Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Qupperneq 9
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992. 9 Rafkaup ÁRMÚLA 24 • S: 68 15 18- Danir halda upp á 25 ára afmæli klámsins: Færri kynferðis- glæpir eftir að klámið var leyft hefet í Jöfri 25 ár eru siðan Danir leyfðu birtingu kláms. Á þeim tima hefur kynferðis- afbrotum fækkað verulega. Afbrotasérfræðingar segja þá þróun vera einstæða í afbrotasögunni. PEUCEOT Peugeot 106 er nýjasta lista- hönnun meistarasmiða Peugeot, sérlega rúmgóður og mjög sparneytinn. Peugeot 106 er snar í snúningum og lipur í borgarumferðinni, kraftmikill og rásfastur úti á vegum. Þetta er bíll sem allir hrífast af þegar þeir reyna hann. Þetta vitum við hjá Jöfri og viljum þess vegna hvetja fólk til að nota tæki- færið og koma í Jöfur í júlí og reynsluaka Peugeot 106. Þeir sem það gera eru sjálfkrafa þátttakendur í skemmtilegu ferðahappdrætti og geta átt von á því að vinna sér inn ferð til Parísar með Flugleiðum. Peugeot 106 kostar aðeins frá 672.500 krónum. JÖFUR Gizur Helgason, DV, Kaupmannahö£n; Nú eru 25 ár síðan Danir leyfðu birtingu kláms, nánar tiltekið 2. júní. Sama dag gengu Danir að kjörborðinu til að greiða atkvæði um aukna þátttöku innan Efna- hagsbandalagsins. Allir aðrir at- burðir hurfu gjörsamlega í skugg- ann og þannig varð það líka með aldarfjórðungs afmæli klámsins í Danmöku. Ekki er svo að skilja að Danir hafi ekki uppbfaö klám fyrir 2. júní 1967 en þann dag varð Danmörk fyrsta land veraldar til að leyfa birtingu kláms í rituöu máli. 1969 máttu Danir svo horfa á klám- myndir svo mikið þá lysti því það ár var afnumin öll rit- og mynd- skoðun á klámi. Allt þetta átti sér auðvitað sína forsögu og miklar og heitar um- ræður um málið höfðu át sér stað í rúman áratug. Þau sem vildu leyfa klámið fullyrtu að kynferðis- glæpum myndi fækka ef fólk fengi fullnægingu í lestri og' skoðun klámrita (þetta hefur reynst rétt). Kynferðisglæpum fækkaði um helming Á árunum 1966 til 1987 fækkaði kynferðisaíbrotum verulega. Af- brotasérfræðingurinn Berl Kubc- hinsky frá Kriminalistisk Institut segir fækkunina vera einstæða í afbrotasögunni. Á fyrstu þremur til fjórum árunum eftir að klámið var gefið fijálst fækkaði kynferöis- glæpum um helming. Áriö 1966 voru framdir 85 kynferðislglæpir á hverja 100.000 íbúa í Danmörku og sú tala hafði haldist stöðug allt frá 1947. Allt í einu lækkaöi talan niður í 40 afbrot á hverja 100.000 íbúa og sá fjöldi hefur haldist síöan, segir Kubclúnsky. „Hér er um að ræða skyndilega og athyglisveröa fækkun. Frá mín- um bæjardyrum séð er þetta ein- göngu rit og myndfrelsinu að þakka,“ segir afbrotasérfræðinur- inn. „Hugsanlegt er þó að frelsið sem varö á kynferðissviðinu á sjö- unda áratugnum hafi haft þaö í för með sér að færri og færri tilkynntu um þá afbrigðilegu tilhneigð sumra manna að sýna sig nakta.“ Ljóti maðurinn með nammipokann Það gleöilegasta við þetta allt saman var þó hin mikla fækkun á grófum kynferöisglæpum gagnvart börnum. Frá árunum 1966 til 1973 varð fækkunin 85 prósent, sem er einstakt. Fyrir 25 árum voru barn- atælendur sífellt á sveimi og allt að því daglegur viðburður. Svo að segja hvern einasta dag urðu börn í Kaupmanna höfn fyrir þessum óhugnanlegu öfuguggum. I dag er „ljóti maðurinn með sælgætispok- ann“ orðinn fáséður. „Hér gætir áhrifa klámsins veru- lega. Flestir barnatælendur höfðu reyndar engan sérstakan áhuga á börnum en þetta var fólk sem átti í erfiðleikum með að komast í eðh- legt kynferðissamband við full- orðna. Nú geta þessir einstaklingar leitaö fróunar í klámblöðum," segir Kubchinsky. Sömu söguna er að segja með gluggagægja. Þeir gufuðu hrein- lega upp við afnám mynd- og rit- skoöunarinnar. í gamla daga voru að meðaltali sendar tvær ákærur inn til lögreglunnar í Kaupmanna- höfn þar sem gluggagægjar voru á ferðinni. En allt í einu varð Dan- mörk að paradís gluggagægjanna. Nú gátu þeir staðið tímunum sam- an án þess að þurfa að óttast lög- regluna og skoðað klámblöð, farið í pornóklúbba, og horft á stúlkur á ströndinni bijóstahaldaralausar. Nauðgað sem fyrr Aðeins á einu sviði virðist kyn- ferðisglæpum ekki hafa fækkað og það eru nauðganir. Þess ber þó að geta að engin aukning hefur heldur orðið á því sviði, eins og andstæð- ingar klámsins höfðu fullyrt. Feröin tilParísará Peugeot 106 NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.