Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992. 21 Merming Tónleikar voru haldnir í Hafnar- borg í Hafnarfirði í gærkvöldi. Þar lék Tríó Reykjavíkur verk eftir Þorkel Sigurbjömsson, Dmitri Shostakovich og Franz Schubert. Tríóiö skipa þau Guðný Guð- mundsdóttir fiðluleikari, Halldór Haraldsson píanóleikari og Gunn- ar Kvaran sellóleikari. Tónleikamir hófust á verki Þor- kels Sigurbjömssonar „Þrjú andht í látbragðsleik“. Verkið byggir á einu stefi og hljóðfærin þrjú sýna eins og andUt ýmis geðbrigði þess og hræringar. ÞorkeU fer á kostum í þessu verki. Það er í senn fjöl- breytt og heUsteypt, Utríkt og ein- lægt. Það hjálpaði til að flutningur tríósins var mjög góður, nákvæm- ur og faUega hljómandi. Tríó í e moU op. 67 er kammertónUst eins og hún gerist best hjá Shos- takovich. Það er auðugt verk og skiptast á skin og skúrir, gaman og alvara. Verkið er erfitt í flutn- ingi, en það kom ekki að sök því að það lék í höndum Tríós Reykja- víkur sem flutti það af öryggi og tUfinningu. Eftir hlé kom Píanótríó í Es dúr op. 100 eftir Schubert. Þetta er mjög faUegt verk þar sem hið ljóðræna situr í öndvegi og þrátt fyrir lengd- ina heldur það athygU til enda. Leikur tríósins í þessu verki eins og hinum var eins og bestur getur orðið. Hljómm- hljóðfæranna var öflugur og fagur, túlkunin skýr og tilfinningarík. Efnið var greirúlega vel æft og Ustafólkið í góðu formi. Þetta vom með öðrum orðum tónleikar af því tagi sem gera starf gagnrýnanda skemmtilegt. Það er líka skemmtílegt fyrir gagnrýn- anda að verða þess var að einhver les pistla hans að ekki sé nú talað um viðbrögð í rituðu máli. Því mið- ur verður það að teljast sjaldgæft hér á bæ. Fyrir nokkmm árum hringdi maður úr Kópavogi til að mótmæla oflofi sem hann taldi gagnrýnandann hafa heUt yfir Vín- ardrengjakórinn. Ári seinna skrif- aði frú úti á landi bréf um þau allt of stóm lýsingarorð sem gagnrýn- andinn hafði viðhaft um unga söngkonu. Að þessu frátöldu hefur gagnrýnandi DV fengið að vera að mestu óáreittur fyrir lesendum þangað tíl í gær. Þá birtist hér í blaðinu myndarleg grein, ekki frá konu í vesturbænum eða karU í Hafnarfirði, heldur sjálfri íslensku ópemnni, aUri eins og hún leggur sig. Það munu vera nokkrir tugir karla og kvenna. Vonandi er það misskUningur að inni á mUU línanna megi greina sárindi vegna gagnrýni um sýningu ópemnnar á ÓþeUó. TU að taka af tvímæU er rétt að geta þess aö gagnrýnandi DV er mikUl og einlægur stuðn- ingsmaður íslensku óperunnar, hefur verið það frá upphafi og ber mikla virðingu fyrir því fólki sem þar starfar. Þótt hann leyfi sér í allri vinsemd að benda á einstök atriði sem betur mega fara í sýning- um, er rangt að skUja sUkt sem fjandskap. Mesti ógreiði sem gagn- rýnandi getur gert ópemnni, er að hrósa öUu upp í hástert án tilUts hlutverkum sínum. til þess hvemig þaö er gert. í grein óperufólksins er vikið að verkefnavaU og framsetningu á texta. íslenska óperan á það sam- merkt með ópemhúsum víða um heim að verkefnavaUð er mjög þröngt. Verk Mozarts, Verdis og örfárra annarra nítjándu aldar manna eru sýnd og Utið annað. í ljósi þess að ópera hefur verið í hávegum höfð frá því um 1600 og fram á þennan dag, verður þetta að teljast þröngur kostur. Felst í því engin gagnrýni á Mozart eöa Verdi þótt á þetta sé bent. Ein af- leiðing hins þrönga verkefnavals er að Utið hefur komið fram af nýj- um góðum ópemm á þessari öld. Uppdráttarsýki og dauði blasir við þessari göfugu tónUstargrein ef ekki verður aö gert. Því er oft haldiö fram að hið - þrönga verkefnaval sé U1 nauðsyn. Þetta vUji fólkið og annað ekki, en óperuhús em dýr í rekstri og þurfa peninga. Þótt þetta segi aðeins hluta sannleikans er hitt ljóst að menn munu um ókomna framtíð setja upp Mozart og Verdi. Það skiptir höfuðmáU að verkum þess- ara snilUnga sé haldið lifandi og komið sé í veg fyrir að þau verði steinmnnir safngripir. Hér er hollt að líta til leikhússins um fyrir- myndir. Sómakær leikstjóri, sem ætlar aö setja upp leikrit eftir Sha- kespeare, leggur metnað sinn í að skapa sjáifstæða sýningu. Hann færir verkið inn í nútímann og set- ur það þannig fram að höfði til áhorfenda. Það hvarflar ekki að honum að gleypa hráar formúlur úr eldri uppsetningum. Markmið hans er að gefa hinu forna en sí- gUda nýtt líf í nútímanum. Með sama hugarfari á að setja upp verk Mozarts og Verdis. Gmndvallaratriðið hér er að text- inn sé á máU sem áheyrendur skUja. Á íslandi á það að vera ís- lenska. Þá fyrst er hægt að tala um raunverulega túlkun á því sem flutt er, Með þessu er ekki sagt að gamla lagið sé alveg ótækt. Auðvit- að er hægt að hafa gaman af því að lesa textann í efnisskrá og hlusta á tónUstina. Ljósaspjöld eins og þau sem óperan ætlar að setja upp munu einnig hjálpa til og vonandi lætur enginn þessar ábendingar aftra sér frá því að sjá Óþelló. Hin leiðin er hins vegar miklu betri og vel á valdi íslensku ópemnnar. Þaö kom fram í hinni vel heppnuðu sýningu á Töfraflautunni nú í vet- ur. Finnur Torfi Stefánsson Hvað er mikilvægast þegar þú velur þér ferð? Hvítarstrmdurásólríkasta stað Spdnar Benidorm! I fpá kl:13 -16 sjáumst! Ferðaskrifstofa Reykjavíkur Aðalstræti 16, sími 62 14 90

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.