Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Side 16
16
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991.
Skák
Nýtt skákmannsefni Dana
Danir eiga nú þrjá stórmeistara og
vart kæmi á óvart þótt sá fjórði bætt-
ist í hópinn á næstu árum. Á skák-
þingi þeirra í Kaupmannahöfn um
páskana varö 17 ára piltur, Peter
Heine Nielsen, efstur ásamt Erling
Mortensen. Enginn vafi leikur á að
pilturinn sá er mikið skákmannsefni.
Nielsen og Mortensen fengu 7,5 v.
af 11 mögulegum og skutu stórmeist-
aranum fræga, Bent Larsen, ref fyrir
rass en hann varð þriðji með 7 v.
Stórmeistarinn Lars Bo Hansen og
Karsten Rasmussen fengu 6,5 v„ Lars
Schandorff og Klaus Berg fengu 5,5
v„ „lange“Jens Kristiansen 5 v„ Jan
Sörensen 4,5 v„ Carsen Höi og Björn
Brinck-Claussen, 4 v„ og Allan Holst
rak lestina með 2,5 v.
Örlagaríkar
morgunskákir
Lengstum var útlit fyrir að Bent
færi með sigur af hólmi - eftir níu
umferðir hafði hann sjö vinninga og
var einn efstur. Mótið var hins vegar
skipulagt með þeim hætti sem frænd-
um vorum á Norðurlöndum er ein-
um lagiö: Tvær síðustu umferðirnar
hófstu kl. 9 árdegis - það átti eftir
að koma Larsen í koll!
Skákmenn eru þekktir fyrir flest
annaö en að vera miklir morgun-
hanar og margir hafa megnustu óbeit
á morgunumferðum. Bent Larsen er
svo sannarlega í þeim hópi. Hann
hefur margoft, bæði í ræðu og riti,
hneykslast á þeim mótum þar sem
skákmaöurinn er skikkaður til að
tefla áður en heilastarfsemin er kom-
in í gang. Raunar vekur furðu að
hann skuli hafa sætt sig við dagskrá
mótsins möglunarlaust. Vitaskuld
fór það þannig að Larsen tapaði
tveimur siðustu skákunum - fyrst
fyrir Klaus Berg og síðan úrslitaskák
fyrir Nielsen, eftir að hafa glutrað
niður yfirburðastöðu.
Peter Heine Nielsen
Danir telja Erling Mortensen lík-
legri sigurvegara í einvíginu um
Danmerkurmeistaratitilinn en Peter
Heine Nielsen gæti hæglega komið á
óvart. Hann hefur þegar sannað
ágæti sitt á alþjóðavettvangi. Þriðja
sæti hreppti hann á heimsmeistara-
móti sveina, 17 ára og yngri, í Singa-
pore og titill alþjóðlegs skákmeistara
er í sjónmáli. Á mótinu í Kaup-
mannahöfn var hann langt fyrir ofan
áfanga og hefur einn fyrir frá al-
- óvænt úrslit á skákþinginu í Kaupmannaliöfn
Bent Larsen tapaði tveimur siðustu skákunum á danska meistaramótinu í Kaupmannahöfn og varð að
sætta sig við þriðja sætið.
þjóðamóti í Kecskemet í Ungverja-
landi.
Nielsen hafði heppnina með sér í
lokaskákinni við Larsen en það er
svo sem ekki öllum gefið að snúa á
meistarann. Taflmennska hans á
mótinu var annars létt og leikandi.
Stysta vinningsskák hans var gegn
nýjasta stórmeistara Dana, Lars Bo
Hansen, sem hlaut útnefningu á
þingi FIDE í Novi Sad í desember.
Hvítt: Peter Heine Nielsen
Svart: Lars Bo Hansen
Caro-Kann vörn
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4
Dc7
í stað 4. - Bf5, 4. - Rd7, eða 4. -
Rf6, bryddar stórmeistarinn upp á
nýstárlegum leik.
5. Bd3 Rd7 6. Rf3 Rgf6 7. Rxf6+ Rxf6
8. Re5 e6 9. 0-6 Bd6?!
Traustara er 9. - Be7 ásamt stuttri
hrókun.
10. Hel c5 11. Bb5+ Ke7 12. c3 Hd8 13.
Bg5 cxd4 14. cxd4 Db6?
15. Dh5! Hf8
Aðrir leikir liggja ekki á lausu, þar
sem 15. - Bxe5 16. dxe5 Dxb5 17.
exf6+ gxfB 18. Bxf6+ KxfB 19. Dxb5
kostar drottninguna.
Skák
Jón L. Árnason
16. Rc4! Dc7
Auðvitað ekki 16. - Dxb5? 17. Bxf6+
og drottning svarts fellur í næsta
leik.
17. Re3! Kd8
Svartur er bjargarlaus. Hótunin
var 18. Rd5 + ! o.s.frv.
18. Dxh7 Be7 19. Dxg7 Hg8 20. Dxf6!
Hxg5
Eða 20. - Bxf6 21. Bxf6+ og hvítur
vinnur mann.
