Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1993, Síða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsíngar - Áskrift - Dreifing: Simi 03 2? 00
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 1. MARS 1993.
Hvolsvöllur:
Fólskuleg
skemmdarverk
Mjjög mikil skemmdarverk voru
‘—línnin á nýrri skurðgröfu, litlum
Toyota-bíl fyrir farþegaflutninga og
Mitsubishi pallbíl á Hvolsvelli seint
á laugardagskvöld eða aðfaranótt
sunnudagsins. Einnig var farið inn í
fjölbýlishús í byggingu og verkfæri
tekin þaðan. Lögreglan á Hvolsvelli
óskar eftir upplýsingum um manna-
ferðir á þessu tímabili vegna málsins.
Bílamir stóðu fyrir utan verktaka-
fyrirtækið Suðurverk. Allar rúður
voru brotnar í bílunum og ljósker og
vinnuljós í Mitsubishi-bílnum. Úr
Toyota-bílnum var stolið VHF-tal-
stöð og slökkvitæki skemmt. í skurð-
gröfunni, sem stóð í hesthúsahverf-
inu, voru rúður brotnar svo og ljós-
kastarar og aðalljós. Lögreglan telur
' fnjög brýnt að fólk, sem getur gefið
einhveijar upplýsingar um málið,
gefisigfram. -ÓTT
Flugleiðir:
Ólga meðal
flugvirkja
Mikil ólga er meðal flugvirkja hjá
Flugleiðum vegna þess hvemig stað-
ið hefur verið að tilflutningi þeirra í
.v-vinnu í nýja flugskýlinu á Keflavík-
urflugvelíi. Samkvæmt heimildum
DV munu þeir efna til andófs í mót-
mælaskyni sem gæti raskað milli-
landaflugi. Guðmundur Pálsson,
framkvæmdasfjóri tæknisviðs, á
ekki von á að aðgerðimar raski flugi
hjá félaginu en vill að öðm leyti ekki
tjásigummálið. -kaa
Heijólfsdeilan:
Fundaðhjáríkis-
sáttasemjaraídag
„Það er búið að boða til fundar hjá
ríkissáttasemjara eftir hádegið í dag
en það er lítið annað um það að
—segja. Menn era hæfllega vongóðir
en annars er bara að bíða og sjá hver
viðbrögðin verða. Ég veit ekki ná-
kvæmlega hvað verður lagt fram en
ég vona að fulltrúar allra stéttarfé-
laganna mæti og að menn ræði sam-
an. Ef það verður er það spor í rétta
átt,“ sagði Grímur Gíslason, formað-
ur stjórnar Herjólfs. -GRS
Vígahnötturálofti
Talið er að dularfullt ljós, sem sást
víða á laugardagskvöld, hafi verið frá
loftsteini eða svokölluðum víga-
hnetti sem kom inn í gufuhvolfið.
Birtan af honum sást víða um land,
meðal annars í Borgarfirði, á Suður-
- -fendi og á Austflörðum og þykir það
benda til að um stóran loftstein hafl
veriðaðræða. -ból
LOKI
Var þetta ekki bannsettur
Rússa-geimspegillinn?
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
sýknað menntamálaráðherra af 18
milljóna króna skaðabótakröfum
Skarphéðins Ólafssonar, fyrrum
skólastjóra Héraðsskólans að
Reykjanesi við Isaijarðardjúp, fyrir
að hafa vikið sér úr starfx á árinu
1990.
Forsendur dómsins vora aöallega
þær að Skarphéðni var boðin ann-
ur sambærileg staða sem hann
gegnir enn. I þessu sambandi
studdist dómur-ixm við 20. grein
stjórnarskrár íslands sem heimilar
forseta íslands að flytja embættis-
menn úr einu embætti í annaö
„missi þeir einskis af ‘ tekjum sín-
um. Helgi I. Jónsson héraðsdómari
kvað upp dóminn.
Málareksturinn var sprottinn af
hörðum deilum Skarphéðins við
skólanefhd Reykjanesskóla og
stóðu þær skólastarflnu mjög fyrír
þrifum.
í mars 1988 sendi skólanefndin
ráðuneytinu bréf með þungum
ásökunum á hendur Skarphéðni.
Borið var á hann stjómleysi í aga-
og kemislumálum, samstarfsörð-
ugleikar við hami og starfsfólk,
óheilindi, athugasemdir gerðar við
bókhald mötuneytis og áfengis-
neyslu Iians.
Ráðuneytið sá ekki ástæðu til að
víkja Skarphéðni úr starfi en hvatti
til úrbóta. Skarphéöinn tilkynnti
ráðuneytinu þá að hann teldi að
skólanefndinni hefði verið sagl upp
störfum. Ráðherra veítti skóla-
stjóranum þá áminningu. Um
haustið 1989 komust Skarphéðinn
og Svavar Gestsson, þáverandi ráö-
herra, að samkomulagi um aö gefa
skólastjóranum kost á árslaunum,
auk 3ja mánaða yfirvinnu og 3ja
mánaða launa eiginkonu fyrir
ræstingar, gegn því að hann segði
stööu sinni lausri frá bnjun skóla-
árs 1990. Að þessu var gengið.
