Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Síða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Síða 34
50 MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991. Afmæli Guðrún Anna Kristjánsdóttir Guðrún Anna Kristjánsdóttir, húsmóðir ogræstitæknir, Furu- lundi 13F, Akureyri, er sextug í dag. Starfsferill Guðrún Anna fæddist að Básum í Grímsey í Eyjaijarðarsýslu en fór þriggja ára að Núpi í Dýrafirði og flutti svo síðar til Akureyrar. Guð- rún Anna stundaöi nám við Núps- skóla í Dýrafirði og við Húsmæðra- skóla Akureyrar 1949-50. Hún stundaði húsmóðurstörf í rúm fjörutíu ár og hefur nú veriö ræsti- tæknirítuttuguár. Guðrún Anna átti heima á Hjalt- eyri í sextán ár þar sem maður hennar var vélstjóri við síldarverk- smiðjuna um tuttugu ára skeið. Hún er félagi í Kvenfélagi Akureyrar- kirkju og starfar í Rebekkustúkunni nr. 2 í Oddfellowreglunni. Fjölskylda Guðrún Anna giftist 2.9.1950 Sig- mundi Óla Reykjalín Magnússyni, f. 4.12.1923, umdæmisstjóra Vinnu- eftirlits ríkisins á Norðurlandi eystra en hann er sonur Magnúsar Símonarsonar, hreppstjóra í Gríms- ey, og Siggerðar Bjarnadóttur. Böm Guðrúnar Önnu og Sig- mundar eru Þórir Ottó sem lést 1973 en sonur hans er Þórir Sigmundur; Þórný Kristín en hún á tvö börn, Björn Þór og Árnu Rún; Stefanía Gerður en hún á þrjú börn, Önnu Kristínu, Magnús Gunnar og Jón- ínu Björg; Sigrún Hulda en sonur hennar er Einar Jóhannes. Guðrún Anna átti tíu systkini en á nú tvær systur á lífi. Þær eru Sig- ríður Jóhanna, gift Benedikt Dav- íðssyni, fyrrv. útibússtjóra Sam- vinnubankans á Kópaskeri, og Þór- hildur Björg, gift Jóhanni Jónssyni, skrifstofustjóra á Húsavík. Fósturforeldrar Guðrúnar Önnu voru Sigtryggur Guðlaugsson, f. 1862, d. 1959, prestur, stofnandi og skólastjóri ungmennaskólans á Núpi í Dýrafirði, og Hjaltlína Mar- grétGuðjónsdóttir, f. 1890, hús- freyja. Foreldrar Guðrúnar Önnu voru Kristján Guðmundur Eggertsson, f. 1893, d. 1963, síðast útibússljóri KEA í Grímsey, og Guðrún Þórný Jó- hannesdóttir, f. 1896, d. 1935, hús- freyja. Ætt Systir Kristjáns Guðmundar var Kristjana Anna, móðir Eggerts skip- stjóra og Sigurðar, b. og fræðimanns í Hvítárholti, Sigurmundssona. Kristján Guðmundur var sonur Eggerts Jochumssonar, kennara og sýsluskrifara á ísafirði, bróður Matthíasar þjóðskálds. Eggert var sonur Jochums, b. í Skógum í Þorskafirði, Magnússonar. Móðir Jochums var Sigríður, systir Guð- rúnar, langömmu Áslaugar, móður Geirs Hallgrímssonar. Sigríður var dóttir Ara Jónssonar, b. á Reykhól- um, og konu hans, Helgu Árnadótt- ur, prests í Gufudal, Ólafssonar, lög- sagnara á Eyri, Jónssonar, langafa Jónsforseta. Móðir Eggerts Jochumssonar var Þóra, systir Guðrúnar, ömmu skáld- anna Herdísar og Ólínu Andrés- dætra. Þóra var einnig systir Guð- mundar, prests og alþingismanns á Kvennabrekku, föður Theodóru skáldkonu. Móðir Kristjáns Guðmundar var Guðrún, systir Kristínar, móður Sigurðar, skólastjóra á Laugum, Gísla ritstjóra og Filippíu skáldkonu (Hugrúnar) Kristjánsbarna, en son- ur Hugrúnar er Helgi Valdimarsson