Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Blaðsíða 46
58
LAUGARDAGUR 13. MARS 1993
Afmæli
Áskell Sigurjónsson
Áskell Siguijónsson, Laugafelli í
Reykjadal í S-Þingeyjarsýslu, er
níutíu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Áskell fæddist á Sandi og ólst þar
upp og á Einarsstöðum í Reykjadal
og á Litlu-Laugum. Hann varð bú-
fræðingur frá Hvanneyri 1919, vann
á búi foreldra sinna til 1929 og tók
samvinnuskólapróf 1930.
Áskell var ráðsmr.ður, bryti og
kennari við Laugaskóla 1930-32,
bóndi að Litlu-Laugum í Reykjadal
1932-43, reisti nýbýlið Laugafell í
landi Litlu-Lauga 1943-44 og var
bóndi þar frá 1944 og þar til sonur
hanstókviðbúinu.
Áskell var bóksali í umboði Bók-
salafélags íslands 1932-55, var gjald-
keri fyrir Húsmæöraskólann að
Laugum um árabil frá 1946, bóka-
vörður við Bókasafn Reykdæla-
hrepps 1966-80, sat í stjórn Búnaðar-
félags Reykdæla og formaður þess
um skeið, sat í stjórn Ræktunarsam-
bandsins Smára frá stofnun 1948 um
árabil, í hreppsnefnd Reykdæla-
hrepps frá 1942 og oddviti 1946-1964.
Áskell hefur alla tíð varið tals-
verðum tíma til skrifta og á í fórum
sínum mikið safn handrita um ætt-
fræði og sögulegt efni.
Fjölskylda
Áskell kvæntist 22.8.1931 Dag-
björtu Gísladóttur, f. 18.4.1903,
kennara og húsfreyju. Foreldrar
hennar voru Gísli Jónsson, b. á
Hofi í Svarfaðardal, og kona hans,
Ingibjörg Þórðardóttir húsfreyja.
Böm Áskels og Dagbjartar eru:
Eyvindur, f. 22.7.1932, b. á Lauga-
felh; Halldóra, f. 2.12.1933, starfs-
mannastjóri Búnaðarbankans,
ekkja eftir Bjarna Jensson flug-
mann; Ingibjörg, f. 2.6.1933, deildar-
stjóri í Búnaðarbankanum, gift
Kára Arnórssyni skólastjóra; Þor-
steinn, f. 18.4.1937, smiður á Ákur-
eyri, kvæntur Bimu Jónsdóttur
starfsstúlku; Kristín, f. 30.8.1939, d.
1978, húsmóðir á Egilsstöðum, var
gift Sigurði Magnússyni vélvirkja
sem einnig er látinn; Ingunn, f. 7.7.
1944, húsfreýja í Selási í Reykjadal,
gift Jóni Sigurjónssyni múrara-
meistara.
Systkini Áskels eru, Amór, f. 1.5.
1893, skólastjóri á Laugum, nú lát-
inn, kvæntur Helgu Kristjánsdótt-
ur; Unnur, f. 13.7.1896, húsfreyjaá
Laugabóli, giftTryggva Sigtryggs-
syni, b. þar; Dagur, f. 22.4.1900,
skólastjóri á Litlu-Laugum, nú lát-
inn; Fríður, f. 13.1.1902, ljósmóðir í
Reykjavík; Sigurbjörg, f. 19.2.1904,
bústýra á Litlu-Laugum; Halldóra,
f. 26.6.1905, fyrrv. skólastjóri Hús-
mæðraskólans á Laugum; Ásrún, f.
16.7.1908, hjúkrunarkona í Reykja-
vík, nú látin; Bragi, f. 9.11.1910,
fyrrv. alþingismaður og rithöfundur
á Akureyri, kvæntur Helgu Jóns-
dóttur. Fóstbróðir Áskels var Gísli
T. Guðmundsson, póstmaður í
Reykjavík, nú látinn, var kvæntur
Kristínu Björnsdóttur kennara.
Foreldrar Áskels voru, Siguijón
Friöjónsson, f. skáld og b. á Litlu-
Laugum, og kona hans, Kristín
Jónsdóttir.
Ætt
Föðurbróðir Áskels var Guð-
mundur skáld á Sandi, faðir Bjart-
mars alþingismanns. Sigurjón var
sonur Friðjóns, b. á Sílalæk, Jóns-
sonar, b. á Hafralæk, Jónssonar, b.
á Hólmavaði, Magnússonar, b. á
Hólmavaði, Jónssonar, ættföður
Hólmavaðsættarinnar. Móðir Sig-
Askell Sigurjónsson.
urjóns var Sigurbjörg Guðmunds-
dóttir, b. á Sílalæk, Stefánssonar,
b. á Sílalæk, Indriðasonar, b. á Síla-
læk, Ámasonar, ættföður Sílalækj-
arættarinnar. Kristín var dóttir
Jóns, b. á Rifkelsstöðum í Eyjafirði,
Ólafssonar og konu hans, Halldóru
Ásmundsdóttur, b. á Þverá í Dals-
mynni, Gíslasonar, systur Einars,
b. og alþingismanns í Nesi. Móðir
Halldóru var Guðrún Bjömsdóttir,
b. á Lundi, Jónsonar, bróður Krist-
jáns á Illugastöðum, foður Sigurðar
á Hálsi, langafa Bjama Benedikts-
sonar forsætisráðherra.
