Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1992, Side 28
40
Nauðungaruppboð
Vegna vanefnda uppboðskaupanda verður hl. úr fasteigninni Aðalstræti
9, þingl. eign Ferðaþjónustunnar hf., boðin upp að nýju og seld á nauðung-
aruppboði sem fram fer á eigninni sjálfri þriðjudaginn 2. júní kl. 17.30.
Uppboðsbeiðendur eru Gjaldheimtan í Reykjavík, Björn Jónsson hdl. og
Ólafur Gústafsson hrl.
BORGARFÓGETAEMBÆTTIÐ í REYKJAVlK
Tilboð óskast í innanhússfrágang á jarðhæð og byggingu anddyr-
is við heilsugæslustöðina á Akranesi.
Gólfflötur hæðarinnar er um 570 m2 og anddyris um 50 m2.
Verktími er til 1. júní 1993.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri í Borgartúni 7, Reykja-
vík, frá og með þriðjudeginum 2. júní til og með fimmtudeginum
11. júní 1992 gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu I.R., Borgartúni 7, Reykjavík,
þriðjudaginn 16. júní 1992 kl. 11.00.
IIMIMKAUPASTOFNUIM RÍKISIIMS
BORGARTUNI 7 105 REVKJAVIK_
-----------------------\
Útboð
Ólafsvíkurvegur um Hólsland og
Kolviðarnesvegur 1992
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
samtals 5,64 km kafla á ofangreindum vegum,
Helstu magntölur: Fylling 36.000 m3, skeringar
2.100 m3 og neðra burðarlag 14.650 m3.
Verkinu skal lokið 20. júní 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Borgarnesi og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðal-
gjaldkera), frá og með 3. júní nk.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 15. júní 1992.
Vegamálastjóri
Nauðungaruppboð
fer fram á eftirtöldum eignum
á neðangreindum tíma:
Bræðraborg v/Aðalstræti, Patreks-
firði, þingl. eign Arons Magnússonar,
fer fram eftir kröfu Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga fimmtudaginn 4. júní 1992 kl.
14,00 á skriístofu embættisins, Aðal-
stræti 92, Patreksfirði.
Verkstæðishús í landi Þinghóls,
Tálknafirði, þingl. eign Gunnars Eg-
ilssonar, fer fram eftir kröfu Stein-
gríms Eiríkssonar hdl. fimmtudaginn
4. júní 1992 kl. 15.00 á skrifstofu emb-
ættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði.
Urðagata 2, Patreksfirði, þingl. eign
Erlu Hafliðadóttur, fer fram eftir
kröfu Ólafs Gústafssonar hrl. fimmtu-
daginn 4. júní 1992 ki. 16.30 á skrif-
stofu embættisins, Aðafstræti 92, Pat>
reksfirði.
Tálknfirðingur BA-325, sk.nr. 1534,
þingl. eign Hraðfrystihúss Tálkna-
fjarðar hf., fer fram eftir kröfu
Byggðastoftiunar föstudaginn 5. júní
1992 kl. 10.30 á skrifstofu embættisins,
Aðalstræti 92, Patreksfirði.
~ SÝSLUMAÐURINN í
BARÐASTRANDARSÝSLU
Nauðungaruppboð
annað og síðara
fer fram á eftirtöldum eignum
á neðangreindum tíma:
Sigtún 45, Patreksfirði, þingl. eign
Hörpu Pálsdóttur, fer fram eftir kröfu
þrotabús Rabbakjörs, Patreksfirði,
fímmtudaginn 4. júní 1992 kl. 15.30 á
skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92,
Patreksfirði.
Túngata 15, efri hæð, Patreksfirði,
þingl. eign Ásgeirs Hinriks Ingólfe-
sonar, fer fram eftir kröfu Húsnæðis-
stofiiunar ríkisins, Gunnars Sæ-
mundssonar hrl., Lífeyrissjóðs Vest-
firðinga og Patrekshrepps fimmtudag-
inn 4. júní 1992 kl. 16.00 á skrifstofti
embættisins, Aðalstræti 92, Patreks-
firði.
Móatún 25, Tálknafirði, þingl. eign
Irisar Vilbergsdóttur, fer fram eftir
kröfu íslandsbanka hf. fimmtudaginn
4. júní 1992 kl. 17.00 á skrifstofu emb-
ættisins, Aðalstræti 92, Patreksfirði.
Túngata 15, Tálknafirði, þingl. eign
Luðvígs Th. Helgasonar og Ingibjarg-
ar Michaelsen, fer fram eftir kröfu
Gunnars Sæmundssonar hrl. v/Eyra-
sparisjóðs, Húsnæðisstoftiunar ríkis-
ins, Lífeyrissjóðs Vestfirðinga, Elínar
5. Jónsdóttur hdl. og Einars S. Ingólfs-
sonar hdl. fimmtudaginn 4. júní 1992
kl. 17.30 á skrifstofu embættisins, Að-
alstræti 92, Patreksfirði.
