Dagblaðið Vísir - DV - 05.10.1991, Síða 27
26
-LAUGARÐAGUR -5: -GKTÓBER -W91.
UAUGARDAGUR 5. OKTÓBER 1991.
39
Þrjár kvikmyndastjömur í einni fjölskyldu:
Með leiklistina í
- Amar Jónsson og böm hans, Þorleifur og Sólveig, birtast á hvíta tjaldinu í vetur
Sumum fyndist nóg að þau þrjú væru i bíómyndum sumarsins en svo er ekki. Systir Arnars, Helga Jónsdóttir, og
dóttir hennar, Álfrún, leika báðar í bíómyndinni Svo á jörðu sem á himni. Eggert Þorleifsson, mágur Arnars, leikur
í tveimur bíómyndum í sumar. Þetta er sannarlega fjölskylda hvita tjaldsins. DV-mynd GVA
„Miðað við hversu fáar myndir eru
framleiddar á íslandi er það kannski
tilviljun að við skulum öll þijú leika
í myndum í sumar,“ segja þau Arnar
Jónsson leikari og tvö af börnum
hans, Þorleifur og Sólveig, sem öll
hafa eytt hluta sumarsins í kvik-
myndaleik. Reyndar er þá ekki öll
sagan sögð því systir Arnars, Helga
Jónsdóttir, og dóttir hennar, Álfrún,
hafa einnig leikið í bíómyndum í
sumar, svo og mágur Arnars, Eggert
Þorleifsson. Það eru því sex manns
í sömu fjölskyldunni sem hafa feng-
ist við kvikmyndaleik þetta, að því
er virðist, gróskumikla bíósumar.
Geri aðrir betur.
„Myndin, sem ég leik í, heitir Mar-
ías og er gerð fyrir Sjónvarpiö. Hún
fjallar um strák sem býr á sveitabæ
en hann hefur enga til að ta!a við
nema roskinn vinnumann, sem heit-
ir Grímur, og mjög ungan strák, fóst-
urbróður sinn. Ég leik aðalhlutverk-
ið, Munda, en sagan er byggð á sögu
Einars H. Kvaran, Marías. Ætli
myndin verði ekki sýnd í Sjónvarp-
inu um jólaleytið," segir Þorleifur
sem er þrettán ára gamall og nem-
andi í Áiftamýrarskóla. Hann er ekki
alls óvanur að leika því áður hefur
hann leikið allnokkrum sinnum á
sviði og auk þess lék hann í kvik-
myndinni Stellu í orlofi sem flestir
íslendingar kannást við.
„Þetta var góð töm í sumar. Við
vorum hálfan mánuð úti á landi og
unnum þá tíu til fjórtán tíma á dag.
Síðan vorum við í Reykjavík við upp-
tökur þannig að um einn og hálfur
mánuður fór í upptökurnar," segir
Þorleifur ennfremur.
Bíómynd
fyrir tilviljun
Hann segir að þetta hafi verið mjög
erfitt tímabil, sérstaklega meðan
upptökur fóru fram úti á landi. Þor-
leifur segist hafa fengið hlutverk í
þessari mynd fyrir algjöra tilviljun.
„Það var hringt hér dyrabjöllunni
og úti stóð Viðar Víkingsson leik-
stjóri og spurði um pabba. Þegar ég
sagði að hann væri ekki heima sagð-
ist hann eiginlega vera að koma með
handrit handa mér í lestur. Hann
sagðist vilja fá mig í prufu fyrir bíó-
mynd. Ég var alveg hissa enda hafði
pabbi gleymt að segja mér frá þessu
en Viðar hafði áður talað við hann,“
útskýrir Þorleifur. „Síðan fór ég
tvisvar í prufutöku einn og síðan með
öllum leikurunum. Það varð úr að
ég var valinn í þetta hlutverk," segir
Þorleifur.
í sjónvarpsmyndinni Marías eru
um sautján hlutverk en fimm aðal-
hlutverk. Þar sem Þorleifur er í aðal-
hlutverkinu reyndi mikið á hann í
upptökunum eða, eins og hann segir
sjálfur: „Ég sést nefnilega frá öllum
homum."
