Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Side 27
26
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991.
Á samningi yið þrjú
stór og virt óperuhús
- DV heimsækir Sólrúnu Bragadóttur, óperusöngkonu í Þýskalandi
Jóhanna S. Sigþórsdóttir, DV, Þýskalandi:
Sólrún Bragadóttir sópransöng-
kona er vafalítið að gera það núna
sem allar ungar söngkonur dreymir
um. Um þessar mundir er hún á
samningi við þrjú stór og virt óperu-
hús í Þýskalandi - í Hannover,
Dússeldorf og Múnchen. Hún hefur
hlotið einróma lof gagnrýnenda þar
í landi fyrir frábæran söng og ekki
síður góða frammistöðu á sviðinu.
Tíðindamaöur DV í Þýskalandi
ákvað að slá á þráðinn til Sólrúnar
í aprílbyrjun og athuga hvort unnt
væri að mæla sér mót við hana í
Hannover þar sem hún hefur fast
aðsetur. Það var auðsótt mál og
nokkrum dögum seinna bankaði
blaðamaður upp á hjá henni og sam-
býlismanni hennar, Þórarni Stefáns-
syni píanóleikara, þar sem þau búa
í virðulegu húsi ekki langt frá mið-
bænum. Þau komu til dyranna hress
og kát. Sólrún var nýkomin heim af
æfingu og átti að fara á aðra slíka
um kvöldið.
„Gjörið svo vel og gangið í bæinn,
þið komið alveg mátulega í kaffið,
kakan er rétt að verða tilbúin í ofnin-
um, ég vona bara að hún verði í
lagi,“ sagði þessi glaðværa, unga
kona. Það geislaði af henni lífskraft-
urinn og ánægjan yfir því að vera
til. Hún kemur greinilega til dyranna
eins og hún er klædd og maður geng-
ur þess ekki dulinn að hér fer sterk-
ur persónuleiki.
Þau Sólrún og Þórarinn hafa á
leigu mjög vistlega íbúð og hafa kom-
ið sér þar vel fyrir. Þar er bæði hátt
til lofts og vítt til veggja og kemur
það sér vel þar sem hljómlistin er í
hávegum höfð. Úr stofunni er gengið
inn í vinnuherbergi þeirra þar sem
stór flygill tekur mesta plássið. Uppi
á veggjum hanga myndir sem teknar
hafa verið af Sólrúnu í hinum ýmsu
hlutverkum. í hillum eru nótnabæk-
ur og tónlistarbókmenntir.
„Við erum svo heppin," sagði Sól-
rún, þegar hún kom inn í stofu með
veitingarnar, „aö búa á fyrstu hæð-
inni. Fyrir ofan okkur býr síðan
gömul kona sem hefur feikilegan
áhuga á óperusöng og píanóleik. Þess
vegna getum við æft okkur hér að
vild. Blessuð gamla konan hefur
meira að segja fundið að því við okk-
ur að viö æfum ekki nógu mikið svo
að hún heyri ekki nógu oft í okk-
ur.“
Sólrún er borin og barnfædd í
Reykjavík. Foreldrar hennar eru
Inga Björk Sveinsdóttir og Bragi Sig-
urþórsson verkfræðingur.
„Móðir mín ól okkur systkinin upp
af miklum myndarskap. Þegar við
vorum orðin nægilega stálpuð að
hennar mati dreif hún sig í mennta-
skóla og tók stúdentspróf. Aö því
loknu hélt hún í Kennaraháskólann
og lauk þaðan prófum. Hún er mikil
listakona í sér og við systkinin höfum
hvatt hana til að fara út á þá braut.
Hún er virkilega hæflleikarík á því
sviði og viö vonum að einhvern tíma
fái almenningur að njóta verka
hennar," sagði Sólrún og greinilegt
var að hugur hennar er ekki bara
við það sem hún er að fást úti í hinum
stóra heimi heldur einnig hjá fjöl-
skyldunni heima á íslandi.
Teiknaði söngkonur
sex ára
Sólrún byrjaöi mjög ung að læra
tónlist og fór sömu leið og fjölmörg
börn gera ennþá - lærði fyrst á
blokkflautu og síðan á píanó. Hún
var jafnframt mjög áhugasöm í kór-
um alla tíð og söng því alltaf mikið.
