Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992.
41
Helgarpopp
Hljómsveitin sem átti stóran þátt í upphafi þjóðlagarokks:
The Byrds heldur tvenna
tónleika hér á landi
Liösskipan hljómsveitarinnar
Byrds, sem sækir okkur heim í lok
febrúarmánaðar, er ekki sú þekkt-
asta. Af fimmmenningunum, sem
komu Byrds óafmáanlega á spjöld
rokksögunnar um miöjan sjöunda
áratuginn, er einn meö í förinni til
íslands, Michael Clarke trommuleik-
ari. Með honum er í för Skip Battin
sem kom til sögunnar áriö 1986 og lék
um nokkurra ára skeið með hljóm-
sveitinni. Ásamt þeim koma hingað
gitarleikaramir Manny Yankers og
Umsjón
Ásgeir Tómasson
Terry Rogers. Sá síðastnefndi er
sagður hafa komið við sögu hjá All-
man Brothers Band á árum áður.
Þessi fjögurra manna útgáfa The
Byrds hefur verið á hljómleikaferð
mn Bandaríkin og Kanada, sem og
Norðurlöndin, Bretland, írland,
Þýskaland og Ítalíu. Á dagskránni
eru öll þekktustu Byrdslögin, svo
sem Mr. Tambourine Man, Turn
Turn Tum, Eight Miles High, So You
Wanna Be a Rock’n’Roll Star og íleiri
og fleiri. Verið er að vinna að heim-
ildarmynd um hljómsveitina og þeg-
ar þvi verki er lokið stendur til að
taka upp nýja plötu.
Brautryðjendur
Hljómsveitin The Byrds var á sín-
um tíma brautryöjandi á sínu sviði.
Þaö er rokki í þjóðlagastíl. Hún átti,
ásamt Bob Dylan, mestan þátt í að
Hillman The Flying Burrito Brot-
hers. Trommuleikari þeirrar hljóm-
sveitar varð einmitt Michael Clarke
sem nokkru áður haföi sagt skihð við
The Byrds.
Við þessi umskipti stokkaöi Roger
McGuinn algerlega upp Uðsskipan
The Byrds. En ári síðar kom að þvi
að hann skipti um bassaleikara. Þá
kom Skip Battin til sögunnar. Saman
störfuöu þeir til ársins 1972 er hljóm-
sveitin hætti. Þann tíma naut The
Byrds mikilla vinsælda og átti meðal
annars lag í kvikmyndinni sígildu,
Easyrider.
En þótt Roger McGuinn legði The
Byrds niður árið 1972 komu stofnfé-
lagarnir fimm saman þá um veturinn
og unnu saman eina plötuna enn.
Hún seldist þokkalega en þykir ekki
í hópi betri platna The Byrds. Síðan
þá hefur lítið farið fyrir hljómsveit-
inni þar til nú að Michael Clarke og
Skip Battin hafa endurreist hana.
Liðsmenn The Byrds hafa þó getið
sér gott orð á tónlistarsviðinu. Einn
þeirra er þó látinn: Gene Clark dó í
fyrra. Af eðlilegum orsökum eins og
það var oröað.
Þó svo að Roger McGuinn, Chris
Hillman og David Crosby séu ekki í
þeirri útgáfu The Byrds sem kemur
og skemmtir á Hótel íslandi síðustu J
helgina í febrúar má hiklaust telja
að um merka heimsókn sé að ræða.
Fjórmenningarnir sem hingað koma
hafa í öllu falli fullt leyfi til að starfa
undir nafninu The Byrds. Nafninu
sem er tengt upphafi þjóðlagarokks
og síðar kántrírokks óijúfanlegum
böndum.
Tveir liðsmenn The Byrds, sem kemur hingað til lands, léku með hljómsveitinni meðan hún var eitt stærsta nafnið
i bandarísku rokki.
efla veg þjóðlagarokksins snemma á
sjöunda áratugnum. Hljómsveitin sló
í gegn með laginu Mr. Tambourine
Man sem einmitt er eftir Dylan.
Upphafleg áform stofnenda Byrds
voru þó ekki svo háleit að verða
brautryðjendur af neinu tagi. Þeir
ætluðu einungis að sameina meló-
dískustu hluta tónlistar The Beatles
bandarísku rokki og þjóðlagatónlist.
