Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
25
Bergur Hallgrímsson, síldarverkandi á Fáskrúðsfirði:
Hippamir
fúlsuðu við
íslenskri síld
- keyrir vikulega til Reykjavíkur og selur síld í Kolaportinu
„Ég byrjaði í síldinni 1963 og er
ennþá að. Núna eru nánast allir
komnir á hausinn. Annars er nú
viðkvæðið hjá fólki þannig að gangi
einhverjum vel er viðkomandi
sagður þjófur. Gangi honum hins
vegar illa er hann sagður vitlaus.
Það er stutt í öfund og illmælgi
þegar vel gengur og því hef ég ætíð
verið á hausnum. Af tvennu illu
er betra að vera vitlaus en þjófur,"
segir Bergur Hallgrímsson, útgerð-
armaður og fiskverkandi á Fá-
skrúðsflröi.
Bergur hefur reynt ýmislegt fyrir
sér á undaníomum árum við fisk-
verkun og útgerð og man tímana
tvenna í síldinni. Á árum áður var
hann sannkallaður sfldarkóngur
með fleiri tugi manna í vinnu.
Núna liggur nánast öll vinna niðri
í fyrirtækinu hans, Pólarsfld. Áður
gerði hann út þrjá báta en nú er
einungis einn eftir. Þorskkvótinn
er löngu búinn og sfldin ekki í sjón-
máli. Þessa dagana gerir hann á
keilu en það gefur lítið af sér, segir
athafnamaðurinn.
Til að klóra í bakkann keyrir
Bergur um hverja helgi til Reykja-
víkur til að selja niðurlagða síld í
neytendapakkningum í Kolaport-
inu. Viðtökurnar segir hann góðar
og viðskiptin aukast með hverri
vikunni.
„Keyrslan til Reykjavíkur er fyr-
irhafnarinnar virði og það er mikil
upplifun að stunda verslun í port-
inu. Mannlífið er flölskrúðugt og
viðskiptavinirnir margir, jafnt
þingmenn og annað fyrirfólk sem
aðrir. Þeir sem kaupa síldina einu
sinni koma aftur og aftur. Það
markmið okkar að halda uppi at-
vinnu og kynna íslenska, unna sfld
virðist ætla að tákast. Það vdrðist
vera vakning hjá unga fólkinu fyrir
síldinni. Það veit á gott þvd hippa-
kynslóðin fúlsaði vdð henni.“
Sfldin, sem Bergur selur í Kola-
portinu, er öll marineruð en lögð í
mismunandi pækil. Afls em teg-
undirnar flórar. Til að byrja með
seldi Bergur einnig rúgbrauð með
síldinni þannig að fólk kynntist þvd
hvernig best væri að neyta hennar.
Því hefur hann hins vegar hætt
enda vdðtökurnar verið betri en
hann bjóst vdð.
Bergur segir rómantíkina, sem
einkenndi síldarsöltun á árum áð-
ur, nú vera hðna tíð. Verkunin sé
nú orðin að leiðinlegri verksmiðju-
vdnnu. Megniö af þvd sem veiðist
fari beint í gúanó enda htið annað
en smásfld að fá úr sjónum.
„Mér hst ástandið á sfldarstofnin-
um ekki björgulegt. Það hafa átt sér
stað breytingar í sjónum og stóra
síldin hefur dýpkaö sig. Menn
hreiniega gera út á stid tfl bræðslu.
Það má ekki gleymast að sjórinn
verður engin auðhnd þegar búið
er að þurrausa hann. Verði svo
þorskkvótinn skertur enn frekar
hiýtur þetta að enda með ósköpum.
Fiskvdnnsluhús úti um ailt land eru
að tæmast og í kjölfarið fer fólkið.
Þetta er alveg agalegt og ég veit
ekki mitt ijúkandi ráð,“ segir Berg-
ur.
-kaa
Bergur Hallgrímsson man timana tvenna i sildinni. Til að halda uppi
atvinnu á heimaslóðum og kynna höfuðborgarbúum íslenska, unna síld
selur hann marineraða síld i neytendapakkningum um hverja helgi í
Kolaportinu. Bergur er ánægður með viðtökurnar þar og segir vakningu
vera meðal ungs fólks fyrir gómsætinu. DV-mynd GVA
ATVINNUHÚSNÆÐI
Rauðarárstígur (Egils Vilhjálmssonar hús-
inu) - verslunarhúsnæði
Til leigu stórglæsilegt verslunarhúsnæði, 580 mz,
með góðum innkeyrsludyrum baka til og 8 bílastæð-
um. Hentar vel fyrir alls konar verslun, tölvu-, skrif-
stofu- eða veitingastarfsemi. - Langtímaleiga. - Laust
strax.
Upplýsingar í síma 91-42248 frá kl. 19-21 á
kvöldin og síma 17719 frá kl. 10-12 á daginn.
n
ívolí
LYSTIGARÐUR
OPIÐ DAGLEGA
Hveraportið, markaðstorg, opið alla sunnudaga.
Ný og spennandi vélknúin leiktæki.
Tívolíj Hveragerði
Lekur bílskúrsþakið?
Svalirnar? - útveggirnir?
AQUAFIN-2Ker níðsterkt, sveigjanlegt sementsefni, sem (Dolir
að togna og bogna. Þetta er efni sem andar, en er jafnframt
örugg vatnsþétting á steypta fleti. Efninu er kústað á í tveim
umferðum. AQUAFIN-2K var kynnt hérlendis 1991, en það á
margra ára sigurgöngu að baki erlendis.
5 ára ábyrgð.
Framleiðandinn, Schomburg Chemiebaustoffe GmbH, sem er
elsta fyrirtækið í Þýskalandi á sviði bæti- og þéttiefna fyrir
steinsteypu, fullyrðir að AQUAFIN-2K endist langt umfram
venjulega steinsteypu. Og þessu til áréttingar, veitir verksmiðjan
5 ára ábyrgð á efninu.
Fagleg aðstoð vlð ásetningu. Gerum bindandi tilboð.
Oft gagnast AQUAFIN-2K! stað vatnsklæðningar og kostnaður
þá aðeins brot af kostnaði klæðningar.
Auðvelt - ódýrt - öruggt.
Kynningarverð aðeins kr. 990.-/m2, miðað við tvær umterðir.
Bjóðum einnig mjög vandaða vatnsvörn úr asfaltefnum. Enn-
fremur veðrunarvöm á asbestveggi og þök.