„Það hvarflaði þó aldrei að mér að
ég yrði söngkona seinna á lífsleiö-
inni, það er af og frá. En þó gerðist
svolítið skrítið fyrir stuttu þegar
móðir mín var að taka til í gamla
dótinu mínu frá því að ég var stelpa
heima. Hún fann nefnilega fjölmarg-
ar teikningar eftir mig frá því að ég
var sex ára þar sem getur að líta
söngkonur á sviði. Ég man sjálf ekk-
ert eftir þessu og ég get ekki ímyndað
mér að ég hafl þekkt eöa hlustaö á
einhverja söngkonu á þessum tíma.
Þetta hlýtur bara að hafa verið eitt-
hvað í undirmeðvitundinni sem boð-
aði það sem koma skyldi.“
- Þú hefur ekki verið þeirrar gerðar
þegar þú varst lítil að hafa farið upp
á stól þegar gestir komu og taka fyr-
ir þá lagiö?
„Nei, það held ég ekki. Hins vegar
segir móðir mín að ég hafi verið tölu-
vert athyglisfrek sem barn. í skóla
söng ég stundum og mér þótti alveg
sjálfsagt aö bregðast vel við þegar ég
var beðin um að syngja eitthvert lag,
eins og „Blátt lítiö blóm eitt er“ eöa
eitthvaö því um líkt. En ef ég var
beðin um að spila eitthvaö á píanóið
þá reyndi ég helst að komast hjá því.
Þaö má segja aö söngurinn hafi
alla tíð verið eins og hver annar sjálf-
sagður hlutur í tilveru minni án þess
þó að ég hafi stefnt að ákveðnu marki
á því sviði. Þegar ég var aftur á móti
farin að læra söng og sækja tíma í
faginu var ég oft spurð að því hvað
ég ætlaði að verða. Það var aldrei
tekiö alvarlega þegar ég svaraði því
til að ég ætlaði mér jafnvel bara að
leggja sönginn fyrir mig og láta þar
við sitja.“
Ætlaði að verða
matvælafræðingur
Sem barn fór Sólrún í Barnamúsík-
skólann og síðan lá leiðin í Tónlistar-
skóla Kópavogs og loks í Tónlistar-
skólann í Reykjavík. Allan tímann
söng hún í kórum og haföi mikið
gaman af því. Þegar hún var sautján
ára fór hún á fund Elísabetar Erl-
ingsdóttur söngkonu og spurði hana
hvort hún gæti tekið sig i einkatíma.
„Ætlun mín var samt ekki önnur
en sú að mig langaði aö læra svolítið
í söng til þess að geta sungið betur í
kirkjukórnum. Mig langaði aö kynn-
ast rödd minni betur og reyna að
læra að beita henni rétt. Þegar ég
hafði verið hjá Elísabetu um nokkurt
skeið kvað hún upp úr með það að
ég ætti að verða söngkona. Ég hváöi
og vissi ekki hvaðan á mig stóð veðr-
ið. Þegar ég kom heim með þessi tíð-
indi hló fjölskylda mín bara að þessu
eins og hverju öðru gamni.
Og enn leiö nokkur tími þar til
stóra ákvörðunin var tekin. Ég lauk
menntaskóla og eftir stúdentsprófið
ætlaði ég í háskólanám. Mig hafði
lengi langaö til þess að læra arkitekt-
úr en hætti við það. Þess í stað innrit-
aðist ég í Háskóla íslands og var ætl-
un mín að læra matvælafræði. En
ég mætti aldrei í fyrsta tímann um
haustið því að þá haföi söngurinn
orðið ofan á.
