Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992. 43 „Hún kvefaðist og síðan hefur hún vaknað i sífellu á nóttum og vælt. Það er eins og henni liði illa og hún grípur um annað eyrað,“ sögðu foreldrarnir. Þarna var á ferð sýking i miðeyra, kölluð eyrnabólga. Þetta er einn algengasti sjúkdómur barna á íslandi. Bammeð eymabólgu Heimilislæknar eru sérfræðingar í lífi fjölskyldna. Þeir fylgjast með bömum vaxa úr grasi, sprauta þau gegn alis kyns pestum og faröldrum, gefa heilbrigðisvottorð vegna skóla- göngu, sumardvalarheimila ogöku- skírteinis. Þeir koma við sögu ein- stakiingsins í gleði og sorg, taka þátt 1 veikindum og erfiðleikum og horfa á ævisögur verða til. Ég starf- aði um árabil í stóru læknishéraði og fylgdist spenntur með fjölbreyti- leika mannhíins þar sem fólk lifir og deyr og heyr lífsbaráttu hvers- dagsleikans. Hannes rafvirki Hannes rafvirki var einn þeirra sem ég hafði meö að gera. Hann kom fyrst til mín 17 ára til að fá læknis- vottorð vegna ökuleyfis. Nokkru síðar tók ég úr honum blóð á lög- reglustöðinni en hann var grunaður um ölvim við akstur. Hann kom í þrígang einn vetur vegna hósta og mæði en um sumarið meiddist hann áfætiífótbolta. Þegar Hannes var tvítugur trúlof- aðist hann jafnöldru sinni, þau eign- uðust bam sem ég kynntist í ung- bamaeftirliti. Einn vetrardag birtist hann svo á stofunni ásamt unnustu og bami sem þá var 8 mánaða. Hannes var sjálfum sér líkur, á snjáöum gallabuxum, íþróttaskóm og svörtum leðurjakka. Unnustan var klædd á svipaðan hátt, í ljósblá- ar buxur, grænleita peysu, vind- jakka og stígvél. Hún var með óeðh- legaljósthár. „Hvaö er að?“ sagði ég. „Það er telpan," sagði Hannes. „Hún er svo óvær á nóttum." Hann fór að klæða stelpuna úr fyrirferðarmiklum ungbamagalla með bleiku fílamynstri. „Segið þið mér meira,“ sagði ég. „Hún hætti á brjósti fyrir nokkr- um vikum,“ sögðu þau. „Fyrst í stað svaf hún ágætlega á nótlunum en í síðustu viku hefur orðið þar breyt- ing á. Hún kvefaðist og síðan hefur hún vaknað í sífellu á nóttum og vælt. Það er eins og henni hði iha og hún grípur um annað eyrað. Á daginn virðist henni hða betur. Hún er farin að borða grauta, drekkur vel, þyngist eðlilega og aht virðist í fínulagi." Þau voru mædd á svip, þreytt og áhyggjufuh. „Gæti hún verið með í eyrunum?" Hannes klæddi telpuna úr að ofan og lagði hana á bekkinn. Þetta var mikh myndarstúlka, þétt og stinn með skýr blá augu. Hún hjalaði ht- ils háttar og saug snuðið sitt af áfergju. Ég hlustaði hana en fann ekkert athugavert Maginn var mjúkur og ekki að finna nein merki um eymsli. Að lokum skoðaði ég í Á læknavaktiimi eyrun. Vinstra eyrað var eðhlegt en í því hægra var greinheg eyma- bólga. Eðlileg hljóðhimna er hvítgrá og glansandi en þegar bólga er fyrir hendi verður himnan rauð og þrút- in. „Þetta er skýringin á óróleikan- um,“ sagði ég. „Stelpan er með eyrnabólgu í öðm eyranu." Ákaílega algengur kvilli Sýking í miðeyra er köhuð eyrna- bólga. Þetta er einn algengasti sjúk- dómur bama á íslandi. Tahð er að um 70% barna hafi fengið miðeyra- bólgu að minnsta kosti einu sinni eða oftar við fimm ára aldur. Sumir segja sjúkdóminn algengari hér- lendis en víða annars staðar vegna rysjótts veðurfars og útisvefns barna en erfitt er þó aö staðhæfa um það. Erlendar rannsóknir benda th þess aö vistun barna á dagheimh- um og reykingar foreldra ráöi miklu um þróun sjúkdómsins. Börn em sérlega næm fyrir þess- um sýkingum vegna þess að hlust- argangurinn mihi koks og miðeyra er stuttur og getur stíflast auðveld- lega ef bamið fær veirusýkingu í öndunarvegi. Auk þess geta stórir nefkirtlar stíflað hlustina svo að sýkingar ná að festa rætur í miðeyr- anu. Þá myndast þar vökvi og bólga sem veldur þrýstingi á hijóðhimn- una og sársauka sem heldur vöku fyrir barni og foreldrum. Þær bakteríur, sem helst koma við sögu, heita: Hemofílus inflúensa og streptokokkus pneumoniae en auk þess geta aðrar pöddur lagt hönd á þennan plóg glataðs nætursvefns. Islenskar eyrnabólgubakteríur virðast heldur ihskeyttari en erlend starfsystkini svo að lyf sem duga ágætlega á útlend börn hafa lítil áhrifálandann. Hvað ertil ráóa? „Hvaö á að gera?“ sagði Hannes og strauk htlu telpunni um hárið. Hún sat í fangi hans og reyndi að ná taki á litlum krossi sem Hannes var með um hálsinn. „Við verðum að gefa henni fúkkalyf til að vinna bug á sýkingunni. Oftast dugar það en stundum springur hljóðhimnan vegna þessa vökva sem safnast hef- ur saman. í stöku thviki þarf að gera htið gat á hljóöhimnuna til að hleypa út vökva. Við byijum á því að gefa henni breiðvirkt fúkkalyf sem heitir Amoxcilhn (Flemoxin, Clamoxyl). Þetta er th að ná í lurg- inn á sem flestum bakteríum í fyrstu lotu. Ef þetta dugar ekki eru stund- um gefin enn kröftugri fúkkalyf, eins og Amoxcihin og Klavúlansýra (Augmentin) sem eru virk gegn mörgum sýkingum. Ef barn er með ofnæmi fyrir penichhni gefum við Erytrómycin (Abboticin, Ery-max). „Er ekki skaölegt að þurfa að gefa svona ungu barni fúkkalyf?" sagði móðirin. „Nei,“ sagðiég. „í þessu thviki verðum við aö gera það, þar sem barnið hefur vernleg óþægindi. Auk þess ér th vansa að láta sýkingu maha th lengdar inni í miðeyranu þar sem viðkvæm líffæri, sem hafa með heym að gera, eru geymd. Lát- ið svo stelpuna ekki hggja með pel- ann sinn. Auk þess ætla ég að gefa henni verkjastauta.“ Þau komu með stúlkuna til eftir- hts nokkrum dögum seinna. Hljóð- himnan var mikið betri og barnið varkátaraíbragði. „Hún er farin að sofa aftur á nótt- um,“ sagði Hannes. „Þetta er aht annað líf,“ bætti hann við, „kynlífið þróttmeira, svefninn betri og allir hressir og kátir. Ég tek því bara undir með Ingibjörgu Smith og syng „Lofa skal hveija ánægjustund," svo að ég er hinn kátasti." j6Fooooöoooöö66'LJÍó ;-----SPAÐUI i < Cf) x SPARNAÐINN I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.