Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991.
Utlönd
Fallist á vopna-
hlé fyrir Króatíu
Lýðveldi Júgóslavíu, sem eiga í
innbyrðis illdeilum, hafa samþykkt
áætlun Evrópubandalagsins um frið-
arviðræður og vopnahlé í Króatíu
sem alþjóðlegar eftirlitssveitir munu
fylgjast með.
Hans van den Broeck, utanríkis-
ráöherra Hollands, sem lagði fram
tillögur EB, sagði að samkomulagið
væri „mikilvægt skref í vopnahlés-
átt. Við leggjum mjög mikla áherslu
á vopnahléið og við viljum að bardög-
um verði hætt samstundis".
Stipe Mesic, forseti Júgóslavíu,
sagði aö Króatar og Serbar, sem eru
helstu fjendurnir í átökunum sem
hafa kostað nær fjögur hundruö
mannslíf, styddu tillögu Evrópu-
bandalagsins.
Leiðtogar lýðveldisins Montenegro
sátu hjá í atkvæðagreiðslunni um
áætlunina en féllust á að skrifa und-,
ir samkomulagið. Hinir sjö fulltrm
arnir í átta manna forsætisráði Júgó-
slavíu voru henni samþykkir.
Samkomulagið var undirritað af
Mesic fyrir hönd forsætisráðsins, af
Ante Markovicc, forsætisráðherra
sambandsríkisins, og af leiðtogum
allra lýðveldanna sex.
Júgóslavía hefur verið á barmi
borgarastyrjaldar vegna þjóðernisá-
taka sem brutust út þegar Króatía
og Slóvenía lýstu yfir sjálfstæði sínu
í júní.
Serbneskir skæruliðar í Kröatíu,
Júgóslavneskur hermaður rakar sig við skriðdreka sinn í austurhluta Króa-
tíu. Samið hefur verið um vopnahlé
á að sitja friðarráðstetnu.
þar sem Serbar eru 600 þúsund af
fjórum og hálfri milljón íbúa, hafa
barist gegn sjálfstæðisviðleitni lýð-
veldisins með fulltingi júgóslavneska
hersins.
Samkvæmt friðaráætlun Evrópu-
bandalagsins mun tvö hundruð
manna sveit alþjóðlegra 'eftirlits-
manna fylgjast með vopnahléinu á
sama tíma og lýðveldin leggja deilur
sínar í gerðardóm sem starfa mun í
tvo mánuði.
„Ég verð ánægður ef fleiri fórn-
lýðveldinu og deiluaðilar hafa fallist
Símamynd Reuter
arlömb falla ekki og ekki verður
troðið á rétti neins eftir þessa undir-
ritun,“ sagði Mesic forseti við frétta-
menn.
Slobodan Milosevic, forseti Serbíu,
sagði við Hans van den Broeck: „Það
verður að gera ráðstafanir og sjá til
þess að vernda fórnarlömbin og fóm-
arlömbin eru Serbar í Króatíu."
Vopnahlé, sem áður hafði verið
samið um, leystust fljótlega aftur upp
í bardaga þegar stríðandi fylkingar
reyndu að ná yfirráðum yfir um-
A LEK ÞOK
OG SPRUNGMA
W.ffHi
i • :
-Jtnfi
■■JffU...
ITIjtj/l/ffi
Éw J . 7
v l«f“‘7
• • • dugarekkert
nema varanleg viðgerö og það áður en
vetur gengur í garð.
í Húsasmiðjunni nýtur þú aðstoðar fag-
manna sem veita ráðgjöf varðandi viðgerðir
og efnisval. í Timbursölu Húsasmiðjunnar
fæst mikið úrval utanhússklæðningar bæði
á þök og útveggi. Komdu með teikningu af
húsinu þínu og láttu fagmenn okkar magn-
taka og gera verð tilboð. Við útvegum
jafnvel menn til verksins.ef þörf krefur.
HÚSASfMKMAN
Súðarvogi 3-5 Sími 68 77 00
deildum bæjum og þorpum þar sem
íbúar voru af blönduðu þjóðerni.
Vestrænir stjórnarerindrekar
sögðu að framtíð nýjasta vopnahlés-
ins ylti á því að þúsundir serbneskra
skæruliða í einkaherjum, sem ekki
lúta pólitískri stjórn, færu eftir því.
Þeir lýstu samkomulaginu sem
sigri fyrir EB sem hafði sett alþjóð-
legan heiður sinn að veði við að finna
lausn á deilunum í Júgóslavíu eftir
að hafa mistekist að koma fram sem
eitt ríki í Persaflóastríðinu.
Mesic sagði að legiö hefði nærri að
viöræðurnar færu út um þúfur þegar
Serbar fóru fram á það að Króatar
drægju sveitir sínar frá átakasvæð-
unum áður en þeir undirrituðu sam-
komulagið. Sú afstaða klauf forsætis-
ráðið.
