Dagblaðið Vísir - DV - 04.07.1992, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 1992.
45
Það er rétt vika frá þvi að Kjara-
dómur kunngerði hvaö helstu emb-
ættismönnum ríkis og kirkju bæri
að hafa í laun. Á þessari einu viku
hafa mörg orð faÚið og ekki hefur
farið á milli mála að mikil reiöi
hefur gripið um sig hjá þeim fjöl-
mörgu sem fengu aðeins 1,7 prósent
kauphækkun en ekki allt að 97 pró-
sent eins og Salome Þorkelsdóttir
fékk en hún hækkaði meira en
nokkur annar.
Ásmundur Stefánsson, forseti
Alþýðusambandsins, er einn þeirra
sem vildu að sett yrðu bráðabirgða-
lög á úrskurð Kjaradóms. í samtali
við DV sagði Ásmundur að hingað
tíl héfði ekki staðið í stjómvöldum
að setja bráöabirgðalög á laun, það
er þeirra sem hefðu lægstu launin.
Ásmundur sagöi að það hefði
reyndar ekki reynst erfitt að setja
bráðabirgðalög á BHMR en svo
væri það ekki hægt þegar helstu
embættismenn ættu í hlut. Það
hefur sem sagt verið krafa Alþýðu-
sambandsins að bráðabirgðalög
yrðu sett til að tryggja að þær
hækkanir, sem Kjaradómur úr-
skurðaði um, kæmu ekki til fram-
kvæmda.
Utifundurinn á Lækjartorgi. Fjölmenni kom saman og það sannar enn frekar að fólk er ekki sátt við að úrskurður Kjaradóms komi til framkvæmda.
DV-mynd BG
Kj aradómur gerði
allt kolvitlaust
Hver er þessi
Kjaradómur?
Það hafa margir spurt sig, hver er
þessi Kjaradómur? Til aö byrja með
skal þess getið að Kjaradómur er
skipaður flmm körlum, þrír eru
valdir af Hæstarétti, einn af félags-
málaráðherra og einn af fjármála-
ráðherra. Hæstaréttarmennirnir
eru Jón Finnsson, sem er formaður
Kjaradóms. Jón er hæstaréttarlög-
maður og hefur starfaö mikið fyrir
Sambandið. Hann var meðal ann-
ars verjandi Erlends Einarssonar,
þáverandi forstjóra Sambandsins,
í kaffibaunamálinu. Hinir hæsta-
réttarfulltrúamir eru Jónas A.
Aðalsteinsson hæstaréttarlögmað-
ur og Ólafur Nilsson endurskoð-
andi. Frá fjármálaráðuneytinu
kemur Brynjólfur Sigurðsson pró-
fessor og fulltrúi félagsmálaráðu-
neytisins er Jón Þorsteinsson lög-
fraeðingur.
Eins og allir vita skilaði Jón sér-
áliti þar sem hann var ósammála
hinum fjórum. Það er að Jón taldi
ekki stætt á að hækka launin svo
mikið, taldi að einn þriðji af hækk-
uninni ætti að duga.
Eitt er nokkuð merkilegt en það
er það að Jón Þorsteinsson, sá sem
vildi ekki svona miklar hækkanir,
er eini dómendanna sem hafði
beinna hagsmuna að gæta en það
er vegna þess að Jón er fyrrverandi
alþingismaður og því hefur ákvörð-
un Kjaradóms áhrif á eftirlaun
Jóns.
Menn fá það
semþeirhafa
„Þetta er staðfesting á þeim laun-
um sem við höfum. Það verður
þess vegna engin breyting hjá
mér.“ Þetta sagði einn þeirra emb-
ættismanna sem fékk talsverða
hækkun. Embættismaðurinn vildi
ekki tala undir nafni, sagðist leiöur
á að launin sín væru svo mikið í
umræðunni. En þetta á víða við.
Það er að Kjaradómur var að færa
laun margra embættismanna að
þeim launum sem þeir hafa, það
er aö fella yfirvinnuna inn í fóstu
launin.
Þetta sættir ekki né kætir aðra
Davíð Oddsson. Hann gaf vonir um
að hækkanirnar kæmu ekki til
framkvæmda en nú hafa launin
hans hækkað um 100 þúsund
krónur.