Ýmislegt varð til þess að ég ákvað
að freista gæfunnar í frekara söng-
námi. Margir hvöttu mig með ráðum
og dáö að láta til skarar skríða og
halda náminu ótrauö áfram. Einkum
varð það þó fyrir góð ráð Halldórs
Hansen læknis að ég tók þessa erfiðu
ákvörðun. Hann er vægast sagt mik-
ill áhugamaður um söng og segja
má að sópransöngkonur séu sérsvið
hans. Halldór er ótrúlega vel að sér
og hefur óvenju mikla yfirsýn og
þekkingu. Hann er guðfaðir minn í
söngnum og minn aðalráðgjafi. Ég
hef alltaf samband við hann og hann
fylgist með hverju skrefi sem ég tek
í sönglistinni. Ég spyr hann til dæm-
is alltaf um framfarir mínar og hann
getur dæmt um þær betur en nokkur
annar. Það var hann sem benti okkur
Bergþóri Pálssyni, fyrrum eigin-
manni mínum, á í hvaða skóla við
skyldum fara. Hann ráðlagði okkur
að sækja um skólavist í tónlistarskól-
anum í Bloomington í Indiana-fylki
í Bandaríkjunum. Þetta gerðist allt
mjög hratt. Okkur hafði verið sagt
að það tæki jafnan heilt ár að kom-
ast inn í skóla í Bandaríkjunum. Við
sendum umsóknirnar utan í júní og
vorum komin út í ágúst. Ég var búin
að taka þessa ákvörðun og ég var
viss um að ég hefði gert rétt.
Skömmu áður hafði ég tekið þátt í
uppfærslu Þjóðleikhússins á Meyja-
skemmunni og var það í fyrsta skipti
sem ég steig á svið. Sú upplifun varð
líka til þess að ýta undir mig og ég
var því reiðubúin að kasta mér út í
þetta þegar við vorum komin vestur
um haf. - Og það var líka eins gott
því skólinn var mjög erfiður.
Harður skóli
í Bandaríkjunum
Við Bergþór vorum fyrstu íslensku
söngvararnir við þennan skóla en
síðan hafa margir stundað þar nám.
Ég var þarna fimm ár og útskrifaðist
þaðan með master-gráðu. Þetta er
góður skóli en hann var líka ákaflega
harður og voru miklar kröfur gerðar
til nemenda. Þessi tími var líka mjög
erfiður hjá okkur Bergþóri. Við vor-
um náttúrulega bæði á fullu í skólan-
um og síðan vorum við með lítið
barn sem þurfti sinn tima og mikla
umönnun. Lífiö gekk bara út á tón-
listina annars vegar og heimiliö hins
vegar. Maður varö því hálfeinangr-
aður, ef svo má að orði komast. Þeg-
ar við komum heim á sumrin þá var
eins og við værum komin inn í allt
annan heim. Það var allt svo óraun-
verulegt.
Ég man eftir því að þegar komið
var að kveðjustund heima eftir fyrsta
sumarfríið og fyrir lá annað árið ytra
þá grét ég í fanginu á honum pabba
mínum. En það var að duga eða drep-
ast. Ég vissi að mér myndi takast
þetta þótt það myndi kosta bæði svita
og tár.
Þessi skóli er einn af þremur hæst
metnu tónlistarskólum í Bandaríkj-
unum og segja má að hann hafi borið
keim af því. Hann hefur til dæmis
yfir feikilega stóru óperuhúsi að ráða
sem flytur aö minnsta kosti átta
óperur á ári hverju og rúmar 1500
manns í sæti. Þeim nemendum, sem
áhuga höföu, bauðst að syngja við
óperuna og til þess að fá hlutverk
urðu þeir að syngja á sérstöku prófi.
Við vorum allt að 200 sem sungum
hvert okkar aríu fyrir dómnefndina
og síðan var valið úr þessum stóra
hópi og skipað í hlutverkin. Þetta gat
verið nokkuð taugastrekkjandi því
auðvitað er samkeppnin geysilega
hörð. Fyrst fékk ég að syngja tvö lít-
il hlutverk en að því kom að mér
tókst að fá stærri og skemmtilegri
hlutverk og hið fyrsta var Dona
Anna í Don Giovanni. Þetta var mik-
il keyrsla meðan á þessu stóð. Ég var
í skólanum til fjögur á daginn og síð-
an var farið á æfingu og loks var
kannski sýning um kvöldið. Fyrir
þennan söng var ekkert borgað. Við
urðum einfaldlega að líta á þetta sem
kærkomna viðbót við sjálft söng-
námið. Þessi reynsla nýttist mér vel
í mínu fyrsta starfi sem var við óper-
una í Kaiserslautern í Þýskalandi.
Þar var ég allt í einu orðin nokkuð
stór fiskur í litlúm polli og þá var
gott að hafa þennan bakgrunn.“
Stefnan tekin
á hinn stóra heim
Að náminu loknu ætlaði Sólrún að
fara heim til íslands og stunda söng-
inn þar meðfram kennslu. Hún leit
líka á tónlistarlífið heima sem tals:
verða ögrun er gaman væri að takast
á við og leggja liö.
