Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Síða 31
LAUGARDAGUR 13. MARS 1993
43
„Þeir sem hefja ástarsamband við aðra manneskju með hugmyndafræði dægurlagatexta sér aö leiðarljósi
verða fljótlega fyrir miklum vonbrigðum. Fullkomið hjónaband er sýnd veiði en ekki gefin.“
Spáðí
speglasal
„Mér finnst eins og ég hafi keypt
köttinn í sekknum," sagöi hann
mæðulega. „Hjónabandið er á eng-
an hátt eins og ég vildi. Kynlífið er
út í hött, önnur samskipti mótast
af kulda og trekk.“ Eftir dapurlega
þögn og stunu, ættaða frá hjarta-
rótum, hélthann áfram og sagði frá
brostnum vonum. Læknirinn hans
hlustaði af athygh. Hann fann fyrir
örvæntingu þessa manns og
óánægju með lífið og sjálfan sig.
Dagarnir voru í engu samræmi viö
draumana. Veruleikinn rímaði
ekki við væntingamar. Guð hefði
svikið hann um lífið sem honum
bar aö eignast. Læknirinn rifjaði
upp í huganum speglasaUnn í Tí-
volíinu í Vatnsmýrinni endur fyrir
löngu. Sem ungur drengur hafði
hann leitað í þennan sal og staðið
langdvölum fyrir framan speglana
og virt fyrir sér afskræmdar mynd-
ir af eigin líkama. Einn spegillinn
gerði hann háan og mjóan, annar
feitan og stuttan, í þeim þriðja var
hann bæði stór og sver. „Hver af
þessum spegilmyndum er ég sjálf-
ur?“ hugsaði hann stundum með
sér. „Er þessi maður ég, eða er ég
orðinn að honum?“
Speglasalur
væntinganna
Læknirinn skráði síðar í dagbók
sína: „Draumaheimurogvænting-
ar margra til lífsins eru eins og
speglasalurinn forðum. í spegU
væntinganna skrumskæUst heim-
urinn og verður langur og mjór eða
stuttur og sver. Sumir trúa á þessa
spegilmynd og fyUast gremju og
reiði þegar raunheimurinn líkist
henni ekki á neinn hátt. Þeir fyU-
ast vonleysi og þeim finnst eins og
loforð hafi veriö svikin og samning-
ar brotnir. Goðsögnin um fullkom-
iö hjónaband er einn speglanna í
speglasal væntinganna. Margir
halda að sér muni takast að finna
maka sem standist aUar kröfur.
Þeir lifa á draumaheimi ástarsagn-
anna. Strákur og stelpa hittast og
verða ástfangin, hvort sem þau
heita NjáU og Bergþóra eða Ric-
hard Gere og JúUa Roberts. TU-
hugalífið er menúett eða hipp-hopp
í höU hamingjunnar. Þau giftast
með glæsibrag og Ufa í velsæld og
alsnægtum tíl ævUoka. Ótal dæg-
urlagatextar fjaUa um þessa sönnu
Á laáknavaktiimi
ást, þúsundir kvikmynda og mörg
tonn af misgóðum bókum. Þeir sem
hefja ástarsamband við aðra mann-
eskju með hugmyndafræði dægur-
lagatexta sér að leiðarljósi verða
fljótlega fyrir miklum vonbrigðum.
FuUkomið hjónaband er sýnd veiði
en ekki gefin. Mörg hj ón eiga ham-
ingjusamar stundir saman ein-
hvem tíma en á öðrum tímum
mótast tílveran af erfiðleikum,
áhyggjum, ósætti, veikindum og
vonbrigöum. Um þessar skugga-
hUðar hjónalifsins er þó sjaldnast
sungið í dægurlögum.
Ósáttir sjóarar
Sjósóknarar skiija að á íslands-
miðum er aUra veðra von. Stund-
um skín sól í heiði og báturinn
mokfiskar en oft er haugasjór og
UtUl afli. Þá stoðar Utt að horfa
ásakandi tíl himins og telja sig hafa
í höndunum eilífðarsamning um
meðbyr og gott gengi. Hjónabandið
er eins og sjóferð þar sem skiptast
á skin og skúrir, meðbyr og ágjöf,
mokveiði og ekkert fiskirí. Sjómað-
urinn getur þó kennt höfuðskepn-
unum um hrakninga sína en á út-
hafi hjónabandanna eru fýla, duttl-
ungar, þvermóðska og ósáttfýsi
þær skepnur sem ýfa upp sjóina.
