Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991. Fréttir i Steingrímur Hermannsson á fundi í Stjórnarráðinu gær: Ég f er með f orystuna í Framsóknarflokknum „Til að taka af allan vafa um foryst- una í Framsóknarflokknum segi ég það strax að ég fer með forystuna í flokknum og er ekki að hætta for- mennsku. Við störfum hins vegar sem bræður þannig að hnífurinn kemst ekki á milli. Viðræður Hall- dórs við Jón Baldvin voru með fullu samþykki mínu og ég var þá þegar búinn að lýsa því yfir að allt stefndi í viðreisnarstjórn. Annars vil ég ekki kalla stjórn Alþýðuflokks og Sjálf- stæðisflokks viðreisn. Ég veit ekki hvað hún á að reisa við. Kannski Sjálfstæðisflokkinn," sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráð- herra meðal annars á blaðamanna- fundi í Stjórnarráðinu í gærdag. Steingrímur boðaði til fundarins til þess að skýra almennt frá afstöðu Framsóknarflokksins í stjórnar- myndunarviðræðunum og til að þakka blaða- og fréttamönnum sam- vinnuna á nýliðnu kjörtímabih. Brá fyrir kveðjutón í máli Steingríms. Ekki eðiilegt boð Steingrímur sagði að Ólafur Ragn- ar heföi boðið Jóni Baldvini að leiða ríkisstjórnina og að ekki mundi stranda á sér að ganga að slíku ef það þýddi að stjórn félagshyggju- flokka héldi velli. „Boð Ólafs Ragnars var þó ekki eðlilegt. Það hefði átt hafa samráð um það. Annars finnst mér ekki óeðlilegt að ég yrði ekki í ríkisstjórn undir forsæti Jóns Baldvins. Ég gæti þá snúið mér meira að flokksstarf- inu.“ Steingrímur sagði atburði síðustu daga ekki hafa grafið undan trausti milli formanna flokkanna i núver- andi starfsstjórn og vel væri hægt að hefja viðræður ef myndun við- reisnarstjórnar brygðist. Hann sagði feng í Kvennalistanum í ríkisstjórn þótt það lengdi kannski sjálfa stjóm- armyndunina. Þá sagðist hann alls ekki útiloka samstarf með Sjálfstæð- isflokki færi viðreisnarstjórn út um þúfur. Hins vegar yrði mjög erfitt að ná fram málefnasáttmála sem fram- sóknarmenn sættu sig við. Hann sagðist ánægður með við- ræður við Jón Baldvin en í þeim væru þó alvarlegir ásteytingarstein- ar, eins og sjávarútvegsmál, land- búnaðarmál og ríkisfjármál. „Annars eru tveir mánuðir síðan ég vissi fyrir víst að vissir aðilar í Alþýðuflokknum legðu mjög mikla áherslu á að ná samstarfi við Sjálf- stæðisflokkinn. Ég væri ekkert undr- andi þótt stjórnarsáttmálinn hafi verið tilbúinn fyrir nokkru. Það eru duglegir menn í þeim flokki.“ Hægritilhneigingar Jóns Sigurðssonar Steingrímur játti því að hann ætti við Jón Sigurðsson sem ekki hefði farið leynt með. sterkar hægritil- hneigingar. Steingrímur sagðist þó ekki áfellast Jón fyrir skoðanir hans. '' Steingímur sagði það hafa mjög góð áhrif á Framsóknarflokkinn að vera í stjórnarandstöðu. Ef af viðreisnar- stjórn yrði mundi flokkurinn veita harða en málefnalega stjórnarand- stöðu. Steingrímur Hermannsson: Ég er ekki að hætta formennsku í Framsóknar- Steingrímur viðurkenndi að EB- flokknum. DV-mynd BG málið hefði farið lengra og í meiri Sorpa þrefaldar rekstrarkostnað: Eyðing efna dýrari en inn* kaupsverðið - þegarumeiturefnieraðræða Meö tilkomu Sorpu, sorpeyðing- ar