Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
13
Uppgangur hjá Lárunum á Seyðisfirði:
Island stal hjarta mínu
- segir Louise Heite, nýráðinn framkvæmdastjóri fyrirtækisins
„Eg er búin að læra og læra og
fá allar þær viöurkenningar í lífinu
sem ég sækist eftir. Nú er kominn
tími til að skemmta sér og það ætla
ég mér að gera á Seyðisfirði," segir
Louise Heite, bandarísk veflistar-
kona, sem nýtekin er við fram-
kvæmdastjóm hjá Lárunum á
Seyðisfirði.
Lárumar eru verslun, verkstæði
og kafiihús á Seyðisfirði sem komið
var á fót af austfirskum konum
árið 1988 í þeim tilgangi að efla at-
vinnutækifæri þeirra. í verslun-
inni era seldir handunnir munir,
gripir og klæðnaður sem vakið hef-
ur athygh þeirra sem leið hafa átt
um Seyöisfjörð.
Að sögn Þórdísar Bergsdóttur
stjómarformanns hefur rekstur
verslunarinnar gengið vel frá því
hún var stofnuð. Fram til þessa
hefur öll vinna verið í sjálfboða-
vinnu en nú sé svo komið að það
sé fullt starf að sjá um reksturinn.
Louise fluttist hingað til lands
með Katrínu dóttur sinni fyrir
þremur árum. Hún er menntuð
veflistarkona og hefur mikið starf-
að við listgrein sína. Þá rekur hún
umfangsmikla póstverslun í
Bandaríkjunum með uil og ullar-
vörur. íslensku ullina segir hún
bera af og vera mjög eftirsótta í
heimalandi sínu og víðar um heim.
„Eg hef mikinn áhuga á að kom-
ast í samband við sem flest hag-
leiksfólk úti um allt land og fá hjá
því handunnar vörar til endursölu.
Markaðurinn er svo sannarlega
fyrir hendi erlendis. Og við hér hjá
Láranum eram ekki sú tegund
kvenréttindakvenna að við útilok-
um karla. Við geram ekki upp á
milli kynjanna í þessum rekstri
heldur reynum að vinna að jafn-
rétti. Markmiöið er að gefa konum
til sveita kost á að vinna og fram-
leiða og brjóta um leið upp hið hefð-
bundna kvennahlutverk."
Louise segist ennfremur hafa hug
á að koma upp listaverkstæði á
Seyðisfirði þar sem listamenn alls
staöar að geti unnið að sköpun í
fógru umhverfi og vinsamiegu and-
rúmslofti. Sjálf segist hún una hag
sínum vel á Seyðisfirði. Sposk seg-
ist hún jafnvel stunda lítils háttar
landbúnað því nú fáist hún við til-
raunir með baunarækt í sólríkum
firðinum.
„Upphaflega kom ég til íslands til
að kenna. Ég var eiginlega að flýja
hitaim í Baltimore. Hér hefur okk-
ur mæðgunum verið mjög vel tekið
og fólkið er alia vega sérstaklega
alúðlegt og skemmtilegt. Það má
því segja að ísland hafi stohð hjarta
mínu,“ segir Louise Heite.
-kaa
Louise Heite ásamt Þórdisi Bergsdóttur, stjórnarformanni hjá Lárunum
á Seyðisfirði.
Veflistarkonan Louise Heite rekur umfangsmikla póstverslun í Bandaríkjunum, auk þess sem hún er Iram-
kvæmdastjóri hjá Lárunum á Seyðisfirði. Hún segir handunnar vörur eftirsóttar i Bandaríkjunum og vill þvi
komast í kynni við sem flest handverksfólk á landinu. Hún er glöð og ánægð með tilveruna á Seyðisfirði og
sama er að segja um Katrinu dóttur hennar. DV-myndir kaa
Eigum alltsem prýtt getur garðinn
Pelargóníur
á aðeins
240 kr.
Garðrósir
frá kr. 395r-
Tre og
runnar
afsláttur
Einnig gott
verð á ýmsum
pottablómum
Aldrei meira úrval
Plast- og leir-
útiker
Einnig svalaker
vegg- og
hengipottar
GARÐSHORN
við Fossvogskirkjugarð
sími 40500
Opið alla daga
9-22
í NÆSTU VIKU
KOLSTAKKUR
eftir Brian Moore
Kvikmynd gerð eftir bókinni var sýnd
í Regnboganum í vor.
Bókin er jafnvel enn meira spennandi og inniheldur alla þá þætti sem
einkenna spennusögu: átök og afbrot, trúnað og undirferli, ást og af-
brýði, spurningar sem varpað er fram og geta átt ótal svör en verður
ekki svarað fyrr en á síðustu síðum bókarinnar.
Þeir sem unna góðum og spennandi sögum munu ekki leggja þessa bók
frá sér fyrr en fulllesna.
Á næsta sölustað, þriðjudag 7. júlí,
og kostar aðeins kr 790,- /Q | \ yj ftH
- ennþa minna 1 askritt. \71) UJ Át / UU