læknir. Guðrún var dóttir Kristjáns, b. á Ytra-Garðshorni í Svarfaðardal, Jónssonar, og Sólveigar Jónsdóttur, b. á Syðra-Garðshorni, Jónssonar. Foreldrar Guðrúnar Þórnýjar voru Jóhannes Sæmundsson, frá Narfastaðaseli í Reykjadal, og kona hans, Sigríður Þórarinsdóttir frá Víkingavatni, Föðurbróðir Guðrún- ar var Friðrik, faðir Sæmundar, framkvæmdastjóra Stéttarsam- bands bænda og Barða, fyrrv. fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bandsins. Jóhannes var sonur Sæ- mundar, b. í Narfastaðseli, Jónsson- ar. Móðir Jóhannesar var Þómý Jónsdóttir, b. á Fjöllum, Gottskálks- sonar, b. á Fjöllum, Magnússonar, ættfóður Gottskálksættarinnar, fóö- ur Magnúsar, afa Benedikts Sveins- sonar alþingisforseta. Meðal móðursystkini Guðrúnar Þórnýjar var Björn, faðir Þórarins, Guðrún Anna Kristjánsdóttir. skólameistara á Akureyri. Sigríður, amma Guðrúnar Þórnýjar, var dótt- ir Þórarins, b. á Víkingavatni, Björnssonar, b. á Víkingavatni, bróður Þórarins, afa Jóns Sveins- sonar, Nonna, og langafa Árna Óla. Annar bróðir Björns var Grímur, langafi Sveins Víkings prests og Sveins Þórarinssonar listmálara. Björn var sonur Þórarins, b. á Vík- ingavatni, Pálssonar. Guðrún Anna er að heiman á af- mælisdaginn. 85 ára Sigurdrífa Jóhannsdóttir, Stóragerði 12, Reykjavík 50ára 40ára Vilborg Sigmundsdóttir, Njálsgötu 77, Reykjavík. Pálína G. Þorgilsdóttir, HátúnilOb, Reykjavík. Þuríður Magnúsdóttir, Karlsbraut 27, Dalvík. 80 ára Karl Guðmundsson, Háholti 15, Akranesi. 60ára Guðrún A. Kristjánsdóttir, Furulundi 13f, Akureyri. Einar Ármannsson, Norðurbraut 12, Höfn í Hornafirði. Ragnhildur Einarsdóttir, Tungulæk, Borgarhreppi. ÁrsællEgilsson, Hamraborg, Tálknafirði. Sigrún Þorsteinsdóttir, Illugagötu 39, Vestmannaeyjum. Hans Þór Jensson, Byggðarholti le, Mosfellsbæ. Hafdís Jónsdóttir, Bleiksárhlíð 38, Eskifirði. Hallgrímur Þorsteinsson, Starhólma 14, Kópavogi. Arnfriður Erlendsdóttir, Tjarnarlundi 15e, Akureyri. Viðar Friðriksson, Kvisthaga 11, Reykjavík. Örn ValbergÚifarsson, Álakvísl 43, Reykjavík. Magnea Guðmundsdóttir, Laugamesvegi 108, Reykjavík. Hreinn Skagfjörð Gíslason, Ægissíðu 7, Grenivik. Hilmar Eysteinsson, Æsufelli 4, Reykjavík. Guðjón A. Eggertsson, Árkvörn, Fljótshlíðarhr. Snorri Guðmundsson, Fjarðarseli 7, Reykjavík. Málfriður Lorange, Eskihlíð lOa, Reykjavík. Magnús Agnarsson, Sól&íö 24, Vestmannaeyjum. Knútur Aadnegard, Lerkihlíð 7, Sauðárkróki. ÍBÚÐ ÓSKAST Fullorðinn reglusamur maður óskar eftir góðri 3ja-4ra herb. íbúð, eitthvað af hús- gögnum væri æskilegt. Fyrirframgreiðsla 6-12 mán. Uppl. í síma 11219 og 72131 e. kl. 17. við gengi isl. kr. 140 A ÍSLANDI • TAKMARKAÐ MAGN • TRYGGÐU EINTAK STRAX Empire pöntunarlistinn er enskur með nýjustu tískuna, gjafavörur o.fl. Pantið skólavörurnar strax og jólavörurn- ar i tima. Empire er betri pöntunarlisti. Verð kr. 350 + burðargjald. Hátúni 6B, simi 91-620638. Andlát_________________ Halldór Sigfússon Halldór Sigfússon, fyrrv. skatt- stjóri Reykjavíkur, til heimilis að Hjálmholti 4, Reykjavík, lést 16.8. sl. en útför hans var gerð frá