Þorleifur segir að Marías sé fjöl-
skyldumynd sem allir ættu að hafa
gaman af að horfa á. „Ég er viss um
að böm hafa gaman af myndinni og
gætu líka lært heilmikið af henni.“
Vinnan
skapar manninn
Þorleifur hefur náð sér í mikla
reynslu í leiklistinni og auk þess er
hann, eins og systkini hans, alinn
upp við leiklist og leikhús. Ekkert
kemur honum því á óvart í þeim efn-
um. En lærði Þorleifur eitthvað á
þessari upplifun í sumar? „Það er
erfitt að segja,“ segir hann. „Ætli það
sé ekki bara þannig að vinnan skapi
manninn og æfmgin meistarann."
Hann hefur þó ekki gert það upp við
sig hvort hann fetar í fótspor foreldr-
anna í leikhúsinu. Meðal þeirra
verka, sem Þorleifur hefur leikið i,
eru Pétur Gautur, Uppreisn á
ísafirði, Yerma og Litli sótarinn.
- En var ekki erfitt að fara að heim-
an og út á land?
„Nei, það var létt yfir öllum svo það
var ekki erfitt. Upptökur voru stífar
og ekki mikill tími til að hugsa um
annað. Smátt og smátt komst maður
betur inn í hlutverkið og það var
ekki svo erfitt. Helstu erfiðleikarnir
voru hversu vinnudagarnir voru
langir," svarar Þorleifur galvaskur.
Tökum var lokið í lok júní og þá gat
ég slappað af og fariö í bæinn og
keypt mér fót,“ segir þessi ungi leik-
ari sem einnig hefur ljáð rödd sína í
barnamyndir á Stöð 2.
Ingaló í sjávarþorpi
Systir hans, Sólveig, leikur aðal-
hlutverkið í kvikmyndinni Ingalóá
grænum sjó sem er eftir kvikmynda-
gerðarmanninn Ásdísi Thoroddsen.
Sólveig hefur áður leikið í kvik-
myndinni Stella í orlofi eins og bróð-
ir hennar.
„Það var seint síðasta vetur sem
Ásdís hringdi í mig og bauð mér lítiö
hlutverk í myndinni. Um vorið
hringdi hún aftur en þá hafði komið
í ljós að sú leikkona, sem átti að leika
aðalhlutverkið, var föst í öðru verk-
efni. Ásdís ætlaði því aö prófa nokkr-
ar stúlkur og úr varð að ég fékk hlut-
verkið," segir Sólveig.
„Þessi mynd fjallar um stúlkuna
Inguló sem býr í litlu sjávarplássi
úti á landi. Aðstæöur í þorpinu passa
henni ekki og þess vegna er Ingaló
svolítið utan við það sem er að ger-
ast. Ingaló er tvítug þegar sagan ger-
ist og hún lendir m.a. í miklum úti-
stöðum við fólk. Hún fer þvi suður
til Reykjavíkur og leitar sér hjálpar
hjá sálfræðingi. Myndin er raunsæ
og segir, held ég, mjög vel frá lífinu
eins og það er í litlum sjávarþorpum
hér á landi,“ segir Sólveig ennfrem-
ur.
„Inn í myndina fléttast atriði sem
fólk kannast við, eins og uppreisn
verkafólks í Vestmannaeyjum árið
1973 þegar barist var um bættan aö-
búnað. Handritið er alfarið Ásdísar
Thoroddsen en hún styðst við sanna
atburði. Sjálf hefur hún búið úti á
landi og kynnst lífinu þar. Áhorfand-
inn kynnist lífmu í verbúðum og
Reykvikingar fá áreiðanlega að
kynnast ýmsu sem þeir hafa ekki séð
áður,“ segir Sólveig.
Að búa og
vinna saman
Eins og Þorleifur þurfti Sólveig að
dveljast úti á landi við upptökur og
tóku þær fimm vikur. „Það var á
margan hátt mjög gott. Mér fannst
betra að einbeita mér á ókunnum
stöðum þar sem ég þekkti ekki til.
Ekkert trullaði okkur og fólkið á
þessum stöðum var alveg sérstaklega
yndislegt. Upptökur fóru meðal ann-
ars fram á Drangsnesi, Hólmavík,
Suðureyri og Flateyri. Það má sann-
arlega þakka íbúum þessara staða
sem tóku okkur opnum örrnum,"
segir Sólveig. Hún er nítján ára og
nemandi við Menntaskólann í
Reykjavík.
„Það er vissulega erfitt þegar hóp-
ur vinnur og býr saman. Maður varð
að vera almennilegur í umgengni og
allir lögðu sig fram í því. Þetta var
góður hópur,“ segir Sólveig.