Fram kom í málinu að ráðuneytið
myndi að loknu ársleyfmu aðstoða
stefnanda viðað fáannaðsambæri-
legt starf. Skólaárið 1990, „leyfisár-
iö“, gegndi Skarphéðinn ekki opin-
bera starfi en þegar lxða tók á árið
krafðist hann þess að fá að hefja
störf að nýju við Reykjanesskóla í
byrjun skólaárs 1991. Hann mót-
mælti túlkun ráðuneytisins á sam-
komulaginu. Skarpéðinn var síðan
settur skólastjórí Reykhólaskóla
frá 1. ágúst sama ár. Hann gegnir
stöðunni enn.
í dómi héraðsdóms segir m.a.:
„Að áliti dómsins þykir augljóst
að launakjör þau, sem stefnandi
naut á tímabilinu frá 1. september
1989 til 1. september 1990, voru
mjög óvenjuleg og honum afar hag-
stæð, þar eð ekkert vinnuframlag
eða nám af hans hálfu kom á móti
launagreiðslunum."
Héraðsdómur taldi menn tamála-
ráðherra ekki liafa haft nægilegar
heimildir fyrir því að veita Skarp-
héðni fuilnaðarlausn úr starfi, án
bóta, á grundvelli ávirðinga og van-
hæfni í starfi. En eins og að framan
greinir var menntamálaráðherra
sýknaður af kröfum stefnanda á
þeim forsendum að honum hefði
veriö veitt annað sambærilegt
starf. MáLskostnaður var látinn
niðurfalla.
Landhelgisgæslan flutti söngvarana til Vestmannaeyja og aftur til baka
vegna verkfalls stýrimanna á Herjólfi. Varðskipsmenn fengu björgunarbáta
úr Herjólfi vegna fólksflutninganna. DV-myndir Ómar
Magnús Gunnarsson formaður VSÍ:
Reynum að blása upp nýjan
eld í glæður atvinnulífsins
„Við erum að leita eftir samstöðu
okkar í milli um það hvemig við telj-
um okkur geta komist út úr þessum
vandamálum sem við erum að glíma
við. Það er ekki hægt að segja að við
séum að sameinast um kröfur heldur
erum við að sameinast um leiðir þar
sem við vonumst til að geta fengið
aðila vinnumarkaðarins og ríkis-
valdið til að vinna með okkur að
framgangi þessara mála. Menn eru
fyrst og fremst að leita leiða til að
stöðva þetta hrun sem við sjáum fyr-
ir framan okkur og snúa þessari þró-
un viö. Þannig að við getum blásið
upp nýjan eld í glæðumar hjá at-
vinnulífinu en þetta er náttúrlega
ofarlega á lista hjá verkalýðshreyf-
ingunni," sagði Magnús Gunnars-
son, formaður VSÍ.
„Við erum að skoða það um hvaða
þætti við náum saman. Það er verið
aö ræða þessa atvinnumálaþætti og
niðurstaða úr því kemur ekki fyrr
en á miðvikudag. Við erum ekki
komin á þann punkt að hægt sé að
segja að við ætlum að gera þetta eöa
hitt,“ sagöi Hervar Gunnarsson, ann-
ar varaforseti ASÍ.
-GRS
Þrettán kórar sungu í Eyjum
Órnar Garðarsson, DV, Vestmaxvnaeyjuin:
Kóramót kirkjukóra Kjalarnes-
prófastsdæmis var haldið í Vest-
mannaeyjum um helgina. Þrettán
kórar tóku þátt í mótinu en söngvar-
ar vora um 200. Æfingar fyrir mótið
hafa staðið í allan vetur en það var
ekki fyrr en á laugardag að allir kór-
amir gátu æft saman. Vestmannaey-
ingar fengu að kynnast árangrinum
samdægurs á sameiginlegum tón-
leikum og söng þá stærsti kór sem
hefur komið til Eyja, skipaður um
tvö hundrað manns.
Um tíma leit út yfir að fresta yrði
mótinu vegna verkfalls stýrimanna
á Herjólfi en Landhelgisgæslan hljóp
undir bagga og flutti söngvarana til
Eyja og heim aftur.
Veðriðámorgun:
Kólnandi
veður
Á morgun verður suðvestlæg
átt, víða talsvert hvöss, einkum
um norðvestanvert landið. Élja-
gangur um landið vestanvert en
bjart veður að mestu austan-
lands. Kólnandi veður.
Veðrið í dag er á bls. 44
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
VautsewB
SuAuriandsbraut 10. S. 686499.