Dagblaðið Vísir - DV - 13.03.1993, Qupperneq 52
Ji
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
3.000 krónur.
Rítstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifíng: Sími 632700
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 13. MARS 1993.
Tugmilljona skjalafals
til að greiða spilaskuldir
Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi í gær 48 ára Rcykviking í
20 mánaða fangelsi fyrir að hafa
falsað og notað í viðskiptum sam-
tals 34 viðskiptabréf, skuldabréf og
víxla að nafnvirði rúm 21 milljón
króna. Maðurinn viðurkenndi fyrir
dómi að hafa varið hluta af þessum
fjármunum, sem hann fékk í hend-
ur, til að greiöa spilaskuldir sem
hann hafði stofnað til - bæði hér
heima og erlendis. Upphæðimar
námu allt frá 200 þúsund krónum
upp í 2.850.000 krónur hvert. Guð-
jón St. Marteinsson héraðsdómari
kvAir upp dóminn i gær. :'y
Hér er um að ræða óvenju stór-
fellt skjalafalsbrot og i raun talið
ómúlegt að einn aðili skuli komast .
upp meö það á rúmlega þriggja ára
tímabili að stunda svo umfangs-
mikil svik.
Maðurinn falsaði nöfn föður síns,
tengdafólks, bróður, fyrrverandi
eigirtkonu og dóttur, auk vina og
kunningja hans, á bréíin - samtals
átta tiitekinna aðila. Nöfn fólksins
skráði maðurinn ýmist sem sjálf-
skuldaraðila, útgefenda, ábekinga
og í sumum tilfellum skráði hann
eigið naiii sem ábekingur. Brot
hins dæmda höfóu í för með sér
verulegt fjártjón þessara og fleiri
aðila.
Skuldabréfin og víxlana seldi
maðurinn yfirleitt í bönkum en
lagði einnig tryggingavixla fram
vegna umfangsmikilla greiðslu-
kortaviðskipta sinna. Þar komu
ýmist Visa, Eurocard eöa Diners
við sögu. Auk þess voru lagðir fram
nokkrir tryggingavixlar vegna yf-
irdráttar.
Brotin voru framin á tímabilinu
frá júní 1989 fram í febrúar 1992 en
mislangur tími leið á milli þeirra.
I desember 1991 gaf maðurinn sjálf-
ur út fyrir hönd Karat hf. veð-
skuldabréf að fjárhæð 2.850 þúsund
krónur með 4. veðrétti á íbúð vinar
síns. Á bréfið falsaði hann nafn
vinarins, sem var þinglýstur eig-
andi, og bróður síns sem vitundar-
votts. Bréfið seldi hann síðan Lang-
holtsútibui Landsbanka íslands
eins og mörg önnur bréf og víxla.
Einutn mánuði siðar gaf hanti út 5
tryggingavíxla upp á samtals 2,5
milljónir króna í sama banka. Á
víxlana falsaði hann ýmis nöfn
fólks sem tengdist honum.
Ákærði játaði brot sín skýlaust
og taldi héraðsdómur að þau væru
afdráttarlaust sönnuð og stórfelld.
-ÓTT
Oddsskarð:
Göngunum lok-
aðeftiraðkeyrt
varáhurð
Ekið vár á hurð í enda Oddsskarðs-
ganga í síðustu viku. Við ákeyrsluna
eyðilagaðist hurðin og varð að loka
göngunum heila nótt.
Sá sem skemmdunum olli hefur
ekki gefið sig fram en sjónarvottur
tilkynnti Vegagerðinni um atburöinn
símleiðis. Lögreglan á Eskifirði vill
nátaliafsjónarvottinum. -kaa
■p— 1 1 Brook 1 fjompton i
RAFMÓTORAR
Poulsett
SuAurlandsbraut 10. S. 886499.
LOKI
Já, það þýðir ekki annað
en reyna afturog
afturog aftur!
Stöð 2:
Ingimundur inn
en Jóhann J. út
Ingimundur Sigfússon, stjómar-
formaður Heklu, var kjörinn formað-
ur stjórnar íslenska útvarpsfélagsins
á aðalfundi félagsins á Holiday Inn í
gær. Hann tekur við af Jóhanni J.
Ólafssyni sem ekki náði kjöri í
stjómina. Páll Kr. Pálsson, sém hefur
verið fulltrúi Eignarhaldsfélags
Verslunarbankans, fór einnig úr
stjóm. Nýir menn í stjórn eru þeir
Þorgeir Baldursson, forstjóri Prent-
smiðjunnar Odda, og Ingimundur
Sigfússon.
I stjórninni eru sjö menn. Fyrir úr
gömlu sljórninni eru Jón Ólafsson,
forstjóri Skífunnar, Jóhann Óli Guð-
mundsson, forstjóri Securitas, Har-
aldur Haraldsson í Andra, Stefán
Gunnarsson múrari og Pétur Guð-
mundarson.
Svokölluð fjórmenningaklíka, sem
samanstóð af Jóhanni J. Ólafssyni,
Jóni Ólafssyni, Haraldi Haraldssyni
og Guðjóni Oddssyni, á nú aðeins tvo
mennístjórn. -Ari
Þau Karen og Friðrik frá Vestmannaeyjum eru stoll og hamingjusöm með frumburð sinn. Þau mega iíka vera það
því eftir sex ár og sjö fósturlát bar erfiðið langþráðan árangur og draumabarnið Jóna Þóra kom í heiminn. Sjá
viðtal bls. 2 DV-mynd BG
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Hlýnar í veðri á sunnudag
Á sunnudag fer að rigna með vaxandi suðaustanátt er líður á daginn sunnan- og vestanlands, hlýnandi veður.
Á mánudag gengur í skammvinna norðanátt með snjókomu fyrir norðan en bjartviðri syðra.
Veðrið 1 dag er á bls. 61
*
**