„En það voru ekki allir á sama
máli. Halldóri Hansen þótti nefnilega
ástæða til þess að við Bergþór
spreyttum okkur betur á erlendri
grund. Ég sinnti þessu eiginlega ekk-
ert og það var því Bergþór sem tók
af skarið og skrifaði bréf til umboðs-
manna bæði í Þýskalandi og Austur-
ríki. Þetta geröi hann ári áður en við
lukum námi því slíkt verður að hafa
fyrirvara. Við fengum nokkur svör
og héldum til Þýskalands til að
syngja fyrir hjá umboðsmanni ein-
um. Málin æxluðust þannig að mér
var boðin vinna strax daginn eftir.
Þá sendi umboðsmaðurinn mig til
óperunnar í Kaiserlautern þar sem
ég söng fyrir og var síðan boðinn
samningur. Ég var einstaklega hepp-
in því á þessum tíma voru mjög fáar
lausar stöður á boðstólum.
í Kaiserslautern var ég þrjú ár.
Mér líkaði þar afar vel en auðvitað
vissi ég að ég yrði að spreyta mig hjá
stærri húsum ef ég hefði einhvern
metnað. Mér hefur aldrei verið um
það að halda sjálfri mér frám og aug-
lýsa mig en maður verður að gera
þetta í þessum stóra og stranga heimi
því að hlutirnir gerast ekki af sjálfu
sér. Því varð úr að ég söng fyrir hér
í óperunni í Hannover, sem er hátt
skrifuð hér í landi, og komst að. Til
marks um umfang hennar má geta
þess að hér eru færðar upp um 30
mismunandi óperur ár hvert. Ég
hefði ekki viljað byrja feril minn
hér. Reynsla sú sem ég hlaut í Kais-
erslautern hefur reynst mér mjög vel
í þessu stóra húsi og ég hefði alls
ekki viljað fara á mis við þann tíma
sem ég var þar. Hér er gert ráð fyrir
því að maður sé „professional" og
hér er ekki um neitt umburðarlyndi
að ræða gagnvart byrjendum. Til
gamans má geta þess að hér dugir
ekki að vera ungur og efnilegur. Þeg-
ar hingað er komið eru gerðar þær
kröfur til manns að maður sé orðinn
bæði góður og sviðsvanur og hér
leyfist manni ekki að gera mistök.
Traviata óska-
hlutverkið
Samningurinn við óperuna hér var
eðlilegt framhald af starfi mínu í
Kaiserslautern. Hér er ég ráöin
næstu tvö árin. Engu að síður hef ég
nú gert gestasamning við óperuna í
Dússeldorf og Múnchen. Þau hús eru
Sólrúii hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda þar í Þýskalandi fyrir
frábæran söng og góða frammistöðu á sviðinu.
TTTTTT
39
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991.
Sólrún og Þórarinn búa í virðulegu húsi skammt frá miðbæ Hannover.
bæði töluvert stærri en hér í Hanno-
ver. Næsta vetur mun ég sem sé
syngja við fyrrnefnda húsið sem
gestur en þar bíða mín þrjú hlut-
verk. í Múnchen fer ég með hlutverk
í Töfraflautunni nú í vor - og það er
mjög spennandi verkefni.“
- Hvað er það sem ræður mestu um
velgengni þína?
„Eg veit það eiginlega ekki. Raunar
skil ég ekkert í því hvað þetta hefur
gengið vel hjá mér. Hlutirnir koma
mér alltaf jafnmikið á óvart. Um-
boðsmaðurinn minn hefur greinilega
trú á mér og ég get ekki sagt annað
en hann hafi staðið sig vel. Þetta er
sá sami og ég söng fyrst fyrir og sendi
mig til Kaiserslautem. Það er auðvit-
að hagur hans að koma mér sem víð-
ast að því hann fær prósentur af því
sem ég vinn mér inn. Hlutirnir ganga
þannig fyrir sig að hann hefur sam-
band við óperuhúsin. Ef þau hafa
einhvern áhuga er ég látin syngja
fyrir og loks er tekin ákvörðun um
hvort mér verður boðinn samningur.
