Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1993, Page 30
42
MÁNUDAGUR1. MARS1993
Fólk í fréttum
Kolbrúnu Björgólfsdóttur leir-
listamanni, Laugamestanga 62,
Reykjavík, voru veitt Menningar-
verölaun DV nú í ár fyrir listhönn-
un.
Starfsferill
Kolbrún fæddist á Stöðvarfiröi
18.3.1952 og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hún stundaði nám viö Al-
þýðuskólann á Eiðum 1967-69, við
Myndlista- og handíðaskólann í
Reykjavík 1969-73, stundaði hstnám
við Skolen for brugskunst í Kaup-
mannahöfn 1973-75 og dvaldi eitt ár
við listnám í Bandaríkjunum sem
styrkþegi Íslensk-ameríska félags-
ins 1984.
Kolbrún stofnaði verkstæði í
Reykjavík 1976 sem hún starfrækti
til 1980. Hún stundaði kennslu við
keramikdeild Myndhsta- og hand-
íðaskólans 1976-80 og var yfirkenn-
ari deildarinnar frá 1978.
Kolbrún fiutti í Búðardal 1980 og
stundaði þar rannsóknir í fjögur ár
á Búðardalsleimum á vegum Dala-
leirs hf. og Iðntæknistofnunar. Hún
stofnsetti vinnuverkstæði og gaherí
í tengslum við það í Reykjavík 1984
sem hún hefur hvort tveggja starf-
ræktsíöan.
Kolbrún hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga á Norðurlöndunum, í
Bretlandi, Póllandi, Tékkóslóvakíu,
Bandaríkjunum og Japan. Þá hefur
hún haldið einkasýningar á Kjar-
valsstööum, þrisvar í Gaherí Lang-
brók, á Sólon íslandus, í Gaherí
Nýhöfn, í Búðardal og í Borgamesi.
Hún gerði skímarfont fyrir kirkj-
una á Stöðvarfirði og á, ásamt
manni sínum, verk í Nóbels aka-
demíunni í Svíþjóð.
Fjölskylda
Maður Kolbrúnar er Magnús
Kjartansson, f. 4.8.1948, myndhstar-
maður. Hann er sonur Kjartans
Guðbrandssonar, nú látinn, flug-
manns í Reykjavík, og Eydísar
Hansdóttur húsmóður.
Böm Kolbrúnar og Magnúsar era
Elsa Björg, f. 21.12.1978, nemi, og
Guðbrandur Magnússon, f. 23.3.
1989.
Systur Kolbrúnar eru Svanhvít, f.
18.3.1946, skrifstofumaður á Stöðv-
arfirði, gift Hávarði Helgasyni stýri-
manni og eiga þau þijú börn; Berg-
lind, f. 8.1.1961, fiskvmnslukona á
Stöðvarfirði og á hún einn son.
Foreldrar Kolbrúnar: Björgólfur
Sveinsson, f. 25.12.1913, d. 1967,
verkstjóri og sveitarstjórnarmaður
á Stöðvarfirði, og Kristín, f. 4.11.
1920, húsmóðir.
Ætt
Björgólfur var bróðir Petru,
steinasafnara á Stöðvarfirði. Björg-
ólfur var sonur Sveins, útvegsb. á
Bæjarstöðum, Björgólfssonar, b. í
Snæhvammi, Stefánssonar, b. þar
Þórðarsonar, b. í Ósi í Breiðdal,
Gíslasonar. Móðir Stefáns var Þóra,
systir Jóns, langafa Sigfúsar Sigfús-
sonar þjóðsagnasafnara og Jóns,
föður Eysteins, fyrrv. ráðherra, og
Jakóbs prests, foður Þórs veöur-
fræðings og Svövu rithöfundar.
Þóra var dóttir Stefáns, b. á Þver-
hamri, bróður Sigríðar, langömmu
Benedikts, afa Þórbergs Þórðarson-
ar. Stefán var sonur Magnúsar,
prests á Hallormsstað, Guðmunds-
sonar, og Kristínar Pálsdóttur, pró-
fasts í Valþjófsdal, Högnasonar.
Móðir Kristínar var Þóra Stefáns-
dóttir, skálds í Vallanesi, Ólafsson-
ar, skálds í Kirkjubæ, Einarssonar,
skálds í Heydölum, Sigurðssonar.
Móðir Sveins var Kristín Jónsdóttir,
b. á Þverhamri, Bjarnasonar, b. þar,
bróðurÞóra.
Móðir Björgólfs var Svanhvít Pét-
ursdóttir, b. í Lindarbrekku, Jóns-
sonar, b. á Hólalandi, Stefánssonar.
