Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Blaðsíða 30
42
LAUGARDAGUR13. MARS1993
Bók Lesley Player um ástarmál sín, Söru Ferguson og föður hennar komin út:
Þessi saga er búin
að kosta mig allt
- segir höfundurinn um einar umtöluðustu uppljóstranir um bresku konungsfjölskylduna
„Ég skrifaöi þessa bók svo ekkert
færi milli mála hvað hefði gerst í
milii mín og Söru Ferguson. Bókin
getur líka hjálpaö fólki til aö skilja
vandamál þessa fólks og hvað heim-
urinn er harður við það,“ sagði Les-
ley Player, ein nánasta vinkona Söru
Ferguson, þegar bók hennar Saga
min: Hertogaynjan af Jórvík, faðir
hennar og ég, kom út á dögunum.
Aðrir telja þó að ekki búi svo fróm-
ur vilji að baki þess að Player gerðist
rithöfundur. Hún er á barmi gjald-
þrots og verður að gera allt til að
bjarga fyrirtækjum sínum.
Player hefur reynt fyrir sér á ýms-
um sviðum og hvergi tekist vel upp
nema helst að komast í kynni við fina
fólkið í Lundúnum og þó sérstaklega
konungsflölskylduna bresku.
Nú segir hún að bókin hafl kostað
sig allt. Sara Ferguson, eða Fergie,
tah ekki lengur við sig og búið sé að
varpa sér á dyr hvarvetna hjá því
fólki sem hún umgekkst áður. Ber-
söglin reynist þvi tvíeggjað sverð.
Bókin selst en mannorðið fór með
henni.
Pólóið upphaf alls
Player komst í kynni við konungs-
fjölskylduna þegar hún tók að sér að
skipuleggj'a mót í póló, uppáhalds-
íþrótt Karl prins og fleiri ættmenna
hans. Tilgangurinn var að afla fjár
til góðgerðarstarfsemi.
Player komst þó ekki klakklaust
frá þessu verki því hún var sökuð
um að stinga í eigin vasa hluta af
söfnunarfénu. Þar með lauk afskipt-
um hennar af pólóinu.
En hún kynntist þama hðsstjóra
og þjálfara pólóhðs Karl prins. Það
var sjálfur Ronald Ferguson major,
Lesley Player segist ekkert illt hafa meint með þvi að segja söguna af ástarmálum Fergie, föður hennar og sjálfr-
ar sin. Bókin er komin út og Fergie búin að varpa fyrrum vinkonu sinni á dyr. Hún getur nú aðeins gert sér vonir um
að bókin skiii góðum hagnaði.
faðir Fergie. Ronald gamia hefur nú
verið vikið úr stöðu sinni.
Player var gift kona og var að reyna
að koma undir sig fótunum með
rekstri á ráðningaþjónustu og barna-
fataverslun. Verslunina missti hún
síðar. Eiginmaðurinn er líka farinn
og vinirnir flestir.
Player dregur ekkert undan í bók-
inni. Hún þykir jafnframt trúverðug
því frásögn hennar kemur heim og
saman við það sem áður var vitað
um fjörugt ástarlíf aðalpersónanna -
Ronalds, Fergie, Texasbúanna Steve
Wyatt og Johnny Bryan að
ógleymdri Player sjálfri.
Andrés utangátta
Hún segir að Ronald gamli hafi lát-
ið sér í léttu rúmi liggja þótt upp
kæmist um samband þeirra. Hann
skhdi bh sinn oft eftir fyrir utan
húsið hennar. Það er vínrauður
BMW sem allir með áhuga á kon-
ungsfjölskyldunni eiga að þekkja.
Kynnin af Ronald leiddu til kynna
við dóttur hans, hertogaynjuna, og
síðar vini hennar frá Texas.
Þetta fólk lifði og lék sér saman og
á endanum voru ástarmálin komin í
hnút. Fergie hélt við tvo og Player
við tvo og Steve Wyatt við þær báð-
ar. Uppskeran var sú helst að hjóna-
band hertogahjónanna fór út um
þúfur. Eini maðurinn sem var utan
gátta var sjálfur hertoginn.
Sögur fóru að heyrast um lifnaöinn
en Player segir að Fergie hafi haldiö
ró sinni allt th þess að hún frétti að
myndir af henni og Steve væru týnd-
ar. Og Fergie fólnaði þegar boð komu
frá Buckhinghamhöll þess efnis að
drottning vildi tala við hana. Þá vissi
húnaðgamaniðvarúti. -GK
Player segir að Díana og Fergie
hafi ákveðið sameiginlega að
skilja við menn sina.
Samtök Díönu
og Fergie um
skilnað
„Við sátum saman að snæðingi
og Ronald sagði við mig: „Veistu
hvað Fergie sagði við mig í gær-
kvöldi? Hún og Díana hafa gert
með sér nokkurs konar sáttmála
í hj ónabandsmálunum.
Þær elska ekki eiginmenn sína
og ætla að yfirgefa þá og standa
saman í skilnuðunum. Ég bað
hana að vera ekki með þetta rugl
en hver veit hveiju þessi kona
tekur upp á.
