Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1993, Side 4
4
MÁNUDAGUR1. MARS1993
Fréttir
Ríkissaksóknari ákærir fyrir brot á hegningarlögum og áfengislögum:
Sjö menn ákærðir fyrir
rekstur 2ja spilavíta
hámarksrefsing 1 árs fangelsi ef sakir eru miklar
Héraösdómur Reykjavíkur mun á
föstudag taka fyrir aðra af tveimur
ákærum þar sem aðstandendum
spilavíta eru gefm að sök brot á hegn-
ingarlögum og áfengislögum. Sjö
menn hafa verði ákærðir. Fjórir
stóðu aö rekstri spilavítis að Súðar-
vogi 7 en þrír eru ákærðir fyrir að
hafa rekið fjárhættuspil að Armúla
15. Pétur Guögeirsson héraðsdómari
hefur máhn tvö til meðferðar.
Þeim sem ráku spilavítið í Súðar-
vogi er gefið að sök að hafa frá 15.
júh til 10. október 1992 rekið í félagi
fjárhættuspil - Black Jack eða 21,
rúhettu, póker, casjón og bridge - í
atvinnuskyni og sér tíl ávinnings.
Þeir eru jafhframt ákærðir fyrir „að
hafa veitt þeim sem eftir því leituðu
áfengi gegn gjaldi" í tengslum við
staðinn. I Súðarvogi lagði lögregla
hald á tvö spilaborð, peningakassa,
sphapeninga og rúhettuhjól, 118
flöskur af bjór og 21 flösku af áfengi.
Ríkissaksóknari krefst þess að þessir
munir verði dæmdir til upptöku.
Þremenningunum, sem ráku spila-
vítið að Ármúla 15, er gefið að sök
að hafa frá 18. september tl 10. októb-
er rekið fjárhættuspil, Black Jack
eða 21 og rúllettu, í atvinnuskyni og
sér til ávinnings og veitt áfengi á
staðnum gegn gjaldi. Ákæruvaldið
krefst þess að tvö sérsmíðuð spiia-
borö fyrir Black Jack og rúhettu, um
12 kassar af bjór og 18 flöskur af
áfengi frá spilavítinu í Ármúla verði
dæmt til upptöku.
Sjömenningamir eru ákærðir fyrir
brot á 183. og 184. grein almennra
hegningarlaga. í þeirri fyrmefndu
segir m.a.:
„Sá sem gerir sér fjárhættusph eða
veðmál að atvinnu eða það að koma
öðrum til þátttöku í þeim, skal sæta
sektum, varðhaldi eða fangelsi aUt
að 1 ári, ef miklar sakir em.
Ákveða skal með dómi hvort vinn-
ingi af fjárhættuspili eða veðmáh
skuh skUaö aftur eða hvort hann
skuh gerður upptækur."
184. greinin er á þessa leið:
„Hver sem aflar sér tekna beint eða
óbeint með því að láta fjárhættuspU
eða veðmál fara fram í húsnæði, er
hann hefur umráð yfir, skal sæta
sektum, varðhaldi eða fangelsi aUt
að 1 ári.“
-ÓTT
Garðar Þorsteinsson notaði góða veðrið á laugardag og brá sér á gönguskíði í Heiðmörk. Garðar, sem áður rak
G. Þorsteinsson og Johnson, er orðinn 83 ára gamall. Hann lætur aldurinn þó ekki á sig fá og fer á gönguskfði
hvenær sem veður og snjór leyfa. DV-mynd JAK
Sjónvarpstæki stolið
í sumarbústað í Kjós
Tilkynnt var um þjófnað á sjón-
varpi í sumarbústað í Kjós um helg-
ina. Brotist hafði verið inn í bústað-
inn þegar aö var komið. Ekki lá ná-
kvæmlega ljóst fyrir hvenær farið
haföi verið inn í bústaðinn.
Um helgina var einnig tilkynnt um
a.m.k. tvö innbrot í bíla í Reykjavík.
Útvarpi, geislaspUara og radarvara
var stohð í innbroti í bíl í Seljugerði
en radarvari var tekinn úr bíl sem
stóð við Flugtuminn á Reykjavíkur-
flugvelh.
-ÓTT
HafnarQörður:
Kuldaleg tölvurödd
í símkerf i bæjarins
Símkerfið hjá bæjarskrifstofunum
i Hafnarfiröi hefur verið tölvuvætt
við htla hrifningu bæjarbúa. Erfið-
leikum hefur verið bundið að ná
sambandi við véhna sem tekur á
móti innhringingum og þykir mörg-
um sem rödd hennar sé kuldaleg
þegar það tekst.
Að sögn Guðmundar Áma Stefáns-
sonar bæjarstjóra er véhn einungis,
til prufu. Ekki hafi verið tekin
ákvörðun um hvort nærvem hennar
verði óskað á skrifstofu bæjarins í
framtíðinni. -kaa
Áfengið er hollt
Mikið var gaman að opna Moggann
á föstudaginn. Þar mátti sjá frétt
um það að vísindamenn heföu
komist að þeirri niðurstöðu að
áfengi væri hoUt, einkum vegna
þess að áfengisneysla dregur úr
hættunni á blóðtappa. Áfengis-
drykkja eykur jafhvel lífslíkumar
að mun.
