Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991. Sérstæö sakamál Sannið það - ef þið getið Þrívegis var fólk ráöiö af dögum á þann hátt aö ýmislegt benti til aö kaldrifjaður og kaldhæðinn morðingi heföi veriö á ferð. Þar kom að lögreglan þóttist næstum alveg viss um hver hann væri. Hann var yfirheyrður oftar en einu sinni vísaöi hann öllum ásökunum á bug. Málið var því oröið erfitt viðfangs. Þræðir úr skóm og peysu í allri pappírshrúgunni sem var á gólfinu fundu tæknimenn rann- sóknarlögreglunnar tvær vísbend- ingar sem gátu orðið til þess aö leiða í ljós hver hafði myrt Edeline Allen, fimmtíu og níu ára, á heim- ih hennar við Stockton Road í Oak- land í Kaliforníu. En hvers virði voru þær? Það var 16. ágúst 1988 sem Edel- ine Allen var myrt. Og vísbending- amar voru þræðir úr strigaskóm og peysu. Ljóst var að þeir vora ekki úr neinum af þeim fatnaði, skófatnaði eða öðrum, sem Edeline hafði átt eða var í eigu manns hennar, Ernies, sem var sextíu og eins árs. Allt benti því til að morð- inginn hefði rekist í eitthvað og þannig hefðu þræðimir orðið eftir. Gallinn var hins vegar sá að vís- bendingamar kæmu ekki að neinu gagni nema sá fyndist sem peysuna og strigaskóna átti og hvort tveggja væri þá enn í vörslu hans. Farið hafði verið ránshendi um heimili Edeline. Þaðan höföu horf- ið skartgripir en það sem hvað mesta athygli vakti var sjálft morð- ið. Ljóst var að Edeline var á þeim aldri að hún gat ekki hafa veitt morðingjanum mikla mótspyrnu. Það mátti þvi álykta að morðið hefði hugsanlega veriö óþarft. Þá var aðferðin sem beitt var þannig að hún vakti athygli. í brjósti Edel- ine fundust tvær .22 hlaupvíddar kúlur og aðrar tvær sams konar í hnakka hennar. Þótti ljóst að þeim hefði verið skotið eftir að hún fékk kúlurnar í brjóstið. Nýtt morö Meðal þeirra sem lögreglan hafði augastað á vom gamlir kunningjar hennar, Wayne Monaghan, tuttugu og þriggja ára, og Maxwell Fancetti sem var tveimur árum yngri. En hvor um sig var háll sem áll og þótt fullvíst þætti að Fancetti hefði mörg innbrot og líkamsárásir á samviskunni hafði aðeins tekist að sanna fá þeirra á hann. En áður en lögreglan fékk tæki- færi til að yfirheyra þá gmnuðu fannst lík skammt utan við borg- ina. Það var þann 26. ágúst. Sá myrti hafði verið skotinn tvívegis í bakið og síðan hafði hann verið skotinn tveimur skotum í hnakk- ann. Hlaupvídd byssunnar, skammbyssu, var sú sama og þeirr- ar sem Edeline Allen hafði verið skotin með. Líkið reyndist vera af Maxwell Fancetti. Wayne Monaghan var nú hand- tekinn og yfirheyrður í margar klukkustundir en hann lét engan bilbug á sér finna og sýndi af sér. nokkum hroka. Hann kvaðst ekk- Wayne Monaghan. ert vita um moröiö á vini sínum og þegar tekið var aö spyrja hann um Edeline Allen sagðist hann ekki hafa minnstu hugmynd um hver hún hefði verið eða að hún hefði verið myrt. Húsleitin Meðan >firheyrslan stóð yfir Monaghan var gerö leit í búðinni sem hann bjó í. Þar fundust striga- skór og peysa sem þegar var farið með til tæknimanna lögreglunnar. Þeir gátu nokkru síðar staðfest að þræðirnir sem fundust á heimili Edeline Allen væm úr þessum strigaskóm og peysunni. Nú þótti rannsóknarlögreglu- mönnum sem morðmálið væri í þann veginn að upplýsast. Var Monaghan tjáð að ljóst væri að hann tengdist morðinu á frú Allen. En hann lét sér hvergi bregða. Hann játaði að hann ætti bæði skóna og peysuna en sagði að hann og Maxwell Fáncetti hefðu búið saman í úbúðinni og reglulega gengið í fótum hvor annars. „Við Maxwell vorum vinir,“ sagði hann. „Það er líka erfitt að búa í íbúð með manni sem er ekki vinur manns. Þess vegna deildum við öllu og hann gekk eins ,oft í fótum af mér og ég af honum. Ég get hins vegar ekki sagt til um hvort hann skaut gömlu kerlinguna eða ekki en eitt er víst og það er að ég gerði það ekki. Annars getið þið ákært mig og látið mig koma fyrir rétt en þið vitið eins vel og ég að þið fengj- uð mig aldrei dæmdan af þessum gögnum." Og rannsóknarlögreglumennirn- ir vissu að hann hafði rétt fyrir sér og létu hann lausan. Fjarvistarsönnun Ekki styrkti það stöðu rannsókn- arlögreglunnar að tvær tvítugar stúlkur, Celia Ravenscroft og Jean