Dóm- kirkjunni þriðjudaginn 27.8. sl. Starfsferill Halldór fæddist að Kraunastöð- um í Aðaldal í Suður-Þingeyjar- sýslu 2.5.1908 og ólst upp í Aðaldal ogíReykjahverfi. Hann stundaði nám við Sam- vinnuskólann 1927-29 og stundaði síðan framhaldsnám við Pitmans School í London 1933. Halldór var við skrifstofustörf hjá embætti lögreglustjóra í Reykjavík 1930-34, en þau störf voru einkum fólgin í rannsóknum á gjaldþrotabúum. Hann starfaði hjá endurskoðunardeild Lands- banka íslands hluta árs 1934 en var síðan skattstjóri í Reykjavík 1934-78. Halldór var formaður niðurjöfn- unarnefndár Reykjavíkur 1934^1. Þá sat hann í milliþinganefnd í. skatta- og tollamálum 1938-41, auk þess sem hann starfaði að fleiri málum á sviði skattamála. Fjölskylda Dóttir Halldórs er Sigrún Hall- dórsdóttir, f. 23.2.1941, ekkja eftir Sigurjón Magnússon fram- kvæmdastjóra en hann lést 1979. Börn Sigrúnar og Sigurjóns eru • Dóra Elísabet, f. 1961; Bára Heiöa, f. 1963; Sigrún Björk, f. 1967; Steinar Halldór, f. 1972. Börn Dóru Elísabetar og langafa- Halldór Sigfússon. börn Halldórs eru Anna Björk Marteinsdóttir, Bryngeir Arnar Bryngeirsson, Berglind Bryngeirs- dóttir og Eva Bryngeirsdóttir. Halldór átti tvær systur sem báð- ar eru á lífi og tvo bræður sem báöir eru látnir. Sýstkini hans: Björn Sigfússon, fyrrv. háskóla- bókavörður, er lést sl. vor, var kvæntur Kristínu Jónsdóttur en fyrri kona hans var Droplaug Sveinbjarnardóttir; Arnþóra, hús- móðir í Reykjavík; Hólmfríður, ekkja Bjartmars Guðmundssonar, alþingismanns frá Sandi; Pétur, verkamaður í Reykjavík. Foreldrar Halldórs voru Sigfús Bjarnarson, f. 22.12.1872, d. 6.6. 1958, b. og hreppstjóri á Krauna- stöðum og Stóru-Reykjum, og Hall- dóra Halldórsdóttir, f. að Kálfa- strönd við Mývatn 20.5.1884, d. 20.4. 1955, húsmóðir. Ætt Sigfús var sonur Björns, b. á Granastöðum í Köldukinn, Magn- ússonar, prest á Grenjaðarstað, bróður Margrétar, ömmu Ólafs Friðrikssonar æskulýðsleiðtoga. Önnur systir Magnúsar var Guðný, amma Haraldar Níelssonar prófess- ors, fóður Jónasar Haralz banka- stjóra og Soffiu, móöur Völundar- bræöra. Magnús vár sonur Jóns, prests á Grenjaðarstað, Jónssonar, prest á Hafsteinsstöðum, Jónsson- ar, prests í Holtsmúla, Gunnlaugs- sonar. Móðir Björns á Granastöðum var Þórvör Skúladóttir, prests á Múla, Tómassonar, bróöur Helgu, ömmu Helga Hálfdanarsonar, lekt- ors og sálmaskálds, fóður Jóns bisk- ups og Álfheiðar, ömmu Sigurðar Iándal lagaprófessors og Páls Línd- al ráðuneytisstjóra. Þá var Helgi faðir Tómasar yfirlæknis, fóöur Helga yfirlæknis, föður Tómasar yfirlæknis og Ragnhildar, fyrrv. ráðherra. Helga var einnig lan- gamma Hálfdanar, fóður Helga, skálds og leikritaþýðanda. Móðir Sigfúsar var Hólmfríður Pétursdóttir, b. í Reykjahlíð, Jóns- sonar, prests í Reykjahlíð, Þor- steinssonar, ættfóður Reykjahh'öar- ættarinnar. Systir Hólmfríðar var Petrea, amma Jakobs Gíslasonar orkumálastjóra. Halldóra var dóttir Ilalldórs, b. á Kálfaströnd við Mývatn, Sigurðs- sonar b. þar Tómassonar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.