Bolli Bollason Thoroddsen
Bolh Bollason Thoroddsen hag-
ræðingarráðunautur, Sæbraut 6,
Seltjamarnesi, er sextugur í dag.
Starfsferill
Bolh fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp en dvaldi um tíma í Vík í
Mýrdal hjá fóðursystur sinni, Maríu
Skúladóttur, og eiginmanni hennar,
Haraldi Jónssyni héraðslækni.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1954 og sat að því loknu um tíma í
læknadeildHI.
Bolli starfaði sem landmælingar-
maður hjá Raforkumálaskrifstof-
unni og síðar hjá Rafmagnsveitum
ríkisins til ársins 1964.
Hann stundaöi nám í vinnuhag-
ræðingu á Norðurlöndunum og í
Bretlandi og starfaði sem hagræð-
ingarráðunautur Verkamannasam-
bands íslands frá 1964-71.
Frá árinu 1972 hefur Bolh gegnt
stöðu hagræðingarráðunauts Al-
þýðusambands Islands og sinnir þar
fræðslu- og upplýsingastörfum sem
varða réttindi og skyldur verka-
fólks.
Fjölskylda
Bolli kvæntist 27.3.1960 Ragnhhdi
Helgadóttur, f. 11.12.1937, æfinga-
kennara við Æfingaskóla KHÍ. Kjör-
foreldrar hennar eru Helgi Kon-
ráðsson prófastur og Jóhanna Þor-
steinsdóttir húsmóðir. Þau bjuggu
lengst af á Sauðárkróki en era nú
bæðilátin.
Sonur Boha og Oddrúnar Sigurð-
ardóttur, f. 3.1.1928, húsmóður, er
Emil, f. 26.12.1956, þjóðfélagsfræð-
ingur, í sambúð með Kötlu Gunn-
arsdóttur tækniteiknara og eiga þau
Gunnar Atla.
Sonur Boha og Ragnhhdar er
Helgi Konráð, f. 10.2M961, arkitekt,
í sambúð með Sigrúnu Bergmunds-
dóttur sjúkraþjálfara.
Alsystkini Bolla era: Gríma, f. 9.7.
1930, húsmóðir, búsett í Keflavík;
ogÞorvaldur, f. 29.8.1937, tækni-
fræðingur, búsettur 1 Reykjavík.
Hálfbróðir Bolla, samfeðra, er
Skúh, f. 6.8.1949, lögfræðingur, bú-
settur í Svíþjóð.
Foreldrar Boha vora Bohi Thor-
oddsen, f. 26.4.1901, d. 31.5.1974,
borgarverkfræöingur, og Ingibjörg
Tómasdóttir, f. 31.10.1905, d. 20.6.
1962, húsmóðir. Þau skhdu.
Ætt
Foreldrar Boha voru Skúh, rit-
stjóri og alþingismaður, Jónsson,
sýslum. og skálds, Thoroddsen og
Theodóra Guðmundsdóttir, prófasts
og alþingism. frá Kvennabrekku í
Dölum.
Faðir Ingibjargar var Tómas, tré-
smiður í Reykjavík, Tómasson, b. í
Svaðbæli undir Eyjaljöhum, Tóm-
assonar og k.h., Ingibjargar Einars-
dóttur, b. í Svaðbæh, Bjamasonar.
Móðir Ingibjargar var Sigurlaug
Grímsdóttir, b. Hólmi í Mosfellsbæ,
Ólafssonar. Móðir Sigurlaugar,
Bolli Bollason Thoroddsen.
kona Gríms, var Ragnhhdur Sigurð-
ardóttir, Einarssonar, stúdents,
Högnasonar. Kona Einars stúdents
var Ragnhhdur, dóttir Sigurðar og
Sigríðar Jónsdóttur, eldklerks,
Steingrímssonar.
Helgi Máni Sigurðsson
Helgi Máni Sigurðsson safnvörður,
Fagrahjalla 4, Kópavogi, er fertugur
ídag.
Starfsferill
Helgi fæddist á Akureyri og ólst
þar upp. Hann bjó þar th ársins 1969
er hann fluttist th Reykjavíkur.
Helgi var AFS-skiptinemi 1970-71,
lauk stúdentsprófi frá MR1974,
BA-prófi í sagnfræði og íslensku frá
HÍ1978 og Cand. mag. prófi í íslensk-
um bókmenntum frá HÍ1984.
Helgi var kennari á áranum
1977-87 en hefur verið safnvörður í
Árbæjarsafni frá árinu 1989. Þar sér
hann um munasöfnun, útgáfu og
minjastaði.
