Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 27: APRÍL 1991.
Fréttir
Arnar Jónsson sem Pétur Gaut-
ur.
Þjóðleikhúsið:
Dræm aðsókn
aðPétriGaut
Tæplega þrjú þúsund manns
hafa séð Pétur Gaut í þau tíu
skipti sem leikritið hefur verið
sýnt. Þetta er lítið þegar miðað
er við að Þjóðleikhúsið tekur 522
í sæti. Að meðaltali er þetta rúm-
lega hálfur salur á hverja sýn-
ingu en þess ber að'geta að fullt
var á sérstakri hátíðarsýningu á
verkinu við opnun Þjóðleikhúss-
ins og var það boðssýning. Þá var
húsfyllir á frumsýningu eins og
venja er.
Þessar staðreyndir sýna að
frekar fátt hefur verið um mann-
inn á þeim átta sýningum sem
síðan hafa verið, eða rúmlega
þriðjungsnýting á salnum. Þetta
er lítil aðsókn á sýningu þegar
þess er gætt aö uppfærslan á Pétri
Gaut .var rajög dýr og aö hver
sýning er kostnaðarsöm.
Gísli Alfreðsson þjóðleikhús-
stjóri sagði að það fylgdi oft að
þegar ein sýning væri mjög vin-
sæl, eins og Söngvaseiður sem
sýndur er fyrir fúllu húsi á hverri
sýningu, kæmi þaö niður á sýn-
ingu sem gengi við hlið hennar.
Hann tók það einnig fram að ef
mikið tap væri á einhverri sýn-
ingu i Þjóðleikhúsinu væri síö-
ástasýningingauglýstfljótt. -HK
Ólafsjgörður:
Miklarskemmdir
í gagnfræðaskóla
Helgi Jónsson, DV, Ólafsfiröi:
Brotist var inn í gagnfræöa-
skólann hér aðfaranótt síöasta
vetrardags. Þegar kennarar
komu til vinnu á miðvikudags-
morgun blasti við þeim ófógur
sjón. Rúða í suðurálmu hafði ver-
ið mölbrotin, hurð á kennara-
stofu brotin upp og öllu ruslað
þar til og á skrifstofu skólastjóra
var meðal annars gramsað í pen-
ingaskáp.
Þá voru peningar nemenda úr
skólasjoppunni teknir. Alls mun
þýfið, sem þjófurinn hafði á brott
með sér, nema um 50 þúsund
krónum. Rannsóknariögreglan á
Akureyri kom og rannsakar nú
máhö.
Ósinn Homafirði:
Hvalkjötið
ervinsætt
„Hvalkjötið hefur reynst ótrú-
lega vinsælt þegar viö höfum ver-
ið meö það á matseölinum og fólk
virðist aUs ekki hrætt við að
prófa,“ segir Óðinn Eymundsson,
veitingamaður á Ósnum á Höfn í
Homaörði, en hann er einn
þeirra sem bjóða upp á smáhveli
„Viö erum aðaUega með hrefnu,
hnísu og höfrunga sem koma í
net bátanna héma. Við höfum
eldað til dæmis höfrungapipars-
teik sem er rajög góð og er þá
steikt eins og venjuleg nautapip-
arsteik. Svo er Uka raiög gott aö
elda kjötið „Gordon Bleu“ og þá
er sett skinka og ostur inn í,“
segir Óðinn.
Hvalkjöt er afar ódýrt miðað við
til dæmis nautakjöt og kindakjöt
og kostar hvalkjötssteik um 700
krónur á Ósnum. Óðinn segir að
hann muni bjóða upp á hvalkjöt
svo lengi sem hann fái það frá
sjómönnunum á staðnum.
-ns
„KA-moldin“ keyrð í kirkjugarðinn á Akureyri:
Verðum að fá annan
kirkjugarð í Þorpið
- segir Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður Þórs
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta er auðvitað mjög slæmt mál
og viö Þórsarar erum með gæsahúð
yfir þeirri tUhugsun að láta jarðsetja
okkur í KA-mold. Það gæti hugsan-
lega orðið til þess aö menn gengu
aftur 1 talsverðum mæli og það er
mjög óæskUegt," segir Aðalsteinn
Sigurgeirsson, formaður íþróttafé-
lagsins Þórs á Akureyri.
Ástæða þessara ummæla er að
þessa dagana er verið að vinna að
jarövegsskiptum þar sem hið nýja
íþróttahús KA á aö rísa á svæði fé-
lagsins. Þar er mikU mold grafin upp
og henni ekið í kirkjugarð bæjarins
og hún notuð þar til uppfylhngar og
væntanlega verða borgarar á Akur-
eyri jarðsettir í þessari mold í fram-
tíðinni.
„Það er auövitaö titringur í mönn-
um út af þessu máli. Þórsarar sem
búa flestir í Glerárhverfi hafa orðiö
að sætta sig við það til þessa að verða
lagöir til hinstu hvílu á yfirráða-
svæði KA „suður á Brekkunni" en
heldur þykir okkur málið versna ef
það er æúun bæjaryfirvalda að leggja
okkur þar í KA-mold. Sumir Þórsara
hafa rætt um það að láta jarðsetja
Aðalsteinn Sigurgeirsson, formaður Þórs, skoöar hér
Akureyrar.
