Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1993, Page 2
2
MÁNUDAGUR1. MARS1993
Fréttir
Héraðsdómur í máli illa læsrar og heymardaufrar konu sem afsalaði sér hluta 1 íbúð:
Yf irlýsing um af sal á
eignarhlut í íbúð ógilt
- eiginmaður taldist hafa notað sér bágindi og fótlun eiginkonunnar
Héraösdómur Reykjavíkur hefur
ógilt yflrlýsingu rúmlega fertugrar
konu sem afsalaöi sér helmingseign-
arhlut í íhúö sem hún og fyrrum eig-
inmaöur hennar áttu saman. Dómur-
inn taldi sannaö að eiginmaöurinn
fyrrverandi hefði notfært sér bágindi
konunnar með því aö hafa fengið
hana til aö skrifa undir yfirlýsinguna
þegar þau bjuggu saman. í henni
fólst að konan afsalaði sér eignarhlut
sínum til sonar þeirra. Fram kom í
málinu að konan er heymardauf og
illa læs og skildi ekki það sem stóð
á afsalsyfirlýsingunni sem hún ritaði
nafn sitt á. Helgi I. Jónsson héraðs-
dómari kvað upp dóminn.
Fólkið gekk í hjónaband í byrjun
árs 1980 og bjó saman næsta áratug.
Saman áttu hjónin að jöfnu þriggja
herbergja íbúð við Lindargötu. í júlí
1990 sótti konan um skilnað. Arið
1989 lá hins vegar fyrir þinglýst yfir-
lýsing konunnar um að hún afsalaði
sér forræði yfir 11 ára syni hennar
og mannsins, svo og afsalsyfirlýsing
um aö helmingseignarhlutur hennar
í íbúðinni skyldi renna til sonarins.
Varð íbúðin þá sameign fóðurins og
sonarins.
í máhnu lá fyrir skýrsla talmeina-
fræðings þar sem fram kom að konan
hefði afar lítinn lestrarskilning og
gæti hún ekki endursagt einfaldan
texta. Þegar konan var beðin að lesa
afrit af framangreindri yfirlýsingu
hefði komið í ljós að hún gat hvorki
lesið né skihð orðin: - yfirlýsing,
undirrituð, eignarhluti, skal nú
renna - og fleiri orð tengd afsahnu.
Áht sérfræðingsins var að konan
hefði ekki haft hugmynd um hvað
hún var að skrifa undir. Einnig kom
fram fyrir dóminum að hún hefði
óvenjulega slæma heymardeyfu.
í kæru, sem konan lagði fram, kom
fram að hún taldi sig hafa verið að
undirrita erfðaskrá fyrir son sinn -
hún hefði skrifað undir fyrir þrá-
beiðni fyrrverandi eiginmanns og
hún hefði einnig veriö hrædd við
hann. Þegar það kom á daginn að
hún hefði afsalað sér eignarhlut sín-
um í íbúðinni hefði þaö komið henni
gjörsamlega í opna skjöldu.
Að mati héraðsdóms var það „alveg
út í hött“ fyrir konuna aö afsala sér
í senn helmingseignarhlut sínum
endurgjaldslaust og engin skiljanleg
rök fyrir því með tihiti til hagsmuna
hennar. M.a að þessu virtu var yfir-
lýsingin ógilt.
Konan krafðist þess upphaflega að
afsal hennar á forsjá sonarins yröi
einnig ógilt en hún féll frá þeirri
kröfu á seinni stigum málsins.
-ÓTT
Mannbjörg þegar þrír jeppar sukku 1 Hvítá í 17 stiga frosti um helgina:
„Við erum að sökkva“
- aöstoöarmaöur stökk í nærfötum í jökulána til að setja taug í jeppa
„Við vorum í fyrsta bíl og staddir
um 20 metra frá árbakkanum á leið-
inni til baka th hinna þegar við
heyrðum í talstöðinni: „Við erum að
sökkva." Síðan kom annað neyðaróp:
„Við erum aö sökkva lika.“ Það var
þriðji bíhinn. Fíórði og síðasti bíllinn
bakkaði þá á fullu th baka. Við sner-
um við og dóluðum til hinna og vor-
um hræddir um þá og vhdum koma
mönnunum út. Þegar við vorum á
leiðinni sukkum við líka við árbakk-
ann. Á eftir fjórða bílnum komu fljót-
lega tveir aðrir jeppar sem óku eftir
hjólforunum á eftir okkur. Þegar
mennimir í fjórða bhnum sáu það
var hlaupiö að þeim th að vara þá
við,“ sagði Þórir Bjamason, einn af
tíu leiðangursmönnum á 4 jeppum
sem komust í hættu á íshagðri Hvítá,
skammt norðan við Hvítárbrú, sunn-
an Hvítárvatns, seint á fóstudags-
kvöldið.
17 stiga frost
og einn sökk í vök
Isinn brotnaði snögglega undan
þremur af jeppunum. Enginn svo
mikið sem blotnaði þegar óhappið
varð en einn úr hópnum sökk niður
í vök á meðan á björgunarstarfi stóð.
Hann varð mjög kaldur en sakaði
ekki. 17 stiga frost var.
Eftir miklar tilfæringar og erfiöi
tókst með góðra manna hjálp að
koma jeppunum á þurrt um helgina.