Móðir Svanhvítar var Sigrurós Sig-
urðardóttir, hreppstjóra á Skála á
Berufjarðarströnd, Antoníusarson-
ar.
Kristín er dóttir Helga, sjómaims
á Eskifirði, Ólasonar, sjómanns á
Húsavík, Jónatanssonar, bróður
Baldvins skálda. Móðir Kristínar
var Oddný Þóra, systir Kristjáns,
afa Guðmundar Hauks tónhstar-
Kolbrún Björgólfsdóttir.
manns. Oddný var dóttir Magnúsar,
b. á Einarsstöðum í Stöðvarfirði,
Bjamasonar, b. í Flautagerði frá
Hólakoti í Reykjavík, Sigurðssonar.
Móðir Magnúsar var Kristin Hösk-
uldsdóttir, b. á Kirkjubóh í Stöðvar-
firði, Arasonar. Móðir Oddnýjar var
María Jensdóttir, dansks beykis.
Móðir Maríu var María Karóhna
Sigurðardóttir, b. og pósts á Sehátr-
um, en bróðir Maríu var Níels Sig-
urðssonpóstur.
Afmæli
Sigvaldi Halldórsson
Sigvaldi Halldórsson söðlasmið-
ur, Aðalbraut 55, Raufarhöfn, er 85
áraídag.
Stafsferill
Sigvaldi fæddist að Flautafelh í
Þistilflrði en fluttist á fyrsta ári með
foreldrum sínum aö Svalbarðsseli í
sama firði og ólst þar upp.
Sigvaldi stundaði búskap í Sval-
barðsseh á áranum 1936-49 og á
þeim tíma byggði hann upp öll hús
jarðarinnar og stækkaði tún.
Árið 1949 fluttist Sigvaldi með fjöl-
skyldu sinni til Raufarhafnar þar
sem hann stundaði framan af ýmsa
vinnu, en síðar mest fiskvinnu. Árið
1966 var hann við nám í Fiskmats-
skólanum og starfaði síðan sem fisk-
matsmaður th ársins 1975.
Sigvaldi lærði ungur söðlasmíði
hjá Einari Hjartarsyni frá Álandi
og stundaði hana ásamt annarri
vinnu og eingöngu frá árinu 1975.
Hann er nú hættur störfum og dvel-
ur á Sjúkrahúsinu á Húsavík.
Fjölskylda
Sigvaldikvæntist9.6.1939
Guðnýju Soffiu Þorsteinsdóttur, f.
30.4.1921, húsmóðurfráBrekku-
koti. Hún er dóttir Þorsteins Stef-
ánssonar, b. í Brekknakoti í Þistil-
firði, og Jóhönnu Sigfúsdóttur, hús-
móðurþar.
Sigvaldi og Guðný eignuðust fjög-
ur börn. Þau era: Aðalsteinn, f. 1938,
sjómaður á Raufarhöfn, kvæntur
Sigríði Hrólfsdóttur og eignuðust
þau tvo syni; Sigurveig, f. 1942, hús-
móðir og starfsmaður Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, gift Sig-
fúsi Jónassyni og eiga þau þrjá syni;
Jóhann, f. 1946, sjómaður í Grinda-
vík, kvæntur Páhnu Valsdóttur og
eiga þau einn son. Jóhann á enn-
fremur fjóra syni frá fyrra hjóna-
bandi; og Hólmgrímur, f. 1954, út-
gerðarmaður á Þingeyri, kvæntur
Ingibjörgu Gunnlaugsdóttur. Fyrir
átti Hólmgrímur þrjú böm frá fyrra
hjónabandi.
Systkini Sigvalda vora fjögur:
Kristján, smiður á Akureyri, sem
nú er látinn; Þorbjörg, lengi hús-
móðir í Ártúni á Langanesi; Sæ-
mundur, smiður og múrari á Rauf-
arhöfn, sem nú er látinn; og Ingi-
björg, húsmóðir á Þórshöfn.
Foreldrar Sigvalda voru Hahdór
Kristjánsson, f. 19.3.1878, d. 24.12.
1967, b. í Svalbarðsseh og Sigurveig
Sigvaldadóttir, f. 23.6.1874, d. 4.2.
1953, húsmóðir frá Hafrafehstungu
í Öxarfirði.
Ætl
Foreldrar Halldórs voru Kristján,
b. í Kohavík og víðar í Þistilfirði,
Jóhannesson og k.h. Sigríður Jónas-
dóttirhúsmóðir.