„Það var ekki hægt að fallast á það
á sama tíma og tuttugu króatískar
borgir máttu sæta árásum," sagði
hann.
Serbar sáu svo að sér þegar Mesic
hótaði að hafa aðra atkvæðagreiðslu
um málið.
Bardagar héldu áfram í Króatíu á
sunnudag þegar van den Broeck kom
til landsins til að þrýsta á um að sam-
ið yrði um vopnahlé. Króatísk stjórn-
völd sögðu að flmm manns að
minnsta kosti hefðu fallið og margir
fleiri særst í bardögum á fimmtán
stöðum.
Reuter
Kanadamaður
íKaldifyrir
vopnasmygl
Sambandsherinn í Júgóslavíu
hefur í haldi Kanadamann af
króatískum ættum, grunaðan um
að standa fyrir smygli á vopnum
til Króata. Flugherinn þvingaði á
laugardagimi flugvél á vegum
mannsins til að lenda í Zagreb.
Við leit í vélinni, sem er af gerð-
inni Boeing 707 og í eígu flugfé-
lags í Úganda, fannst mikið af
vopnum og skotfærum.
Talsmenn hersins segja að ekki
minna en 19 tonn af hergögnum
hafl verið um borð, aðallega riffl-
ar. Vopnin koma frá óþekktum
stað í Afríku. Á laugardaginn var
flugvél frá Rúmeníu einnig neydd
til að lenda í Zagreb vegna gruns
um að þar væru vopn til Króata
innanborðs en svo reyndist ekki
vera.
Lofthelgi Júgóslavíu yfir Sló-
veníu og Króatíu hefur nú verið
lokað og segja flugmálayflrvöld
óvíst hvenær flug yfir svæðinu
getur hafist á ný.
Ofursti í sambandshernum seg-
ir að brottfluttir Króatar hafi sent
Króötum vopn fyrir ekki minna
en 880 þúsund Bandaríkjadali á
síðustu vikum. Hefur hann þetta
eftir Kanadamanninum sem nú
er í haldi.
Sambandsherinn leggur mikla
áherslu ’á að koma í veg fyrir
vopnasendingar til aðskilnaðar-
sinna i Króatíu og Slóveniu til að
koma í vegfyrir að þeir geti hald-
ið uppi skæruhernaði gegn sam-
bandhemum.
Króatar segjast ekkert vita um
hvað var í flugvélinni því þeir
hafi ekki nátt koma nærri henni.
Um ferðir hennar segjast þeir
ekkertvita.
Reuti i
Eugene Terre Blanche, leiðtogi nýnasista i Suður-Afríku, fór á hesti til fund-
ar við menn sína. Hann er studdur af Nelson Mandela. Símamynd Reutei
Mandela tekur
undir með leið-
toga nýnasista
Eugene Terre Blanche, leiðtogi
nýnasista í Suður-Afriku, hefur beðð
forseta landins að sjá aumur á þrem-
ur liðsmönnum sínum og gefa þeim
frelsi fremur en að láta þá farast úr
hungri í fangelsi. Mennirinr hafa
verið í hungurverkfalli síðustu vik-
ur. Lögreglan grunar þá um að vera
skæruliða og hafa staðið fyrir
hryðjuverkum. Nasistaleiðtoginn
fékk óvæntan stuðning frá Nelson
Mandela í málaleitan sinni.
Terre Blanche reið í gær á hesti til
fundar við menn sína þar sem þeir
bíða dóma í fangelsi í Pretoríu. Hann
hefur mikið fylgi meðal fólks af ætt-
um Búa og vísar jafnan í baráttu
þeirra við blökkumenn og síðar
Breta í Suður-Afríku fyrr á árum.
„Ég bið de Klerk forseta að sýna
miskunn,“ sagði Terre Blanche á leið
sinni til fangelsins. „Við vitum báðir
hverjir eru óvinir okkar. Óvinirnir
ertu Afríska þjóðarráðið og frjáls-
lyndir fjölmiðlar."
Terre Blanche segir að menn sínir
eigi að fá frelsi samkvæmt lögum um
sakaruppgjöf pólitískra fanga rétt
eins og menn af ættum blökku-
manna. Yfirvöld vilja ekki viður-
kenna að lögin eigi við um þessa þrjá
menn. Þeir eru sakaðir um að hafa
orðið manni að bana og sært nokkra
í sprengjutilræði.
Nelson Mandela, leiðtogi Afríska
þjóðarráðsins, hefur tekið undir
kröfuna um að mennirnir verði látn-
ir lausir. Talið er að hann hugsi sér
að mennirnir geti borið vitni um
þátt öryggislögreglu landins í að æsa
til ófriðar meðal ættflokka blökku-
mannaílandinu. Reuter