Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1993, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1993
3
Fréttir
Kröfur ASÍ og VSÍ á hendur ríkisvaldinu:
Kostnaðurinn talinn
nema um 8 milljörðum
- aðgerðir til aðstoðar sjávarútveginum eru ekki þar í
Samkvæmt heimildum DV er það
mat sérfræðinga ríkisstjómarinn-
ar að verði orðið við kröfum ASÍ
og VSÍ, sem lagðar hafa veriö fyrir
ríkisstjómina, kosti þær ríkissjóð
8 milljarða króna. Þar í eru ekki
aðgerðir til aðstoðar sjávarútveg-
inum. Kröfurnar, sem uni er að
ræða, eru lækkun matarskatts úr
24 í 14 prósent, lækkun á kostnaði
vegna lyfjakaupa og læknisþjón-
ustu og aðgerðir í atvinnumálum
til aö slá á atvinnuleysið.
Eftir standa þá þær aðgerðir sem
nauðsynlegar eru taldar til að að-
stoða sjávarútveginn í þeim þreng-
ingum sem hann er í vegna verð-
falls á útfluttum sjávarafurðum.
Samkvæmt heimildum DV telur
ríkisstjórnin sértækar aðgerðir i
þeim efnum ekki koma til greina.
Þær myndu kosta nokkra millj-
arða, koma óréttlátt niður og bjóða
upp á spillingu. Þá er aðeins eftir
gengisfelling, eins og aðilar í sjáv-
arútvegi hafa farið fram á. Hversu
mikil hún þarf að vera ræðst nokk-
uö af því hve mikið bankamir
lækka vexti á morgun.
„Mér þykir ríkisstjórnin ætla að
vera rausnarleg í atvinnumálun-
um ef hún ætlar aö meta kröfur
okkar og VSÍ á 8 milljarða króna.
Og það er alveg ljóst að við emm
ekki að vinna okkar kröfur út frá
því að gengiö verði fellt," sagði
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ.
Hann sagði að á fundi með stóm
samninganefnd ASÍ í gær hefði ver-
ið farið yflr málið allt. Menn sem
búa úti á landi em beðnir að vera
kyrrir í Reykjavík allavega fram á
fimmtudag ef eitthvað gerðist á
fundi með ríkisstjóminni á morg-
un.
Benedikt sagði að sérfræðingar
ríkisstjórnarinnar, ASÍ og VSÍ
hefðu setið undanfariö við að
reikna það dæmi sem rætt yrði á
fundi með ríkisstjóminni á morg-
un.
DV hefur heimildir fyrir þvi að
gengisfeliing, ef henni fylgdu
ákveðnar ráðstafanir af hálfu
stjómvalda, þyrfti ekki að verða til
þess að fulltrúar ASÍ slitu samn-
ingaviðræðum. Þar á bæ leggja
menn ofurkapp á og meta númer
eitt að hjól atvinnulífsins snúist.
-S.dór
íjSJÚíIzjÍ
Noröurtangi hf., |
fsatirði 01
Skagstrondingur hf.,
• Skagaströndf
Fiskiðja Sauðárkróks
Har. Böðvarsson og Co,
f% Akranesi
Fiskiðjusamlag
Húsavíkuy^t
\ I u
Útgerðarf. Akureyringa
0 Samherji j
Síldarvinnslan,
Neskaupstað
Hraðfrystihús
Eskifjarðar
. _..mhi
Hraðfryi
Fáskrúðsfjarðar
Qrandi hf.,
Mlðnes hf.,^^ ^ Reykjavík
Sandgerði V*
© Þorbjörn hf.,
Grlndavík
C Vinnslustöðin,
Vestmannaeyjum
n
DV
Þetta eru stöndugustu sjávarútvegsfyrirtækin á Islandi um þessar mundir.
Enn hallar undan fæti í sjávarútvegi:
Tapið um 5 milljarðar
miðað við heilt ár
- ekki verður komist hjá aðgerðum, segir Amar Sigurmundsson
„Veiðar og vinnsla em rekin með
rúmlega 9 prósenta halla um þessar
mundir. Það þýðir að sjávarútvegur-
inn tapar á bilinu 4,5 til 5,5 milljörð-
um króna miðað við heilt ár. Þessi
staða er verri en hún var fyrir efna-
hagsaðgerðimar í nóvember. Þá
voru menn að tala um 4,7 milljarða
króna tap miðað við heilt ár. Gengis-
feliingin í nóvember, þótt hún væri
6 prósent, vigtaði ekki nema um 3
prósent vegna þess að aðrar myntir
fóm niður á við eftir hana. Þá hefur
aðstöðugjaldið verið afnumiö en
samt erum við í heldur verri stöðu
nú en þá. Þar vegur auðvitað þyngst
lækkaö afurðaverð að undanfórnu,"
sagði Arnar Sigurmundsson, for-
maður Samtaka fiskvinnslustöðva, í
samtalijvið DV.
Arnaij var spurður hvort hægt
væri að leysa vanda sjávarútvegsins
án þess að fella gengið.
„Við höfum sagt að annað tveggja
þurfi að koma til: Lækkun kostnaðar
til að brúa bilið. Ef það tekst ekki þá
eiga menn ekki annað til en að auka
tekjurnar. Það má ef til vill segja að
þriðji möguleikinn sé fyrir hendi;
sambland af þessu tvennu. Þess
vegna er varla hægt að svara spurn-
ingu þinni játandi né neitandi. Alla
vega þarf aðgerðir til. Reksturinn
gengur ekki í margar vikur enn, hjá
mörgum fyrirtækjum, með ástandið
eins og það er. Þær bankaaðgerðir
sem menn eru nú að tala um miðast
auðvitað við að bankarnir séu ekki
að lána í botnlausan taprekstur. Á
meðan sjávarútvegurinn tapar 450 til
500 milljónum króna á mánuði geng-
ur dæmið ekki upp. Ég vil taka fram
að það skiptir auðvitað miklu máh í
þessu sambandi hvað bankarnir gera
1. apríl í sambandi við vextina. Um-
talsverð vaxtalækkun þá væri mjög
gott innlegg í þær kjaraviðræður og
afkomuumræöur sem eru í gangi,“
sagði Amar Sigurmundsson.
-S.dór
Framkvæmdastjóri sjúkrahússins
á ísafirði fer í námsleyfi
Guðmundur Marinósson, fram-
kvæmdastjóri Sjúkrahússins á
ísafirði, hyggst þiggja boð stjómar
sjúkrahússins um að fara í eins árs
námsleyfi á launum. Fylkir Ágústs-
son stjómarformaður og Guömund-
ur Marinósson hittu að máh í gær
Sighvat Björgvinsson heilbrigðisáð-
herra. Leysti þríeykið máhð í sam-
einingu. Búist er við að fundur verði
haldinn í stjórn sjúkrahússins á
morgun þar sem niðurstaða málsins
verður kynnt.
«0%
\im8m
.
53113
Gengíítö/sku/írunnarerokkuríhag
og viÖgerum betur
20/AFSLÁJTUR TIL PÁSKA
Kringlan, Sími68 9955
20%
Faxafeni v/Suöuriandsbraut
Sími 68 W 20
Líttu inn íspeg/asa/ okkar viðFaxafen.
-GHS