Kaupmannahöfn árið 1954 og leið-
sögumannaprófi árið 1970. Árið 1983
lauk Margrét stúdentsprófl frá MH
og stundar nú nám við viðskipta-
deild HÍ þaðan sem hún lýkur prófi
ívor.
Fjölskylda
Margrét giftist 11.9.1953 Ragnari
S. Halldórssyni, f. 1.9.1929, M.Sc. í
byggingaverkfræði, framkvæmda-
stjóra, síðar forstjóra ísal og nú
stjórnarformanni þess. Ragnar er
sonur Halldórs Stefánssonar, al-
þingismanns og forstjóra, og Hall-
dóru Sigfúsdóttur húsmóður.
Börn Ragnars og Margrétar eru
Kristín Vala, f. 27.3.1953, Ph.D. í
jarðfræði, en hún stundar rann-
sóknir og kennir við jarðfræðideild
háskólans í Bristol á Englandi, gift
Bernard Wood, prófessor við sama
háskóla, og eiga þau tvö börn; Hall-
dór Páll, f. 28.5.1954, M.Sc. í bygg-
ingaverkfræði, yfirverkfræðingur
hjá Pihl & Son A/S í Kaupmanna-
höfn, kvæntur Jóhönnu Jónsdóttur,
M.Sc. í efnaverkfræði og MBA í fyr-
irtækjastjórnun, starfsmanni hjá
Haldor Topsoe A/S, og eiga þau tvo
syni; Sigurður Ragnar, f. 10.6.1955,
byggingaverkfræðingur en unnusta
hans er Kristín Magnúsdóttir við-
skiptafræðingur og eru þau bæði aö
ljúka framhaldsnámi frá háskólan-
um í Kaupmannahöfn nú í vor;
Margrét Dóra, f. 8.4.1974, lýkur
verslunarprófi frá VÍ í vor.
Systkini Margrétar Kristínar:
Hannes Þorsteinn, f. 3.7.1929, deild-
arstjóri hjá Sjóvá-Almennum,
kvæntur Margréti Erlingsdóttur og
eiga þau þrjú börn; Axel, f. 29.8.1934,
deildarstjóri á Pósthúsinu í Reykja-
vík, kvæntur Indu Benjamínsdóttur
og eiga þau saman tvö börn, auk
þess sem hann á tvö börn frá því
áður.
ForeldrarMargrétar: Sigurður
Þorsteinsson, f. 10.5.1901, d. 16.4.
1946, stórkaupmaöurí Reykjavík, og
kona hans, Kristín Hannesdóttir, f.
12.7.1899.
Ætt
Sigurður var sonur Þorsteins, b.,
organista og fræðimanns á Eyjólfs-
stöðum í Vatnsdal, Konráðssonar,
b. í Múla í Línakursdal, Konráðs-
sonar. Móðir Þorsteins var Guörún
Þorsteinsdóttir.
Móðir Sigurðar var Margrét
Oddný Jónasdóttir, b. á Eyjólfsstöð-
um, bróður Guðmundar á
Kirkjubæ, afa Jónasar læknis, fóður
Kristjáns læknis, föður Jónasar, rit-
stjóra DV. Guðmundur var einnig
afl Sigurðar Nordal, foður Jóhann-
esar seðlabankastjóra. Annar bróð-
ir Jónasar á Eyjólfsstöðum var Frí-
mann, afi Valtýs Stefánssonar rit-
stjóra, en hálfbróöir Jónasar var
Páll, langafl Jónasar Rafnar, fyrrv.
bankastjóra, og Ólafs Ólafssonar
landlæknis. Jónas var sonur Ólafs,
b. á Gilsstöðum í Vatnsdal, og Sig-
ríðar, systur Vatnsenda-Rósu. Sig-
ríður var dóttir Guðmundar, b. i
Fornhaga, Rögnvaldssonar og Guð-
rúnar Guðmundsdóttur, systur
Rósu, langömmu Friðriks Friðriks-
sonar æskulýösleiðtoga. Móðir
Margrétar Oddnýjar var Steinunn
Steinsdóttir.
