Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Qupperneq 11
LAUGÁRDÁGÚR 27. APRÍL 1991.
11
Bart Simpson víst ekkert gáfnaljós.
hann er því varla álitinn kennarasleikja.
Simpson
Og enn skortir ekki sjálfsálitið hjá kauða.
Þarna á stráksi sér einn vildarvin sem gerir hann að
súpernemanda..., eða þannig sko.
Jóhann Jónsson í Garði:
Heimsmeistari
í langstökki
í ílokki 70 ára í USA
Jóhann Jónsson varð heimsmeistari í þristökki i USA i fyrra. Hér er
hann að undirbúa hástökk án atrennu á öldungamóti íslands á dögunum.
DV-mynd Hson
Jóhann Jónsson,' „unglingurinn"
úr Víöi í Garði, lætur ekki sitt eftir
liggja því á íslandsmóti öldunga
innanhúss fyrir stuttu sigraði hann
með yfirburðum í hástökki án at-
rennu, stökk 1,25 m. Geri aðrir bet-
ur þótt yngri væru.
Varð heimsmeistari
Jóhann varð heimsmeistari í þrí-
stökki í 70 ára flokknum á heims-
meistaramótinu í Oregon í Banda-
ríkjunum í fyrra með 9,54 m stökki
en best á hann 9,60 m. Á sama
móti náði hann 2. sæti í lang-
stökki, 4,10 m, og 3. sæti í spjót-
kasti, 37,52 m. Til gamans má geta
þess að Jóhann setti íslandsmet
sitt í langstökki í fyrra og er það
4,51 m.
Flutti í Garðinn
Jóhann er fæddur Austfirðingur
og stundaði mikið frjálsar íþróttir
á sínum yngri árum með UÍA.
Hann átti þá best 2.02,0 í 800 m
hlaupi og 11,8 í 100 m hlaupi en
fyrir austan var hlaupið á grasi á
þeim árum sem er náttúrlega mun
þyngra.
Þrítugur að aldri flutti Jóhann á
Suðurnesin, í Garðinn, og var ekki
að sökum að spyrja, hann varð einn
af frumkvöðlum þess aö stofnuð
var knattspyrnudeild í Garði. Sú
deild hefur dafnað vel og leikur nú
í 1. deildinni. Jóhann lék sjálfur
með Víði, Garði, fram undir fimm-
tugt með góðum árangri.
Keppi í fimm ár enn
Jóhann var hinn hressasti þegar
hann hafði lokið keppni á öldunga-
móti íslands á dögunum. í samtali
við DV sagðist hann alla tíð hafa
verið í íþróttum.
„Ég hef stundað íþróttaiðkun frá
17 ára aldri án þess að gera hlé þar
á. Æth maður reyni ekki að halda
út svona 5 ár í viðbót, það er að
segja að keppa. Auðvitað æfi ég og
skokka miklu lengur," sagði hinn
hressi „unglingur" að lokum og fór
að undirbúa atrennu að einu stökk-
inu til viðbótar í hástökkinu þó svo
að keppninni sjálfri væri lokið.
Já, Jóhann lætur ekki deigan
síga.
-Hson
300 KR.
VERÐ FRÁ 1 .089.000 KR.
SKEIFUNN117 ■ REYKJA VIK ■ SIMI688 850