Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1991, Qupperneq 46
58
LAtFGARÖÁGUR 27. APRÍL 1991.
Afmæli
Reynir Ásberg Níelsson
Reynir Ásberg Níelsson rafvirkja-
meistari, Kveldúlfsgötu 4, Borgar-
nesi, varð sextugur í gær.
Starfsferill
Reynir fæddist í Borgarnesi en
ólst upp við Hreðarvatn í Norðurár-
dal. Eftir bamaskólann stundaði
hann nám í einn vetur við Héraðs-
skólann í Reykholti 1946-1947. Frá
1949- 1950 var hann við iðnnám í
rafvirkjun í Reykjavík hjá Raf-
tækjastöðinni/HaraldiÁ. Bjama-
syni og hjá Jóhanni Rönning frá
1950- 1954.
Hann lagði einnig stund á nám í
rafmagnsdeild Vélskóla íslands fyr-
ir rafvirkja 1952-1954 og starfaði viö
rafmagnsverkstæði SÍS í Reykjavík
frá 1954-1956.
Þann 14. apríl 1956 hóf Reynir svo
rekstur eigin fyrirtækis í Borgar-
nesi og hefur starfað þar samfellt
síöan undir firmanafninu Raíblik.
Reynir hefur einnig starfað sem
kennari, í Iðnskólanum í Borgarnesi
og við Vélskóla íslands, í bæði bók-
legri og verklegri rafmagnsfræði
1%9-1970. Árið 1976 kenndi hann viö
Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Hann var í stjóm Iðnaðarmanna-
félags Borgarness frá 1957-1960, í
stjórn Landssambands íslenskra
rafverktaka frá 1969-1976 og var
hvatamaður að stofnun Félags raf-
verktaka á Vesturlandi og gegndi
stöðu formanns félagsins um tíma.
Reynir var einnig í samstarfs-
nefnd við gerð ákvæöa um löggild-
ingu til rafvirkjastarfa og vann við
undirbúning og stofnun eftirmennt-
unar rafiðna og sat í stjórn nefndar-
innar að hálfu rafverktaka.
Fjölskylda
Reynir kvæntist 22.12.1955Karól-
ínu Rut Valdimarsdóttur, f. 12.2.
1936, húsmóður og snyrtisérfræð-
ingi. Hún er dóttir Valdimars T.
Kristóferssonar og Guðmundu Kr.
Júlíusdóttur, búenda í Skjaldartröð
Hellnum á Snæfellsnesi. Reynir og
Karólína em nú skilin.
Börn þeirra Reynis og Karólínu
eru: Kristján Ásberg, f. 28.2.1955,
húsgagnasmiður í Borgarnesi, ógift-
ur og bamlaus; Þórdís Mjöll, f. 26.12.
1960, húsmóðir, í sambúð með Jó-
mundi Ólasyni, f. 18.8.1959, b. á
Skarðshömrum í Noröurárdal og á
með honum þrjú börn; Kristín Guð-
munda Björk, f. 20.4.1962, hár-
greiðslunemi, gift Kristóbert Óla
Heiöarssyni, f. 31.3.1958, rafvirkja
og nema í Tækniskóla íslands, og á
með honum eitt barn; Sigurlaug, f.
7.6.1964, skrifstofumaður, í sambúð
með Sturlu Gunnari Eðvarðssyni,
f. 16.10.1964, nema í Samvinnuhá-
skólanum á Bifröst. Sigurlaugá eitt
barn frá fyrri sambúð; Þorleifur
Jóhannes Ásberg, f. 29.9.1971, raf-
virkjanemi; og Karl Lúðvík Asberg,
f. 1.11.1975.
Reynir átti einn albróður: Oddfrey
Ásberg, f. 12.10.1933 d. 29.9.1971,
fyrrv. vélgæslumaður og bóndi,
kvæntur Halldóru Halldórsdóttur
og átti með henni tvö börn.
Hálfsystkini Reynis í móðurætt
em: Þórður Ólafsson, f. 20.10.1938,
verkalýðsformaður á Þorlákshöfn,
kvæntur Björgu Óskarsdóttur og á
með henni þrjú börn. Fyrri kona
Þórðar var Sigríður Clausen og átti
hann með henni þrjú börn; Sigþór
Ólafsson, f. 16.1.1942, sjómaður, í
sambúð með Guðrúnu Skúladóttur
í Reykjavík. Sigþór var áður kvænt-
ur Guðrúnu Lárusdóttur og átti með
henni tvö börn en þau eru nú skilin;
Guðríður Ólafsdóttir, f. 12.3.1946,
framkvæmdastjóri, gift Viðari
Guðnasyni skrifstofumanni og á
með honum eitt barn.