,KA-moldina“ sem ekið hefur verið á svæði Kirkjugarða
DV-mynd gk
sig i grafreitum út í sveitunum hér
í Eyjafirði, en eftir að sú hugmynd
kom upp aö við fáum hér annan
kirkjugarð í Þorpið hefur henni vax-
ið fylgi," segir Aðalsteinn Sigurgeirs-
son, formaður Þórs.
Deilur um Fiskmar hf. í Ólafsfirði:
Bæjarsjóður tapar
sex milljónum
Vormyndir eru þegar farnar að berast. Höfundur þessarar myndar nefnir
hana: Aleinn.
Helgi jónsson, DV, Ólafefirði:
Snarpar umræður áttu sér stað í
bæjarstjóm Ólafsfjarðar þriöjudag-
inn 23. apríl. Til umræðu var Fisk-
marsmálið svokallaða en það snýst
um ábyrgöir sem falla á bæjarsjóð.
Fiskmar hf., sem framleiddi fisknasl,
varð gjaldþrota í nóvember. Bærinn
hafði tekið á sig ábyrgðir en nú er
komiö í ljós aö engin veð eru fyrir
þeim ábyrgðum. Talið er að bærinn
tapi 6 milljónum króna á þessu máli.
Á bæjarráðsfundi í síðustu viku
var ákveöiö að fram færi úttekt aðal-
endurskoðanda og skoðunarmanna
bæjarins á veitingu ábyrgöarinnar. í
byrjun fundarins bar Guðbjörn Am-
grímsson, fulltrúi minnihlutans,
fram þá tillögu að fresta umræðu um
málið þar til niðurstöður úr úttekt-
inni lægju fyrir.
Siguröur Bjömsson, bæjarfulltrúi
og framkvæmdastjóri Fiskmars um
skeið, lét bóka þau skilyrði fyrir til-
lögu Guðbjöms að Björn Valur Gísla-
son, oddviti vinstri manna, bæðist
afsökunar og drægi til baka ummæli
sín í Degi 18. apríl um að forráða-
menn Fiskmars hefðu svikið út
ábyrgðir úr bæjarsjóði. Björn Valur
taldi ekki ástæöu til þess.
Umræðurnar urðu fjörugar og
snarpar og stóöu í á fjórða tíma.
Væntanlega veröur framhald á þessu
máli þegar niðurstaða úttektarinnar
hggur fyrir í byrjun maí.
Krakkar, krakkar:
Takiðfram myndavélina
og takið vormyndirnar
- vegleg verðlaun í boði
DV, Iþrótta- og tómstundaráð
Reykjavíkur og Hans Petersen hf.
hafa ákveðið að efna til ljósmynda-
samkeppni meöal nemenda 8., 9. og
10. bekkjar grunnskólanna um allt
land, undir nafninu „Vormyndir
’91.“
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt
í keppninni ættu að senda myndirnar
til DV sem allra fyrst, merktar: „Vor-
myndir," DV Þverholti 11, Reykja-
vík.
Þær geta verið ýmist svart/hvítar
eða í lit, og jafnvel myndir sem þiö
þegar eigið í fórum ykkar og tengjast
vorinu á einhvem hátt.
Bestu myndirnar verða svo valdar
úr jafnóðum og þær berast og birtar
í helgarblaði DV. Úrslitin verða til-
kynnt þann 18. maí næstkomandi.
Þáð er til mikils að vinna, þvi 1.
verðlaun eru Canon EOS 1000
myndavél frá Hans Petersen með
35-80mm auka linsu og auka flassi,
aö verðmæti 35 þúsund krónur.
Önnur verðlaun eru vöruúttekt hjá
Hans Petersen að verðmæti 10 þús-
und krónur, en þriöju til fimmtu
verðlaun eru fimm þúsund króna
vöruúttektir á sama stað.
Drífið ykkur nú og verið með!
IÓ
Þjófnaöir úr bílum:
Tugumþúsunda
í peningum og
ávísunum stolið
24 þúsund krónum og ávísunum
var stolið úr bíl frá vélamiðstöð
Reykíavíkurborgar í vikunni. Bíl-
stjórinn brá sér inn í hús í stutta
stund viö Lindargötu 48 og skildi
bilinn eftir ólæstan. Þegar hann
kom út aftur voru fjármunirnir
horfnir. Ávísanimar voru stílaðar
á íþrótta- ogtómstundaráð Reykja-
víknr, að upphæö 10 og 27 þúsund,
Úttektarseðlum var einnig stolið.
í fyrrakvöld var tösku stolið úr
bíl við sölutum í Vesturbænum. í
töskunni vom ávísanaeyöublöð og
skilriki. Ökumaðurinn skiidi bílinn
eftir ólæstan. Lögreglan segir að
þjófnuðum úr bílum hafi fækkað
nokkuð að undanfórnu miðað við
það sem áður var. „Fóik virðist
hafa tekiö viö sér og passað betur
upp á að læsa bflum sínum. Þetta
hefur orðið til þess að einnig hefúr
dregið úr þjófnuöum á bifreiðum,"
sagði talsmaður lögreglunnar í
Reykjavík í samtali við DV.
Lögreglan brýnir þó fyrir bíleig-
endum og skilja bílana ekki eftir
ólæsta - sama í hve stuttan tíma
menn bregöa sér frá.
-ÓTT