Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 02.09.1991, Blaðsíða 8
MÁNUDAGUR 2. SEPTEMBER 1991. 8 Útlönd dv Gorbatsjov hrósar „Ég dáist að hugrekki Raísu. Hún og öll fjölskyldan studdu þá á- kvörðum mína að láta ekki undan kröfun valdaránsmanna hvað sem það kostaði. Viö höfðum þó fulla ástæðu til að óttast um líf okkar,“ sagði Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor- seti í viðtali vlð sovéska sjónvarpið. Þar skýrði hann ítarlega frá ástandinu í sumarhúsi þeirra hjóna á Krim meðan valdaráns- menn voru við völd. Gorbatsjov sagði að Raísa hefði fengið hjartaáfall og verið alvar- iega veik um tíma en væri nú óðum að ná sér. Fyrst eftir að hún veikt- ist missti hún málið en Gorbatsjov sagði að hún væri nú farin að tala á ný. Gorbatsjov sagði að mikill ótti hefði gripið um sig hjá fólkinu i sumarhúsinu þegar þær fréttir bárust í breska útvarpinu, BBC, að herinn og KGB hefðu rænt völdum og útsendarar valdaránsmanna væru á leið til þeirra. „Viö vissum ekki hvaö þessir menn hefðu í hyggju og bjuggumst viö hinu verstasagði Gorbatsjov. Auk Gorbatsjovhjónanna voru í húsinu Irina dóttir þeirra og Ana- tolíj maður hennar og tvær dætur þeirra. Þá var þar og þjónustufólk og varðmenn. John Major, forsætisráðherra Breta, og Norma kona hans færðu Raisu að gjöf upptökur af Ösku- busku, óperu Rossinis, þegar þau komu við í Moskvu nú um helgina. Raísa sá fyrrihluta óperunnar í Lundúnum í sumar þegar hún var þar með bónda sínum. Hún varð þá að fara fyrir hlé vegna anna en hefur nú fengiö alla óperuna á myndbandí. Breskir embættismenn segja aö Norma hafi haft hug á að hitta Raísu að máli í heimsókninni til Moskvu en af því gat ekki orðið og nú eru John og Norma farin til Kína. Rcuter Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti og John Major, forsætisráðherra Bretlands, ræddust við i Moskvu i gær um að- Stoð Vesturianda við Sovétríkin. Símamynd Reuter Nýtt plagg frá Gorbatsjov og leiðtogum 10 lýðvelda: Dúkkutöskurnar komnar aftur Nú einnig sem bakpoki í skólann, leikfimi, leikskólann og sund. Sendum í póstkröfu Heildsala - smásala TÍTANhf LÁGMÚLA 7 SÍMI 814077 Sovétríkin á að leysa upp - hugmyndin að komið verði á nýju laustengdu bandalagi Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti og leiðtogar tíu lýðvelda lögðu til að Sovétríkin yrðu leyst upp í núver- andi mynd og nýtt frjálslegra sam- band lýðveldanna myndað. í átta liða áætlun, sem lögö var fyr- ir þing Sovétríkjanna í morgun, var hvatt til þess að nýr sambandssátt- máli yrði undirritaður. Þar er gert ráð fyrir að hvertr lýðveldi ákveði hversu náin samskipti það vill hafa við hið nýja bandalag. í upphafi þingfundarins las forseti Kazakhstan upp yfirlýsingu þar sem lögð var til róttæk breyting á stjóm- arskránni. Hlé var síðan gert á fundinum til þess að þingmenn frá lýðveldunum gætu rætt yfirlýsinguna sem var undirrituð af Gorbatsjov og leiðtog- um tíu lýðvelda. John Major, forsætisráðherra Bretlands, sagði eftir skyndiheim- sókn sína til Moskvu í gær að hann tryði því að Míkhaíl Gorbatsjov Sov- étforseti og Borís Jeltsín, forseti rússneska lýðveldisins, gætu unnið saman til að bjarga efnahagslífi Sov- étríkjanna. „Þeir gera sér báðir grein fyrir þörfinni að vinna saman í þágu Sov- étríkjanna. Ég er þeirrar skoðunar að þið munuð sjá þaö gerast,“ sagði Major við lok heimsóknar sinnar áður en hann hélt áleiðis til Kína. Major lagði jafnmikla áherslu á viðræður sínar við