Donahue, skýrðu frá því við yfir- heyrslu, eftir að Monaghan vísaði á þær, að þær hefðu verið með honum á þeim tíma er Edeline Al- len var myrt. Ljóst var að stúlkurn- ar gátu ekki talist sérstaklega áreiðanlegar en jafnljóst var að framburður þeirra yrði tekinn’ gild- ur fyrir rétti. Margt benti til að þeir Wayne Monaghan og Maxwell Fancetti hefðu deilt með sér stúlkunum tveimur á sama hátt og þeir deildu flestu öðru. Þótt stúlkurnar væra yfirheyrð- ar lengi og af ákveðni breyttu þær ekki framburði sínum. Það þótti hins vegar grunsamlegt hve sam- mála þær voru, jafnvel um minni háttar atriði, og benti það til að þær hefðu samhæft framburð sinn, líkt og um æfingu hefði verið að ræða fyrir hugsanlega yfirheyrslu. Þriðja morðið Viku eftir yfirheyrsluna var þriðja moröið framið. Lík ungrar stúlku fannst. Hafði hún verið skotin tveimur skotum í líkamann en síðan tveimur i hnakkann. Not- uö hafði verið skammbyssa með hlaupviddina .22. Líkið reyndist vera af Celiu Ravenscroft. Enn á ný var Wayne Monaghan tekinn til yfirheyrslu en hann lét engan bilbug á sér finna sem fyrr og lýsti nú yfir því að Jean Dona- hue gæti veitt honum fjarvistar- sönnun því hann heföi verið méð henni þegar morðið var framið. Clough rannsóknarlögreglumað- ur, sem stýrði rannsókn morðmál- anna þriggja, varö brátt ljóst að lík- Celia Ravenscroft. lega tækist honum ekki að sanna neitt á Monaghan án þess að ný gögn fyndust. Hann lét því fylgjast með ferðum Jean Donaghue allan sólarhringinn. Lengst af dvaldist hún í íbúð sinni. Af og til heimsótti hún Wa- yne og nokkrum sinnum fór hún í íbúð þriðja aðila við Delano Drive. Eftir nokkra daga var ákveðið að gera leit í íbúð Jean og íbúðinni við Delano Drive. Leitin á síðamefnda staðnum bar árangur. Skammbyssa finnst í íbúðinni fannst taska. Stúlka sem bjó þar skýEði svo frá að hún geymdi hana fyrir gamla skólasyst- ur sína, Jean Donahue. í töskunni fundust peningar og svaraði upp- hæðin til þeirrar sem stolið hafði verið á heimili Edeline Allen. Rannsóknarlögreglan gat að vísu ekki sannað að þeir væm þaðan komnir en í töskunni fundust einn- ig skartgripir og auðsannað var að þeim haföi verið stolið af heimih Allenshjónanna. Það sem mestu skipti þó var að í töskunni fannst .22 hlaupvíddar skammbyssa. Tæknimenn sýndu síðan fram á að það væri byssan sem Edeline Allen, Maxwell Fancetti og Celia Ra- venscroft voru skotin til bana með. Að auki fundust á henni fingraför. þau reyndust vera af Wayne Mo- naghan. Önnur fingraför voru ekki á byssunni. Þegar Monaghan var handtekinn var framkoma hans svipuð og í fyrri skiptin. „Ef þið vitið að ég hef gert það þá skulið þið sanna það,“ sagði hann. Og það var einmitt það sem rann- sóknarlögreglan gerði. í þetta sinn fann Monaghan enga undankomu- leiö. Jean Donahue. Málsatvik skýrast Þegar Jean Donahue var tekin til yfirheyrslu viðurkenndi hún að hafa fengið Celiu Ravenscroft á staðinn þar sem hún var myrt. Hún neitaði hins vegar að vera á nokk- urn hátt tengd morðunum á Maxw- ell Fancetti og Edeline Allen. Maxwell Fancetti hafði orðið hverfa úr þessum heimi svo hann •gæti ekki komið Wayne í vanda en eftir fyrri yfirlýsingar Waynes hefði Maxwell verið tekinn til yfir- heyrslu hefði hann verið á lífi. Og væri framburður Waynes réttur hlaut Maxwell að vera sá sem myrt hafði Edeline Allen. Celia var myrt af sömu ástæðu. Hún hafði tekið aö sýna hræðslu- merki eftir morðið á Maxwell og Wayne óttaðist að hún þyldi ekki frekari yfirheyrslur. Málalok Wayne Monaghan fékk langan fangelsisdóm og hæpið að hann fái nokkru sinni frelsi á ný. Og Jean fær góðan tíma til að hugsa um sinn þátt í því sem gerðist. En eiga þau nokkru sinni eftir að gera sér grein fyrir því hvar þau véku af réttri braut? Clough rannsóknarlögreglufull- trúi er efins um það. Hann hefur kynnst þeim sem og öðru fólki sem gerst hefur sekt um svipaða glæpi. „Líklega er ekkert hægt að gera fyrir það,“ segir Clough. „Þetta fólk er haldið tilfinningakulda. Það hik- ar ekki við að drepa þá sem verða á vegi þess á götunni. Mannslíf eru því einskis viröi og það getur ekki skihð aö það hafi gert neitt rangt.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.