Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Side 5
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992.
5
DV
Fréttir
Trillukarl, sem viðurkenndi íkveikju í báti sínum í Grindavík, sýknaður:
Játaði hjá RLR en neit
aði svo öllu fyrir dómi
Sakadómur Kópavogs hefur sýknaö
34 ára trillusjómann af sakargiftum
um tilraun til fjársvika meö því aö
hafa orðið valdur að eldsvoða sem
eyðilagði 6 tonna bát hans, Arnar
RE 212, í Grindavíkurhöfn 24. febrú-
ar á síðasta ári. Maðurinn játaði hjá
RLR að hafa lagt eldfim efni að ka-
byssu bátsins skömmu áður en elds-
ins varð vart - og þannig vonast til
að kviknaði í. Fyrir dómi dró maður-
inn þennan framburð hins vegar til
baka. Meðal annars af þeirri ástæðu
var hann sýknaður. Ríkissaksóknari
hefur þegar áfrýjað til Hæstaréttar.
Manninum var gefið að sök að hafa
ætlað að losna undan skuldbinding-
um vegna fjármögnunarleigusamn-
ings vegna bátsins með 3,5 milljóna
króna tryggingabótum. Fram kom í
málinu að siglingatæki voru fjarlægð
úr trillunni skömmu fyrir brunann.
Skjalfestur og undirritaður vitnis-
biu-ður trillukarlsins hjá RLR var
meðal annars á þessa leið: „Áður en
ég fór frá bátnum... jók ég brennsl-
una á kabyssunni til hálfs. Við hhð
hennar setti ég olíubleyttan hand-
þurrkupappír. Ofan á þfiið við hlið-
ina á kabyssimni setti ég þriggja htra
bensínbrúsa sem var hálfur af bens-
íni og skorðaði hann á nagla sem
negldur var í þihð að framanverðu.
Þetta gerði ég vísvitandi og með von
um að þessar ráðstafanir yrðu til
þess að eldur kviknaði í bátnum eins
og svo varð raunin."
Maðurinn viðurkenndi einnig hjá
RLR að með þessu hefði hann bundið
við það vonir að losna undan skulda-
bagga sem hvíldi á honum.
Fyrir Sakadómi Kópavogs dró
maðurinn framburð sinn um fram-
angreind atriði til baka. Bar hann
því meðal annars viö að framburður
sinn hjá RLR hefði verið annar en
þar var skráður í skýrslum. Maður-
inn gat ekki skýrt það fyrir dómi
hvers vegna hann lýsti aðstæðum
ranglega hjá RLR. Tvö vitni, rann-
sóknarlögreglumenn, mótmæltu
báðir breyttum framburði ákærða
fyrir dómi.
í sakadómi kom einnig fram að
útgerð bátsins hefði gengið iha og
eigandinn hefði lent í vanskilum.
Skuld við seljanda nam á síðasta ári
4,6 mihjónum króna en skuld við
Byggðastofnun nam tæplega 1,6
mihjónum króna. Samkvæmt upp-
lýsingum DV hafa Sjóvá-Almennar
þegar greitt 2,9 af 3,5 mihjóna króna
húftryggingu í bætur vegna tjónsins.
í niðurstöðu dómsins segir meðal
annars: „Það er áht dómsins að ekki
sé unnt að leggja til grundvallar
sönnunarmati í máh þessu framburð
ákæröa við yfirheyrslur hjá RLR.“
„Niöurstaðan er því sú að gegn ein-
dreginni neitun ákæröa fyrir dómi
FÍM-salurinn:
Fundnar myndir nefnist sýning
sem Bragi Ásgeirsson listmálari
opnar i FÍM-sainura í dag, Er hér
um að ræöa módelteikningar og
málverk.
Bragi er löngu landsþekktur
myndhstarmaður og listgagnrýn-
andi og hafa margir fylgst með
listferh hans í gegnum árin. Á
sýningu Braga er að finna verk
sem aidrei hafa áður komiö fyrir
almenningssjónir.
-HK
verður sök hans ekki byggð á játn- í máhnu fyrir íkveikju þar sem ai- að af brunanum. Ríkissjóður var kostnað. Ólöf Pétursdóttir héraðs-
ingu hans hjá RLR.“ Ekki var ákært mannahætta var ekki talin hafa staf- dæmdur til að greiða allan sakar- dómari kvað upp dóminn. -ÓTT
Nœsta máll
Kosning gjaldkera
húsfélagsins
Húsfélagaþjónusta íslandsbanka
býðst til að annaSt innheimtu-, greiðslu-
og bókhaldsþjónustu fyrir húsfélög.
Cjaldkerastarf í húsfélagi fjölbýlishúsa hefur aldrei HÚSFÉLACA
þótt eftirsóknarvert, enda bœöi tímafrekt og oft van- þjóttusta
þakklátt.
Húsfélagaþjónustán auöveldar rekstur og tryggir
öruggari fjárreiöur húsfélaga meö nákvœmri yfirsýn yfir
greiöslustööu og rekstur á hverjum tíma. Þetta fyrir-
komulag er því íbúum fjölbýlishúsa til hagsbóta.
Þrír þœttir Húsfélagaþjónustu:
v Innheimtuþjónusta:
Bankinn annast mánaöarlega tölvuútskrift gíróseöils á hvern greiö-
Op. anda húsgjalds. Á gíróseölinum eru þau gjöld sundurliöuö sem greiöa
þarf til húsfélagsins.
,/ý
/í* >'•
!S <», 5
[O o/ Greiösluþjónusta
\ -Á *
" *** Þau sem húsfélagiö þarf aö greiöa, t.d. fyrir rafmagn og
fy. Uy hita, fœrir bankinn af viöskiptareikningi og sendir til viökomandi á
umsömdum tíma.
Bókhaldsþjónusta:
I lok hvers mánaöar er sent út reikningsyfirlit sem sýnir hverjir hafa
greitt og í hvaö peningarnir hafa fariö.
í árslok liggur fyrir yfirlit yfir rekstur húsfélagsins á árinu, greiöslur
íbúa á árinu og skuldir þeirra í lok árs.
Allar nánari upplýsingar um Húsfélagaþjón-
ustu bankans og kynningartilboöiö sem
stendur húsfélögum til boöa til
7 6. mars fást hjá þjónustufulltrúum í neöan- ISLANDSBANKI
greindum afgreiöslustööum bankans. _ ftakt víð nýja tfmai
Eftirtaldir afgreiöslustaöir Islandsbanka veita Húsfélagaþjónustu:
Bankastrœti 5, sími 27200.
Lœkjargata 12, sími 691800.
Laugavegur 172, sími 626962.
Álfheimar 74, sími 814300.
Crensásvegur 13, sími 814466.
Háaleitisbraut 58, sími 812755.
Stórhöfbi 17, viö Cullinbrú, sími 675800.
Lóuhóiar 2-6, sími 79777.
Kringlan 7, sími 608000.
Þarabakki 3, sími 74600.
Dalbraut 3, sími 685488.
Eibistorg 17, Seitj., sfmi 629966.
Reykjavíkurvegur 60, Hafnarfirbi,
sími 54400.
Strandgata 1, Hafnarfirbi, sími 50980.
Hörgatún 2, Garbabœ, sími 46800.
Hamraborg 14a, Kópavogi, sími 42300.
Þverholt 6,Jvlosfellsbœ, simi 666080.
Hafnargata 60, Keftavík, sími 92-15555.
Kirkjubraut 40, Akranesi, simi 93-13255.
Hrísatundur la, Akureyri, sími 96-21200.
Abalgata 34, Siglufirbi, sími 96-71305.