Norrænar barnasögur
Arnar segist hafa verið í Utlu hlut-
verki í stuttri barnamynd, hlutverki
hrossabónda. Myndin er ein af þrem-
ur stuttum barnamyndum sem kvik-
myndafyrirtækin Þumall, Umbi og
Magmi film standa að í samvinnu við
fyrirtæki á Grænlandi og í Færeyj-
um. Sögurnar gerast allar á norræn-
um jaðarsvæðum, enda kallaðar
Norrænar sögur. Þó að íslendingar
standi að baki myndunum þá eru það
Grænlendingar sem sjá um leik-
stjórn og leik á Grænlandi og Færey-
ingar sjá sömuleiðis um leik og leik-
stjóm í Færeyjum. íslenska barnasa-
gan er samin af Guðnýju Halldórs-
dóttur. Reiknað er með að myndimar
verði sýndar allar í einum pakka í
einhverju kvikmyndahúsi borgar-
innar í kringum áramótin en enn
hefur það þó ekki veriö endanlega
ákveðið.
„Vinnuheiti myndarinnar var
Siggi og folinn en ég býst við að það
verði ekki endanlegt nafn íslensku
myndarinnar,“ segir Arnar. „Þetta
er mjög skemmtilegt verkefni. Það
er oft erfitt að vinna bæöi með böm-
um og dýrum en í þessu verkefni
gekk það mjög vel. Myndin var tekin
upp í Miödal og síðan í Skarði á Landi
þar sem er stór hlaöin hestarétt, enda
mikhr hrossabændur sem þar búa.“
Margar myndir
að baki
Arnar Jónsson er ekki óvanur
kvikmyndaleik. Hann lék á sínum
tíma aðalhlutverkið í kvikmyndinni
Útlaginn, Á hjara veraldar, Atóm-
stöðinni, Gullsandi og fjölda sjón-
varpsmynda. Arnar starfar um þess-
ar mundir í Þjóðleikhúsinu þar sem
hánn fer með hlutverk í Gleðispili
Kjartans Ragnarssonar og er að und-
irbúa uppsetningu á Madam Butt-
erfly sem er stórt og mikið verkefni.
- En er leiklistin mikið rædd og fá
börnin ráð hjá foreldrum sínum áður
en þau fara með kvikmyndagengi út
á land?
„Pabbi gaf mér mjög góð ráð í sam-
bandi við sjónvarpsmyndina," svar-
ar Þorleifur en Sólveig bætir við aö
besta ráðið sé sjálfsagt hvemig mað-
ur sé alinn upp. „Þaö er stöðugt ver-
ið að hamra á hstinni - eða þannig,"
segir hún. „Jú, það má segja að mað-
ur alist upp í leikhúsi," bætir Þorleif-
ur við. Arnar hefur litlu við að bæta,
enda eru bæði Sólveig og Þorleifur
opin og ófeimin að tjá sig.
Sólveig hefur nokkuð leikið á leik-
sviði, bæði í Þjóðleikhúsinu, Óper-
unni og í Herranótt MR. Yngri systir
þeirra, Oddný, hefur einnig talsvert
leikið í Þjóðleikhúsinu, meðal annars
í Óvitum eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Systkinin eru fimm. Sú elsta hefur
minnst skipt sér af leiklistinni en
yngsti bróðirinn, sem er níu ára, bíð-
ur í ofvæni eftir að fá hlutverk, eftir
því sem systkinin segja.
Og þaö má segja að leiklistin teygi
sig um ættina því frænkur og frænd-
ur em einnig á kafi í henni, eins og
áður kom fram. Helga Jónsdóttir og
dóttir hennar, Álfrún, leika stór hlut-
verk í kvikmynd Kristínar Jóhanns-
dóttur, Svo á himni sem á jörðu, og
Á meðan bíómyndirnar eru unnar og klipptar sitja þau Þorleifur og Sólveig við námsbækurnar og fá tilsögn föður síns með enskuna. Þau iáta það ekki mikið á sig fá þó að frægðin sé á næsta leiti.
Því miður var ekki hægt að nálgast mynd af Arnari Jónssyni
í nýju myndinni en hér er hann í hlutverki sínu i Útlaganum.
Sólveig í hlutverki sínu sem Ingaló á grænum sjó sem frum-
sýnd verður i febrúar.
Þorleifur i hlutverki sinu i sjónvarpsmyndinni Marías sem
sýnd verður i sjónvarpinu í kringum jólin.
Eggert Þorleifsson leikur bæði í Inga-
ló á grænum sjó og í Sódóma Reykja-
vík.
