Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Page 49
LAUGARDAGUR 13. MARS 1993
61
Dauðinn og stúlkan.
Dauðinn og
stúlkan
Borgarleikhúsið frumsýndi á
fimmtudaginn leikritið Dauðann
og stúlkuna eftir Chilebúann Ari-
el Dorfman. Verkið hefur hlotið
mikla athygh og fjölda viður-
kenninga. Leikarar eru Guðrún
Gísladóttir, Valdimar Örn Flyg-
enring og Þorsteinn Gunnarsson
en leikstjóri er Páll Baldvin Bald-
vinsson.
Leikritið íjallar um viðbrögð
konu sem hefur fimmtán árum
áður mátt sæta pyntingum í
Leikhús
gagnbyltingu hægrisinna og
hvemig hún nær á sitt vald
manni sem hún telur vera kval-
ara sinn. Atvikiö gerist sama
kvöld og eiginmaður hennar hef-
ur tekið sæti í stjórnskipaðri
nefnd sem fahö er að rannsaka
meinta ofbeldisglæpi fyrri stjóm-
valda. Verkið fjallar því ekki að-
eins um hlutverk böðuls, dómara
og fórnalambs, sekt og sýknu,
heldur ekki síður þá atburði er
fymtir glæpir eru dregnir fram í
dagsljósið og kenndir borgurum
sem almenningur telur flekk-
lausa.
Sýningar í kvöld
Hafið. Þjóðleikhúsið.
Stræti. Þjóðleikhúsið.
Dýrin í Hálsaskógi. Þjóðleikhús-
iö.
Ronja ræningjadóttir. Borgar-
leikhúsið.
Blóðbræður. Borgarleikhúsiö.
Dauðinn og stúUcan. Borgarleik-
húsið. , •
Sardasfurstynjan. Islenska óp-
eran.
Nero.
Asnalegt
hreinlæti
Nero, keisari Rómaveldis, átti
eiginkonu og sú kona hafði 500
asna í sinni þjónustu til þess að
• baðkar hennar gæti stöðugt verið
fuUt af nýrri mjólk!
Blessuð veröldin
Eyrnahlífar á konur
Sumir siðferðispostular á mið-
öldum kröíðust þess aö konur
hyldu eym sín þar sem María
‘ hafði orðið þunguð í gegnum eyr-
un!
Úranus
ReUdstjanan Úranus hefur að-
eins verið þekkt í tvær aldir eða
nákvæmlega 212 ár. Sir WiUiam
Herschel uppgötvaði hana 13.
mars 1781.
OO
Helgarveðrið
Á höfuðborgarsvæðinu verður suð-
vestlæg átt, gola eða kaldi og skúrir
eða slydduél á morgun. Veður fer
Veðrið í dag
kólnandi og hiti verður 2-4 stig.
Suðvestantil verður vestlæg átt,
gola eða kaldi með slydduéljum.
Norðvestanlands verður aUhvöss eða
hvöss norðaustanátt meö snjókomu
á Vestfjörðum sem breiðist austur
yfir landið í dag. Austanlands fer að
rigna upp úr hádegi og suðaustan-
lands snýst í vestankalda með
slydduéljum.
Á sunnudag verður líklega norð-
austanátt og snjókoma út af Vest-
fjörðum.en suðaustanátt annars
staðar. Vætusamt verður sunnan- og
vestanlands en úrkomulítið norð-
austanlands. Hiti verður 1-4 stig.
Veðrið kl. 12 á hádegi í gær:
Akureyri alskýjað 8
Egilsstaðir skýjað 8
Galtarviti alskýjað 6
Hjarðames , súld 7
Keflavíkurflugvönur rigning 7
Kirkjubæjarklaustur rigning 6
Raufarhöfn skýjað 6
Reykjavík rign/súld 7
Vestmarmaeyjar rigning 6
Bergen þokumóða 4
Helsinki alskýjaö -7
Kaupmannahöfn þokumóða 5
Ósló léttskýjað 2
Stokkhólmur skýjað 3
Þórshöfh rigning 8
Amsterdam mistur 15
Barcelona mistur 13
Berlín mistur 7
Chicago léttskýjað -11
Feneyjar þokumóða 9
Frankfurt heiðskírt 12
Glasgow mistur 11
Hamborg mistur 8
London léttskýjað 15
Lúxemborg heiðskírt 11
Madrid skýjað 11
Malaga skýjað 15
MaUorca skýjað 16
Montreal heiðskirt -21
Nuuk léttskýjað -13
Orlando hálfskýjað 16
París heiðskírt 14
Róm þokumóða 13
Valencia rykmistur 14
Vín þoka 1
Winnipeg heiðskírt -21
Blúsbarinn í kvöld:
Hljómsveitin Kandís munikvöld
skemmta í kvöld á Blúsbarnum við
Laugaveg.