Salome Þorkelsdóttir. Hún hækk-
aði mest allra, eða um 97 pró-
sent. Þegar DV spurði hana hvort
hún ætlaði að taka við hækkuninni
sagðist hún ekki hafa efni á öðru
og auk þess deildi hún aldrei við
dómarann.
Ásmundur Stefánsson. Hann vildi
bráðabirgðalög. Launin hans eru
meðal þeirra sem Kjaradómur
notaði þegar laun embættismanna
voru ákveðin.
launþega.
Hvaö varðar ráðherrana þá hefur
það verið svo að undirmenn þeirra,
svo sem ráðuneytisstjórar, skrif-
stofustjórar ráðuneytanna og jafn-
vel fleiri, hafa verið á betri launum
en ráðherramir sjálfir þar sem all-
ir aðrir en ráðherramir hafa fengið
yfirvinnuna greidda.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði í
samtali við blaðamann DV að þegar
hann heföi verið fjármálaráðherra
hefði hann aldrei skrifað upp á eða
undir yfirvinnutíma undirmanna
sinna. „Það getur verið rétt hjá
honum,“ sagði Jón Finnsson, for-
maöur Kjaradóms, en bætti við að
ábyrgð Ólafs Ragnars væri eigi að
síður jafnmikil þar sem hann hefði
verið æðsti embættismaður ráðu-
neytisins.
l,8prósenthefðu
gertalltvitlaust
„Ég er þeirrar skoðunar að þó við
hefðum aðeins hækkað launin um
1,8 prósent hefðu viðbrögð orðið
svipuð," sagði Jón Finnsson, for-
maður Kjaradóms. Það er einmitt
þetta sem margir segja. Þar sem
almennir launþegar hefðu ekki
fengið nema 1,7 prósent hækkun
hefði allt umfram það vakið reiði
annarra.
Þetta em náttúrlega bara ágisk-
anir þar sem enginn getur sagt
hver viðbrögðin hefðu oröið hefðu
hækkanimar orðið einhverjar aUt
aðrar en þær uröu. Fjölmenni á
útifundinum, umræðumar í heitu
pottunum, kaffistofunum, sauma-
klúbbunum og bömnum sýna að
Kjaradómur mggaði skútunni.
Ummæli forseta Alþingis, Salome
Þorkelsdóttur, sem hún lét falla í
viðtali við DV fóm sem eldur í sinu
um allt land. Eins og allir muna
sagðist Salome ekki hafa efni á að
þiggja ekki hækkunina og bætti við
aö hún deildi aldrei við dómarann.
Þetta er slys
Davíð Oddsson lét þannig fyrst
eftir aö máliö var kunngert að hann
ætlaöi að koma í veg fyrir að úr-
skurðurinn gengi eftir. Hann sagði
þetta slys og þaðan af verra.
Niðurstaða ríkisstjórnarfundar-
ins á þriðjudag varð því mörgum
vonbrigði, það er að láta hækkan-
imar koma til framkvæmda og sjá
svo til í ágúst hvenær þessu yrði
breytt og þá meö þeirri aðferð að
breyta lögum um Kjaradóm þannig
að honum verði gert skylt að taka
mið af því sem er að gerast á al-
mennum vinnumarkaði. Verði
þannig lög sett verður Kjaradómur
væntanlega að taka málið upp að
nýju og það fer svo eftir úrskurði
dómsins þá hvort þessar hækkanir
verða dregnar til baka eða ekki og
ef Kjaradómur breytir afstöðu
sinni er ekki þar með sagt að allir
þeir embættismenn, sem Kjara-
dómur ákvarðar laun fyrir, fái að-
eins 1,7 prósent.
Með öllu er óljóst hvenær ný nið-
urstaða Kjaradóms liggur fyrir þar
sem Alþingi kemur ekki saman
fyrr en 17. ágúst og það verður
væntanlega fljótlega eftir það sem
frumvarpið um breytingar á Kjara-
dómi verður lagt fyrir þingið. Verði
það samþykkt þar með hraöi á
Kjaradómur eftir að taka málið upp
að nýju. Enginn veit á þessari
stundu hvenær Alþingi afgreiðir
ný lög og enginn veit hvenær
Kjaradómur verður tilbúinn meö
sínar niðurstöður og enginn veit
heldur hver niðurstaða Kjaradóms
verður. -sme
PÍ
Q+
H
Rafkaup
ÁRMÚLA 24 • S: 68 15 18