Kristín, móðir Margrétar, er dóttir
Hannesar, oddvita í Stóru-Sandvík
í Flóa, Magnússonar, b. í Stóru-
Sandvík, bróður Gunnars, langafa
Sigurðar, prests á Selfossi, ogfrétta-
mannanna Gissurar og Ólafs Sig-
urðssona. Magnús var sonur
Bjarna, b. á Valdastöðum, Jónsson-
ar, b. í Grímsfjósum, Bjarnasonar,
bróður Eyjólfs, langafa Guðjóns, afa
Guðjóns Friðrikssonar sagnfræö-
ings. Móðir Hannesar var Kristín
Hannesdóttir, b. í Stóru-Sandvík,
bróður Guðrúnar, langömmu Sal-
varar, ömmu Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar. Móðir Kristínar í
Stóru-Sandvík var Vigdís Steindórs-
dóttur, b. í Auðsholti, Sæmundsson-
ar, ættföður Auðsholtsættarinnar.
Móðir Kristínar og amma afmæl-
isbarnsins var Sigríður Jóhanns-
dóttir, b. á Stokkseyri, Adolfssonar,
Margrét Kristín Sigurðardóttir.
hreppstjóra á Stokkseyri, sonar
Christens Petersen, faktors í Kefla-
vík og á Eyrarbakka, sonar Didrik
Christians Petersen, kaupmanns á
Eyrarbakka, sonar Lorenz Linde
Petersen, gimsteinasala í Sönder-
borg. Móðir Jóhanns var Sigríður
yngsta Jónsdóttir, ríka í Vestri-
Móhúsum, Þórðarsonar í Rekstokk,
Pálssonar. Móðir Jóns ríka var Guð-
laug Jónsdóttir, b. í Grjótlæk, Bergs-
sonar, hreppstjóra í Brattsholti,
Sturlaugssonar, ættföður Bergsætt-
arinnar.
Margrét og maður hennar taka á
móti gestum í dag að Miðleiti 7 hér
í borg milli klukkan 16.00 og 19.00.
Gunnar Þorsteinsson
Gunnar Þorsteinsson forstöðu-
maður, Hraunbrún 46, Hafnarfiröi,
verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Gunnar er fæddur í Reykjavík og
ólst þar upp. Hann lauk landsprófi
og stundaði nám við MH. Gunnar
lagði síöan stund á guöfræðinám við
Christ Gospel Bible Institude í
Bandaríkjunum. Gunnar rak um
tíma verslunar- og verktakafyrir-
tæki í Reykjavík og í Vestmannaeyj-
um en er nú forstöðumaður Kross-
ins í Kópavogi og formaöur Lífsvon-
ar.
Fjölskylda
Gunnarkvæntist25.12.1971 Ingi-
björgu Guðnadóttir, f. 11.2.1952,
bankastarfsmanni, en hún er dóttir
Guðna Guðmundssonar forstjóra,
sem nú er látinn, og Jóhönnu F.
Karlsdóttur sem starfar hjá Skatt-
stofu Reykjanesumdæmis. Þau
bjuggu öll sín hjúskaparár í Hafnar-
firði og býr Jóhanna þar enn.
Börn Gunnars og Ingibjargar eru:
Guðni, f. 11.8.1972; Sigurbjörg, f. 2.8.
1974; Jóhanna, f. 1.1.1976; ogGunnar
Ingi.f. 23.1.1989.
Systkini Gunnars eru: Ásdís, f.
22.5.1948, hún á þijú börn; Einar
Þorsteinn, f. 3.10.1949, kvæntur
Björgu Sigurðardóttir og eiga þau
þrjú börn; og Þórstína B., f. 8.9.1956,
húnátvöbörn.
Foreldrar Gunnars eru: Þorsteinn
Oddsson, f. 25.11.1919, prentmynda-
smiður og síðar verktaki við þak-
klæðningar, og Sigurbjörg Einars-
dóttir, f. 24.6.1919, húsmóðir, en þau
eru búsett í Reykjavík.
Ætt
Þorsteinn, faðir Gunnars, var son-
ur Odds, f. að Leirá í Leirársveit,
Ólafssonar, sjómanns, Halldórsson-
ar og Þuríðar Jónsdóttur, f. að Kala-
stöðum á Hvalfiarðarströnd, dóttur
Jóns Þorsteinssonar bónda.
