Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1991, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1991, Qupperneq 34
42 FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991. Fólk í fréttum DV Sveinbjöm Bjömsson Sveinbjöm Bjömsson prófessor, Víghólastíg 14, Kópavogi, hefur ver- iö kjörinn næsti rektor Háskóla ís- lands eins og fram hefur komið í DV-fréttum. Starfsferill Sveinbjöm fæddist í Reykjavík. Hann lauk fyrrihlutaprófi i bygg- ingaverkfræði við HÍ1959 og Dipl. phys í eðlisfræði við Technische Hochschule í Aachen í Þýskalandi 1963. Sveinbjörn var á árnnum 1964-78 stundakennari við TÍ og HÍ og er prófessor við HÍ frá 1978. Hann var deildarforseti raunvísindadeildar 1985-87 og vararektor 1986-87. Sveinbjöm var sérfræðingur viö Orkustofnun 1963-73, síðast deildar- stjóri háhitasvæða. Hann réðst til Raunvísindastofnunar 1974 sem deildarstjóri í jarðeðlisfræði og var formaður stjómar Raunvísinda- stofnunar 1976-79. Sveinbjörn var ráðgefandi sér- fræðingur á vegum SÞ við j arðhita- rannsóknir í E1 Salvador, á vegum Virkis hf. í Keníu og Kína, um hraunhitaveitu í Vestmannaeyjum 1976-90, ráðgjöf um mat á vinnslu- getu jarðhitakerfisins á Nesjavöll- um fyrir Hitaveitu Reykjavíkur frá 1984. Sveinbjöm var kjörinn félagi í Vísindafélagi íslands 1968. Hann var formaður nefndar sem gerði tillögur um endurskoðun námsefnis og kennslu eðlis- og efnafræði í bama- og gagnfræðaskólum 1968-69 og um nýskipan skóla til menntunar tækna, tæknifræðinga og verkfræð- inga 1974-78, var formaður skóla- nefndar TÍ 1973^76, í stjóm Verk- fræðingafélags íslands 1974-76, for- maður Jarðfræðafélags íslands 1974-76, formaður Jöklarannsókna- félags íslands 1986-89, formaður Vísindanefndar Háskólaráðs frá 1986. Sveinbjöm hefur skrifað mikinn fjölda tímaritsgreina, ritgerða og álitsgerða um jarðhita, jarðskjálfta, eldfiöll og skóla- og menntamál. Fjölskylda Sveinbjöm kvæntist 26.10.1957 Guðlaugu Einalsdóttur, f. 7.1.1936, bókara, en hún er dóttir Einars Jónssonar, bifvélavirkja í Reykja- vík, og konu hans, Kristínar Páls- dóttur. Börn Sveinbjöms og Guðlaugar em Droplaug, f. 8.7.1957, tannlækn- ir í Kópavogi, gift Þorvaldi Braga- syni, landfræðingi og deildarstjóra við Landmælingar íslands, og eiga þau eina dóttur, Bimu, f. 2.8.1989; Einar Öm, f. 19.5.1964, rafmagns- verkfræðingur í Gautaborg, kvænt- ur Soffíu Ósk Magnúsdóttur efna- fræðingi; Bjöm Már, f. 17.3.1969, iðnverkamaður í Kópavogi. Alsystkini Sveinbjöms eru Hólm- fríður, f. 1934, skrifstofumaður í Reykjavík; Sigfús, f. 1938, prófessor í rafmagnsverkfræði við HÍ; Helgi, f. 1942, jöklafræðingur við HÍ; Ólaf- ur Grímur, f. 1944, læknir í Bret- landi. Hálfbróðir Sveinbjöms, sam- feðra, er Hörður, f. 5.5.1948. Foreldar Sveinbjörns: dr. Björn Sigfússon, f. 17.1.1905, fyrrv. há- skólabókavörður, og fyrri kona hans, Droplaug Sveinbjömsdóttir, f. 19.5.1912, d. 20.7.1945, húsmóðir. Ætt Meðal föðursystkina Sveinbjöms er Halldór, fyrrv. skattstjóri Reykja- víkur. Bjöm er sonur Sigfúsar, hreppstjóra á Kraunastööum, Bjömssonar, b. á Granastöðum í Köldukinn, Magnússonar, prests á Grenjaðarstaö, Jónssonar, bróður Margrétar, ömmu Ólafs Friðriks- sonarverkalýðsleiðtoga. Önnur systir Magnúsar var Guðný, amma Haraldar Níelssonar prófessors. Móðir Bjöms á Granastöðum var Þórvör Skúladóttir, prests á Múla, Tómassonar, bróður Helgu, ömmu Helga