Túngata 22, Tálknafirði, tal. eign
Sævars Ámasonar og Helenu Maríu
Ágústsdóttur^ fer fram eftir kröfu
Landsbanka Islands, Skúla J. Pálma-
sonar hrl., Húsnæðisstofhunar ríkis-
ins, Sigríðar Thorlacius hdl. og Elínar
S. Jónsdóttur hdl. fimmtudaginn 4.
júm' 1992 kl. 18.00 á skrifstofu embætt-
isins, Aðalstræti 92, Patreksfirði.
Verslunarhús v/Strandveg, Tálkna-
firði, þingl. eign Bjama Kjartansson-
ar, fer fram eftir kröfti Skúla J. Pálma-
sonar hrl., Ólafs Garðarssonar hdl. og
Eyrasparisjóðs fimmtudaginn 4. júní
1992 kl. 18.30 á skrifstofu embættisins,
Aðalstræti 92, Patreksfírði.
Borg, Tálknafirði, þingl. eign Hrað-
ftystihúss Tálknaíjarðfu', fer fram eftir
kröfu Ingólfs Friðjónssonar hdl.
fimmtudaginn 4. júní 1992 kl. 18.45 á
skrifstofu embættisins, Aðalstræti 92,
Patreksfirði.
Aðalstræti 84a, Patreksfirði, þingl.
eign Guðjóns Hannessonar, fer fram
eftir kröfu Sigríðar Thorlacius hdl.,
Lífeyrissjóðs Vestfirðinga, Jóns Ing-
ólfssonar hrl. og Ólafs Gústafssonar
hdl. föstudaginn 5. júní 1992 kl. 9.00
á skrifstofu embættisins, Aðalstræti
92, Patreksfirði.
Barmahlíð, dvalarheimili aldraðra,
þingl. eign dvalarneimilis Barmahlíð-
ar, fer fram eftir kröfu Byggingarsjóðs
ríkisins föstudaginn 5. júní 1992 kl.
11.00 á skrifstofu embættisins, Aðal-
stræti 92, Patreksfirði.
SÝSLUMAÐURINN í
BARÐASTRANDARSÝSLU
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1992.
Ýmsa sjúkdóma i taugakerfi má rekja til óhóflegrar drykkju. Heilafrumur geta bæði orðið fyrir skemmdum
vegna eituráhrifa alkóhóls svo og af vítaminskorti, en þær þurfa sérstaklega á B-vítamíni að halda sér til
uppbyggingar og viðhalds. Það var greinilegt að örn málari hafði skaðast af innilegum samskiptum sínum
við Bakkus kóng.
Heilaskemmd-
ur, drykkfelldur
málarameistari
Örn H. var löngu fráskilinn, 48
ára, fyrrum húsamálari, sem kom
til meðferðar á almennt sjúkrahús
eftir nokkurra mánaða sídrykkju.
Ástæða innlagnar var versnandi
heilsufar og vaxandi áhyggjur ætt-
ingja vegna heilsu málarans. Örn
haföi tvisvar farið í afvötnun hjá
SÁÁ en aldrei lokið fullri meðferð.
„Skyldan kallar,“ var Öm vanur
segja og heimta útskrift með kurt-
eislegumæsingi.
Nokkru síðar sáu kunnugir hann
standa í sínum eigin heimi í mið-
bænum miðj um og kneyfa veigar
af stút. Öm hafði fyrir löngu misst
allt annað húsaskjól en gistiheimili
á vegum borgarinnar og útiskúra
ogskúmaskot.
„Hann er að drepa sig á þessum
fjanda," sagði stundum ein systir
hans sem rak bjórstofu. „ Af hveiju
getur hann ekki bara drukkið eins
ogmaður?"
Við komu á sjúkrahúsið var hann
rólegur og allsgáður. Bróðir hans
var með í ferð og hélt því fram að
húsamálarinn pensilglaði hefði ekki
smakkað víndropa í 1-2 vikur. Hann
hafði legið veikur og þurrbijósta á
fleti hjá drykkfelldum ættingja sín-
um án matar síðustu daga.
Læknirinn sem skoðaði hann
komst að raun um Örn var illa
nærður að sjá, grannur og tálgaður
og við læknisskoðun uppgötvaðist
lömun á augnvöðva og mikill
skjálfti. Gangurinn varbreiðspora
og klunnalegur. Hann virtist
mglaður og kallaöi lækninn nafni
löngu látins frænda sem leitaö hafði
áhanníæsku.