Hálfsystkini Reynis í föðurætt eru:
Indriði Níelsson, f. 30.8.1913, húsa-
meistari í Reykjavík, kvæntur Ingu
Hoífman og eignuðust þau sex börn;
Guðný Kristrún Níelsdóttir, f. 19.9.
1916, húsmóðir, ekkja eftir Stefán
Pálsson tannlækni og eignuðust þau
þrú börn; Sigríður Níelsdóttir, f.
11.8.1920, húsmóðir í Reykjavík, gift
Guðmundi Péturssyni hæstarrétt-
arlögmanni og á með honum þrjú
börn; Guðríður Elísabet Níelsdóttir,
f. 10.10.1922, símam. í Borganesi,
ógift og á eitt barn; og Sesselja Níels-
dóttir, f. 30.8.1924, tannsmiður í
Reykjavík, ógift og bamlaus.
Uppeldissystkini Reynis vom:
Daníel Kristjánsson, f. 25.8.1908 d.
24.4.1982, fyrrv. skógarvörður Vest-
urlands, kona hans var Ásta Guð-
bjarnadóttir sem nú er látin. Þau
eignuðust þrjú börn en Daníel átti
eitt fyrir.; Gestur Kristjánsson, f.
3.11.1910, fyrrv. deildarstjóri KB,
kvæntur Guðríði Helgadóttur frá
Unaðsdal og eiga þau fimm börn;
Ingimundur Kristjánsson, f. 24.5.
1912, b. í Heyholti, ókvæntur og
barnlaus; Haukur Kristjánsson, f.
3.9.1913, fyrrv. yfirlæknir í Reykja-
vík, kvæntur Svandísi Matthías-
dóttur og eiga þau þrjú börn; Magn-
ús Kristjánsson, f. 28.6.1916, b. á
Norðtungu, kvæntur Andreu Dav-
íðsdóttur og eiga þau fimm börn;
Þórður Kristjánsson, f. 8.6.1921,
umsjónarmaður í Munaðarnesi,
kvæntur Hrafnhildi Ingibersdóttur
ogeigaþau eittbarn.
Foreldrar Reynis voru Níels
Guðnason, f. 8.3.1888 d. 27.6.1975,
b. og trésmíðameistari í Borgamesi,
og Olafía Sigurðardóttir, f. 27.7.1906
d. 10.6.1984. Ólafía varð síðar hús-
móðir á Hlíðarenda í Ölfusi er hún
bjó þar með Ólafi Þórðarsyni úr
Hrútafirði.
Fósturforeldrar Reynis voru
Kristján Gestsson, f. 21.12.1880 d.
Guðlaugur Gauti Jonsson
Guðlaugur Gauti Jónsson arkitekt,
Flyðrugranda 6, Reykjavík, er
fimmtugurídag.
Starfsferill
Guðlaugur fæddist í Reykjavík og
ólst upp í Laugarneshverfinu. Eftir
stúdentspróf var hann við nám í
arkitektúr við Oxford Technical
College, veturinn 1962—1963, og frá
haustinu 1964 var hann við nám í
arkitektúr við Reinisch-Westfael-
ische Technische Hochschule í
Aachen, Vestur-Þýskalandi, sem
lauk með Dipl.Ing.-gráðu í arkitekt-
úr vorið 1972.
Guðlaugur vann á Teiknistofu
landbúnaðarins 1963-1964 og aftur
árið 1967. Hann stundaði jafnframt
kennslu við Hagaskóla í Reykjavík
veturinn 1963-1964.
Árin 1972-1973 starfaði Guðlaugur
sem arkitekt á Teiknistofunni við
Óðinstorg og hjá Húsameistara rík-
isins árið 1973-1978. Eftir þaö rak
hann eigin teiknistofu í félagi við
annan til ársins 1987 en eftir það
einn.
Guölaugur hefur unnið ýmis trún-
aðarstörf fyrir Arkitektafélag ís-
lands. Hann sat m.a. í stjórn félags-
ins 1975-1977 og aftur 1985-1989, þar
af var hann formaður þess frá 1986-
1988. Hann sat samnorræna fundi
arkitektafélaganna á Norðurlönd-
um í Turku, Finnlandi og í Stokk-
hólmi og var einn fulltrúi Norður-
landa á aðalfundi UIA, alþjóðasam-
taka arkitekta, í Dublin árið 1987.
Hann sat í stjórn Listskreytinga-
sjóðs ríkisins 1986-1988 og í stjórn
Bandalags íslenskra listamanna ár-
in 1987-1989. Nú situr hann sem full-
trúi Arkitektafélags íslands í stjórn
Byggingaþjónustunnar í Reykjavík.
Hann hefur einnig átt sæti í dóm-
nefndum vegna samkeppni um
byggingar- og skipulagsmál.
