Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992. 13 dv____________Vísnaþáttur Mikla hug- kvæmni þarf við gerð bestu ví sna Skóla- og sjálfsmenntun eru tvö orö sem sjaldnar heyrast nú en í æsku þess sem þetta ritar. Ég er nú fyrir þó nokkru kominn í hóp öld- unganna, fæddur seint á öðrum tugnum. En óskólagengnir hafa lík- lega hvergi á byggðu bóh sem hér látið jafnóhikað almenn þjóð- og menningarmál til sín taka. Þetta hef- ur lengi legið hér í landi. Margir rit- höfundar fyrri kynslóðar, þó ekki meirihluti, sótt sér menntun og sjálfsöryggi í bænda- og Möðruvalla- skóla eða einn vetur eða svo í Flens- borgar- eða Kennaraskóla í Reykja- vík, konumar, þær sem best voru settar, fóm í Kvennaskólann. Þá eru ónefndir SamvinnuskóUnn, Verslxm- arskóUnn, gagnfræðaskólar og elstu alþýðuskólamir. Með þessum hætti myndaðist á fyrri hluta þessarar ald- ar nokkurs konar milUstétt í landinu sem stóð feti ofar í mannvirðingar- stiganum en sauðsvartur almúginn. Ur hópi ofannefndra komu margs konar fomstmenn þjóöarinnar auk annarra sem hófust upp úr alþýð- unni af sjálfum sér og gerðust t.d. rithöfundar og þingmenn. En óskóla- gengnir hafa líklega hvergi á byggðu bóU annars staðar látið djarflegar til sín taka öU menningarmál. Þá em ónefndir hagyrðingamir og fræði- mennimir sem engin skólapróf hafa sér til halds og trausts. Um þaö síð- astnefnda höfum við íslendingar, sem kunnugt er, langa hefð, þótt við værum löngum fátækir og lögform- lega ófrjálsir. Hið ríflega sjálfsáUt okkar og misjafnlega raunhæfa frægðardrauma sóttum við til fom- menningar okkar, fornrita og þjóð- sagna. En við höfum Uka átt styrk að sækja til úrvalsmanna í fáUðuðum hópi menntamanna okkar. Samt fundum við alþýðumenn, sem lögð- um fyrir okkur ritstörf, til þess hve fáir menntamenn okkar lögðu þeim okkar Uð sem ekki fóm almennar leiðir og jafnvel ekki heldur að þeir sinntu að gagni upplýsingasöfnun og varðveislu um alþýðufólk sem fékkst við skáldskap, hagyrðingunum okk- ar svoköUuðu. Nú hefur bókmennta- fræðingunum aldeiUs fjölgaö. Sum- um þykir jafnvel nóg um. En þeir virðast alUr með tölu of fínir tíl þess að leggja sig niður við það sem ég hér nefndi. Ritdómarastörfin, sem gagnleg væm, viturlega af hendi leyst, em auðvitað í þeirra verka- hrrng, þyKía mér enn sitja um of í fyrrirúmi. Hagyrðingamir og lausa- vísnahöfundamir tínast enn ofan í grafir sínar, vísur og tílefni þeirra gleymast og enn sem fyrr mglast þetta aUt saman. Ritsöfn sumra þeirra Uggja þó í Landsbókasafni og víðar. En það er þó óyfirstíganleg vinna fyrir okkur vísnaþáttamenn að grafa upp fæðingar- og dánardaga þessa fólks, jafnvel þjóðþekktra manna, sem sumir hafa gefið út ljóðakver og þjóðkunnir urðu fyrir önnur störf. Kristjánsnafn hafa margir borið og sumir jafnvel verið Guðmundssynir. Eftir einn þeirra er þessi vísa: Störf með áhug færa frið, fljótt þá Uður stundin, ánægjan er ekki við auð né völdin bundin. Sama má segja um höfund næstu vísu. Hann ber meira að segja nafn þjóðþekkts skálds. En er þessi vísa eftir Kristján FjaUaskáld? Táta mín er trygg í lund, þótt tíkar beri heití. Aldrei mun ég eignast sprund eins að sínu leyti. Næst er verðlaunavísa - botninn ortí Ragnhildur Bjamadóttir. En kaxm einhver að greina frekar frá málavöxtum? TU að binda enda á aUt sem hrindir trega. Fáðu í skyndi faldagná fríða og yndislega. Ekki myndu nú allir segja að þeir kvenkostir, sem nefndir em í loka- hendingunni, þótt góðir séu, væm þeir einu sem duga kynnu. ViU nokk- ur búa tíl heUa vísu og senda mér um þetta efni? GísU Konráðsson var ættaður úr Skagafirði og kvæntur, við bú, en kunnastur fyrir fræðistörf sín. Sonur þeirra hjóna var Fjölnismaðurinn Konráð. Hann fór ungur utan