höfuðborgarsvæöisins, þrefald- ast kostnaður við sorpeyðingu. Hingað til hefur það kostaö 100 milljónir á ári að eyða sorpi en kemur til með að kosta 300 milijón- ir. Auk þess verða aöilar, sem þurfa aö losna við ýmis efni, sem flokk- ast undir eiturefni, aö borga hærra verö fyrir eyöingu efnanna heldur en það sem þeir keyptu efnin á. Ögmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri Sorpu, segir að kostnaðaraukinn sé vegna þess að nú veröi tekin upp nútímavinnu- brögð sem útheimti meiri útgjöld. „Hingað til hefur nánast ekkert veriö gert annað eri að urða sorpiö en sú meðhöndlun sem veröur hér eftir kostar miklu meira. Þaö er búið að fjárfesta fyrir 600 milljónir og þessi kostnaður á meðal annars að standa undir þvi,“ segir Ög- mundur. Ástæða þess aö eyðing sumra efna verður dýrari en innkaups- verö er sú að flytjaþarf efnin út til eyðirigar aö sögn Ögmundar. „Samkvæmt mengunarreglugerð ber mönnum að skila þessum efn- um til okkar og þeir þurfa að greiða fyrir það eyðingargjald sem er geysihátt og fer eftir eðlí þeirra efna sem um er að ræða, Þaö er enginn eyðingarmöguieiki nema aö flyfja þau til Danmerkur og það skýrir kostnaðinn,“ segir Ögmund- ur. Þaö efni sem dýrast er að eyða er PCB sem er í rafmagnsspennum og slíku. Þá er mjög dýrt að eyða leysiefnum og efnum frá rann- sóknastofum og efrialaugum. Eyð- ingargjald á kíló af siíkum efnum er í kringum 120 krónur meðan gjald fyrir venjulegt sorp er 2-3 krónur. Ögmundur segir að mörg fyrir- tæki mæti þessum kostnaði með því að ieita nýrra efna sem kosti minna í eyðingu og eru umhverfis- vænni. Þessu eru aöilar, sem þurfa aö greiöa þennan kostnað, ekki sammáia. Þeir halda því fram aö kostnaðaraukinn komi til með að farabeintútíverölagið. -ns Uf mitt breytt- ist þegar John dó - segir Yoko Ono sem nú dvelst hér á landi „Ég ætla mér að dveljast hér á landi í nokkra daga og vonast til að geta kynnst landinu sem mest á þeim tíma. Ég hef mikinn huga á að fara í Bláa lónið og fara í skoðunarferð til Hveragerðis og sjá Geysi gjósa,“ sagði Yoko Ono við blaðamenn á fundi sem hún hélt með þeim á Kjarvalsstöðum. Yoko er hingað komin til að fylgja úr hlaöi sýningu á rúmiega eitt hundrað verkum eftir sig, verkum sem ýmist eru hlutir, hljóðverk eða leiðbeiningarverk. Um leið og opnuð verður sýning á verkum Yoko verður einnig á Kjarvalsstöðum opnuð sýn- ing á verkum eftir listamenn sem lil- heyra flúxus-hreyfmgunni ep Yoko er einmitt ein þeirra. í fór með Yoko er Jon Hendricks sem er tahnn einn mesti sérfræðingur um flúxus-hreyf- inguna. Yoko Ono sagði að hún hefði verið spennt aö koma hingað. Hún fengi ávallt mikið af bréfum hvaöanæva úr heiminum og þau bréf, sem hún hefði fengið frá Islandi, væru mjög vel skrifuð og innihaldsrík og greini- legt væri að íslendingar væru mjög meðvitaðir um hvað væri aö gerast i heiminum. Á undanfómum árum hefur Yoko Ono látið mjög til sín taka í friðar- og mannúöarmálum og var henni tíðrætt um friöarhreyfingar sem hún styður eindregið: „Ég tel að friður í heiminum sé ekkert sem er ómögu- legt. Við erum vonandi skynsamari en fyrri kynslóðir, við höfum hæfi- leika til að gera friöinn raunvemleg- an og hjálpa hvert öðru.