Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Page 24
24 LAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 19.91. Ekki sátt við lopa- peysuverð fyrir ís- lenskan vatnasilung segir Kristlaug Pálsdóttir í Engidal sem veiðir vatnasilung og selur til útlanda Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: „Það hefur verið veiddur silungur í vatninu héma síðan ég man eftir mér en alltaf í grófriðin net og aðal- lega til að borða nýjan eða reykja. Svo höfum viö alltaf veitt smásilung- inn á dorg á veturna," segir Kristlaug Pálsdóttir, bóndi og silungsveiðimað- ur, sem býr á bænum Engidal í Bárð- dælahreppi í S-Þingeyjarsýslu. Það var lengi búið aö standa til að koma við hjá Kristlaugu og fá að fara með henni „í róður“ en Kristlaug hefur undanfarin tvö sumur fengist við að veiða silung sem hún hefur síðan flakað og selt á erlendan markað. Þetta hlýtur að teljast athyglisvert á tímum „fiskeldisdauða" og Kristlaug var meira en fús að leyfa DV að íljóta með er hún færi að vitja um netin í vatninu. Vatnið, sem um ræðir, heitir Kálf- borgarárvatn og er skammt frá bæn- um Engidal. Þrjár jarðir eiga land að vatninu og er það nýtt frá tveimur þeirra. „Það er gamalt samkomulag um að veiðirétturinn sé jafn og frá hverri þriggja jarðanna megi veiða hvar sem er í vatninu,“ segir Krist- laug. Hún segir einnig að í áratugi a.m.k. hafi verið veitt óhemjumagn af silungi í vatninu, veitt hafi verið í net allt árið, undir ís á veturna og mikið veitt á dorg á hveiju vori. „Sil- ungurinn bjargaði miklu þegar ég var ung, við vorum 10 systkinin og pabbi stundaði veiði í vatninu allt árið.“ Óhemjumagn af smásilungi Kristlaug segir að veiðin hafi síðar lagst af í nokkur ár og hvort sem það sé orsökin eða ekki þá sé óhemju- magn af smásilungi í vatninu. Það er því af nógu að taka þegar fara á að veiða fyrir útlendingana sem vilja einmitt mjög smáan fisk. En hvernig bar þennan útflutning að? „Það komu til mín í fyrra menn frá Veiðimálastofnun Norðurlands sem hefur aðsetur að Hólum. Þeir voru að ferðast á milli bænda, sem eiga Þær Kristlaug og Anna Heiður komnar að landi með aflann sem var góöur, eða um 150 fiskar. Kristlaug við stýrið á leiðinni út á vatnið. DV-myndir gk veiðirétt í vötnum, og vildu að fólk færi út í það að nýta þessi vötn meira. Það hafði verið stofnað félag þessa fólks og heitir það Veiðifang. Um 70 félagar eru í þessum hags- munasamtökum en sennilega um 25 sem hafa fariö út í það aö stunda veiði og selja á erlendan markað. Þessir menn frá Veiðimálastofnun Norðurlands voru fljótir að sjá að mjög mikið er af smáfiski í vatninu hér og þeir ráölögðu mér að veiða þennan smáfisk og flaka hann. Það hefur eitthvað með það að gera að flökin af þessum htla fiski þykja passa á diskana, sennilega sem for- réttur. Stærri silungurinn er aftur á móti fluttur út heUl. í fyrra byrjaði ég að veiða fyrir Svíþjóðarmarkað og það gekk mjög vel. Við gengum frá flökunum í lofttæmdar umbúðir og settum á ís en þrisvar í viku fórum við með fisk- inn til Húsavíkur þar sem hann var frystur og ég held að það hafi farið sendingar vikulega utan.“ Vita varla hvað silungur er - Fékkst gott verð fyrir fiskinn? „Við fengum 400 krónur fyrir kílóið af flökunum og 200 krónur fyrir kíló- ið af stærri fiskinum sem fluttur var út óflakaður. Það er í sjálfu sér ekki hægt að ætlast til þess að við fáum mikið fýrir fiskinn í upphafi, á með- an verið er að kynna hann erlendis, því margir útlendingar vita varla hvað silungur er.“ - En hvað olli því að þú veiddir síðan fyrir Frakklandsmarkaö í sumar? „Ég veit það varla enda spurði ég ekki um það. Þetta var nýr markaður og e.t.v. hafa flökin frá okkur þótt svona góð, ég vona að það hafi verið ástæðan. Nú varð hins vegar sú breyting á að flskurinn var sendur ferskur utan. Þetta kostaði það að við urðum að vinna í miklum spretti því fiskurinn varð að vera nýr og góður. Við lögðum netin yfirleitt á sunnu- dagskvöldi og veiddum svo eins og við gátum á mánudögum og þriðju- dögum. Á miðvikudögum fórum við svo með fiskinn í flugvél á Aðaldals- flugvelli, þaðan fór fiskurinn suður og snemma á fimmtudagsmorgni var flogið með hann utan. Ég veit ekki með vissu hvaða aðilar fengu þennan fisk en ég held að það hafi verið frönsk veitingahús." - Hvað var þetta mikið magn í sum- ar? „Þetta voru 200 kg af flökum en ég hefði getað sent miklu meira. Yfir- leitt fóru um 30 kg af flökum á viku en það var ýmislegt sem kom upp á, veður hamlaði veiðum og ýmislegt annað kom í veg fyrir að meira væri veitt. Þá lá 24 daga vinna að baki þessum 200 kílóum en fyrir kílóið í sumar fékk ég 450 krónur eða 50 krónum meira en árið áður.“ Lágt verð innanlands - Ert þú ánægð með þetta verð? „Eins og ég sagði áðan þá erum við að kynna þessa vöru erlendis og því skiljanlegt að við þurfum að haga okkur samkvæmt því í upphafi. En það er ýmislegt í sambandi við verð- lagninguna á þessum fiski sem ég hef áhyggjur af. Nú er farið að reyna að koma flökuðum vatnafiski á innan- landsmarkað líka og mér finnst fólk ekki gæta sín nægilega í sambandi við verðlagninguna. Það er verið að selja beiniaus flök í lofttæmdum umbúðum fyrir aUt niöur í 400 krón- ur kílóið og mér finnst það allt of lít- ið miðað við fyrirhöfnina og þá miklu vinnu sem fylgir þessu. Ef ég á að segja mína skoðun þá frnnst mér lágmark að fá 600-700 krónur fyrir kílóið og það var það verð sem ég seldi á hér heima í sum- ar. Það þýðir ekkert að vera að miða verð á vatnasilungi við verð á eldis-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.