Dagblaðið Vísir - DV - 15.02.1992, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 1992.
Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00
SlMBRÉF: Auglýsingar: (91)63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613.
SlMBRÉF: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr.
Verð í lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr.
Hö fðingjasið fræði
Fjármálaráöherra segist ekki vera sáttur viö, aö opin-
berir starfsmenn misnoti opinber faxtæki til að koma
mótmælum sínum á framfæri við b ármálaráöuneytið.
Hann er hins vegar fyllilega sáttur viö aö misnota sjálf-
ur aöstöðu sína á hundraðfalt grófari hátt.
Fjármálaráðherra mælti á sínum tíma hin fleygu orð,
sem hafa orðið einkennisorð íslenzkrar spillingar: „Ef
ráðherra getur ekki boðið nokkrum bekkjarbræðrum
sínum í glas, þá er ekki mikið eftir“. Það fer honum því
ekki vel að reyna að siða opinbera starfsmenn.
Eins og svo margir þeirra, sem hafa verið ráðherrar
á síðustu árum, lifir fjármálaráðherra í tvískinnungs-
heimi, þar sem þjóðinni er skipt í tvennt. Annars vegar
er sauðsvartur almúginn og hins vegar nokkrir stjóm-
málamenn, sem ekki þurfa að lúta siðalögmálum.
í þessum einkennilega hugarheimi ráðherrans er í
lagi, að hann dveljist í margra daga sumarleyfi í Thai-
landi á ríkiskostnað. Þar á ofan er að hans mati í lagi,
að hann fái á meðan kaupauka, sem hann fær ekki,
þegar hann er að vinna á skrifstofunni í Arnarhvoh.
Athyglisvert er, að ráðherrar skuli skerða ferða-
hlunnindi sín minna en annarra ferðagarpa hins opin-
bera, þegar harðnar á dalnum. Samt eru hlunnindi ráð-
herranna beinlínis ferðahvetjandi, því að þau aukast í
réttu hlutfalh við aukið flandur þeirra í útlöndum.
Lengi og oft hefur verið bent á, að ráðherrar ættu
ekki að fá í senn ahan ferðakostnað borgaðan og sér-
stakan launaauka þar á ofan á ferðatímanum. Fjármála-
ráðherra hefur ekki gert neina tilraun til að breyta
þessu, enda er hann hinn ánægðasti með aðstöðu sína.
Ráðherrar eru nú farnir að jafna sig eftir áfallið í
brennivínsmáh forseta Hæstaréttar. Misnotkun þeirra
á veizluaðstöðu og veizlufóngum ríkisins er að aukast
á nýjan leik. Þetta sést af tölum um vaxandi viðskipti
ríkisins við Áfengis- og tóbaksverzlun ríkisins.
Fjármálaráðherra segir, að „afspymuerfitt“ sé að
fara hér á landi eftir sömu reglum og gilda í Bandaríkj-
unum, þar sem ríkið sendir stjórnmálaflokkum reikn-
inga fyrir veizlu- og ferðakostnaði á vegum flokka; og
ráðherrum reikninga fyrir einkakostnaði af því tagi.
Ofan á persónulega spillingu ráðherra verður sífeht
fyrirferðarmeiri hin flokkslega spilling þeirra. í síðustu
ríkisstjóm höfðu ráðherrar Alþýðubandalagsins forastu
um að koma kostnaði við áróðursherferðir, kosn-
ingabæklinga og kosningafundi yfir á herðar ríkisins.
Þessi tegund siðleysis hefur haldizt í tíð núverandi
ríkisstjómar. Einkum hefur heilbrigðisráðherra verið
iðinn við að sóa ríkisfjármunum í slíka spihingu. Kvart-
anir utan úr bæ hafa ekki hin minnstu áhrif. Að ræða
spillingu við ráðherra er eins og að stökkva vatni á gæs.
í hugarheimi slíkra ráðherra era þeir æðri lögum og
reglum, sem gilda uni þjóðina. Þeir hafa sérreglur um
sín eigin hlunnindi í ferðalögum, bifreiðum og veizlu-
höldum. Þeir telja sig arftaka aðalsins og líta á þjóðfélag-
ið sem herfang, er hafi fallið þeim í skaut.
Þetta hugarfar tengist náið þeirri ofbeldishneigðu
skoðun, sem nýtur vaxandi útbreiðslu hjá ráðherrum,
að þeim eigi að leyfast að nota aðstöðu sína til að „valta
yfir“ þá, sem standa í vegi þeirra, svo sem heilbrigðis-
ráðherra hefur gert í málefnum Landakotsspítala.