Þeir em enn uppi á Kjalvegi - ótrú-
lega htið skemmdir en blautir.
Óhappið varð þegar verið var að
leita að Hvítárbrú með GPS-staðsetn-
ingartæki um klukkan ehéfu á fóstu-
dagskvöld. Hópurinn fór eftir vinnu
á fostudag áleiöis að Hveravöhum.
Afklæddist og stökk
inn í ánna
„Við vomm rétt hjá brúnni úti á
Hvítánni. Hjá okkur fyhtist bíllinn
strax af vatni," sagði Þórir. „Ég náöi
reynar að loka glugga og henda tækj-
um og síma út áður en ég fór sjálfur.
Þeir vom í meira bash í þriðja bíln-
um, hann fór á bólakaf en þeir kom-1
ust út um hhöarrúðu. En það var
aldrei nein hætta.
Einn mannanna, sem kom að
hjálpa okkur, fór úr öhu nema nær-
fótunum og stakk sér til sunds th að i
mm
Traktorsgrafa var fengin til þess að ná jeppunum upp auk þess sem öflugur fjallabíll togaði I þá með spili. Einn
jeppinn var dreginn á hvolfi undir fsnum. Bílarnir eru ótrúlega lítið skemmdir. DV-myndir Guðmundur Skúlason
koma spotta í einn jeppann sem sökk
niður á þriggja metra dýpi. Hann
hefur farið niður á tveggja metra
dýpi th að festa taugina í jeppann.
Þetta var rosalegt en við eigum hon-
um mikið að þákka. Við fengum svo
verktaka, bændur og björgunarsveit-
armenn, sem voru skammt frá, th
að hjálpa okkur við að draga bílana
á þurrt. Síöasti bhnum var náð upp
á miðnætti á laugardagskvöld. Menn
úr Biskupstungum tóku taug úr jepp-
anum og settu á sph á jeppa í landi,
brutu rás í ísinn fyrir taugina og
drógu jeppann síðan á hvolfi."
Björgunaraögerðin
mikio sjónarspil
Þórir sagði aðgerðina hafa verið
mikið sjónarsph. Jeppinn var á
hvolfi undir ísnum og þannig var
hann dreginn að landi. Þegar jeppinn
var kominn þangað birtist þessi rúm-
lega þriggja mhljóna króna jeppi nær
óskemmdur.
Þórir segir að tappa þurfi allri ohu
af jeppunum og taka ahar klæðning-
ar úr th að þurrka bílana. Skemmdir
hafa ekki komið fram ennþá. Gert
er ráð fyrir að reynt verði aö koma
bílunum th Reykjavikur á næstu
dögum. Jeppar verða fengnir th aö
draga þá.
Þórir vhdi koma bestu þökkum til
allra þeirra sem stóðu að því að
hjálpa honum og félögum hams um
helgina - sérstaklega þó manninum
sem fór nærri nakinn í ískalda jökul-
ána th að koma spotta í einn jeppann
og mann sem var með honum í för.
Stuttar fréttir
Hlýsjávarfisketdi
Sauðkrækingar ráðgera til-
raunaeldi á hlýsjávarfiskinum
barra. Frumathuganir benda th
aö eldið geti orðiö ábatasamt hér
á landi. RÚV greindi frá þessu.
Viðurkennd skoáun
Skoðunarstöð SH hefur hlotið
viðurkenningu Fiskistofú fyrst
alira slíkra stöðva. Fiskistofú-
stjóri segir í samtali við Morgun-
blaðið aö fleiri stöðvar fái riður-
kenningu á næstunni.
telur óhklegt að tfekin veröi
ákvörðun um að reisa álver hér
á landi á þessu ári. í samtali við
RÚV sagði hann ástæöuna lágt
heimsmarkaðsverö á áh.
Veiöimenn landsins eru
óánaegðir með lagafrumvarp sem
umhverfisráðherra vih fá sam-
þykkt í því eru veiðiréttindi
skert og meðal annars gert ráð
fyrir árlegu veiðheyfisgjaldi. Stöð
tvö skýrði frá þessu í gær.
Stöðugur samdráttur hefur ver-
iö í áfengissölu ÁTVR allt síðastl-
iðið ár. Salan dróst saman um 6,7
prósent á árinu. í janúar síöastl-
iðnum var framhald á þessari
þróun, segir Morgunblaðið.
Samiðfiískainmstíina
Öll aðhdarfélög BHMR höfðu í
gær skrifað undir kjarasamning
við ríkiö sem felur í sér 1,7 pró-
sent hækkun Iauna frá því í vor.
Nýi samningurinn féll síöan úr
ghdi á miðnætti.
Lakkrísát varhugavert
Óhófiegt lakkrísát getur leitt th
hás blóðþrýstings og almennrar
vanlíðanar, segir í frétt RÚV.
Namibísk stjórnvöld hafa farið
þess á leit við Skagstrending og
ráðgjafarfyrirtækið Nýsi að aö-
stoða sig viö að stýra útgeröarfyr-
irtæki sem ráðgert er aö verði
Jeiðandi á því sviði. Sendinefnd
frá Namiblu er væntanleg th
landsins, segir í frétt Morgun-
blaðsins.
-kaa