Þetta kom sér vel fyrir Dagfara
sem daginn áður haföi einmitt lent
í oröaskaki við maka sinn í miðjum
timburmönnum. Rétt eins og það
væri skilnaðarsök að detta í það
kvöldið áöur! Menn hafa þurft að
læðast í sjússinn og drekka á laun
tíl að forðast heimihseijur og at-
hugasemdir út af einu htlu fylhríi.
Það er alveg makalaust hvað það
getur farið í taugamar á nákomnu
fólki og öðrum aðstandendum þótt
menn detti í það við og við og finni
pínulítið á sér. SífeUd rekistefna,
sífellt nöldur og svo endurtekin
árás í miðjum timburmönnum dag-
inn eftir. Bestu menn hafa jafnvel
fengið móral að ástæðiUausu og
hætt að drekka að ástæöulausu!
Nú hafa vísindamenn sýnt fram
á akkúrat það sem vínmenn og
drykkjumenn hafa ahtaf haldið
fram. Áfengisneyslan er hoU. Hún
dregur ekki aðeins úr hkunum á
því að menn leggist veUdr fyrir ald-
ur fram, heldur sömiUeiðis að
áfengisdrykkjumaðurinn mim lifa
miklu lengur! Áfengið bætir heUs-
una að mim. Áróðurinn gegn
áfenginu, aUt kjaftæðið um áfengi-
svamir og rughð í stórstúkunni og
bindindisfélögunum er í rauninni
bábUjur einar og stórskaölegt í
læknisfræðUegum skilningi. Með
því að hvetja tíl bindindis eru menn
í sömu andránni að hvetja menn
tíl að stytta ævi sína og bjóða sjúk-
dómum, blóðtöppum og kransæða-
stíflu heim. Það er verið að drepa
fólk sem skipulögðum hætti.
HeUbrigðisyfirvöld ættu að at-
huga þetta mál. Hvers vegna ekki
að hefja herferð fyrir áfengis-
drykkju? Hvers vegna ekki aö örva
áfengisneyslu og bjóða jafnvel upp
á fría drykki með reglubundnum
hætti? Menn hafa verið að velta sér
upp úr kostnaði við heUbrigði-
skerfið og rétt er það að heUbrigöis-
málin eru langstærsti útgjaldahður
hins opinbera. Er ekki fundið ráð
viö þessum kostnaöi með því að
efla áfengisneyslu meðal lands-
manna og draga þannig úr hætt-
unni á því að þeir leggist veikir inn
á spítala? Því meira sem menn
drekka þvi minni veröa veikindin.
Að vísu er tekið fram í þessari
framangreindu frétt að áfengis-
drykkjan verði að vera í hófi. Þess
er skylt aö geta. En hvað er hóf-
legt? Er það ekki hóflegt aö drekka
til að mynda um helgar eða á kvöld-
in? Eöa að menn fái sér sjúss fyrir
hádegi og annan effir hádegi og
stilh þannig drykkju sinni í hóf
fram effir öllum degi? Er það ekki
í takt við þá nýju kenningu að
áfengisdrykkjan sé heilsubætandi?
Og svo er það þetta: annaðhvort
drekka menn eða drekka ekki. Og
ef vísindamenn hafa sannað að vín-
drykkja sé hoU, hver segir þá að
mUdð vin þýði ekki miklu betri
heUsu? Þetta hlýtur aö vera í rétt-
um hlutföhum svo saman fari
magn og gæði. HeUsuhraustur
verður sá maður sem drekkur oft
og mikið og heldur sér emum og
sér fram á langt líf.
Nú þurfa menn ekki lengur að
biðja um leyfi til að fara á fyUirí.
Þeir þurfa ekki einu sinni aö nefna
fyUirí á nafn. Þeir geta sagt með
sanni að þeir séu að fara í læknis-
meðferð eða heUsurækt þegar til
stendur að detta í það. HeUsan
gengur fyrir, segjum við þegar
kerlingamar fara að rífa kjaft út
af óreglu.
„VUtu kannske að ég deyi fyrir
aldur fram og skUji þig eina eftir í
elhnni?"
Máltækið segir að hóflega drukk-
ið vín gleðji mannsins hjarta. Nú
getur hjartað í okkur bæði glaðst
yfir áhrifunum og glaðst yfir heUs-
unni sem vínið hefur í för með sér.
Nú rennur brennivínið beinustu
leið tíl gleðinnar og hreystinnar í
gegnum hjartað, sem þarf á víninu
að halda ef menn vUja halda heUsu.
Framvegis getur maður sagt þeg-
ar,sést tíl ölvaðra manna og drykk-
feíldra: Hann er heUsuhraustur
þessi. Haröur í trimminu.
Það var sannarlega kominn tími
til að hreinsa þann blett af brenni-
víninu að það sé óhoUt. Vísindin
efla aUa dáð og drykkjuna líka.
Dagfari