Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR13. MARS1993
Svipmyndin
Af hverjum er
svipmyndin?
Sá sem svipmyndin er af lá á
banabeðinum. Hann varð að gera
erfðaskrá.
Fógeti var kvaddur til. Sá sem
hér er lýst var efnaður þótt kon-
ungurinn hefði haft af honum mik-
ið fé. Megnið af eigunum skyldi
ganga til elsta sonarins. En sett var
mikilvægt skilyrði.
Sonurinn yrði að sjá um að Be-
atrice Enriquez gæti lifað góðu og
áhyggjulausu lífi þar sem hún
„hvíldi þungt á samvisku hans“.
Beatrice var konan sem hann
hafði lagt svo mikla ást á að hann
hafði aldrei getað gleymt henni. En
sú ástarsaga varð ekki löng. Nú,
þegar hann lá fyrir dauðanum,
voru um tveir áratugir frá því að
hún var á enda.
Þau kynntust þegar hann var
þijátíu og fimm ára. Hann var þá
ekkjumaður en kona hans hafði
látist eftir stutta sambúð. Beatrice
var þá aðeins tvítug.
Lítið sem ekkert er vitaö um
hvemig sá sem svipmyndin er af
leit út. Engar myndir, sem áreiðan-
legar þykja, eru til af honum,
hvorki teikningar né málverk.
Á sýningu, sem haldin var til
minningar um hann í Chicago,
voru þó engu að síður hafðar
frammi sjötíu og ein mynd. Engin
var annarri lík.
Með því að rýna í bréf og dagbæk-
ur hafa sérfræðingar þó þóst geta
gert sér hugmynd um útlit hans en
tekið er fram að hún sé næsta óljós.
Hárið var ljósrautt en snemma
varð hann gráhærður af áhyggjum.
Húðin var ljós en dálítið freknótt.
Hann var meðalhár og augun grá
og fjörleg, megi leggja trúnað á
óljósar upplýsingar sern taldar eru
komnar frá Islandi, en þangað telja
sumir að hann hafi komið.
Augnaráðið var hvasst og endur-
speglaði mikinn viljastyrk. Hann
var hlédrægur og hljóðlátur og því
þótti mörgum hann dularfullur.
Var næstum orðinn
fómardýr sjóræningja
En sá sem svipmyndin er af bjó
líka yfir töfrum sem hann beitti
þegar honum þótti það eiga við. Þá
átti hann auðvelt með að koma fyr-
ir sig orði.
Þaö var því ekki skrítið þótt Be-
atrice yrði hrifin af þessum dular-
fulla ókunna manni. Hann hreifst
svo aftur af fegurð hennar og ung-
dómi.
Samband þeirra stóð í nokkur ár.
Hún fæddi honum soninn Fem-
ando sem skrifaði síðar ævisögu
fóður síns. Á þessum árum var
framtíð þess sem hér er lýst mjög
óviss. Hann var aðeins einn af
mörgum sem freistaði gæfunnar
við hiröina. Þykir líklegt að Be-
atrice hafi lagt honum til hluta af
sparifé sínu sem var þó ekki mikið.
Þau bjuggu saman. Þau elskuö-
ust. En þau gengu aldrei í hjóna-
band. Og það eru fleiri atriði í lífi
þess sem svipmyndin er af sem
aldrei hefur tekist að upplýsa.
Á unglingsárunum hafði hann
reynt að gerast kaupmaður. Hann
náöi ekki miklum árangri á því
sviði.
Hann bjó eitt ár í Grikklandi, fór
til Mið-Afríku og sumir segja hann
hafa komið til íslands.
Eitt sinn týndi hann nær lífinu í
árás sjóræningja. Þá varði hann sig
með grískum eldi (logandi olíu).
Hafið varð sem logandi víti. Næst-
um alhr, sem voru á farkostinum,
týndu lífinu. Sjálfmn tókst honum
að synda tíu kílómetra leið til
strandar og notaði hann þá ár til
að halda sér uppi.
Sá sem hér er lýst dreymdi um
að ná langt. En það var fyrst þegar
hann var orðinn fjörutíu og eins
árs gamall að sá draumur fór aö
rætast.
Dó gleymdur en nú er
nafn hans heimsþekkt
Það sem sá sem svipmyndin er
af ætlaði sér að gera færði honum
lífeyri til æviloka tækist honum
það. Sá sem krafðist hins vegar
launanna var Rodrigo de Triana.
Hann kvaðst hafa orðið fyrri til.
Atburðurinn vakti sterkar tilfinn-
ingar. Fólk söng, bað og grét af
gleði.
Það var bara sá sem svipmyndin
er af sem fagnaði ekki. Hann hélt
því fram að það hefði verið hann
sem til launanna hefði unnið
nokkrum klukkustundum á undan
Rodrigo.
Rodrigo varð af laununum. Hann
gerði sér ljóst að hann myndi ekki
geta deilt við þann sem svipmyndin
er af því hann væri í náðinni hjá
konungi og drottningu.
Ekki er með fullu vitað hvað varð
um vesalings Rodrigo. Ein sagan
er sú að hann hafi hengt sig í
skipsmastri. Önnur segir aö hann
hafi gengið af kristinni trú og geng-
ist undir islamskan sið en hafi síð-
an barist meö Márum.
Sá sem hér er lýst hafði sérstaka
ástæðu til að krefjast launanna
umfram það aö hafa oröið fyrstur
til að gera þaö sem launa skyldi
fyrir. Hann saknaði Beatrice sinn-
ar og tókst að koma málum þannig
fyrir að hún fengi lífeyrinn sinn.