21. Dh8+
Og svartur lagði niður vopn.
Hvítt: Bent Larsen
Svart: Peter Heine Nielsen
Kóngsindversk vörn
1. Rf3 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. d4 (M) 6. Be2 e5 7. 0-0 Rc6 8. d5 Re7
9. Khl!?
Megintilgangur þessa dularfulla
kóngsleiks er vafalítið að „taka
strákinn út úr teóríunni“.
9. - Rd7 10. Bd2 Kh8 11. b4 Rg8?
Heimsmeistarinn, Kasparov, hefur
dálæti á þessari tilfæringu riddarans
en í þessari stöðu er hún alltof hæg-
fara.
12. Hcl f5 13. exf5 gxf5 14. Rg5 Rdf6
15. f4!
Ljóst er að eitthvað hefur farið úr-
skeiðis hjá svörtum.
15. - e4 16. Be3 h6 17. Rh3 Re7 18. Dd2
a6 19. Rf2 Bd7 20. Rfdl! De8 21. Bd4
Hd8 22. Re3
Kenningar Nimzowitsch hafa ætíð
verið hátt skrifaðar þegar Larsen er
annars vegar. Nú er riddarinn kom-
inn á rétta reitinn samkvæmt kenni-
setningunni - þar sem hann skorðar
peð svarts.
22. - Bc8 23. a4 Df7 24. a5 Hg8 25. g3
Kh7 26. Hgl h5 27. h4 Bh6 28. Bfl Hg6
29. Bh3 Hdg8 30. Re2 c6 31. dxc6 bxc6
32. Bal d5 33. b5!? dxc4
34. Rxc4?
í stað 34. bxc6 fer Larsen á skipta-
munsveiðar með afdrifaríkum afleið-
ingum.
34. - axb5! 35. Re5 Dd5! 36. Dxd5 Rfxd5
37. Rxg6 Kxg6 38. Rd4 Bd7
Frelsingi hvíts á a-línu er meinlaus
en svartur getur í ró og næði bætt
stöðu manna sinna og þokað frels-
ingjum sínum á drottningarvæng af
stað. Hvítur er ráðþrota gagnvart
þessari áætlun.
39. Rb3 Ha8 40. Be5 Re3 41. Hal Rc2
42. Hadl Rd5 43. Hd2 Rcb4 44. Bfl Bf8
45. Bd4 Be6 46. Be2 Rc7 47. Rc5 Bd5
48. Hb2 Rd3! 49. Bxd3 exd3 50. Kh2 Re6
51. Rxe6 Bxe6 52. Hal Ha6 53. Hel c5
54. Bf2 b4 55. He5 c4 56. Hd2 Hd6 57.
Bb6 Kf7
Og Larsen gafst upp.
-JLÁ
Sviðsljós
Vaknaði við trompetleik og söng
„Ég hef nú oft lent í uppákomum
um ævina en mér hefur aldrei áður
verið komið svona rosalega á óvart,“
sagði Helgi Jóhannsson, forstjóri
Samvinnuferöa/Landsýnar, um það
uppátæki starfsmanna hans að vekja
hann af værum blundi á afmæhs-
daginn með trompetleik og söng í
garðinum hans.
í tilefni af fertugsafmæli Helga
fengu starfsmenn Samvinnu-
ferða/Landsýnar Magnús Kjartans-
son til liðs við sig og við trompet-
undirleik sungu þeir „Hann á af-
mæli í dag“ nokkrum sinnum, eða
þar til Helgi vaknaði.
„Ég heyrði lúðrablásturinn í gegn-
um svefninn en hélt mig væri aö
dreyma. Svo reyndist hann aðeins
of falskur til að um draum gæti verið
að ræða,“ sagði Helgi skellihlæjandi.
Hvorki Magnús né starfsmennirnir
voru almennilega vaknaðir svo
snemma morguns svo raddböndin
voru rám og trompetleikur Magnús-
ar ekki upp á marga fiska.
En þegar þeir höfðu endurtekið
afmælissönginn þrisvar sinnum birt-
ist syfjulegt andlit Helga í glugganum
og loks skreiddist hann út á svalirnar
í náttslopp með „koddaförin á
kinninni" eins og einn starfsmaður-
inn komst að orði.
Eiginkona Helga, Hjördís Bjarna-
son, vissi af uppátækinu og var því
búin að hella upp á kaffi og súkku-
Að lokum skreið Helgi út á svalirn-
ar, nývaknaður og ruglaður í ríminu.
Eiginkona hans, Hjördís Bjarnason,
vissi af uppátækinu.
laði en starfsmennirnir færðu þeim
rúnnstykki með morgunkaffmu.
„Þetta var glæsilegt hjá þeim og
sýnir betur en nokkuð annað hversu
gott fólk vinnur hjá okkur," sagði
Helgi og virtist ekki enn búinn að
ná sér.
Starfsmenn Samvinnuferða/Landsýnar komu forstjóra sínum heldur betur á óvart þegar þeir vöktu hann með því
að syngja afmælissönginn er Helgi varð fertugur. DV-myndir S