Reyndar var ég ekki látin syngja fyr-
ir í Múnchen - ég skil ekki ennþá
hvernig það gekk fyrir sig.
Kannski hefur mér gengið svona
vel aö komast að því ég hef verið svo
róleg yfir þessu öllu og aldrei í raun
gert ráð fyrir neinu.“ Sólrún varð
hugsi eitt augnablik eins og hún
væri að leita skýringar með sjálfri
sér.
„Auðvitað hef ég rnetnað,1' hélt hún
svo áfram, „og auðvitað vil ég standa
mig vel og bæta mig. Aftur á móti
get ég ekki sagt að ég sé með draúma
um að syngja í frægustu húsum
heims og fleira í þeim dúr. Ég hugsa
ekki sem svo að ég verði bara að
syngja í Metropolitan og á Scala og
að ég deyi hreinlega ef ég nái því
ekki. Ég hef eiginlega aldrei hugsað
svona en hef látið hlutina koma mér
á óvart - og vitaskuld verð ég alltaf
jafnglöð."
- En áttu þér samt sem áður ekki
einhverjar leyndar óskir?
„Jú, en mínar leyndu óskir eru
fremur í þá veruna að ég fái einhvern
tíma að spreyta mig á ákveðnum
hlutverkum. Það er aðallega eitt
hlutverk sem ég læt mig dreyma um,
- sjálfa Traviötu. Ég kann það nokk-
urn veginn því kennari minn í
Bandaríkjunum, Virginia Zeani,
hafði sungið það í yfir 500 sýningum.
Hún kom til mín skömmu eftir að ég
byrjaði í skólanum, en þá var ég ekk-
ert farin að syngja hjá henni, og
sagði: „Sólrún, you are the perfect
Traviata." „Er það?" spurði ég nú
bara og glápti á hana." Sólrún skelli-
hló. „Eg skrifa henni stundum og
segi henni hvað ég er að syngja í það
og það sinnið. Hún svarar ávallt bréf-
um mínum og segir: „Darling, you
are the perfect Traviata."
Mig dreymir um að fá einhvern
tíma tækifæri til þess að fara til
hennar og liggja yfir þessu hlutverki
með hénni. Halldór Hansen sá hana
á bestu árum hennar og sagði mér
að hún væri besta Traviata-söngkona
sem hann hefði séð.“
Aldrei að láta slá sig
út aflaginu
- Hvernig ert þú stemmd gagnvart
gagnrýni, kemur hún við þig?
„Heima á íslandi er það reyndar
svo að eina gagnrýnin, sem ég get
virkilega tekið mark á, er frá Hall-
dóri vini mínum Hansen. Hann veit
hvað hann syngur og mér er óhætt
að treysta því sem hann segir.
Oft er það nú svo að ég veit best
sjálf hvernig ég hef staðið mig. En
auðvitað geri ég mér ljóst að maður
heyrir ekki alltaf nákvæmlega rétt í
sjálfum sér. Þegar ég söng til dæmis
fyrsta hlutverkið mitt í Kaiserslaut-
ern fékk ég mjög jákvæða dóma í
blöðum. Ég vissi þá innra með mér
að ég var að gera eitthvað sem ég
réöi við og hentaði mér vel. í þessu
tilviki var ég þvi eðlilega á sama
máli og gagnrýnendur. Nokkru síðar
söng ég þetta sama hlutverk í stóru
óperuhúsi annars staðar. Það er ein
besta sýningin sem ég hafði tekið
þátt í, fannst mér, en þá fékk ég mjög
slæma gagnrýni. í blaðinu stóð með-
al annars að rödd mín væri ónýt og
hún yrði algjörlega búin eftir eitt ár
og þar fram eftir götunum. Ég var
bókstaflega rökkuð niður. Auðvitað
leiddust mér þessi skrif en ég þóttist
vita betur sjálf og reyndi því að
gleyma þeim. Félagar mínir komu til
mín á eftir og sögðu mér í guðs bæn-
um að taka ekki mark á þessu og
láta þetta ekki hafa áhrif á mig. í ljós
kom að sú sem gagnrýnina skrifaði
var söngkona nokkur sem reynt
haíði að komast að við óperuna í
Kaiserslautern en hafði ekki tekist
það.