Wemicke, Korsakoff
og alkóhólsglöp
Ýmsa sjúkdóma í taugakerfi má
leiða til óhóflegrar drykkju. Heila-
frumur geta bæði orðið fyrir
skemmdum vegna eituráhrifa alkó-
hóls svo og af vítamínskorti, en þær
þurfa sérstaklega á B-vítamíni aö
halda sér til uppbyggingar og viö-
halds.
Wemickes-sjúkdómur stafar af
alvarlegum skorti á thiamíni eða
B1 vítamíni og einkennist af augn-
vöðvalömun, tvísýni og verulegum
einkennum frá litla heila eins og
jafnvægisleysi og grófum hreyfing-
um. Hægt er að snúa þessari þróun
við með thiamín-gjöf en oft viröast
varanlegar skemmdir hafa orðið
sem koma í veg fyrir fullan bata.
Korsakoff sjúkdómur einkennist
af minnisleysi og lélegri einbeitingu
og er talið að hann stafi líka af víta-
mínskorti. Skammtímaminni slíkra
sjúklinga er lélegt og hæfni þeirra
til aö nema og læra nýja hluti mjög
lítil. Sumir þeirra eru illa áttaðir:
muna löngu liðna atburði en hafa
litla hugmynd um atvik líðandi
stundar. Sjúklingurinn reynir að
Á læknavaktiimi
seipja skýringar eða búa til sögur
inn í minniseyðurnar og geta sam-
ræður oft orðið mjög einkennilegar.
Þegar grunur leikur á að alkóhólisti
hafi einhver þessara einkenna ber
brýna nauðsyn til að gefa thiamin í
stórum skömmtum.
Stundum er talað um alkóhól-glöp.
Slíkur einstaklingur getur verið á
besta aldri en er með einkenni eins
og rugl, minnistruflanir og hrömun
allrar æðri heilastarfsemi sem
minna mjög á alvarlega kölkun eða
elliglöp hjá eldra fólki. Persónuleiki
sjúklings breytist mikið, hann verð-
ur fullur af ótta og ofsóknarhug-
myndum, meyr, grátgjam og jafnvel
ofbeldissinnaður.
Ef alkóhólisti nær því að hætta
drykkjuskap og einkennin em ekki
mikil getur fullur bati náðst en oft
gengur erfiðlega að fá þessa ein-
staklinga til að losa takið á flösk-
unni og ástandið heldur áfram að
versna. Einstakir hlutar heilans
geta orðið fyrir varanlegum
skemmdum eins og litli heflinn sem
leiðir til alvarlegra gangtruflana og
jafnvægisleysis.
Hvað varð um Öm?
Öm var settur á stóra skammta
af vítamínum, söltum og bætiefnum
og virtist jafna sig nokkuð vel. Inn-
an einnar viku gekk Örn eðlilega
og augnvöðvinn hafði endurheimt
sinn forna kraft. Hjúkrunarfólki
leist hann ekki j afn ruglaður og áð-
ur og hann rataði á salemi og í
sjoppuna án teljandi vandræða.
En minnið virtist verulega skert.
Öm mundi afmælisdaga og síma-
númer allra systkina sinna en gat
ekki tilgreint hverjir hefðu verið
forsetar íslands. Honum var fyrir-
munað að nema nýjar upplýsingar.
Læknir nokkur sýndi honum 3 hluti
úr eigu sinni: ódýrt japanskt Rólex-
úr, skítuga greiðu og giftingarhring
frá fyrra hjónabandi og gat hann
ekki munað eftir þeim tveimur mín-
útum síðar. Þetta virtist þó ekki
valda honum neinum áhyggjum.
Þegar Öm var spurður hvort hann
myndi hvað læknirinn héti sagði
hann svo vera: Þú heitir Steingrím-
ur. Við hittumst fyrst í brúarvinnu
á Eskifirði fyrir nokkrum ámm.
Síðan sagði hann langa, tortryggi-
lega sögu um þennan fyrsta fund
sinnvið Steingrím.
Það var greinilegt að Öm hafði
skaðast af innflegum samskiptum
símrni við Bakkus kóng. Hann hefur
htlum framförum tekið þrátt fyrir
mikið vítamínát og dvelst nú á hæli
fyrir drykkjumenn. Einstaka sinn-
um fer Öm í helgarleyfi fullur eftir-
væntingar, með örorkuna sína í
brjóstvasanum og skilar aumnum
aftur til ríkisins í einhverri áfengis-
verslun. Síðan liggur hann afvelta á
Hlemmi um stund í svart-hvítum
heimi og ræðir innvirðulega við
heimamenn um æsku sína í fortíð,
nútiðogframtíð.