Hljómsveitin var stofnuö í sept-
emlier á síðasta ári og hefur víða
komið við frá þeim tíma og átti tvö
lög á Lagasafni 2 sem kom út fyrir
jólin. George Grosman er laga- og
textahöfundur s veitarinnar en hún
reynir að spila sem mest af frum-
sömdu efni. Erfitt er að skilgreina
tónlist hennar en hún er einhvers
konar blanda af soul, rokki raeggí
ogpoppi!
Meðlimir lújómsveitarinnar eru
George Grosman, sem syngur og
leikur á gitar, Pétur Kolbeinsson,
sem leikur á bassa, Karl Öm Karls-
son trommuleikari, Dan Cassidy
fiðluleikari og Anna Karen Krist-
insdóttir og Ásdis Guðmundsdóttir
þepja raddböndin.
Kandís.
Gary Oldman sem Drakúla.
Drakúla
Myndin Drakúla í leikstjóm
Francis Ford Coppola hefur vakið
gífurlega athygh og aðsókn. Hún
er gerð eftir hinm frægu sögu
Brams Stokes en Coppola þykir
Bíóíkvöld
hafa lagt megináherslu á ofsa-
fengið og afbrigðilegt ástahf
vampírunnar.
Það er breski leikarinn Gary
Oldman sem leikur Drakúla en
hina endurholdguðu ástkonu
hans leikur Winona Ryder. Stór-
leikarinn Anthony Hopkins leik-
ur blóðsugubanann.
Coppola hefur þótt æði mistæk-
ur en þekktastur verður hann
væntanlega fyrir Godfather-
myndirnar og Apocalypse Now.
Síðustu árin hefur hann gert
fiölda mynda sem fæstar hafa tal-
ist til stórvirkja og ekki skilað
miklum hagnaði. í Drakúla sýnir
hann hvers hann er megnugur,
faglega og fiárhagslega, því
myndin þykir með því besta sem
hann hefur gert og rakar auk
þess inn peningum.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Á bannsvæði
Laugarásbíó: Svala veröld
Sfiörnubíó: Drakúla
Regnboginn: Chaplin
Bíóborgin: Konuilmur
Bíóhölhn: Ljótur leikur
Saga-bíó: Oha Lorenzos
Gengið
Gengisskráning nr. 49. - 12. mars 1993 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 65,590 65,730 65,300
Pund 93,682 93,882 / 93,826
Kan. dollar 52,799 52,912 / 52,022
Dönsk kr. 10.2605 10,2820 10,3098
Norsk kr. 9,2563 9,2760 9,2874
Sænskkr. 8,4779 8,4960 8,3701
Fi. mark 10,8056 10,8287 10,9066
Fra. franki 11,5923 11,6177 11,6529
Belg. franki 1,9142 1,9183 1,9214
Sviss. franki 43,0155 43,1073 42,7608
Holl. gyllini 35,0571 35,1319 35,1803
Þýskt mark 39,3969 39.4810 39,5458
It. líra 0,04078 0,04086 0,04129
Aust. sch. 5,5990 5,6110 5,6218
Port. escudo 0,4228 0,4237 0,4317
Spá. peseti 0,5517 0,5529 0,5528
Jap. yen 0,55667 0,55786 0,55122
irsktpund 95,807 96,012 96,174
SDR 89,9482 90,1402 89,7353
ECU 76,4156 76,5787 76,7308
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Heims-
meistara-
keppnin í
Svíþjóð
í dag lýkur riðlakeppninni á
heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik í Svíþjóð. Ahs eru átta
leikir á dagskrá en hæst ber vita-
skuld leik okkar manna við slakt
íþróttir í dag
hð Bandaríkjamanna klukkan 13
í dag.
Heimsmeistarakeppnin:
Austurríki-Egyptaland kl. 13.00
Spánn-Tékkland kl. 15.00
Noregur-Sviss kl. 13.00
Rúmenía-Frakkland kl. 15.00
Ísland-Bandaríkin kl. 13.00
Svíþjóð-Ungverjaland kl. 15.00
S-Kórea-Danmörk kl. 13.00
Rússland-Þýskaland kl. 15.00 •