Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Page 31
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1991,
43
dv_________________________________Handbolti unglinga
íslandsmeistaratitillinn í Garðabæinn
Úrslitakeppni 4. flokks kvenna fór
fram í íþróttahúsinu í Kópavogi og
mættu þar átta sterkustu liöin í þess-
um aldursflokki til keppni um ís-
landsmeistaratitilinn.
Fyrirfram var búist við að Grótta,
FH, Stjarnan og KR, auk íslands-
meistara ÍBV kæmu til með að berj-
ast um titilinn að þessu sinni. Það
reyndist raunin en fæstir bjuggust
við Stjörnunni eins sterkri og raun
bar vitni því Stjarnan gerði sér lítið
fyrir og vann sex fyrstu leiki sína og
þrátt fyrir tap gegn FH, 10-12 í síð-
asta leik, var Islandsmeistaratitillinn
í 4. flokki kvenna Garðabæjarliðs-
ins.
Stjarnan vann fráfarandi íslands-
meistara 4. flokks, ÍBV, í fyrsta leik,
10-6, og lagði þar með grunninn að
því sem koma skyldi. Stjarnan vann
einnig liö Vals, 11-10, Gróttu, 10-9,
Víking, 15-8, UBK, 14-9, og KR,
12-10.
Lið Stjörnunnar er vel að sigrinum
komið, liðið er mjög heilsteypt, með
góða vörn og þá er markvarslan eins
og hún gerist best í þessum aldurs-
flokki. Vert er að geta leikmanna eins
og Nínu Björnsdóttur, Heiðu Sigur-
bergsdóttur, Lilju Guðmundsdóttur
og fyrirliðans, Rutar Steinsen en
þessir leikmenn vöktu sérstaka
athygh DV fyrir góðan handknatt-
leik.
Grótta tryggði sér silfurverðlaunin
að þessu sinni en liðið tapaði aðeins
leiknum gegn Stjörnunni og gerði
- skemmtileg keppni í 4. flokki kvenna
jafntefli við KR, 8-8, og Val, 5-5. Aðra
leiki vann Grótta, flesta nokkuð ör-
ugglega.
FH og KR urðu jöfn að stigum í
þriðja til fjórða sæti en þar sem FH
vann innbyrðis viðureign þessara
liða nokkuð örugglega, 7-5, hlaut
Hafnarfjarðarliðið bronsverðlaunin
að þessu sinni en KR varð að gera
sér fjóröa sætið að góðu.
Valur varð í fimmta sæti, ÍBV í
sjötta sæti, Víkingur í sjöunda sæti
en UBK rak lestina svo að þessu
sinni.
Rut Steinsen, fyrirliði Stjörnunnar,
tekur við íslandsmeistarabikarnum
úr hendi Þorbergs Aðalsteinssonar,
landsliðsþjálfara, en Rut er ekki
óvön að taka við viðurkenningum
fyrir hönd þessa sigursæla flokks.
Grótta hafnaöi i öðru sæti í úrslitakeppninni, tveimur stigum á eftir Stjörnunni. Má segja að aðeins tvö mörk hafi
því skilið á milli hvort liðanna yrði íslandsmeistari.
Fram vann B—úrslitin
B-úrslitin fóru fram í Reykjavík og
vann Fram keppnina nokkuð örugg-
lega að þessu sinni með fullu húsi
stiga og hafði nokkra yfirburði yfir
andstæðinga sína.
Jafntefli hjá félögunum
Segja má að árið í ár skeri sig úr
hvað það varðar hve skipting er
jöfn á milli félaga þegar íslands-
meistaratitlar eru annars vegar.
í karlaflokkum sigraði Safamýrar-
veldið Fram í 2. flokki, KR í 3. flokki,
FH í 4. flokki og Valur í 5. flokki.
í kvennaflokkunum sigraði Grótta
í 2. flokki, ÍBV í 3. flokki og Stjarnan
í 4. flokki.
Þetta er mjög jafnt og þegar Utið
er á það hvaða Uð skila flestum flokk-
um í A úrslit má sjá að það er einnig
mjög jafnt mflli félaga. Víkingur,
Stjarnan, Fram og FH eru meö flest
lið í úrslitum 5 til 6 en önnur lið eru
með færri.
Toyota-mótið á Húsavík
Um síðustu helgi var haldið á
Húsavík handknattleiksmót og voru
það Toyota á íslandi, BOaleiga Húsa-
víkur og Handknattleiksdeild Völs-
ungs sem gengust fyrir þessu móti.
Þátttakendur voru frá Húsavík,
Reyðarfiröi, Egilsstööum og Akur-
eyri. Keppt var í 6. flokki karla, 5.
flokki karla og kvenna og 4. flokki
karla og voru þátttakendur alls um
200.