Helgi ritstýrði útgáfu á áður óbirt-
um æskuverkum Þórbergs Þórðar-
sonar á árunum 1986-87. Prófritgerð
hans fjallaði um Þórberg Þórðarson
og var gefin út endurbætt árið 1992
undir nafninu Frumleg heinskilni.
Sama ár ritstýrði hann afmælisriti
Árbæjarsafns, „Söguspegh“.
Helgi samdi einnig, ásamt Þór
Loftssyni, bókina Öskjuhlíð, nátt-
úra og saga, sem nú er í prent-
vinnslu. Hann samdi 1993 handrit
og hafði umsjón með sjónvarpsþætt-
inum Sértu hpur, læs og skrifandi
fyrirRÚV.
Fjölskylda
Helgi kvæntist 5.8.1977 Kristínu
Soffiu Baldursdóttur, f. 9.8.1955,
hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir
Baldurs Jónssonar rafvélavirkja og
Þórunnar Theodórsdóttur bóka-
varðar. Þau búa í Kópavogi.
Synir Helga og Kristínar eru:
Baldur, f. 10.1.1976, nemi í FB; Teit-
ur, f. 14.10.1982, nemi í Hjallaskóla;
og Sigurður Sindri, f. 1.5.1987.
Systkini Helga eru: Guðný, f. 1941,
bókasafnsfræðingur og kennari, gift
Héðni Jónssyni kennara og eiga þau
tvö börn; Guörún, f. 1943, d. 1983,
kennari og leirhstarmaður, var gift
Þorsteini Geirssyni ráðuneytis-
stjóra og eignuðust þau þrjú böm;
og Gísh H., f. 1949, svæfingalæknir
í Sviss, áður í Kúveit og Svíþjóð,
kvæntur Birnu Hjaltadóttur skrif-
stofumanni og eiga þau þrjú böm.
Foreldrar Helga era Sigurður M.
Helgason, f. 22.5.1910, fyrrv. borgar-
fógeti, og Þorbjörg Gísladóttir, f.
16.8.1917, húsmóðir. Þau búa í
Helgi Máni Sigurðsson.
Reykjavík.
Helgi tekur á móti gestum í Dhl-
onshúsi í Árbæjarsafni á mhh kl.
16 og 19 á afmæhsdaginn.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvolsvelli,
fimmtudaginn 18. mars 1993 kl. 15.00 á eftirtalinni eign.
Jörðin Svinhagi, Rangárvallahreppi, þinglýst eign Ríkissjóðs Islands. Ábú-
andi Rúnar Gunnarsson. Gerðarbeiðandi er Stofnlánadeild landbúnaðarins.
, Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu
Hjartanlega þakka ég öllum þeim sem heimsóttu mig á 80
ára afmælinu 6. mars á Hótel Sögu. Það var ógleymanleg
stund.
Það komu kvennakór, blandaður kór og karlakór úr Dala-
sýslunni sem sungu og svo var tvísöngur og síðan mörg fal-
leg orð töluð til mín.
Ég þakka mikið vel fyrir þetta allt og svo fyrir allar gjaftr,
skeyti og símtöl.
Ég bið guð að blessa ykkur öll
Sigurður Ólafsson
frá KjarlaksvöUum
60 ára
Bj arney Helgadóttir,
Ásgarðsv egi 3, Húsavík.
Tómas ÓiafsBon,
Holtagötu 11, Akureyri.
TryggviJónason,
Einbúa, Bárödælahreppi.
Jóhann Sigurbergsson,
Háaleitísbrautll5, Reykjavík.
80 ára
Móbergi, Engihhðarhreppi.
Runólfur Jónsson,
70 ára
Erlendur Magnússon,
Miklubraut 62, Reykjavík.
Jón H. Baldvinsson,
Hvassaleiti 56, Reykjavík.
Ragnheiður Hulda Karlsdóttir,
Þykkvabæ 4, Reykjavík.
Steindór Sigurðsson,
Grænási 3a, Njarðvík.
AriTeitsson,
Hrísum, Reykdælahreppi.
Kjartan Guðilnnsson,
Heiöarholti lfa, Keflavík.
Anna Gréta Baldursdóttir,
Langholti 17, Akureyri.
Guðmundur Þorsteinsson,
Finnbogastöðum, Áraeshreppi.
Bogi Brynjar Jónsson,
9, Reykjavík.
Ragnhildur Gísladóttir,
Lækjarbakka 2, Vík í Mýrdal,
40ára
Hallur Steinar Jónsson,
Birtingakvísl 13, Reykjavík.
Jukka Tapio Huttunen,
Hólmgaröi 8, Reykjavík.
Daniel Magnússon,
Akbraut, Holtahreppi.
HaUdóra Birna Eggertsdóttir,
Rut Andersen,
Heiðargerði 63, Reykjavík.
Andrea Steinarsdóttir,
Spóahólum 8, Reykjavík.
Sigurður J. Hahdórsson,
Austurgötu 10, Keflavík.
Gréta R. Snæfells,
Akurgeröi l, Akranesi.
Guðrún Helga Hauksdóttir,
Vaharbarði 6, Hafnaríirði.