Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Side 12
12
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
Vigdís Másdóttir, Ford-sigurvegarinn 1992:
„Ég hef aldrei komið til Los Ang-
eles þannig að ég hlakka til að
koma þangað. Auðvitað er ég líka
spennt fyrir keppninni," segir Vig-
dis Másdóttir, Ford-sigurvegarinn
í ár, sem á þriðjudag fer til Los
Angeles í Bandaríkjunum og tekur
þátt í keppninni Supermodel of the
World. Þar sem Vigdís er aðeins
íjórtán ára gömul hefur DV boðið
móður hennar, Guðrúnu Einars-
dóttur, að fara með henni til stór-
borgarinnar.
Vigdís segist lítið hafa spáö í
. þessa miklu keppni sem hún verð-
ur þátttakandi í á næstunni. „Það
er best að hugsa sem minnst um
þetta,“ segir hún. Vigdís hefur í
sumar starfað við barnfóstrustörf
en einnig unnið við ræstingar hjá
fyrirtækinu Nesskip.
Tekið verður á móti Vigdísi í Los
Angeles á miðvikudag og hún mun
þar slást í hóp tæplega fjörutíu
stúlkna sem koma víðs vegar að
úr heiminum. Fyrstu dagarnir fara
í myndatökur en færustu ljós-
myndarar munu mynda allar
stúlkur. Dómarar keppninnar
koma til LA þann 12. júlí en keppn-
in sjálf fer fram 16. júlí.
Keppninni
sjónvarpað
Þess ber að geta að Supermodel-
keppninni er sjónvarpað víðs vegar
um Bandalíkin en einnig til Ítalíu
og Frakklands. Vegna þessarar
beinu útsendingar fer allnokkur
tími í æfingar á sviði fyrir framan
sjónvarpsvélar. Allar stúlkumar
þurfa að kunna sitt fag þegar út-
sending hefst.
Áhorfendur verða í salnum en
þeir verða einnig að taka tillit til
þess að um sjónvarpssendingu er
að ræða.
Keppnin Supermodel of the
World var fyrst haldin í Sporting
Club í Monte Carlo í september
1980. Þær stúlkur sem hafa sigrað
í keppninni hafa allar orðið eftir-
sóttar fyrirsætur og þénað milljón-
ir. Sigurvegarinn fær í verðlaun 15
milljóna króna samning við Ford
Models skrifstofuna í New York.
Sú yngsta
áforsíðuVogue
Aldursmörk í keppnina eru 14-
24ra ára. Stúlkumar mega helst
ekki hafa starfaö sem fyrirsætur
áöur. Einu sinni hefur 14 ára stúlka
Vigdís Másdóttir verður
meðal tæplega fjörutiu
stúlkna í næstu viku í
Los Angeles þar sem
keppnin Supermodel of
the World fer fram.
DV-myndir JAK
unnið í keppninni. Það var Monika
Schnarre sem stuttu síðar prýddi
forsíðu heimsblaðsins Vogue og
var jafnframt sú yngsta sem þar
hefur birst.
í fyrra sigraði fimmtán ára stúlka
frá Santiago í Chile, Daniela Bena-
venta. Hún sagðist hafa tekið þátt
í keppninni til að láta draum sinn
um að vera heimsmódel rætast.
Sjálfsagt hefur sá draumur ræst
núna.
Þegar Vigdís var spurð hvað hún
myndi gera ef hún ynni í þessari
keppni yppti hún öxlum og sagðist
þá mundu takast á viö það. „Ég
geri mér engar vonir en ég gæti vel
hugsað mér að flytja til Eileen Ford
og gerast fyrirsæta," segir þessi
unga stúlka sem er tæpir 180 sm á
hæð.
Margir urðu hissa þegar Anne
Corrisson, sem hingað kom frá
Ford Models, valdi svo unga stúlku
til að fara utan. Þá var talsvert
gert grín að valinu opinberlega.
Vigdís segist aðeins hafa haft gam-
an að gríninu og síður en svo tekið
þaö alvarlega. Skólafélagar hennar
samfognuðu henni og hún varð
aldrei fyrir aðkasti af þeirra hálfu.
„Ég ætla bara að standa mig vel
og hafa gaman af ferðalaginu," seg-
ir Vigdís sem á mikla ævintýradaga
framundan.
Búaá
glæsilegu hóteli
Þátttakendur munu búa á einu
glæsilegasta hóteli í Los Angeles.
Þeir munu skoða kvikmyndaver,
ævintýragarð og frægustu tísku-
hús borgarinnar. Væntanlega mun
Vigdís rekast á einhverja fræga
kvikmyndaleikara. Kynnir Su-
permodel-keppninnar undanfarin
ár hefur verið Joe Penney sem ís-
lendingum er að góðu kunnur sem
lögreglumaður í þáttunum Sam-
herjar sem Sjónvarpið sýnir á
fostudagskvöldum. Meðkynnir
hans hefur verið súperfyrirsætan
Rachel Hunter sem nýlega giftist
söngvaranum Rod Stewart og eign-
aðist með honum dóttur.
Þess má að lokum geta að þær
stúlkur sem sigra í keppninni búa
hjá og eru undir verndarvæng Eile-
en Ford. Hún telur að stúlkur þurfi
að mennta sig jafnframt sem þær
sinna fyrirsætustörfum og því
kostar hún nám þeirra í einkaskóla
meðan þær starfa hjá henni.
-ELA