Sigurbjörg, móðir Gunnars, var
dóttir Einars, matsveins ogsíðar
verkamanns í Borgarnesi, ólafsson-
Gunnar Þorsteinsson.
ar, frá Stóru Fellsöxl, Jónssonar og
Þórstínu B. Gunnarsdóttur, b. í
Fögruhlíð á Djúpavogi, Þorsteins-
sonar. Móðir Þórstínu var Þórunn
Björg Jakobsdóttir, b. á Eiríksstöð-
umíFossárdal.
Gunnar og Ingibjörg taka á móti
gestum í sal Félagsheimilis Kópa-
vogs að Fannborg 2 frá kl. 20-23
þann28. mars.
100 ára:
Til hamingju meö afmæliö30. mars
80 ára 40 ára
Þorsteinn Bjarnason, Starrahólum 3, Reykjavík. Gunnþórunn Gunnlaugsdóttir, KaldaseU 14, Reykjavik. Soffía B. Þorvaldsdóttir,
70 ára Austurbergi 10, Reykjavík. Ólafur K. Tryggvason,
ErikaBjörnsson, Þinghólsbraut 56,Kópavogi. Eyjabakka 22, Reykjavík. Guðbjörg Þorvarðardóttir, Ægisbraut 19,Búöardal.
60 ára uuorun liiinarsaottir, Nesbala 122, Seltjarnarnesi.
Ey vindur Sigurðsson, Heiðmörk 44, Hveragerði. Hann hefur heitt á könnunni. Bj örn Sæmundsson, Egilsstöðum, Vopnaérði. Míðstræti 3, Reykjavík. Úlfheiður Ingvarsdóttir, Suðurhólum 24, Reykjavík. Eygló Þorsteinsdóttir, Faxabraut 51, Kefiavík. Hjördis Þorsteinsdóttir,
50ára Stuðlabergi 18, Hafnarfirði. Ari Kristján Sæmundsson,
Jón Kristófersson, Unufelh 21, Reykjavík. Valdimar Gunnarsson, Stórhóli 2, Húsavík. Magnús Einarsson, Selási 1, Egilstöðum. Örn P. Aðalsteinsson, RjúpufeUi 46, Reykjavlk. Eygló Yngvadóttir, Önnuparti, Djúpárhreppi. Fannafold 55, Reykjavík. Árni Auðunn Árnason, Kirkjubraut 43, Höfn í Homafirði. Dóra Guðrún Kristinsdóttir, Búlandi20, Reykjavík. Margrét Ágústsdóttir, Bergþóragötu 2, Reykjavík. Magnús Guðmundsson, Laugavegi 136, Reykjavík. Sigurjón Vigfússon, Vallarbraut 7, Hafnarfirði.
Sæmiindur Gíslason
Sæmundur Gíslason, fyrrv. bóndi
að Ölfusvatni í Grafningi, nú til
heimilis að Sólvangi, Hafnarfirði,
veröur hundrað ára á skírdag.
Starfsferill
Sæmundur fæddist að Ölfusvatni
og ólst þar upp við almenn sveita-
störf. Hann keyptijöröina 1920 og
stundaði þar búskap til 1944 er hann
flutti til Hafnarfjarðar þar sem hann
hefur búið síðan. Þar vann Sæ-
mundur ýmis almenn verkamanna-
störf en þó lengst af hjá Rafveitu
Hafnarfjarðar. Hann hefur dyaliö á
Sólvangifrál985.
Fjölskylda
Sambýliskona Sæmundar: Aðal-
heiður Olafsdóttir, f. 29.4.1903, dótt-
ir Ólafs Bjömssonar og Kristínar
Bjarnadóttur að Björgum í Austur-
Húnavatnssýslu.
Albróðir Sæmundar: Guðmundur
Gíslason, f. 22.5.1900, d. 12.8.1955,
skólastjóri Reykjaskóla í Hrútafirði,
kvæntur Hlíf Böðvarsdóttur frá
Laugarvatni en böm þeirra eru
Böðvar, f. 22.2.1932, starfsmaður
Seðlabankans, kvæntur Helgu Þóru
Jakobsdóttur; Gísii Ölvir, f. 24.6.
1935, d. 9.7.1958; GuölaugEdda, f.
21.1.1937, gift Steingrími Her-
mannssyni forsætisráðherra; Inga
Lára, f. 16.3.1938, gift Inpa Þor-
steinssyni náttúrufræðingi.