Stundum fæ ég líka gagnrýni sem
ég veit að á rétt á sér, þó hún gæti
verið betri. Þá tek ég ábendingarnar
til mín og reyni að komast að því
hvað betur hefði mátt fara og hvern-
ig ég geti bætt úr. Smám saman
kynnist maður gagnrýnendunum af
j------j------!---------j--------
skrifum þeirra. Reynsla mín er sú
að maður ber virðingu fyrir sumum
þeirra en öðrum ekki. En maður má
aldrei láta þá slá sig út af laginu."
Alltfrá unglingsstrák
upp í greifafrú
- Ertu prímadonna?
„Nei, það held ég alls ekki. Yfirleitt
er rætt um prímadonnur í mjög nei-
kvæðri merkingu þannig að um sé
að ræða kven- eða karlsöngvara sem
vilja láta bera á sér, séu kannski fín-
ar og merkilegar með sig. Maður seg-
ir kannski: „Þessi er nú algjör
primmi" eða eitthvað í þá veruna.-
Það þykir ekki gott að fá slíka um-
sögn."
- Hvaö finnst þér, Þórarinn?
„Ég held að þetta fari svolítið eftir
skapgerð og persónueinkennum við-
komandi söngkonu hvort hægt er að
kalla hana prímadonnu. Mér finnst
Sólrún vera prímadonna vegna þess
að á sviðinu gustar af henni, hún
geislar út frá sér. Mér finnst hún-
vera mjög áberandi á sviði og það er
hlustað á hana og henni veitt mikil
athygli. Og þar við bætist að hún
hefur ákaflega heillandi rödd sem
gagntekur mann."
- Hvað segir þú um þessa skilgrein-
ingu, Sólrún?
„Það er mjög erfitt fyrir mig að
dæma um það. Ég vona samt að ég
hafi persónulega rödd. Ég held að það
sé mikill kostur ef fólk getur heyrt
það á röddinni hvaða söngvari á í
hlut. Ég er með svolítið sveigjanlega
rödd og því get ég gert nokkuð mis-
munandi hluti sem mér finnst kost-
ur. Ég get því til dæmis sungið mis-
munandi sópranhlutverk. Þetta gef-
ur mér tækifæri til þess að leika ólík
hlutverk og þá er hættan minni að
festast í sama farinu. Um þessar
mundir leik ég allt frá unglingsstrák
upp í greifafrú. Mér finnst eftirsókn-
arvert að geta sýnt eins mikið af sínu
litrófi og tilfinningum og hægt er.“
- Áttu auðvelt með að tileinka þér
hlutverk?
„Ég sé náttúrulega ekki sjálfa mig.
Þó get ég sagt að ef mér líkar hlut-
verkið þá er ég fljót að lifa mig inn
í það og gleyma mér. Stundum verð
ég að taka aö mér hlutverk sem mér
líka alls ekki og það er jafnerfitt og
hitt er auðvelt. Það er mikilvægt að
vera ánægður og sáttur við þann hlut
sem maður er að sinna í það og það
skiptið, það gefur augaleið. Þegar
maður er á föstum samningi við
■-
ákveðið óperuhús verður maður að
vera reiðubúinn að takast á við allt
það sem manni er trúað fyrir. Þess
vegna reyni ég að gera öll hlutverk
skemmtileg svo mér gangi betur að
ná valdi á þeim.“
Mikilvægt að styðja
hvort annað
Þórarinn, sambýlismaður Sól-
rúnar, hafði setið þolinmóður hjá
meðan blaðamaður rakti úr henni
garnirnar. Um þessar mundir er hún
stjarnan og því snýst allt um hana
þegar forvitnir blaðamenn koma í
heimsókn eða hringja til að spyrja
frétta.
- Hvernig er að búa með svo eftir-
sóttum listamanni, Þórarinn. Ert þú
kannski maðurinn að baki konunni?
„Nei, ég myndi frekar segja að ég
stæði við hlið hennar. Það er mikil-
vægt að við getum stutt hvort annaö
í öllu því sem við bæöi erum að fást
við hverju sinni. Ég geri mér ljóst
að henni er veitt mikil athygli nú um
stundir. Hún er allan daginn í hring-
iðu leikhússins innan um margt fólk
og síðan tekur hún þátt í fjölda sýn-
inga þar sem hún fer með stór hlut-
verk á sviðinu. Ég er hins vegar enn-
þá í námi."
