Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Side 3
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992.
3
HUSAVIK
5SAFJ0RÐUR
SAUÐÁRKROKUR AKUREYRI
NESKAIJP:
REYKJAVIK
Fyrsta nýja Fokker 50 ílugvélin, Asdís, kemur til landsins í dag
og lendir á Akureyrarflugvelli kl. 14.00.
Flugleiéir tilkynna
tímamátísögu
innantimdsflugs:
Endumýjunflugflotans
erhqfln.
Fokker 50 er fullkomnasta skrúfiiþota sem völ er á, smíðuð
í Fokker-verksmiðjunum í Hollandi. Hún tekur 50 farþega í
rúmgóðum sætum, lofthæð í farþegarými er meiri og gangur
breiðari en í nokkurri annarri vél af þessum flokki. Hún er
hljóðlátari í farþegarými en eldri vélar, aflmeiri og áreiðanlegri.
I Fokker 50 er nútíma flugeldhús og öll aðstaða miðast við að
farþegar njóti þjónustu og aðbúnaðar eins og best gerist í stærri
farþegaþotum til millilandaflugs.
Nýja flugvélin, Fokker 50, er glæsilegur og kraftmikill farkostur
þar sem endurbætt hönnun, létt hátækniefni, nútímaþekking og
vönduð smíð tryggja farþegum öryggi og þægindi á ferðalögum
innanlands.
Ásdís byrjar áætlunarflug mánudaginn 17. febrúar.
Starfsfólk Flugleiða býður ykkur velkomin um borð.
FLUCLEIÐIR
þjóðbraut innanlands.