Dóttir mín segir mér frá öhu
sem gerist í Höllinni. Hún er mjög
sterk og Andrés er háður henni.
Hann er mjög hræddur um að
missa hana.““ (Úr bók Players)
Með hálf-
systkini Fergie
undirbelti
Hér segir frá því þegar Player
kemst að þvi að hún er ólétt eftir
Ronald major:
„Við fórum í rúmiö og grétum
saman - en af ólíku ástæðum. Sex
vikum seinna komst ég þaö því
að ég var ólétt.
Fyrst komst aöeins ein hugsun
að; ég ætla að eiga barnið. En ég
hugsaöi mig tvisvar um; ég gekk
með hálfsystkini Fergie undir
belti!
Ég grét á hvetjum degi. Ég vhdi
ekki aö bamið ælist upp án þess
að þeklqa fóður sinn en ég gat
ímyndað mér hvernig fyiirsagnir
blaðanna yröu: „Lausaleikskrógi
Fergusons fæddur!“
Ég hugsaði með sjálfri mér
hvort þetta barn gæti nokkum
tíma fyrirgefið mér að ala þaö í
heiminn viö þessar aöstæöur.
Ronald sagðist vhja að ég ætti
barnið en óg vissi að það var
vegna þess að hann vhdi ná tök-
um á mér. Hann fengi líka afsök-
un tiJ að yfirgefa konu sína. Ég
ákvað því á endanum að fara í
fóstureyðingu en sagði honum
ekki frá því.
Ronald þagði langa stund efir
aö ég bar honum fiðindin. Þá
sagöi hann: „Þetta heföi gerbreytt
lífi minu. Ég hefði farlð frá konu
og bömum. Já, það var rétt hjá
þér að láta míg ekki vita hvað þú
ætlaðiraðgera." (úrbókPiayers)
Fergie óttaðist mjög að Andrés
kæmist að því að hún hefði verið
með Steve.
Þessar
myndirverða
að fínnast
„Það var eins og Fergie þekkti
mig ekki. Hún var mjög æst. Það
fyrsta sem mér datt í hug var að
hún hefði komist að sambandi
okkar Steves.
Ronald var þama líka og hann
sagði mér að taka þetta ekki
nærri mér. „Það hurfu nokkrar
myndir úr íbúðinni hjá Steve,“
sagöi hann. „Myndimar vora
teknar af þeim í fríi; hann heldur
utan um hana og Beatrice Utla
er að striplast híá. Andrés verður
öragglega bijálaður.“
Morguninn eftir heyrði ég Fergie
öskra í símann: „Myndimar verða
aðfinnast!" (ÚrbókPlayers)
Fergie
hringdi á
hverju kvöldi
Player á í ástarsambandi við
Steve Wayatt og veit ekki að hann
heldur viö Fergie líka:
„Steven fylgdi mér upp i íbúðina,
glæsilega með rauðum teppum á
gólfum. Víð töluðum saman,
drukkum vfnviðkertaljós og þeg-
ar klukkan var að veröa ellefu
sagði ég:
„Ég verð aö fara að koma mér
heim!“
Hann glotti litillega, hellti
meira rauðvíni í glasiö og kyssti
mig mjúklega. Næst þegar ég
víssi af mér var aö hann var aö
bera mig inn í svefnherbergið.
Tónar Vivaldis fýlitu húsiö og
hann lagði mig raj úklega á rúmið.
Sem elskhugi er Steve algerlega
villtur.
Ég gleymdi öUu samviskubiti
vegna þess aö fara í rúmið með
manni strax í fyrsta skipti sem
við hittumst og slappaði algerlega
af undir stjórn þessa meístara
ástarlífsins.
Eitt þótti mér undarlegt og þaö
gerðist alitaf þegar við vorum
saman. Skömmu eftir raiðnætti
fór hann úr rúminu og sagði af-
sakandi:
„Vertu bara rólog, ég á von á
símtali. Stundum stóð þetta sím-
tal í hálftíma. Síðar korast ég aö
því að þaö var Fergie sem var að
hringja. Þau notuðu líka þetta
samarúm." (ÚrbókPlayere)
Andrés prins fól andlitið í hönd-
um sér þegar hann sá Fergie
dansa við Bryan.
Andrés fól
andlitið í
höndum sér
„Fergie kom inn, dillaði lend-
unum og sýndist ekkert þurfa aö
fela. Andrés stundi og lækkaði
tónlistina. Hún hækkaði strax
aftur.
Johnny Bryan kom til hennar
og án þess að segja orð tók hann
utan rnn hana og þau dönsuðu
saman um herbergið.
Hreyfingamar voru mjög
þokkafullar og dætumar tvær
fóra líka út á gólfið og dönsuðu
með móður sinni.
Andrés starði á þau með kulda-
legum svip. Þegar ég leit á hann
næst hafði hann falið andlitið í
höndumsér." (ÚrbókPlayers)