Þegar ráðherra, sem sér ekkert athugavert við eigin
spillingu, kvartar opinberlega um óeðlilega faxnotkun
opinberra starfsmanna, er hræsnin komin á hátt stig.
Jónas Kristjánsson
Kröggumar
í nýja
samveldinu
Fundur forseta lýöveldanna í sam-
veldi fyrrum sovétríkja stendur
fyrir dyrum þegar þetta er ritaö. í
aðdraganda hans hefur það eink-
um vakið athygh að varnarmála-
ráðgjafi Boris Jeltsíns Rússlands-
forseta hefur boðaö að eftir fundinn
í Minsk, höfuðborg Hvíta-Rúss-
lands, muni forsetinn sjá sig tilknú-
inn að gefa út tilskipun um stofnun
sérstaks, rússnesks hers. Fram til
þessa hefur það verið stefna Jelts-
íns að halda Sovéthemum fyrrver-
andi sem mest sameinuöum undir
einni stjórn sem sé ábyrg gagnvart
samveldinu öllu.
Sú hugmynd virðist vera að
stranda á afstöðu Leóníds
Kravtjúk, forseta Úkraínu. hann
hefur frá öndveröu lýst yfir að
stefnt verði að stofnun Úkraínu-
hers, allt að 400.000 manna herafla,
og krafist trúnaðareiðs við Úkra-
ínu af hersveitum sem hafa búöir
í lýðveldinu, hvert svo-^em þjóð-
emi hermanna er. Þar að auki
stendur deila milh stjóma Rúss-
lands og Úkraínu um yfirráð yfir
Svartahafsflotanum.
Yfirlýsing Dmitri Volkogonofs
vamarmálaráðunauts er til þess
sniðin að þrýsta á Kravtsjúk að
gæta hófs í ákefð sinni aö gera
Úkrainu að sjálfstæðu herveldi. En
svigrúm Úkraínuforseta er tak-
markað eftir það sem hann hefur
þegar sagt. Völd sín byggir þessi
fyrrverandi hugmyndafræðingur
kommúnistaflokksins í Úkraínu á
því að hafa söðlað um á réttri
stundu og notað valdakerfi flokks-
ins til aö gera sig að merkisbera
úkraínskrar þjóðemisstefnu. Til-
slakanir af hans háifu geta því
hefnt sín heima fyrir.
Þar að auki eiga báðir forsetar
við að stríða erfið vandamál innan-
lands. Stökkið frá miðstýringu til
markaðsbúskapar reynist erfitt og
veldur almenningi þrengingum
sem þegar hafa snúist upp í póh-
tíska ókyrrð.
Þingið í Kíef hefur sett Kravtsjúk
tíu daga frest til aö skipta um ríkis-
stjóm, með þeim rökum að sú sem
nú situr hafi rækilega sannað van-
hæfni sína til að stjóma efnahags-
málum. Þetta var samþykkt með
330 af 400 greiddum atkvæðum á
þingi eftir að þingheimur hafði gert
afturreka síðustu áform ríkis-
stjómarinnar í efnahagsmálum og
krafist þess að hún bæri fram nýjar
tihögur innan viku.
Vitold Fokin forsætisráðherra er
kennt um að neytendur eigi þess
ekki kost að kaupa nauðsynjar og
hvers konar vaming þótt birgðir
séu nægar í matarkistunni Úkra-
ínu. Rikisstjómin gaf út skömmt-
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
unarseðla með peningagildi til að
ýta rúblunni til hhðar í daglegum
viöskiptiun og koma þannig í veg
fyrir að kaupendur streymdu að frá
Rússlandi og tæmdu úkraínskar
verslanir. En komið hefur á daginn
að útgáfumagn skömmtunarseðl-
anna var byggt á skökkum útreikn-
ingum svo að þeir nægja engan
veginn til að sjá landsmönnum fyr-
ir nauðþurftum þótt þær séu á boð-
stólum.
í Rússlandi sýnir Alexandr
Rútskoj varaforseti alla tilburði til
að leitast við að safna um sig fylgi
þeirra sem finna efnahagsáætlun
Jeltsíns forseta og ráðunauta hans
allt til forátta. Rútskoj, sem er
stríðshetja frá Afganistan, höfðar
sér í lagi th foringja í hernum og
rússneskra þjóðernissinna. Meðal
annars hefur hann tekið undir til-
kall Rússlands til Krímskaga, þar
sem stendur borgin Sebastopol,
aðalbækistöð Svartahafsflotans.
