Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1992, Page 3
MÁNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1992.
3
Fréttir
Slippstöðin á Akureyri:
Fjárhagsstaðan er
óhemju erf ið
- segir Sigurður G. Ringsted forstjóri
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyxi:
Málefni Slippstöðvarinnar á Akur-
eyri komu til umræðu á Alþingi nú
í vikunni í kjölfar viðræðna forsvars-
manna fyrirtækisins við stjómvöld
um fjárhagsvanda fyrirtækisins.
Eins og áður hefur komið fram
nam tap stöðvarinnar hátt í 200 millj-
ónum króna á síðasta ári og má rekja
verulegan hluta þess til raðsmíða-
skipsins sem legið hefur óselt hjá
stöðinni þar til seint á síðasta ári að
kaupandi fékkst loks að skipinu.
Reiknað er með að Shppstöðin tapi
hátt í 100 milljónum króna á smíði
skipsins.
Fjárhagsstaða fyrirtækisins er nú
til rækilegrar endurskoðunar hjá
forsvarsmönnum fyrirtækisins og
hjá Akureyrarbæ og ríkisstjóm og
ekki ljóst til hvaða ráða verður grip-
ið. Þegar hefur verið gripið til fjölda-
uppsagna hjá fyrirtækinu jafnt í yfir-
stiórn sem á öðmm sviðum og um
40 iðnaöarmenn vinna nú á fram-
lengdum uppsagnarfresti sem renn-
ur út um næstu mánaðamót. Eins og
staðan er í dag bendir ekkert til að
sá uppsagnarfrestur verði fram-
lengdur eða uppsagnirnar dregnar
til baka.
Sigurður G. Ringsted sagði að stöð-
in hefði vinnu í 4-5 vikur en eftir það
væri htið séð framundan og mikil
óvissa um framhaldið. Þaö sem hefur
bjargað stöðinni að undanfórnu er
vinna við togarann Árbak sem Út-
gerðarfélag Akureyringa keypti fyrir
áramótin og sagði Sigurður að ef það
verkefni hefði ekki komið til hefði
stöðina vantað verkefni í stórum stíl.
Stúlkur að vinna við sildarflök í fiskimjölsverksmiðjunni.
DV-mynd Ragnar Imsland
Lítil síldar-
söltun á Höf n
Júlía Imsland, DV, Höfii:
Um mánaðamótin janúar-febrúar
var búið að salta í 1382 tunnur af síld-
arflökum hjá Fiskimjölsverksmiðju
Hornaijarðar og í 685 tunnur af síld-
arbitum sem fara í erlendar niður-
lagningarverksmiðj ur.
Hráefnið, sem farið hefur í bita og
flök, er um 514 tonn og 1528 tonn af
heilsíld hefur farið í bræðslu. Við
síldina vinna 35-40 manns.
Gott að vinna hjá Granda hf.:
Starf sfólkið heima
á fullum launum
- hagkvæmara að selja í Þýskalandi en vinna heima
„Það er gott að vinna hjá Granda
hf. Nú er ég bara heima á fullum
launum og aldrei hefur mig dreymt
um að eiga eftir að upplifa shkt,“
segir ein af starfskonum Granda hf.
í Reykjavík.
„Þetta er rétt, því miður. Ástæðan
fyrir þessu er að við höfum ekki hrá-
efni fyrir fólkið að virina úr. Það
hefur verið algert tregafiskirí í
þorskveiðunum um nokkurt skeið.
Eins hefur verið heldur tregt í karfa-
veiðunum. Hluta af karfaaflanum
sigla togaramir með og selja á Þýska-
landsmarkaði þar sem er mjög gott
verð á karfa um þessar mundir. Það
er umtalsvert hagkvæmara fyrir fyr-
irtækið að selja karfann úti en að
láta vinna hann hér heima," sagði
Svavar Svavarsson, framleiðslu-
stjóri Granda hf.
Hann sagðist vonast til að úr þessu
fari að rætast alveg á næstunni en
það færi allt eftir því hvað veiddist.
Hann sagði togara Granda hf. eiga
þónokkuð eftir af þorskkvóta en það
væri alveg sama hvað reynt væri,
það veiddist ekkert af þorski. Ef
þorskveiðin væri eðlileg væri full
vinna í gangi í frystihúsinu.
„Ég trúi ekki öðru en úr þessu fari
að rætast og vinnsla fari aftur í gang
í frystihúsinu," sagði Svavar Svav-
arsson. -S.dór
Toro-menn í heimsókn á Húsavik
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Þessir menn komu hingað og þeir
fóru til fleiri staða á landinu tíl að
kynna sér aðstæöur. Það er ekki
mikið meira um heimsókn þeirra að
segja á þessu stigi,“ segir Ásgeir
Leifsson, iðnráðgjafi hjá Atvinnu-
þróunarfélagi Þirigeyinga, um heim-
sókn tveggja manna frá norska stór-
fyrirtækinu Toro til Húsavíkur.
Ásgeir sagði að tilgangur Toro-
mannanna hefði verið að kynna sér
aðstæður og ýmsa möguleika til öfl-
unar hráefnis. „Okkur skilst að þeir
séu m.a. að leita að úrgangsefnum til
að nota í framleiðslu á fiskikrafti en
fyrirtækið framleiðir margar teg-
undir af þessum fiskikrafti," sagði
Ásgeir.
Það er svo einfalt
að til að hvílast sem best þegar þú sefur er nauðsynlegt að finna
rúmdýnu sem fellur nákvæmlega að þínum líkama - dýnu sem
passar þér.
í hinni sérstöku og stóru dýnuútstillingadeild Húsgagnahallarinn-
ar er um margar gerðir að velja. Fjaðradýnur, alls konar springdýn-
ur, latexdýnur og svampdýnur.
Hér eru nokkur sýnishorn af hinum
geysivinsælu sænsku Qaðradýnum okkar:
Lux Komfort er góð, einföld fjaðra-
dýna. Þessi dýna hentar vel fyrir börn
og hraust fólk í meðalvexti. Þvot-
tekta yfirdýna fylgir í verði. Margar
stærðir.
Lux Komfort
Lux
Lux Medio er millistífa dýnan okkar
fyrir þá sem hvorki vilja hart né
mjúkt. Geysilega góð dýna og hag-
stætt verð. Tvöföld fjaðramotta.
Þvottekta yfirdýna fylgir í verði.
Margar stærðir.
Aj'U.X
Ltra Flex
90x200
45.120,
90x200
42.960,
Einstök þægindi að sofa á fyrir full-
orðið fólk og fyrir þungt fólk og bak-
veika. Mjúk gerð og stíf gerð. Tvö-
föld fjaðramotta og stífir kantar.
Þykk þvottekta yfirdýna fylgir í
verði.. Margar stærðir.
Lux Softy FLex er ný lungamjúk
dýna sem lagar sig fullkomlega að
líkamanum. Tvöföld fjaðramotta og
stífir kantar. Þvottekta yfirdýna fylg-
ir í verði. Margar stærðir.
Leitið frekari upplýsinga hjá starfsfólki okkar
sem aðstoðar við val á réttu dýnunni.
GÓÐ GREIÐSLUKJÖR