“ Aðspurð hvort hún væri öðruvísi manneskja en áður sagði Yoko að hún væri fyrst og fremst nútíma- manneskja sem lifað hefði breytta tíma: „Ég held að ég sé þolinmóðari núna. Áður þurfti ég að gera allt strax. Líf mitt breyttist þegar John dó, ég átti lengi mjög erfitt en þá fann ég upp á því að skrifa póstkort. Ef ég sá eitthvað eða las sem var athygl- isvert eða höfðaði til mín sendi ég allaf viðkomandi höfundi póstkort þar sem ég þakkaði fyrir mig. Þetta hjálpaði mér þá og hef ég haldið í þennan sið upp frá því.“ -HK Yoko Ono á blaðamannafundi i gær. DV-mynd HS hörku en hann ætlaðist til í kosninga- baráttunni. „Vandinn í EB-málinu var að aldrei var gmndvöllur 'til að ræða það mál- efnalega. Þetta voru tómar skeyta- sendingar." -hlh Stjómarmyndun: Atburðarásin áföstudag 8.00 - Jón Baldvin Hannibalsson fer á fund Steingríms Hermanns- sonar þar sem þeir fara yfir stöö- una. Jón Bald vin gerir Steingrími grein fyrir vilja meirihluta flokksstjórnar krata um að ganga til formlegra viðræðna við Sjálf- stæðisflokk um myndun ríkis- stjórnar. 9.00 - Steingrímur Hermanns- son ræðir stöðu mála við Ólaf Ragnar Grímsson. 10.00 - Steingrímur Hermanns- son fer á fund Vigdísar Finn- bogadóttur, forseta íslands, og gerir henni grein fyrir vilja sín- um til að leiða myndun félags- hyggjustjórnar. 11.00 - Ráðherrar Framsóknar- flokksins hittast í forsætisráöu- neytinu þar sem þeir fara -yfir stöðuna. 11.15 - Ólafur Ragnar Grímsson fer á fund forseta. Eftir fundinn segir hann að ekkert í mannlegu valdi geti stöðvað þá fyrirætlun Jóns Baldvins Hannibalssonar að gera Davið Oddsson að kóngi yfir Islandi. 11.40 - Halldór Ásgrímsson, Guðmundur Bjarnason og Ólafur Ragnar Grímsson ræðast dágóða stund við í fordyri fundarher- bergis ríkisstjórnarinnar. Að því loknu segir Halldór Ásgrímsson aö Jón Baldvin hafi ekki boðaö sig á sinn fund. Jón vilji frekar ræða viö Davíð. 15.15 - Davíð Oddsson gengur á fmid forseta þar sem hann mun hafa lýst sig reiðubúinn að leiða formlegar viðræður um stjórnar- myndun. 16.00 - Þingflokksfundur hjá krötura. Jóni Baldvin veitt imi- boö tfi að benda á að Davíð Odds- syni verði falið umboð til stjórn- armyndunar. 16.00 - Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir og Kristin Halldórsdóttir, Kvennalista, ganga á fund for- seta. Ræða stöðuna en mæla ekki meö að neinn fái stjórnarmynd- unarumboð. 16.05 - Blaðamannafundur hjá Steingrími Hermannssyni í fund- arherbergi ríkisstjómarinnar. Steingrímur gerir grein fyrir af- stöðu Pramsóknar i óformlegum stjórnarmyndunarviöræöum undanfarna daga. Fundurinn ber yfirbragð kveöjustundar þar sem blaöa- og fréttamönnum er þakk- að samstarfið. 17.00 - Jón Baldvin Hannibals- son gengur á fund forseta. Þar mun hann hafa bent á aö Davíð Oddsson fengi umboö til stjómar- myndunar. 18.00 - Forseti íslands kveður Davíö Oddsson á sinn fund og felur honum umboð til myndun nýrrar ríkisstjórnar er nióti meirihlutafylgis á Alþingi. Davíö segir viö DV að formlegar viö- ræður við Alþýðuflokk hcljist klukkan 14.00 á laugardag. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.