Foreldrar Sigurveigar vora Sig-
valdi Eiríksson og Ingibjörg Jóns-
dóttir sem bjuggu ahan sinn búskap
í Hafrafellstungu. Eiríkur var frá
Hafrafehstungu, Sigvaldason, Sig-
Sigvaldi Halldórsson.
valdasonar, b. þar, Eiríkssonar, b. á
Kethsstöðum í Jökulsárhhð og á
Hauksstööum á Jökuldal, Styr-
bjarnarsonar. Kona Eiríks var Her-
borg frá Grímsstöðum á Fjöhum,
Sigurðardóttir, b. þar, Jónssonar.
Menning
Jarrett spilar
Shostakovítsj
Meðal athyghsverðra hljómdiska, sem nú fást í
hljómplötuverslunum, er einn sem hefur að geyma 24
prelúdíur og fúgur op. 87 fyrir píanó eftir Dmitri Shos-
takovítsj. Sá sem leikur á píanóið er Keith Jarrett.
Hann er þekktur djassleikari sem leggur einnig fyrir
sig fagra tónhst og er fróðlegt að heyra hvemig honum
tekst að fást við Shostakovítsj.
Prelúdíur og fúgur Shostakovítsj hafa fyrirmynd í
samnefndum verkum Jóhanns Sebastian Bach.
Prelúdíur og fúgur Bachs era grundvaharverk sem
enginn tónlistarmaður kemst hjá að kynna sér. Þær
gegna lykilhlutverki í menntun og þjálfun hljómborðs-
leikara og ekkert tónskáld getur tekið sig alvarlega
sem ekki hefur farið í gegnum þann skóla sem þessi
verk era. Þau hafa þrátt fyrir hið mikla menntunar-
ghdi ekki siður þýðingu frá fagurfræðhegu sjónarm-
iði. Höfimdur hefur þessara pistla hefur t.d. upptökur
af prelúdíum og fúgum Bachs í bifreið sinni og leikur
reglulega á ferðum sínum th að minna sig á hve hátt
stórmenni tónhstarinnar teygja sig.
Shostakovítsj fær formiö að láni hjá Bach. Verk hans
era einnig byggð á tóntegundum þótt með öðrum
hætti sé en hjá Bach. Meðferð stefja og hendinga hjá
Shostakovítsj á einnig flest skylt við hina fomu hefð.
Þrátt fyrir hið hefðbunda yfirborð era þessi verk með
mjög skýrum höfundareinkennum og mundi stílhnn
auðveldlega þekkjast hvar sem væri. Þetta eru mjög
vel samin verk og ljóst að form og efni leikur í höndum
höfundar. Svo skemmtheg sem þau era áheyrnar geta
þau samt ekki tahst sambærheg að hugmyndaauðgi
Hljómplötur
Finnur Torfi Stefánsson
og fjölbreytni við verk hins mikla Bachs. Enda hefur
slíkur samanburður áreiðanlega ekki verið thgangur
höfundar, heldur hitt að syngja hinni óhlutkenndu hst
lof.
Ekki er unnt að finna mikið að píanóleik Jarretts.
Tækni hans og nákvæmni er mjög góð. Það er athyglis-
vert, þegar bakgrunnur hans í diassi er hafður í huga,
hve vel hann leikur hina hægu og draumkenndu þætti
og hversu vel honum tekst stundum að syngja á píanó-
ið. Upptakan er ágæt. Þó örlar stundum á of núklum
endurhljómi fyrir smekk undirritaös.
Margrét Kr. Meldal,
Skipholti 46, Reykjavík.
80 ára
Sigríður Karlsdóttir,
Hrafnistu við Kleppsvog, Reykja-
Jón Elberg Baldvinsson,
Löngubrekku 43, Kópavogi.
Haukur Qtterstedt,
Grýtubakka22, Reykjavik.
Svanhvit Kjnrtansdóttir,
Lambhaga 20, Seifossi.
Guðný Þórarinsdóttir,
Aðahandi 8, Reykjavík.
75 ára
Vilhjálmur Sigurjónsson,
Vhhjálmur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Sveina Lárusdóttir,
Hraunbæ 103, Reykjavík.
Aðalsteinn Einarsson,
skipstjórí og útgeröarmaður,
Gai’ðstig 3, Hainarfirði.
María Friðriksdóttir,
fflugagötu 36, Veslmannaeyjum.
Jón Ögmundur Þormóðsson,
Laugarásvegi 29, Reykjavík.
40 ára
Jóhanna Júlíusdóttir,
HáalundiS, Akureyri.
Nanna Steindórsdóttir,
Strandhöfn, Vopnafirði.
Ragnar Ragnarsson,
Hlégerði9, Kópavogi.