Hálfbróðir Sæmundar, samfeðra,
og sonur Þóra Jónsdóttur: Þórður
Gíslason, f. 1877, d. 1917, kvæntur
Guðbjörgu Þorgeirsdóttur frá Núp-
um í Ölfusi en þau eignuðust ellefu
börn og komust sex þeirra til full-
orðinsára. Þau eru Ólafur, f. 16.3.
1905, símafræðingur, kvæntur
Hildigunni Halldórsdóttur; Gísli, f.
18.5.1906, trésmíöameistari, kvænt-
ur Guðmundínu Björnsdóttur; Þor-
geir, f. 30.5.1907, múrarameistari,
kvæntur Hólmfríði Guðsteinsdótt-
ur; Þórður Björgvin, f. 14.3.1910,
bifreiðarstjóri, kvæntur Huldu
Helgadóttur; Þóra, f. 21.7.1912, gift
Viggó Backmann; Guðni, f. 5.10.
1915, gullsmiður, kvæntur Jónínu
Jónsdóttur.
Foreldrar Sæmundar voru Gísli
Þórðarson, f. 17.7.1841, d. 3.1.1924,
bóndi á Ölfusvatni, og Guðlaug Þor-
Sæmundur Gislason.
steinsdóttir, f. 5.11.1864, d. 20.1.
1955.
Ætt
Gísli var sonur hjónanna Þórðar
Gíslasonar og Sigríðar Gísladóttur
er bjuggu á Úlfljótsvatni en Guðlaug
var dóttir hjónanna Þorsteins Þor-
steinssonar, b. í Tungu í Grafningi,
og Sigríðar Þorgilsdóttur.
Sigurjón Sigurbergsson
Sigurjón Sigurbergsson bóndi,
Hamrahlíð, Lýtingsstaöahreppi,
verður sextugur á morgun, skírdag.
Starfsferill
Sigurjón fæddist í Svínafelli í
Nesjahreppi og ólst þar upp. Hann
er búfræöingur frá Hólum í Hjalta-
dal og hefur verið sauðfjárbóndi
lengstaf.
Fjölskylda
- Sigurjón kvæntist 6.6.1955 Heið-
björtu Jóhannesdóttur, f. 26.6.1932,
húsmóður og bónda. Heiðbjört
fæddist að Brúnastöðum í Lýtings-
staðahreppi og er dóttir Jóhannesar
Blöndal Kristjánssonar og Ingigerö-
ar Magnúsdóttur sem voru baendur
á Brunastöðum og síðar á Reykjum
í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði.
Börn Sigurjóns og Heiðbjartar
eru: Jóhannes Blöndal, f. 16.1.1956,
vélaverkfræðingur í Þrándheimi,
kvæntur Karí Elíse Móbekk frá
Þrándheimi og eiga þau tvö börn;
Þóralngigerður Jónheiður.f. 17.11.
1957, húsmóðir í Búðardal, gift Jens
Hvítfeld Nilssen sóknarpresti og
eiga þau þrjú börn; og Elín Helga,
f. 13.8.1961, búfræðingur, húsmóðir
og bóndi á Reykjum, gift Sigurði
Torfa Jónssyni, félagsfræðingi og
bónda á Reykjum, en þau eiga eitt
barn.
Systkini Sigurjóns era alls níu
talsins, búsett á Hornafirði, í
Reykjavík, á Patreksfirði og í Skaga-
firði og eru systkinabörnin orðin
a.m.k. 37.
Sigurjón er sonur Sigurbergs
Árnasonar, f. 9.12.1889 d. 1983, sem
var bóndi, sjómaður, smiður og
vélamaður, og Þóru Guðmunds-
dóttur, f. 24.9.1908, húsmóður frá
Hoffelli. Þau bj uggu lengst af í
Svínafelli í Nesjahreppi.
Sigurbergur, faðir Sigurjóns, var
sonur Árna, b. í Svínafelli, Bergs-
sonar, Pálssonar, ætt af Mýrum og
Suðursveit. Móðir Sigurbergs var
Þórunnbjörg Jónasdóttir.
Þóra, móðir Sigurbergs, var dóttir
Guðmundar Jónssonar og Valgerð-
ar Sigurðardóttur frá Kálfafelli í
Suðursveit.
Afmælisbarnið fór að heiman en
sendir vandamönnum og kunningj-
um um land allt, svo og nágrönnum
sínum og sveitungum, bestu kveðj-
ur.