Hálfdanarsonar, lektors og sálmaskálds. Móðir Sigfúsar var Hólmfríður, systir Petreu, ömmu Jakobs Gíslasonar orkumálastjóra. Hólmfríður var dóttir Péturs, b. í Reykjahlíð, bróður Sólveigar, langömmu Jóns Sigurðssonar iðn- aðarráðherra. Pétur var sonur Jóns, prests og ættföður Reykjahlíðarætt- arinnar, Þorsteinssonar. HaUdóra var dóttir HaUdórs, b. á Kálfaströnd við Mývatn, Sigurðs- sonar, b. þar, Tómassonar. Móðir Sigurðar var Guðrún, systir Sigurð- ar, föður Jóns, alþingisforseta á Gautlöndum. Guðrún var dóttir Jóns, ættföður Mýrarættarinnar, HaUdórssonar. Sveinbjörn Björnsson. Droplaug var dóttir Sveinbjamar, b. í Viðvík í HelgafeUssveit, Guð- mundssonar, ættföður Jónsnesætt- arinnar Ólafssonar, b. á Hamri, Guðmundssonar, Ólafssonar Snóks- dalín ættfræðings, Guðmundsson- ar. Móðir Sveinbjarnar var Kristín Jóhannesdóttir. Móðir Droplaugar var Jóhanna Sigríður Jónsdóttir. Afmæli Þórður Þórarinsson Þórður Þórarinsson, fyrrv. sjó- maður, Skúlagötu 66, Reykjavík, er sextugurídag. Starfsferill Þórður fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hann fór fiórtán ára til sjós og stundaði sjómennsku í rúm þrjátíu og fimm ár, lengst af háseti á togurum. Þórður var fyrst hjálparkokkur á togaranum Aski frá Reykjavík og síðan háseti þar en lengst af var hann háseti á togaranum Röðli frá Hafnarfirði. Þá var hann á strand- ferðaskipinu Heklunni á ámnum 1949-50 og á vertíðarbátum, eink- um frá Suðurnesjum. Hann stund- aði einnig síldveiðar í mörg sumur He.ll GriUkjúklingur S99l Fiskur 370i Bónus borgarinn Armúla 4* »8*990 ISVERÐIN í BORQIMMI Bamais Kr.59- MíllistterA Kr99- 'Shahe « K, 199- 1A.Rjóma ís k,329- BONUS ÍS HF. Armúla 42 Q82880 á bátum frá Reykjavík og Suður- nesjum. Hann kom síðan í land vegna vanheilsu sem hann hefur átt við að stríða á síðustu árum. Fjölskylda Fyrri kona Þórðar var Aðalheið- ur Kristín Helgadóttir, f. 12.10.1926, d. 1987, húsmóðir í Reykjavík en þauskildu. Þórður kvæntist 31.8.1987 Ingi- björgu Auði Óskarsdóttur, f. 11.8. 1939, húsmóður, en hún er dóttir Óskars Ingvarssonar, sjómanns og leigubílstjóra í Reykjavík, og konu hans Ellen Elmu ídu Hansen hús- móöur. Þórður átti sex systkini en tvö þeirra em látin. Systkini hans: Guðmunda Þóranna Þórarinsdótt- ir, húsmóðir í Reykjavík og á hún tvo syni; Guðný Jónína Þórarins- dóttir, húsmóðir í Reykjavík, var gift Ingólfi Eðvaldssyni sjómanni sem nú er látinn og eignuðust þau sjö börn; Jóhanna Margrét Þórar- insdóttir, nú látin, lengst af hús- freyja í Svefneyjum, var gift Nikul- ási Jenssyni, bónda þar og eignuð- ust þau sex börn; Guðrún Þórarins- dóttir, húsmóðir í Reykjavík, gift Guðmundi Hafsteini Sigurðssyni, yfirverksfióra hjá Slippfélaginu í Reykjavík og eiga þau fióra syni; Elín Valdís Þórarinsdóttir, hús- móðir í Reykjavík, ekkja eftir Ólaf Jónsson kaupmann og eignuðust Þórður Þórarinsson. þau þrjú böm; Jónas Gunnþór Vil- hjálmur Þórarinsson, nú látinn, matreiðslumeistari og forstjóri Bautans á Akureyri, var kvæntur Maríu Ingvadóttur og eignuðust þautvöböm. Foreldrar Þórðar vom Þórarinn Vilhjálmsson, f. 1904, d. 1988, starfs- maður Landhelgisgæslunnar og síðan hjá Slippfélaginu í Reykjavík, og kona hans, Guðrún Georgsdótt- ir, f. 1908, d. 1963, húsmóðir. Þórarinn var sonur Vilhjálms Bjamasonar, sjómanns í Reykjavík og í Keflavík, og konu hans, Guðnýjar Magnúsdóttur. Guðrún var dóttir Georgs Jónas- sonar, bátaformanns og bónda í Skagafirði, og Jónínu Jónsdóttur. Þórður verður að heiman á af- mæhsdaginn. Gunnar Þorkelsson, Sefiavegi 7, Reykjavík. Þórhildur Guðraundsdóttir, Engjaseli56, Reykjavík. Sigurður í sfeld Karlsson, 7 ; Bergstaðastræti48a, Reykjavík. Matthias Þór Bogason, Hrauntúni 7, Vestmannaeyjum. 