Bítlarnir voru jú aflsráðandi árið
1964 þegar The Byrds varð til. Stofn-
endumir voru auk Michaels Clarkes
þeir Roger McGuinn, Gene Clark,
Chris Hillman og David Crosby. Ro-
ger hét reyndar Jim McGuinn fyrstu
árin en breytti nafninu árið 1968.
Hljómsveitin sendi Mr. Tambour-
ine Man frá sér á lítilli plötu í mars-
mánuði 1965. Síðla í júní komst lagið
í efsta sæti vinsældalista í Bandaríkj-
unum. Mr. Tambourine Man var
með á fyrstu stóru plötu The Byrds
sem kom út í ágúst það ár. Platan,
sem ber nafn hljómsveitarinnar,
þykir ein sú merkasta sem út var
gefin á sjöunda áratugnum. Staða
Byrds í bandaríska poppinu er raun-
ar sú aö hljómsveitin þykir ein sú
merkasta á sjöunda áratugnum
ásamt Beach Boys.
Þrátt fyrir mikla velgengni urðu
brátt mannabreytingar í The Byrds.
Gene Clark hætti árið 1966 og David
Crosby og Michael Clarke tveimur
árum síðar. Kevin Kelly tók við
trommusettinu af Michael og Gram
Parsons gekk í hljómsveitina í stað
Davids sem stofnaði nokkru síðar
Crosby, Stills & Nash. Um þetta leyti
var tónlistin orðin nokkuð rafmagn-
aðri en fyrr og senn voru brautryðj-
endur þjóðlagarokksins orðnir
brautryðjendur að nýju: í kántrí-
rokki. Þessi umbreyting er fyrst og
fremst þökkuð Gram Parsons. Hann
stóð þó.stutt við í hljómsveitinni.
Árið 1968 stofnuðu hann og Chris
Madkur í mysunni
hjáNewKids ... ?
Greg McPherson, upptökustjóri nýjustu
plötu hljómsveitarinnar vinsælu, New Kids
On The Blocks, segir að liðsmenn hljómsveit-
arinnar hafi einungis sungið um fimmtung
af þeim röddum sem heyrist á plötunni.
McPherson segir að Michael Johnson og bróö-
ir hans, Maurice Starr, umboðsmaöur og
stofnandi hljómsveitarinnar, séu raunveru-
legu raddimar á hljómleikum og plötum New
Kids. Liðsmennimir sjálfir fái aðeins að raula
með.
Maurice Starr hefur mótmælt þessum ásök-
unum og segir að hann og Michael Johnson
hjálpi aðeins til í bakröddum. Liðsmenn New
Kids On The Block hafi sungið aflar aðalradd-
ir plötunnar Hangin’Tough rétt eins og þeir
sjái um allan söng á hljómleikum og öðrum
plötum. Starr segir ekkert að marka McPher-
son sem hafi verið rekinn áður en gerð Hang-
in’Tough var lokiö. Upptökustjórinn hefur
hins vegar höföað mál til að fá sanngjamar
greiðslur fyrir höfundarrétt og hugmynda-
vinnu við upptöku plötunnar.
Syngja liðsmenn New Kids On The Block sjálfir á plötum sínum og hljómleikum? Nei,
segir upptökustjóri þeirra.
Hljómsveitin C & C Music Factory var valin verðlaunin sem sa besti karlkyns í rokkinu
besta rokkhljómsveit síðasta árs og efhileg- og platan hans, Time Love And Tendemess,
asti nýliöinn er bandarísku tónlistarverð- var valin besta rokkplatan. Paula Abdul þótti
launin(AmericanMusicAwards)voruafhent frambærilegust rokkkvenna á síðasta ári.
á dögunum. C & C Music Factory kom fram Garth Brooks fékk þrenn verðlaun i kántrí-
á sjónarsviðið í fyrra og vakti strax athygli geiranum og Reba McEntire ein. Loks má
fyrir að blanda áheyrilega saman rokki og geta þess aö Natalie Cole fékk tvenn verölaun
danstónlist Enda fékk hún og verðlaun sem fyrir irammistöðu sína á síðasta ári. Hún
,besta hljómsveit og besti nýliðinn í dansgeir- þótti besti tónlistarmaðurinn í poppi fyrir
anum. Þá þótti lag hljómsveitarinnar, Gonna fuflorðna og plata hennar, Unforgetable.. -
Make You Sweat, besta danslag siðasta árs. With Love, þótti sú besta 1 sama flokki.
Michael Bolton fékk bandarísku tónlistar-