Míkhaíl Gorbat- sjov og Borís Jeltsín sem leiddi and- stöðuna við valdaránstilraun harð- línuaflanna og viðurkenndi með þvi hina nýju skipan í Sovétríkjunum. Jeltsín þáði boð Majors um að koma í opinbera heimsókn til Bret- la'nds og uppskar þar með þá virð- ingu á alþjóðavettvandi sem vest- rænir leiðtogar höfðu löngum mein- að honum. Þeim haföi veist erfitt að meðtaka lýðskrumarastíl hans og oft hatrammar árásir á Gorbatsjov. Major ræddi við forsætisráðherra Eystrasaltslandanna þriggja sem Bretland og 30 önnur lönd viður- kenndu í síðustu viku og skálaði fyr- ir sjálfstæði þeirra. Gorbatsjov virtist reiðubúinn í sjónvarpsviðtali í gær aö viðurkenna sjálfstæði Eystrsaltslandanna dag- inn áður en sovéska þingið ræðir sjálfstæðismál þeirra á fundi í dag. John Major sagði að í annarri um- ferð viðræðnanna við Gorbatsjov í gærkvöldi hefði einkum verið rætt um sambandið milli sovésku miö- stjórnarinnar og lýðveldanna. Gor- batsjov hitti leiðtoga ellefu lýðvelda af fimmtán í gær. Þó svo að tíu lýðveldanna hefðu þegar lýst yfir sjálfstæði sínu sagðist Major vera snortinn af vilja þeirra til að vinna saman innbyrðis og vinna með miðstjórnarvaldinu. Hann sagði að hann hefði leitað eftir fullvissu Gorbatsjovs og Jeltsíns um að kjarnavopn Sovétríkjanna yrðu undir ströngu eftirliti mið- stjórnarvaldsins og þeir hefðu verið sama sinnis. Sovétríkin eru að leita eftir aðstoð frá sjö helstu iðnríkjum heims til að koma á markaðshagkerfi. Major er leiðtogi sjöveldahópsins um þessar mundir. Hópurinn hefur verið tregur til að veita íjárhagsaðstoð fyrr en víðtækum efnahagsumbótum hefur verið hrundið í framkvæmd. Sjöveldin samþykktu sex hða áætl- un um aðstoð við Sovétríkin í síðustu viku og þar er aðaláherslan lögð á matvælaaðstoð til að koma í veg fyr- ir hungursneyð í vetur. Þegar Major gefur skýrslu um ferð sína getur hann skýrt frá því að Sov- étríkin ætli að fara að kröfum iðn- ríkjanna sjö um víðtækan niður- skurð í framlögum til varnarmála sem vestrænir sérfræðingar segja að fái um fjórðung af þjóðarframleiðsl- unni. í heimsókn sinni gaf Major sér einnig tíma til að leggja blómsveig á þann stað þar sem þrír ungir menn létu hfið þegar þeir reyndu að koma í veg fyrir að skriðdrekar kæmust í gegnum götuvígi fyrir utan rúss- neskaþinghúsið. Reuter Viðurkenning að vestan í dag -sjálfstæði rætt í sovéska fulltrúaþinginu George Bush Bandaríkjaforesti segir að í dag megi vænta tíðinda frá stjórn sinni varðandi sjálfstæöisyfir- lýsingar Eystrasaltsríkjanna. Hann vildi þó ekki segja í gær við hverju þessar þjóðir mættu búast en sagði að „þeim þætti það vafalaust áhuga- vert“. Bush sagði að hann heföi greint Vytautas Landsbergis, forseta Lithá- ens, frá þessu í síma skömmu eftir aö Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti lét þau orð falla að ekkert væri því til fyrirstöðu af hálfu Sovétstjórnar- innar að Eystrasaltsríkin fengju sjálfstæði. Sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna kemur til umræðu í sovéska fulltrúa- þinginu í dag. Almennt er litið svo á að orð Gorbatsjovs gefi tóninn um hver veröi niðurstaða fulltrúaþings- ins. Því má búast við að Eystrasalts- ríkin verði að fullu sjálfstæð á næstu dögum. Leiðtogar Eystrasaltsríkjanna, leikum Letta, hafa veriö mjög harð- orðir í garð Bandaríkjamanna fyrir að hika við að viðurkenna ríkin þeg- ar íjölmörg ríki á Vesturlöndum hafl þegar gert það. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.