Hyaðumkynlífið?
í samböndum þar sem ást, um-
hyggja og gagnkvæmur skUningur
ráða ríkjum er kynlífið yfirleitt
ágætt. ÖU vandamál daglegs lifs
endurspeglast í kynlífinu og móta
það. Þess vegna verður að leysa
máUn og komast að einhveiju sam-
komulagi áður en flautaö er tíl
ástaleikja. Heitar samfarir leysa
ekki djúpan ágreining um fjármál
heimilisins eða upþeldi bamanna.
Ónærgætin orð, sem sögð eru i
fljótfæmi, verður að fyrirgefa áður
en hægt er að njótast í einlægni.
Þeir sem leita að kynferðislegri
fulikomnun ættaðri úr speglasal
væntinganna verða fljótlega fyrir
vonbrigðum. Þaö eykur á vandann
að speglasalir væntinganna em
tveir en ekki einn. Annar aðilinn
hefur þá hugmynd að hamingju-
samt kynlíf feUst í nærgætni og
bUðu og löngum forleikjum. Hinn
telur að lykilUnn að góðu kynlífi
sé tryllingur, æsingrn- og ofsi. Bæði
gera þau ákveðnar kröfur til kyn-
lífsins sem rekkjunauturinn á erf-
itt með að standa undir. Draumur
og veruleiki rekast hvor á annars
hom. Bæði veröa óhamingjusöm
og kvarta undan svikinni vöm. Það
er erfitt að lifa Ufinu með annan
fótinn í speglasal eigin væntinga.
Lífiö mótast af endurteknum
árekstrum. Betra er að bijótast út
úr speglasalnum og fara að lifa líf-
inu frá einum degi til annars og
pjóta stundarinnar en hætta að Ufa
ídraumaheimi.
Ökuskóli
Sigurðar Gíslasonar sf.
Aukin ökuréttindi (meirapróf). Næsta námskeið verð-
ur haldið í Reykjavík dagana 23. mars - 27. apríl ef
næg þátttaka fæst. Innritun fer fram næstu daga hjá
Viðskiptamiðlun h/f, Tryggvagötu 16, 3. h. S.
629510 - 679094 og 985-24124. Fyrirhugað er að
halda námskeið í „ferða- og farþegafræði" í byrjun
maí ef næg þátttaka fæst.
---------------------------------\
Útboð
Landgræðsla
á Vestfjörðum 1993
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í land-
græðslu á Vestfjörðum árið 1993.
Heistu magntölur: Nýsáning 107 hektarar og
áburðardreifing 15 hektarar.
Verki skal lokið 15. júlí 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
á ísafirði og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald-
kera), frá og með 15. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 29. mars 1993.
Vegamálastjóri
V________________________________________________/
Kirkjugarðsstígur,
Garðastræti, Túngata
og Suðurgata
Tillaga að deiliskipulagi á staðgr.r. 1.161.1 og 2, sem
markast af Kirkjugarðsstíg, Garðastræti, Túngötu og
Suðurgötu, er auglýst samkvæmt 17. og 18. grein
skipulagslaga nr. 19/1964.
Uppdráttur með greinargerð verður til sýnis hjá Borg-
arskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 3. hæð, kl.
9.00-13.00, alla virka daga frá 15. mars til 26. apríl
1993.
Athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega
á sama stað eigi síðar en 10. maí 1993. Þeir sem
eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests teljast
samþykkir tillögunni.
Borgarskipulag Reykjavíkur
Borgartúnl 3, 105 Reykjavík
Til leigu
í hjarta
borgarinnar
Til leigu u.þ.b. 700 fm
óinnréttað húsnæði ná-
lægt Hlemmtorgi. Hús-
næðið getur hentað vel
fyrir ýmsan léttan iðnað,
líkamsræktarstöð o.m.fl.
Nánari upplýsingar
Helgi Jóhannesson hdl.
Lágmúla 7, sími 812622