Guðlaugur var varabæjarfulltrúi
í bæjarstjórn Kópavogs árin 1972-
1973 og sat í byggingarnefnd bæjar-
ins sömu ár. Hann sat fundi sem
varaborgarfulltrúi í borgarstjórn
Reykjavíkur árin 1981 og 1986 og var
varaformaður Skipulagsnefndar
Reykjavíkur 1978-1982. Jafnframt
sat hann í Umhverfismálaráði
Reykjavíkur frá 1983-1986.
Frá 1983-1984 var Guðlaugur í
stjóm Félags einstæðra foreldra en
sem stendur er hann fulltrúi í full-
trúaráði Alþýðuflokksfélags
Reykjavíkur og varamaður fyrir
Nýjan vettvang í skipulagsnefnd
Reykjavíkur og jafnréttisnefnd
Reykjavíkur.
Haustiö 1989 fór hann á vegum
Rauða kross íslands til eyja 1
Karíbahafi til að meta skaöa af
hvirfilvindi og vann i framhaldi af
því tillögur um verkefni og fjár-
hagsaðstoð fyrir Alþjóðasamband
Rauða krossfélaganna.
Fjölskylda
Guðlaugur kvæntist 5.10.1963
Sigrúnu Olöfu Marinósdóttur, f. 6.2.
1941, læknaritara á Landspítalan-
um. Hún er dóttir Marinós Ólafs-
sonar, sem lengst af starfaði hjá
heildverslun Garðars Gíslasonar, og
Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður.
Guðlaugur og Sigrún skildu árið
1982.
Þau eignuðust tvo syni, þeir eru;
Jón Gauti, f. 5.6.1961, nemi í KHÍ, í
sambúð með Guðrúnu B. Guð-
mundsdóttur, f. 20.7.1963, aðstoðar-
lækni. Þau eiga saman Sigrúnu
Elfu, f. 5.11.1987, ogBrynjólf Gauta,
f. 12.10.1990; Kári, f. 4.1.1980.
Guðlaugur á þrjá bræður, þeir
eru: Magnús Heiðar, f. 9.7.1938, eig-
andi og framkvæmdastjóri Sam-
prents, kvæntur Inge Christiansen
og býr í Kópavogi, þau eiga þrjú
börn; Birgir Rafn, f. 11.10.1943, eig-
andi og forstjóri Kjarans hf., kvænt-
ur Ingibjörgu Norberg, þau búa á
Seltjarnarnesi og eiga fiögur börn;
og Sturla Már, f. 27.2.1947, hús-
gagna- og innréttingahönnuður,
kvæntur Steinunni Pálsdóttur. Þau
búa á Seltjarnarnesi og eiga tvö
Reynir Ásberg Níelsson.
21.9.1949, b. á Hreðavatni í Norður-
árdal, og Sigurlaug Daníelsdóttir, f.
6.2.1877 d. 7.2.1974, húsmóðir.
Ætt
Foreldrar Níelsar, fóður Reynis,
voru Guðni Jónsson, b. á Vals-
hamri, og Guðný Kristrún Níels-
dóttir, Eyjólfssonar b. á Grímsstöð-
um í Álftaneshreppi og Sigriðar
Sveinsdóttur.
Foreldrar Ólafíu, móður Reynis,
voru Sigurður Þórðarson, b. á Urr-
iðaá í Álftaneshreppi, Sigurðssonar
b. í Skíðsholtum og Hólmfríöar Sig-
uröardóttur, og Guðríður Gunn-
laugsdóttir, Ólafssoncir og Sigríðar
Jónsdóttur sem voru vinnuhjú á
GaulíStaðasveit.
Reynir tekur á móti gestum á
heimili sínu að Kveldúlfsgötu 4,
laugardaginn 27. apríl frá kl. 17 til
21.
Guðlaugur Gauti Jónsson.
börn.
Foreldrar Guðlaugs Gauta: Jón
Guðlaugsson, f. 15.8.1909 á Steins-
stöðum í Norðurfirði, einn stofn-
enda og framkvæmdastjóri Ópals
hf., og Kristín Aðalheiöur Magnús-
dóttir, f. 17.9.1912, á Eyri við Reyð-
arfiörð.
Guölaugur Gauti verður aö heim-
an á afmælisdaginn.
Ásta Helgadóttir
Ásta Helgadóttir matráðskona, nú
vistmaður á Elliheimilinu Grund í
Reykjavík, er níræð í dag.
Starfsferill
Ásta fæddist aö Múla í Aöaldal í
Suður-Þingeyjarsýslu og ólst þar
upp. Hún var fyrst við nám hjá
heimiliskennurum í Múla, stundaöi
nám viö Kvennaskólann í Reykjavík
1921-22 og sótti hannyrðanámskeið
í Reykjavík, auk þess sem hún var
í hannyrðanámi á Húsavík og á
Sauðárkróki. Ásta var síðan á Sauð-
árkróki og starfaði þá lengst af á
heimili Jónasar Kristjánssonar
læknis.
