Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Side 13
13 MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991. verður ekki Við höldum einfaldlega átram að bjóða framúrskarandi sjónvarpsefni sárstaklega valið fyrir áskrifendur okkar Aíisnýraftur! Afi hefur verið í sumarfríi undanfarið, en nú snýr hann aftur fjallhress að vanda. Afi kemur aftur á skerminn laugardaginn 28. september og heldur áfram að skemmta börnunum eins og honum ereinum lagið. Indiana Jnnes ng síðasta hrosslerðin Frábær kvikmynd frumsýnd laugardaginn 7. september. Guð blessi barnið, Fjöiskylduflækja, Ódæðið, Dýragrafreiturinn, Refskák, Lokaslagurinn og Mannvonska, allt góðar myndir sem verða á dagskrá í september. Pabbastrákar er sannsóguleg mynd um óhugnanleg; skipulagt fjárglæfraspil ungs manns, sem lýst var sem samviskulausu - skr.ímsli. Fyrri hlutinn verður sýndur sunnudagskvöldið 22. september en seinni hlutinn kvöldið-eftir. Leikið tveimur skjöldum heitir hörku njósnamynd í tveim þáttum og fjallar um njósna'ra sem selur Rússum upplýsingar og flækir um leið vini og ættingja í net stórhættulegra og illskeyttra njósnamála. Fyrri þátturinn verður sýndur sunnudagskvöldið 8. september, hinn seinni þriðjudagskvöldið 10. september. Á norðurslóðum Nýr og gamansamur myndaflokkur, sem náði strax miklum vinsældum í Bandaríkjunum. Hann segirf'rá ungum lækni, sem gerir sitt besta til þess að aðlagast daglegu lífi smábæjarins Cicely þar sem nútíma þægindi skipa ekki efsta sess í hugum þorpsbúa. Þessi vikulegi gamanþáttur fer af stað laugardagskvöldið 7. september. Belgíski sérvitringurinq Hercule Poirot Nú fara einkaspæjarinn frægi Hercule Poirot og sérlegur aðstoðarmaður hans Hastings aftur á kreik í tíu vönduðum þáttum. Að vandafæst Poirot við nýtt og dularfullt mál í hverjum þætti. Sá fyrsti verður á dagsskrá sunnudagskvöldið 22. september. Klassískir þættir um Poirot og Hastings. Engin vetrardagsskrá eintaldlega gott sjónvarpsefni Fimm og turðudýrið Sögumar um furðudýrið og fimm káta krakka, er myndaflokkur sem nú hefur göngu sína á Stöð tvö. Myndaflokkurinn er eitt allra vinsælasta framhaldsefni sem gert hefur verið á vegum BBC. Það tók tæknilið BBC átta vikur að fullgera furðudýrið, sem er stjórnað af sex mönnum. Fimm og furðudýrið mæta í fyrsta sinn laugardagsmorguninn 14. september. Réttur Rosie OHleill f þessum nýju þáttum fylgjumst við með lífi Rosie, sem hefur sagt skilið við eiginmann sinn og lögfræðiskrifstofuna sem þau byggðu upp saman. Hún fær sér vinnu á ríkisrekinni lögfræðistofu, sem sinnir vandamálum þeirra sem minna mega sín. Þessi þættir hafa hlotiðmikið lof gagnrýnenda, bæði fyrir leik og vönduð vinnubrögð. Þessir vikulegu þættir hefjast miðvikudagskvöldið 11. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.