Mjög skemmtUeg keppni var í öU-
um flokkum og greinilegt að í þessum
Uðum eru margir framtíðarleikmenn
sem eiga örugglega eftir að láta að
sér kveða síðar.
Úrslit urðu þau að í 6. flokki karla
sigraöi A-Uð Þór frá Akureyri eftir
spennandi keppni við A-lið KA. í 5.
flokki karla var spUuð tvöföld um-
ferð og sigraði lið KA nokkuð örugg-
lega. I 5. flokki kvenna sigraði B-Uð
KA eftir hörkuleUc við Völsung og
kom þessi sigur Uðsins nokkuð á
óvart. í 4. flokki karla sigraöi lið
Þórs frá Akureyri nokkuð örugglega.
Toyota-umboðið veitti nokkrar við-
urkenningar:
í 6. flokki karla var Steingrímur
Sigurðsson, Þór, valinn besti mark-
maður, Atli Þórarinsson, KA, var
valinn besti sóknarleikmaður og
Magnús Halldórsson, Völsungi, var
valinn besti vamarmaður í þessum
flokki.
í 5. flokki karla var Hörður Flóki
Ólafsson, KA, valinn besti markmað-
urinn, Halldór Sigfússon, KA, besti
Umsjón:
Heimir Ríkarðsson
og Lárus H. Lárusson
sóknarleikmaöur og Dagur Dag-
bjartsson, Völsungi, besti varnar-
maður. í 5. flokki kvenna var besti
markvörður valinn Ása Karen Guð-
mundsdóttir, KA, besti sóknarleik-
maður, Jóna Björg Pálmadóttir,
Völsungi, og besti varnarmaður var
valinn Ásdís Guðmundsdóttir.
í 4. flokki karla var Sveinn Ár-
mannsson, Þór, valinn besti mark-
vörður, Atli Þór Samúelsson, Þór,
besti sóknarleikmaður og besti varn-
armaður Viöar Jónsson, Hetti.
Þessir leikmenn tóku þátt i Toyota-mótinu sem haldið var á Húsavik um
siðustu helgi.
Handboltinn kveöur
Nú er komið að lokum þessa
keppnistimabils í handknattleik.
Þetta hefur verið á margan hátt við-
burðarríkt og skemmtilegt. Margir
eru sennilega ánægðir með uppsker-
una, en aðrir óánægðir eins og geng-
ur.
Á næstunni fer fram þing Hand-
knattleikssambands íslands og verða
að venju mörg mál á dagskrá. Þó er
þaö eitt mál sem umsjónarmönnum
unglingasíðu DV er sérlega í mun að
fái ítarlega og gagnlega umíjöllun,
en það eru mótamál í yngri flokkum.
Það er alveg ljóst að núverari&i
mótafyrirkomulag gengur ekki leng-
ur og við erum ekki samkeppnis-
hæfir í dag á sama hátt og viö vorum
fyrir nokkrum árum. Krakkar sem
eru að byrja í handknattleik finna
ekki fyrir þeirri spennu sem leikur-
inn býður upp á einfaldlega vegna
þess að fyrirkomulag mótsins er úr
sér gengið. UngUngasíðan á sér þann
draum að menn komi málefnalegir
til þingsins og hvetur menn til að
ræða málin á þeim nótum.
Að lokum vill unglingasíða DV
þakka Vigfúsi Þorsteinssyni, starfs-
manni HSÍ, fyrir vel unnin störf og
hjálp í vetur, mótanefndarmönnum
einnig og ekki síst forráðamönnum
félaga sem margir hafa verið okkur
hjálplegir.
Keppendum, dómurum og öðrum
handboltamönnum óskum við gleði-
legs sumars.
IR og Fr am
Eurocard-
meistarar
Um síðustu helgi fór fram Euro-
card-mótið í 5. flokki karla, var leikið
bæði hjá A- og B-Uðum og fór keppni
fram í nýju og glæsilegu íþróttahúsi
gegn Fram unnu þeir 10-7.
Fram varð í öðru sæti, vann KR,
17-9, og Hauka, 15-11. í þiðja sæti
varð lið Hauka en þeir unnu KR,
FB.
16-15.
Fjögur lið tóku þátt í mótinu að
þessu sinni en það voru lið ÍR, Fram,
KR og Hauka.
ÍR-ingar unnu A-liðakeppnina
nokkuð örugglega en úrslitaleikinn
Framarar unnu B-liðakeppnina ör-
ugglega en þeir báru sigurorð af ÍR,
13-10, og KR, 14-12.
ÍR tryggði sér síðan annað sætið
með því að vinna KR sanngjarnt.
Fram og KR voru meðal liða á Eurocard-mótinu sam fram fór um síðustu
helgi. Það voru ÍR-ingar sem unnu keppni A-liða en í B-keppni varð Fram
hlutskarpast.