Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Page 10
10
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992.
GAKYOIOIMN MN«5H0mii FRANCÍ5MtOOIMAND
TWE STORY Of ONE MAM-S TRIUMPH
OVER AN INSANt WORID
jixAiy;
HUtoíí tiAFPíw it/ PíAcas
A KISS BEFORE DYING
Útgelandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: James Dearden.
Aöalhlutverk: Matt Ditlon, Sean Young
og Max von Sydow.
Bandarisk, 1991 - sýningartimi 95 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
James Dearden skrifaöi handritið
aö hinni þekktu sakamálamynd,
Fatal Attraction, og hlaut frægð
fyrir. Eftir þaö hefur hann leikstýrt
tveimur myndum og er Kiss before
Dying síöari myndin.
Dearden hefur frá blautu bams-
beini verið alinn upp viö kvik-
myndir en faöir hans var breski
leikstjórinn Basil Dearden sem
leikstýrði íjölda kvikmynda frá
stríðsámm fram á áttunda áratug-
inn. Það kemur þvi ekki á óvart aö
sonurinn skuli leita á fornar slóðir
við gerö sinnar eigin sakamála '
myndar en Kiss before Dying er
endurgerð myndar frá 1956 sem bar
sama nafn. Og það er meira vitnað
í fortíðina. Á einum stað í Kiss be-
fore Dying er atriði sem minnir
óneitanlega á frægt atriöi úr kvik-
mynd Alfreds Hitchcock, Vertigo,
og það er enginn vafi aö Dearden
hefur verið undir áhrifum frá
meistaranum þegar hann gerði
þessa mynd.
Dauðakossinn er ekki sakamála-
mynd þar sem spurt er: Hver er
morðinginn? Það verður ljóst strax
í byrjun að Jonathan (Matt Dillon)
er sálsjúkt Olmenni sem ekki hikar
viö morð ef það kemur honum nær
ætlunarverki sínu. Spennan í
Sean Young og Matt Dillon leika aðalhlutverkin i Kiss Before Dying.
myndinni hggur frekar í hvað hann
kemst upp með áður en svikamyUa
hans hrynur.
James Dearden tekst yfirleitt að
byggja upp mikla spennu í kringum
einstaka atriði þótt ekki sé það allt-
af á sannfærandi hátt. Eins og við
er að búast skrifar hann einnig
handritið og er þar margt vel gert
en er langt frá aö vera jafngott og
handrit hans að Fatal Attraction.
Þegar á heildina er litið er Kiss
before Dying nokkuö glúrin saka-
málamynd en hún verður aldrei
DV-myndbandalistirm
Ullar breytingar eru á listanum. Sakamátamyndin State of Grace
nálgast hægt toppinn, er nú i þrlðja sasti. Á myndinni má sjá Ed
Harris, Robin Wright og Sean Penn sem öll leika stðr htutverk i State
of Grace.
I (1) Naked Gun Vh
2(2) Kiss beíore Dying
3(4) Stale of Grace
4 (3) Hrói höttur, prins þjófanna
5(6) Murder 101
6(4) Silence of the Lambs
7(7) Mermaids
8(-) Perfec( Weapon
9 (-) Born to Ride
10 (15) Fever
II (13) Green Card
12(9) The Pope Must Die
13(8) Out for Justice
14 (10) L.A. Story
15 (14) He Said, She Said
í stríði innan fangelsismúra
CHATTAHOOCHEE
Útgefandi: Skifan.
Leikstjóri: Mick Jackson.
Aöalhlutverk: Gary Oldman, Dennis
Hopper og Frances McDormand.
Bandarisk, 1990-sýningartimi 93 min.
Bönnuö börnum innan 16 ára.
Það var ekki aðeins í Víetnam-
stríðinu sem bandarískir hermenn
áttu erfitt með að aðlagast borgara-
legu lífi eftir að heim kom. í Chatta-
hoochee er sögð dramatísk saga
hermannsins Emmetts Foley sem
kom heim úr Kóreustríðinu,
sæmdur heiöursmerkjum fyrir
hetjudáðir.
Foley á konu og bam en fær enga
vinnu. Dag einn bugast hann, tekur
fram riffil sinn og byrjar að skjóta
út úr íbúö sinni út í loftiö. Ekki
særir hann neinn með byssunni en
neitar að gefast upp. Loks þegar
lögreglan yfirbugar hann svarar
hann spumingum hennar undar-
lega. Yfirvöld telja hann þó hæfan
til að sitja í fangelsi og er hann
dæmdur í hið illræmda Chattaho-
ochee þar sem eingöngu em
geymdir geðveikir glæpamenn og
hættulegir morðingjar.
Foley sér að þama á hann ekki
að vera og mótmælir ákaft en mót-
mæli hans eru barin niður af fanga-
vörðum sem margir ættu frekar
heima í fangelsi. Barátta hans
snýst fljótt upp í að bæta aðstöðu
fyrir aöra fanga sem minna mega
sín um leið og hann berst fyrir
frelsinu með aðstoð systur sinnar.