- Og þú hefur líka tileinkað þér tón-
listina.
„Já, hún hefur orðið ofan á. Móðir
mín er póanókennari á Akureyri,
Dýrleif Bjarnadóttir. Ég byrjaði
svona eins og Sólrún að læra á blokk-
flautu og síðan tók píanóið við þegar
ég var sex eða sjö ára. Ég var á Akur-
eyri fram yfir stúdentsprófið og
stundaði píanónám hjá mörgum
kennurum. Það voru margir erlendir
kennarar við tónlistarskólann og það
var haldið að þeir væru betri en þeir
íslensku. Þeir stöldruðu sjaldan leng-
ur við en einn vetur fyrir norðan og
því varð ég oft að skipta um kenn-
ara. Það var ekki fyrr en ég kom til
Reykjavíkur og fór að læra hjá Hall-
dóri Haraldssyni að ég fékk kennara
sem ég var hjá um lengri tíma. Þá
fóru líka hlutirnir fyrst aö ganga.
Tónlist hefur alla tíð verið sjálf-
sagður hlutur í mínu lífi enda báðir
foreldrar mínir í tónlist. Faðir minn
er Stefán Stephensen, hornleikari í
Sinfóníunni. Félagar mínir voru
jafnframt í tónlistarnámi og því var
tónlistin hvarvetna í kringum mig.“
- Hvað ertu að fást við núna?
„Hér hef ég verið í framhaldsnámi
síðan haustið ’88 og er kennari minn
-
Erica Haase. Mig langar núna að til-
einka mér kammertónlist meira og
hef verið að leggja grunninn að þvi
að undanförnu að geta farið að leika
með slíkum hópum. Nú, og síðan
langar okkur Sólrúnu til að æfa
meira saman en við höfum gert hing-
að til. Það er ekki síður gott fyrir
píanóleikara að vera kvæntur söng-
konu en fyrir söngkonu að vera gift
píanóleikara. Við höfum til dæmis
bæði mikinn áhuga á ljóðaflutningi
og vonandi eigum við eftir að geta
eytt svolitlum tíma í hann.“
Tengslin sterk
við ísland
Sólrún hafði skotist í símann sem
hringdi alloft meöan á spjallinu stóð.
Ekki fór sögum af hvort verið var
að bjóða henni hlutverk eða nýja
samninga. Svo mikiö er víst að á
undanförnum mánuðum hefur mik-
ið verið að gerast í lífi hennar og er
frami hennar í Þýskalandi til marks
um þaö.
- En hvernig skyldi tenglsum henn-
ar yið gamla Frón vera háttað?
„Ég hef sungið svolítið heima að und-
anförnu, ýmist á einkatónleikum, í
Óperunni og með Sinfóníunni. Ég vona
að ég geti haldið þessu áfram því ég
vO leggja töluvert á mig til að geta
haldið tengslunum við tónlistarlífið
heima. Ég datt mjög út úr því á sínum
tíma en sambandið hefur smám saman
aukist upp á síðkastið. Ég er náttúru-
lega búin að vera svo lengi í burtu, í
níu ár. Þegar ég fer heim hef ég aldrei
nægilega mikinn tíma til þess að aðlag-’
ast hlutunum þar.
En svo er ég auðvitað með hugann
heima á hverjum einasta degi. því að
ég á mjög yndislega fjölskyldu þar, for-
eldra og systkini, og ekki má ég gleyma
tíu ára syni mínum sem er heima hjá
föður sínum, Bergþóri.
Tengsl mín við fólkið mitt heima og
landið sjálft eru mér afar nauðsynleg.
Hvað náttúrutengslin snertir þá kom
nokkuð fyrir mig i nóvember síðast-
liðnum sem fékk mig tO að skypja hlut-
ina betur. Ég var þá að halda af staö
aftur til Þýskalands eftir stutta dvöl.
Það var mjög faOegt veður, logn og
blíða, og það haföi snjóað í fjöll. Kvöld-
ið fyrir brottfórina beygði ég satt að
segja af og gat ekki hugsað mér að fara.
Það var ekki bara söknuðurinn í brjósti
mér við að kveðja fjölskylduna heldur
einnig þessi náttúruupplifun. Nei,
tengslin við aOt þetta eiga aldrei eftir
að rofna."
-