Hún flutti til Reykjavíkur 1940 og
starfaði þá við matseld á sjúkrahús-
um og á veitingastöðum, lengst af í
Silfurtunglinu við Snorrabraut.
Fjölskylda
Ásta átti sex systkini en á nú eina
systur á lifi, Bjameyju Sívertsen
Helgadóttur, húsmóður á Húsavík
og ekkju eftir Kristin Ársæl Bjarna-
son múrarameistara, og eignuðust
þau fimm böm. Önnur systkini Ástu
voru Regína Magdalena, f. 18.5.1896,
d. 21.1.1948; Jökull, f. 12.6.1906, lát-
inn, bilstjori a Husavik, var kvænt-
ur Guðrúnu Sigfúsdóttur; Haukur,
f. 17.11.1908, d. í nóvember 1935, og
Logi, f. 14.12.1910, d. 15.1L 1936, var
kvæntur Aðalbjörgu Björnsdóttur.
Foreldrar Ástu voru Helgi Jó-
hannesson, b. á Múla í Aðaldal, og
kona hans, Karólína Benediktsdótt-
ir.
Ætt
Faðir Helga var Jóhannes, b. og
póstur á Birningsstöðum í Laxár-
dal, Jónatanssonar. Móðir Jóhann-
nesar var Sigurveig Kristjánsdóttir,
systir Sigurlaugar á Laxamýri, ætt-
móður Laxamýrarættarinnar, og
ömmu Jóhanns Sigurjónssonar
skálds.
Faðir Karólínu var Benedikt, pró-
fastur á Grenjaðarstaö, Kristjáns-
son, b. í Stóradal, Jónssonar, b. á
Snæringsstöðum, Jónssonar, b. á
Balaskarði, Jónssonar, harðabónda
á Mörk í Laxárdal, Jónssonar, ætt-
föður Harðabóndaættarinnar. Móð-
ir Karólínu var Regína Magdalena
Hansdóttir Sívertsens, kaupmanns
í Reykjavík, Sigurðssonar Sívert-
sens, kaupmanns í Reykjavík,
Bjarnadóttir, riddara og kaup-
Ásta Helgadóttlr.
manns í Hafnarfirði, Sívertsens.
Móöir Regínu var Christiane Carol-
ine Linnet Hansdóttir Linnets,
verslunarstjóra í Hafnarfirði. Móðir
Hans var Regine Magdalene Seerup.
Móðir Regine var Gotfrede Elisa-
beth Jakobæus, dóttir Holgers Jak-
obæus, kaupmanns í Keflavík, Jo-
hansson Jakobæus, prests í Ledöje
Holgerssonar Jacobæus, háskóla-
rektors og dómara í hæstarétti í
Kaupmannahöfn. Móðir Johans var
Anna dóttir Thomasar Bartholin,
háskólarektors í Kaupmannahöfn,
og konu hans, Else Christofersdótt-
ur, borgarstjóra í Kaupmannahöfn,
Hansen.
80 ára
Oddný Pétursdóttir,
Álíheimum 50, Reykjavík.
75 ára
JóhannKr. Hannesson,
Grettisgötu 19a, Reykjavík.
Hulda Sveinbjömsdóttir,
Engihjalla 11, Kópavogi.
Maria Guðnadóttir,
Garðarsbraut 34, Húsavík.
Elizabeth H. Jóhannsson,
Fjarðarstræti 6, ísafirði.
70ára
Brynhildur Jónsdóttir,
Brunngötu 7, Hólmavik.
60ára
ÓlöfÓskarsdóttir,
Klettahrauni 15, Hainarfirði.
Snæbjörn Ásgeirsson,
Lindarbraut29, Seltjarnarnesi.
Óli Hjálmar Ólason,
Sveinstúni, Grímsey.
50ára
Birgir Valdemarsson,
Einholti 8f, Akureyri.
Rögnvaldur Jónsson,
Skjólbraut 16, Kópavogi.
40ára
Leokadia Drozd,
Selnesi 15, Breiðdalsvík.
Gunnlaugur Jens Helgason,
Kársnesbraut 41, Kópavogi.
Guðmundur Múr Sigurðsson,
Hjallavegi 9, Flateyri.
Margrét Geirsdóttir,
Grófarseli 28, Reykjavík.
Kristín Helga Waage,
Vesturbrún 37, Reykjavík.
Indriði Kristjánsson,
Hraunbæ 116, Reykjavík.
Guðbjörg H. Traustadóttir,
Strandaseli 4, Reykjavík.