Söguþráðurinn í Chattahooche er
áhrifamikill en myndin hefði mátt
vera betur gerð. Þótt mikið sé um
dramatíska atburði er myndin í
heild nokkuð langdregin. Leikarar
standa sig yfirleitt vel en Gary Old-
man er bestur í hlutverki Foleys.
Einnig má nefna góðan leik Franc-
es McDormand í hlutverki eigin-
konu Foleys sem skilur við hann
meðan á fangavistinni stendur.
-HK
klassíksur þriller á borð við Fatal
Attraction. -HK
★★
Hryllingssaga
THE BORROWER
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: John McNaughton.
Aðalhlutverk: Rae Dawn Chong og Don
Gordon.
Bandarisk, 1990-sýningartími 87 min.
Bönnuð börnum innan 16 ára.
John McNaughton er þekktur
fyrir kvikmynd sína Henry: Por-
trait of a Serial Killer sem hann
gerði 1986. Það var ekki fyrr en
1990 aö sú kvikmynd fékkst sýnd
og er óhætt að segja að hún hafi
verið ein umtalaðsta mynd ársins
og gerði John McNaughton að eftir-
sóttum leikstjóra og má geta þess
að nýjustu kvikmyndar hans, Mad
Dog and Glory, með Robert Di Niro
og Bill Murray í aðalhlutverkum
er beðið með mikilli eftirvæntingu.
í millitíðinni leikstýrði
McNaughton hryllingsmyndinni
The Borrower og stílbrögðin leyna
sér ekki. The Borrower er einhver
alóhugnanlegasta kvikmynd sem
undirritaður hefur séð og sá
óhugnaöur leynist ekki síst í
áhrifamikilli leikstjóm McNaugh-
tons en þessi frábæru stílbrögð af-
saka samt ekki það blóðbað sem er
í myndinni.
í myndinni er sögð saga geimveru
sem dæmd er til að dvelja á jörð-
inni. Til að geta lifaö þarf hún
ávallt að skipta um hýsil eöa sem
sagt koma sér inn í mannveru. Rae
Dawn Chong leikur lögreglu sem
er á eftir þessum óhugnaði með litl-
mn árangri. Við fáum engan klass-
ískan endi heldur verðum við að
dvelja við spurninguna um það
hvort það sé í raun hægt að eyða
kvikindinu. The Borrower er
veislumatur fyrir unnendur Hryll-
ingsmynda en aðrir ættu ekki að
líta við henni. -HK
★★
LUCY AND DESI - BEFORE THE
LAUGHTER
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Charles Jarrott.
Aðalhlutverk: Frances Fisher og
Maurice Bernard.
Bandarisk, 1990 - sýningartimi 100 min.
Leyfð öllum aldurshópum.
Að sögn er I Love Lucy vinsæl-
asta sjónvarpssería allra tíma þar
sem hjómn Lucy Ball og Desi Amaz
léku „venjuleg" bandarísk hjón.
Kvikmyndin Lucy and Dezi segir
frá hvernig þau kynntust og lýsir
lífi þeirra fram að fyrsta þætti.
Það býður hættunni heim að fá.
reynslulausa leikara til að leika
þekkt andlit aðeins vegna þess að
þau eru lík fyrirmyndinni og
Francis Fisher og Maurice Benard
era alls ekki vandanum vædn. Að
visu nær Fisher að líkja stundum
eftir Lucy Ball en að fylgjast með
tilburöum Benards er í einu orði
sagt píning. Ekki hjálpar slæmt
handrit þeim. Dóttir þeirra hjóna
reyndi að koma í veg fýrir dreifingu
myndarinnar og er það vel skiljan-
legt eftir að hafa séð þessi ósköp.
★★V2
éíéJÍ I
Minnisleysi
DRAGONFIRE
Útgefandi: ClC-myndbönd.
Leikstjóri: Richard T. Heffron.
Aóalhlutverk: Daniel J. Travanti og Rox-
anne Hart.
Bandarísk, 1990-sýningartími 89 min.
Bönnuó börnum innan 16 ára.
í Dragonfire leikur Daniel J. Tra-
vanti fatlaðan viðskiptajöfur, John
Tagget, sem er með dökka fortíð.
Það sem háir honum er að hann
veit aö hann hefur lent í einhverju
óhugnanlegu í Víetnamstríöinu en
getur ekki gert sér ekki grein fyrir
hvað það er fyrr en hann les bók
eftir breskan blaðamann um her-
búðir í Hong Kong. Tagget leggur
nú upp í leit að fortíðinni sem á
eftir að koma honum sem og áhorf-
endum á óvart.
Það er mikill hraði í Dragonfire
og nóg um að vera. Þá er myndin
spennandi og leikur sæmilegur.
Söguþráöurinn er aftur á móti
nokkuð öfgakenndur og skýring-
una á fótlun Taggets er erfitt að
gleypa hráa. Ef hægt er að leiöa
hjá sér þessa annmarka er Drag-
onfire hin prýðilegasta skemmtun.
Leikaralíf
DANIEL J. TBAVARI
SumKWtiere in W» mind,
is a i Mghtmans waltina
u» explode.
ís.
Siglt undir fölsku flaggi