Leikarabörnin
fá hlutverkin
Þau systkinin hafa hins vegar svo-
htið fundið fyrir aö „smjattað" sé á,
eins og þau orða það, að börn leikar-
anna fái hlutverk í bíómyndum. Þau
ítreka að það sé ekki bara því að
þakka. „Við höfum auðvitað ákveðna
reynslu úr leikhúsunum sem kemur
okkur til góöa. Það sem við Þorleifur
höfum verið að gera í sumar er for-
eldrum okkar óviðkomandi," segir
Sólveig og brýnir sig. Arnar bætir
við að ekki sé óalgengt að börn feti
í fótspor foreldra sinna í mörgum
greinum og ekki síst í leiklistinni.
„Það skiptir svo miklu máU að kunna
að bera virðingu fyrir leikUstinni,"
heldur Sólveig áfram.
- En er erfiðara að leika í kvikmynd
en á sviði?
„Nei, þaö er miklu erfiðara aö leika
á sviði. Á hitt ber að Uta að þetta er
mjög ólíkt og því nær vonlaust að
bera saman,“ svarar Sólveig. „Jú,
þetta er tvennt ólíkt,“ ítrekar hún.
„Smáatriðin skipta meira máU bak
við myndavéUna en á sviði,“ skýtur
Þorleifur inn í umræðuna. „Hvert
blikk eða andUtshreyfing getur haft
áhrif í bíómyndinni sem enginn tek-
ur eftir á sviöinu," heldur hann
áfram. „Oft eru atriði tekin mörgum
sinnum eða frá mörgum sjónarhom-
um. Stundum er heUum degi eytt í
pínuUtið atriði,“ segir Sólveig og
bætir við að hún myndi ekki hafna
fleiri hlutverkum í bíómyndum því
þetta sé mjög skemmtUegt.
„Þegar maður var búinn að loka
sig frá umheiminum og hættur að
taka eftir kvikmyndatöku- eða hljóð-
manninum þá gekk þetta eins og í
sögu. Einbeitingin skiptir miklu
máU,“ segir Sólveig. „011 reynsla
hjálpar manni."
Sex kvikmynda-
stjörnur
í einni fjölskyldu
Ekki eru mjög margar kvikmyndir
búnar tU á íslandi og þess vegna er
það svo að um leið og tökum lýkur
á mynd tekur hið venjulega líf við
aftur og leiklistin gleymist um tíma.
Þau Þorleifur og Sólveig segjast Utiö
hugsa um kvikmyndir sínar þessa
dagana, enda eru þau bæði á kafl í
skólanámi og nóg þar að gera. Þau
vita hins vegar að um leiö og mynd-
imar verða sýndar komast þau í
sviðsljósið á nýjan leik og eru undir
það búin að verða fyrir „árásum"
félaga sinna.
Sólveig er ákveðin í að fara í leik-
Ustarskóla þegar hún hefur lokið
stúdentsprófi. Og ekki ætlar hún ein-
göngu að láta það nægja því hún
ætlar að búa sig undir framtíðina og
læra einnig leikstjóm eins og móðir
hennar, ÞórhUdur. „Leikkonur eiga
ekki um auðugan garð aö gresja í
leikhúsunum, enda mun færri hlut-
verk búin tíl fyrir þær en karlana."
Þessu segist Sólveig hafa gert sér
grein fyrir. „Ég ætla að fara í há-
skóla erlendis í grunnnám í leikhús-
fræðum, leikUst og leikstjóm. Þá hef
ég möguleika á að gera fleira en að
leika.“
Bæði Sólveig og Þorleifur hafa aUa
tíð haft mikinn áhuga á leikUst og
voru aUtaf staðráðin í að verða leik-
arar. Þorleifur er hins vegar aö draga
í land. Hann telur launin of lág.
- En um hvað verður talað í jólaboð-
um í ykkar fjölskyldu, haldið þið?
„Allt annað en leikhús," svarar
Arnar en bætir við: „Jú, auðvitað
tölum við um leikhús og aUt sem því
fylgir. Fólk, sem vinnur stöðugt við
leikUstina, hefur áhuga á mörgu
fleiru. Sjáðu t.d. ÞórhUdi sem hefur
fengist við stjórnmál af krafti en er
nýhætt," heldur hann áfram. Það
verða áreiðanlega íjörugar umræð-
ur, skulum við segja," sagði Arnar
og ungu leikaramir taka undir þau
orð. -ELA