Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992.
23
Menning
Deborah Davis á útopnu
Bandaríska söngkonan Deborah
Davis söng fyrir Reykvíkinga um síö-
ustu helgi og kom fram á Ömmu Lú,
veitingahúsinu Jazzi og á Púisinum.
Á sunnudagskvöldið var hún á síð-
astnefnda staðnum ásamt íslenskum
fylgdarmönnum úr Jazzcombói Sig-
urðar Flosasonar, þeim Þóri Bald-
urssyni, Pétri Grétarssyni, Tómasi
R. Einarssyni og nátturlega hljóm-
sveitarsljóranum. En eiginlega var
það nú söngkonan sem stjómaði
þessu mest sjálf, að minnsta kosti á
sviðinu, og virkaði vel sviðsvön.
Þarna vora fluttar ýmsar djassperlur
og öðra hvoru skaut upp góðum blús-
lögum.
Deborah Davis hlýtur að eiga fram-
tíðina fyrir sér sem djasssöngkona
enda skilst mér að hún hafi þegar
Djass
Ingvi Þór Kormáksson
sungiö með Art Blakey heitnum og
píanistanum Benny Green, og nú
hefur hún meira að segja sungið með
stjörnusaxófónleikara okkar íslend-
inga, Sigurði Flosasyni.
Það var sama hvort hún söng lat-
ínsk lög eins og „One note samba“
og „Call me“ eða ballöður eins og
„My old flame“ og „It might as well
be spring" öll voru lögin túlkuð af
mikilli tilfinningu og öryggi. Hún
virtist óhrædd við að reyna á þanþol
raddarinnar sem er falleg og þrótt-
mikil. Margar bandarískar söngkon-
ur með raddir af svipuðum styrk-
leika finnast í bandarískri dægur-
músík og ekki síst í gospeltónlist.
Lesendur kannast kannski við þess-
ar kvenraddir sem rífa sig upp úr
öllu valdi í kirkjukórum blökku-
manna. Deborah er með svoleiðis
rödd. Sérstaklega vel naut hún sín í
blúslögunum og söng á útopnu mest-
allan tímann. Hið margleikna „Route
66“ varð t.d. eins og nýtt í meðforam
söngkonu og hljómsveitar. Undir-
leikurinn var kannski ekki alveg
hnökralaus í hveiju einasta lagi og
ekki víst að spilararnir hafi verið
alveg hæstánægðir með allt sem þeir
gerðu, en þeir mega vera ánægðir
með að hafa gefið ríkulega af sér í
dúndrandi sveiflu þegar það átti við.
Einmitt um þessar mundir virðist
sem í Bandaríkjunum séu að koma
fram í dagsljósið margar ungar söng-
konur sem syngja djass. Það var
óvænt ánægja að fá að heyra í einni
slíkri, svona líka lifandi og skemmti-
legri. Enda fer nú að vanta nýjar
Sörur og aðrar Ellur.
= HÉÐINN =
GARÐASHTÁL
STÓRÁSI 6 SÍMI 91 - 652000
PÓSTHÓLF15 210 GARÐABÆ
= HÉÐINN =
SMIÐJA
STÓRÁSI 6 » GARÐABÆ • SÍMI 652000 • FAX 652570
Hönnun • smíöi • viögeröir* þjónusta
ger«
! 1
NOKKUR DÆMI:
Krókhálsi 1-3, Reykjavík, sími 686633 og 676833 í notuðum bílum
Tegund Árgerð Staðg. verð Afsl.verð
Subaru Sedan 1988 750.000,- 690.000,-
Nissan March GL 1987 370.000,- 320.000,-
Suzuki Fox 410 1988 630.000,- 530.000,-
Mazda 626 GLX 2,0 1985 450.000,- 390.000,-
MMC Lancer ST 1986 400.000,- 290.000,-
BMW316 1986 650.000,- 530.000,-
Ford Escord XR3I 1984 490.000,- 410.000,-
Fíat Uno 45 1987 250.000,- 190.000,-
Peugot 205 GR 1987 390.000,- 320.000,-
Lada Safir 1987 150.000,- 95.000,-
Lada Sport 1987 330.000,- 270.000,-
OPIÐ: Fimmtudaginn 28. maí kl. 13-17,
Virka daga kl. 10-19 og laugardaga kl. 13-17
ENGIN ÚTBORGUN
RAÐGREIÐSLUR TIL ALLT AÐ18 MÁNAÐA
SKULDABRÉF TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA
Bílaumboðið hf