80 ára Elise Eiriksson, Dagverðarvik, Glæsibæjarhreppi. Ingvar Sigmundsson, Esjubraut 23, Akranesi. ara Viktor Melsteð, : Fannafold 35, Reykjavík.; Þórhallur B. Bjarnason, Hraunbæ 96, Reylfiavík. Guðbjörn Jónsson, Álfhólsvegi 69a, Kópavogi. Guðmunda Björg Jóhannsdóttir, Bræðratungu 17, Kópavogi. Stefán Sveinbjörnsson, Fálkagötu 5, Reykjavík. Thcódóra Ragnarsdóttir, Grandarhúsum 8, Reykjavík. Hjördis Hilmarsdóttir, Austurbergi 36, Reykjavík. Ólafur R. Jónsson, Heiðvangi 26, Hafnarfirði. Ari Axel Jónsson, Jörvabyggð 14, Akureyri. IngibjörgH. Hafstað, Vík, Staðarhreppi. Svanfríður S. Eyvindsdóttir Svanfríður S. Eyvindsdóttir hús- móðir, Suðurgötu 53, Hafnarfirði, ersextugídag. Starfsferill Svanfríður fæddist á Siglufirði og ólst þar upp. Hún starfaði þar við sild og verslunarstörf til ársins 1953. Eftir að Svanfríður giftist árið 1954 flutti hún á Vesturgötuna og bjó þar til ársins 1966. Þá starfaði hún viö bamagæslu á leikvellinum að Vest- urgötuð. Arið 1966 flytur hún svo að Suður- götu 53 og hóf um sama leyti störf sem gæðaeftirlitsmaður hjá Bæjar- útgerð Hafnarfiarðar. Svanfríður hefur einnig starfað með kvenfélagi Alþýðuflokksins, og tekið þátt í störfum flokksins. Fjölskylda Svanfríður giftist árið 1954 Gunn- ari S. Ástvaldssyni, f. 11.9.1930 d. 13.7.1984, sjómanniog verksfióra. Gunnar var sonur Ástvalds Þorkels- sonar og Guðbjargar Sigríðar Benja- mínsdóttur. Þau búa í Hafnarfirði. Svanfríður og Gunnar eignuðust fiögur börn, þau eru: Steindór, f. 14.4.1954, framleiðslustjóri, kvænt- ur Þorbjörgu S. Gísladóttur og eiga þau fimm böm og þrjú fósturböm; Katrín, f. 25.5.1955, húsmóðir, gift Jóni M. Jónssyni og eiga þau eitt bam; Kolbeinn, f. 19.10.1956, starfar hjá ísal, kvæntur Önnu Björnsdótt- ur og eiga þau þrjú böm; og Eyvind- ur, f. 17.12.1964, trésmiður, kvæntur Hrafnhildi Jónsdóttur og eiga þau eitt bam og eitt fósturbam. Auk þess átti Svanfríður eitt bam fyrir, Óm S. Einarsson, f. 17.1.1950, skip- stjóra. Hann er kvæntur Jónu R. Stígsdóttur og eiga þau eitt bam. Svanfríður á eina alsystur, Rögnu, f. 6.3.1934. Hún er húsmóðir, gift Ólafi Oddgeirssyni rafvirkja og eiga þausexbörn. Auk þess á Svanfríður tvær hálf- systur, dætur Eyvindar frá fyrra hjónabandi. Þær heita: Guðbjörg, f. 3.9.1927, húsmóðir, gift Amari Ein- arssyni bifvélavirkja og eiga þau fiögur böm; og Laufey, f. 23.9.1928, húsmóðir, gift Kristmundi Halldórs- syni skipsfióra og eiga þau átta böm. Foreldrar Svanfríðar vom Eyvind- ur Júlíusson, f. 3.8.1898, d. 27.12. 1986, verkamaður, ogKatrín Sigríð- ur Jósefsdóttir, f. 27.3.1894, d. 18.12. 1957, húsmóðir. Þau bjuggu lengst af á Siglufirði. Ætt Foreldrar Eyvindar, föður Svan- fríðar, vora Júlíus Jónasson, f. 1.7. 1866, d. 1.12.1945, og Sólveig Ólafs- Svanfríður S. Eyvindsdóttir. dóttir, f. 19.10.1868, d. 21.6.1960. Foreldrar Katrínar, móður Svan- fríðar, voru Jósep Björnsson, f. 26.2. 1854, d. 31.5.1932, og Svanfríður Sig- urðardóttir, f. 13.12.1862, d. 30.5. 1922. Svanfríður verður að heiman á afmælisdaginn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.