og dvaldist við embættisstörf í Kaup- mannahöfn aUa ævi. Kom aldrei heim. Þegar Gísli var orðinn ekkju- maður settist hann að í Flatey á Breiðafirði og fékkst við fræði sín. Hann komst á níræðisaldur. Síðan er þessi vísa hans: Tíminn Uður áfram ótt, aftur náðst ei getur. Skal ég þá aðra nýársnótt nár, eða lifa betur? Þáttastjóri er, eins og áður segir, og margir vita, kominn af léttasta skeiði, er því ekki mikið á faralds- fæti. Þó er stundum í mig hnippt og veit ég að vísnaþættir em vinsælt efni í blöðum. Stundum hringir fólk og segist einmitt kaupa þau eintök af dagblöðum sem flytja slíkt efni. Um þetta vUja menn gjarna tala við kunningja en margir hika við það núorðið að skrifa okkur vísnaköllun- um bréf. En eitt slíkt hef ég nýlega fengið og segir af því síðar. Tveimur ljótum vísum var að mér gaukað nýlega en höfunda ekki getíð, kannski óþarft verk að vera að halda þeim til haga. Hrepparígur hefur lengi viðgengist. Eyfirðingur orti: Skagfirðinga skortir ekki skjóttar merar, þó að þær séu bomberar. Átti hann þá við að þær væm illa fram gengnar. Ekki var svarið beint prúðmannlegt: Eyfirðingar una best hjá annarra manna konum. Og þú ert einn af þeirra sonum. í gömlu vísnasafni, sem ekki er á prenti, er þessi vísa, merkt „Skag- firsk eftir I og B“: Fýsir mig að faðma drós fjarri vem minni. Líklega hefur piltur ort og stúlka svarað: Þar sem ekkert logar Ijós á leynigöngu þinni. Hér gæti verið stef úr fomri ásta- sögu sem endað hefði með ýmsum hætti. Vísnavörður var lengi fombókasali í Reykjavík. Meðal góðkunningja þá og síðar, Egill Bjamason frá Dalvík, fyrr ritstjóri, enn bóksali við Hverfis- götuna. Sá er hér stjómar þætti lítur þar oft inn og reynir þá að hafa til- búna vísu. Báðir em hagmæltir, hann og Egill. Fæstar varðveitast þær stökur. Hér er þó undantekning miðlungsvísa: Egils til ég feta fús fái ég limum þokað. Bóka opið hefur hús þó helvítum sé lokað. Jón úr Vör Fannborg 7 Kópavogi Renault Sýning um helgina Renault Clio 16 ventla 140 hestöfl Við frumsýnum um helgina Renault Clio 16v. sem búinn er 140 hestafla vól, vökvastýri, ABS hemlum, 15" sportfelgum, brettaútvíkkunum og vindskeiðum að framan og aftan. Verð frá kr. 1,445,000.- Renault Clio Societe Einnig frumsýnum við nýjan Renault Clio Societe Þessi vandaði og glæsilegi bíll er nú kominn í sendibílaútgáfu. Þar munu allir hans kostir nýtast, ásamt því að hann er búinn stóru flutningsrými. Societe skilar hagkvæmari rekstri. Verö frá kr. 623,000.- (án vsk) Renault Clio RN Renault Clio RN stendur til boða 3ja og 5 dyra.Hann er búinn 60 hö. vél, 5 gíra beinskiptingu og smekklegri og vandaðri innréttingu. Aftursæti er tvískipt og niðurfellanlegt. Verð frá kr. 739,000.- Renault Clio RT Clio RT er 5 dyra, búinn 80 hö. vél og 5 gíra beinskiptingu eða sjálfskiptingu. Luxusinnrétting, sportbólstruð sæti, vökvastýri, höfuðpúðar aftan, rafdrifnar rúður og fjarstýrð samlæsing. Verð frá kr. 870,000.- Renault Clio hefur fengið fleiri alþjóðlegar viðurkenningar en nokkur annar bíll í sama stærðarflokki: "Bíll ársins í Evrópu 1991", "Gullna stýrið 1991", "Auto Trophy 1991" svo nokkrar séu nefndar. Umfjöllun evrópskra tímarita um Renault Clio er öll á einn veg. Meðal umsagna er: "Renault Clio hefur alla kosti keppinauta sinna, en er rýmri, með betri aksturseiginleika, er þýðari, með efnismeiri og vandaðri innréttingu og meiri hljóðeinangrun" Umsagnir japanskra tímarita eru á þann veg að: "Japanir eigi ennþá langt í land með að framleiða bíl eins og Renault Clio". Sýningin er opin: laugardag og sunnudag kl. 13 -17 Renault Clio Metsölubíll í Evrópu Bílaumboðið hf Krókhálsi 1-110 Reykjavík - Sími 686633

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.