Þegar sá sem hér er lýst lést, þann
20. maí 1506, var hann næstum
gleymdur. Hann hafði orðið ósáttur
við konung sem gerði allt sem hann
gat til að hann gleymdist.
Ekki er með vissu vitaö hvar
hann hvílir.
Hver var hann?
Svar á bls. 56
Matgæðingur vikunnar
Skötuselurí
hnetuj ógúrtsósu
Inga Hafliða Guðjónssyni mat-
reiðslunema þykir mest gaman að
elda fisk. „Þegar ég fer út að borða
fæ ég mér líka alltaf fisk. Hann er
hráefni sem við íslendingar getum
verið stoltir af. Fiskur er úrvals-
matur, hvort sem það er soðin ýsa
eða eitthvað fint og flott.“
Ingi kveðst hafa fengið áhuga á
matreiðslu þegar hann fór að búa
fyrir um áratug. „Þá kunni ég ekki
annað en að sjóða kartöflur og svo
lesa.“ Áhuginn varð hins vegar svo
mikill að hann ákvað að fara í
matreiðslunám sem hann býst við
að ljúka eftir tæp tvö ár.
Það er pönnusteiktur skötuselur,
eða ýsa eftir efnum og ástæðum, í
hnetujógúrtsósu sem Ingi býður
lesendum DV upp á. Uppskriftin
er fyrir fjóra.
Uppskriftin
800 g skötuselur
salt og pipar eftir smekk
hveiti
olía til steikingar
Sósan
2 dl ijómi
2 msk. sérrí
1 dós hnetujógúrt
'A msk. estragon
Aðferðin
Fiskurinn er bryfjaður. Salti og
pipar blandað í hveitið og fiskinum
velt upp úr. Fiskurinn er síðan
steiktur í olíu þar til hann er gull-
Ingi Hafliði Guðjónsson.
brúnn. Þá er hann færður upp úr.
Sérrí og ijóma er hellt á pönnuna
og látið sjóða hægt niður. Jógúrt-
inni er bætt út í og sósan svo krydd-
uð með estragoni.
Fiskurinn er látinn krauma í sós-
unni í 5 til 7 mínútur.
Með þessu ber Ingi fram soðnar
kartöflur og tómatsalat. í salatið
notar hann 4 til 5 tómata, 'A gúrku,
/i dl af ólífuolíu, Zi msk. dfil og 'A
til 1 msk. kryddedik. Látið standa
í 20 mínútur til hálftíma í kæli áður
en það er borið fram.
Ingi skorar á Guðmund Ragnars-
son, matreiðslunema á veitinga-
staðnum Laugaási, að vera mat-
gæðingur næstu viku.
-IBS
Hinhliðin
Jón Axel Ólafsson dagskrárstjóri:
Vinnan og veiði
aðaláhugamálin
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Jack Nicholson.
Uppáhaldsleikari: Jack Nicholson.
Uppáhaldsleikkona: Goldie Hawn.
Uppáhaldssöngvari: Það eru til svo
margir góðir söngvarar að ég get
ekki gert upp á milli þeirra.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón
Baldvin Hannibalsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Tommi og Jenni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir.
Uppáhaldsmatsölustaður: Argent-
ína.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Bylgjan.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Ég get
ekki gert upp á milli þeirra.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Ég horfi eingöngu á
Stöð 2.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Ég get
ekla gert upp á milli sjónvarps-
manna frekar en útvarpsmanna.
Uppáhaldsskemmtistaður: Enginn
sérstakur.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: KR Og
Víkingur.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að hafa það gott.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Ég tek ekkert sumarfrí því ég
verð að vinna.
„Það er ekki hægt annað en að
vera ánægöur með árangurinn,"
segir Jón Axel Ólafsson, markaðs-
ráðgjafi og dagskrárstjóri Bylgj-
unnar, sem ásamt starfsfélögum
sínum á Bylgjunni og Stöð 2 stóð
að söfnun fyrir krabbameinsveik
böm. Undirbúningur aö söfnun-
inni hófst síðastliðið haust en loka-
hnykkurinn var nú á dögimum.
Samtals söfiiuðust um 60 milljónir,
þar af 54 milljónir á Bylgjunni og
Stöð 2.
Jón Axel á tíu ára útvarpsafmæli
á þessu ári. Þegar hann kom til
starfa á Bylgjunni var hann ráðinn
á markaðssvið og tók að sér endur-
skipulagningu á útvarpsstöðinni.
Fullt nafn: Jón Axel Ólafsson.
Fæðingardagur og ár: 27. septemb-
er 1963.
Maki: Gróa Ásgeirsdóttir.
Börn: Kristín Rut, 7 ára.
Bifreið: Mitsubishi, árgerð ’91.
Starf: Dagskrárstjóri Bylgjunnar.
Laun: Ágæt.
Áhugamál: Fjölmiðlun og mark-
aðsmál og svo laxveiðar.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu: Fjórar.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vinna og veiða.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Liggja í leti og gera skatt-
skýrslu.
Jón Axel Olafsson.
Uppáhaldsmatur: Grillað lamba-
fiUét með bökuðum kartöflum og
góðu rauðvíni.
Uppáhaldsdrykkur: Þeir eru svo
margir.
Hvaða iþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Sigrún Huld
Hrafnsdóttir.
Uppáhaldstímarit: Vikan og Samú-
el.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Dóttir
mín.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Hlynntur.