Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1993, Síða 19
MÁNUDAGUR1. MARS1993
31.
Menning
Sjónvarpið - Camera Obscura:
Ljósmyndari missir minnið
HLAÐBORÐ
í HÁDEGINU
590 kr.
2 GERÐIR AF PIZZUM
0G HRÁSALAT
Sigurbjörn Aðalsteinsson kvik-
myndagerðarmaður hefur nær ein-
göngu mmið við gerð leikinna stutt-
mynda og hefur hann náð lengst okk-
ar kvikmyndagerðarmanna á þeim
vettvangi. Þekktasta kvikmynd hans
og sú besta hingað til, Hundur, hund-
ur (1990), er aðeins fimm mínútna
löng. Hefur hún farið sigurför á stutt-
myndahátíðum. 1991 gerði Sigur-
björn svo Ókunn dufl, tæplega hálf-
tíma kvikmynd sem vakti einnig
verðskuldaða athygh og hefur verið
verðlaunuð erlendis. í þeirri kvik-
mynd lék Þröstur Leó Gunnarsson
annað aðalhlutverkið og hann leikur
einnig aðalhlutverkið í Camera
Obscura, sem er nýjasta mynd Sigur-
bjöms. Hún er gerð á vegum Sjón-
varpsins eftir handriti Sigurbjöms
sem er annað tveggja sem sigraði í
handritasamkeppni sem Sjónvarpið
hélt árið 1991.
Stuttar kvikmyndir, sem gerðar
hafa veriö fyrir Sjónvarp, hafa verið
ákaflega misjafnar að gæðum. í
þessu knappa formi taka kvik-
myndagerðarmenn oft meiri áhættu
en í löngum kvikmyndum, áhættu
sem skilar sér ekki alltaf til áhorf-
andans. Camera Obscura verður að
teljast aðgengileg þrátt fyrir torrætt
efni en um tíma hélt ég að enn einu
sinni ætti að skilja við áhorfandann
þar sem hann situr uppi með að
þurfa að tengja söguna við einhver
yfimáttúruleg öfl. En þrátt fyrir að
endirinn sé veikasti hluti myndar-
innar er hann á skiljanlegum nótum.
Þegar á heildina er litið er Camera
Obscura ekkert stórvirki, til þess er
Sálfræðingurinn Kristín (Hanna María Karlsdóttir) fær Ijósmyndarann Guð-
jón (Þröst Leó Gunnarsson) til meðferðar þegar hann missir minnið.
söguþráðurinn um ljósmyndarann,
sem missir minnið og leitar eftir því
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
í gegnum síðustu filmurnar sem
hann tók, í rýrara lagi en öll tækni-
vinna, kvikmyndataka og leikstjóm
er vel af hendi leyst og leikur allur
til fyrirmyndar. Það reynir mest á
Þröst Leó, sem nær góðum tökum á
ljósmyndaranum, og Guðrúnu Mar-
inósdóttur sem leikur hina dular-
fullu Hildi sem er ekkert dularfuh
þegar upp er staðiö. Guðrún býr yfir
þokka, sem nauðsynlegt er, og því
verður persónan áhugaverð.
CAMERA OBSCURA
Lelkstjórn og handrit: Sigurbjörn Aðal-
steinsson.
Kvikmyndataka: Páll Reynisson.
Klipping Skafti Guömundsson.
Hljóð: Agnar Einarsson.
Tónlist: Eyþór Arnalds.
Aðalhlutverk: Þröstur Leó Gunnarsson.
Guðrún Marinósdóttir, Hanna María
Karlsdóttir og Hjalti Rögnvaldsson.
Hótel Esja
68 08 09
Mjódd
68 22 08
HRAÐNAMSTÆKNI
í TUNGUMÁLANÁMI
Nýjung!!! Kennsla í tælensku
hefst 3. mars
NÁMSKEIÐ í ENSKU - ÞÝSKU - DÖNSKU
- FRÖNSKU - ÍTÖLSKU - SPÆNSKU -
JAPÖNSKU - PORTÚGÖLSKU OG í ÍSLENSKU
FYRIR ÚTLENDINGA ERU AÐ HEFJAST.
SKRÁNING STENDUR YFIR
SÍMI
10004
MALASKOLINN MIMIR
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
...06 ÞÚ SITUR
STOLUJ^B
UNDIR STVRI
Líttu við og sjáðu hvað bíllinn er nettur
en rúmgóður, kraftmikill en sparneytinn.
Tígulegur i útliti en með látlaust yfirbragð,
tæknilega vel útbúinn og á ótrúlega
lágu verðí.
Verð frá
hr. 1.139.000