Krafan til Krím hefur mikinn
hljómgrunn meðal Rússa. Hefur
Rússlandsþing tekið undir hana
með þvi að ákveða að láta kanna
lögmæti þess gernings Nikita
Krútsjofs að afsala Krím til Úkra-
ínu árið 1954 þegar þijár aldir voru
hönar frá því Úkraína rann inn í
Rússaveldi.
Rimman í Rússaveldi er þó hörð-
ust út af afleiðingum þess að í byij-
un þessa árs gekk í gildi efnahagsá-
ætlun Egors Gaidars, varaforsætis-
ráöherra í stjórn Jeltsíns og yfir-
manns efnahagsmála. Var þá verö-
lag gefið fijálst á öhum varningi
nema nokkrum nauðsynjum, svo
sem mjólk, sykri og matarohu.
Verð hefur rokið upp úr öhu valdi
án þess að ræst hafi að gagni vonir
Gaidars um að verðlagsfrelsið
leiddi til aukins framboðs sem síð-
an tempraði verðlagið.
Ráðherrar skýrðu frá því í síð-
ustu viku að verðlag í janúar hefði
að jafnaði hækkað um 300 til 350
af hundraði frá því sem var í des-
ember. Áætlanir gerðu ráð fyrir
250% meðalhækkun. Á sama tíma
hefur þjóðarframleiðsla dregist
saman um 16 af hundraði. Ráðherr-
amir kenndu því um óhóflegar
verðhækkanir að framleiðendur og
smásöluaðUar hefðu notað sér vör-
uskortinn tU að hirða aukinn
gróða.
Er hér komið að höfuðatriðinu í
gagnrýninni sem áhrifamenn
beina að efnahagsaðgerðum Gaid-
ars. Þeir halda því fram að svona
hafi hlotið að fara þegar verðlag
var gefið frjálst án þess að búið
væri aö afnema einokunaraðstöðu
framleiðenda í gamla miðstýring-
arkerfinu. Meðal þeirra, sem eru á
þessari skoöun, er Anatoh Sobt-
sjak, borgarstjóri St. Pétursborgar,
sem harðast gekk fram gegn valda-
ránstilrauninni í ágúst ásamt Jelts-
ín. Markaðsbúskapur getur ekki
átt sér stað, segir hann, fyrr en
landbúnaður, framleiðsla og dreif-
ing hafa verið einkavædd svo um
munar.
í síðustu viku var svo skýrt frá
fyrstu áformum um einkavæðingu
ríkisfyrirtækja. Anatoh Tsjúbais,
formaður ríkiseignanefndar,
kveðst vonast tíl að áður en árið
er úti verði búið að selja á uppboð-
um fjórðung ríkiseigna í fram-
leiðslu og vörudreifingu. Fjórð-
ungshlutur í fyrirtækjunum ertek-
inn frá og stendur starfsfólki þeirra
tU boða.
Tsjúbais viðurkenndi að um-
fangsmikill þjófnaður ríkiseigna
hefði þegar átt sér stað þar sem
stjórnendur ríkisfyrirtækja mynd-
uðu um þau sýndarhlutafélög,
leigöu húsakynni og tæki einkafyr-
irtækjum og seldu afurðir á einka-
reknum vörumörkuðum tU ágóða
fyrir sjálfa sig. Vegna réttaróvissu,
sem ríkt hefur frá því í júh á síð-
asta ári, þegar Rússlandsþing setti
lög um einkavæðingu án þess að
nokkrar reglur um framkvæmdina
fylgdu á eftir, taldi formaöur rík-
iseignanefndar þýðingarlaust að
reyna að rifta þessum gerningum.
Loks koma þau tíðindi frá Ríkis-
hagstofu Rússlands að matvæla-
birgðir séu brátt á þrotum. Helstu
kjötvörur endist í þrjár vikur, syk-
ur í sex vikur, smjör í mánuð og
þar fram eftir götunum. Talsmaður
viðskiptaráðuneytisins kennir því
mn þetta ástand að viðskipti milh
lýðveldanna séu í lamasessi, þann-
ig hafi Úkraína og Hvíta-Rússland
einungis staðið við lítið brot af
samningsbundinni kjötsölu til
Moskvu.
Magnús T. Ólafsson
Hjaipræðisnermaour ner aidurhniginni konu málsverö í einu af góðgeröarmötuneytum sem hjálparstofnanir
á Vesturlöndum hafa komið á stofn fyrir nauðstadda Moskvubúa. Simamynd Reuter