Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1993, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1993
5
Fréttir
Bændur í Mývatnssveit í bréfi til erlends eignaraðila Kísiliðjunnar:
Hundruð milljóna króna
skaðabótakraf a kemur fram
- fái fyrirtækið leyfi til aukinnar kísilgúrtöku úr Mývatni
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta bréf okkar er skrifað vegna
þess að við teljum það mjög líklegt
að þessi eigandi hafi ekki verið upp-
fræddur um okkar rök sem teljum
Kísiliðjuna hættulega og þurfi að
hætta starfsemi," segir Þorgrímur
Starri Björgvinsson, bóndi í Garði í
Mývatnssveit, en hann er einn
bænda í Mývatnssveit sem hafa
skrifað bandaríska eignaraðilanum
að Kísiliðjunni í Mývatnssveit bréf
og gert í bréfinu grein fyrir hugsan-
legum afleiðingum á útvíkkun náma-
leyfis í Mývatni.
„Við tökum svo til orða í bréfinu
að haldi verksmiöjan áfram starf-
semi sé þetta svæði glatað og búið
að vera. í okkar rökum kemur m.a.
fram að köfnunarefnisaíkoman er
svo gríðarleg samkvæmt áliti sér-
fræðinga að stórhætta er á ferð. Við
munum ekki una því að það svæði,
sem vinnsla fyrirtækisins fer fram
á, veröi útvíkkað og segjum að slíkt
verði látið ganga fyrir dómstóla.
Þar yrði um að ræða háar skaða-
bótakröfur af hendi okkar sem eigum
SÍNE:
Skrifstofunni
lokaðvegna
fjárskorts
Skrifstofu Sambands íslenskra
námsmanna erlendis hefur verið
lokað vegna fjárskorts. Þegar nýju
lögin um Lánasjóð íslenskra náms-
manna voru samþykkt var sjálfkrafa
aðild að SÍNE felld niður. Með breyt-
ingunni fækkaði félögum í SÍNE um
60 prósent og minnkuðu tekjur í sam-
ræmi við það. SÍNE hefur rekið skrif-
stofu sína í átta mánuði með rúmlega
helmingi minni tekjum en áður og
er nú komið í þrot.
Um áramót var starfshlutfall fram-
kvæmdastjóra og afgreiðslutími
skrifstofunnar minnkað um helming
og var því skrifstofan aðeins opin
hálfan daginn. Þá var ákveðið að
draga úr útgáfu á Sæmundi, frétta-
blaði SÍNE, um helming og hafa ein-
ungis tvö tölublöð komið út í stað
fjögurra áður. Þá hafa deildir SÍNE
ekki getað fengið styrk frá SÍNE til
starfsemi sinnar.
Stjórnarmenn SÍNE fóru á fund
menntamálaráðuneytisins í haust til
að ræða fjárskort hreyfingarinnar en
án árangurs. Þá hefur ítrekað verið
reynt að ná tali af Ólafi G. Einars-
syni menntamálaráðherra. Stjórn
SÍNE telur að sambandið verði að fá
styrk frá hinu opinbera til að geta
haddið starfsemi sinni gangandi.
-GHS
KONI
HÖGGDEYFAR
Ef þú vilt hafa
besta hugsan-
lega veggrip
á malbiki
sem og
utan
vegar
...þá
velur þú KONI!
mmmsp
Bíldshöfða 14-sími 672900
hagsmuna að gæta og búum við
Mývatn og Laxá, eyðileggingin er
þegar svo mikil að veiöin nú, 7. árið
í röð, er ekki nema um 29% af meðal-
veiðinni frá aldamótum til ársins
1972. Við skýrum í bréfinu að það
verði tekið mjög hart á móti ef eigi
að leyfa ný námasvæði.
Við myndum í fyrsta lagi fara fram
á lögbann á framkvæmdina og það
mál er að okkar mati borðleggjandi.
Og svo yrði um að ræða skaðabóta-
kröfur sem gætu numið hundruðum
miUjóna króna, það gerum við þeim
ljóst í þessu bréfi okkar,“ segir Þor-
grímur Starri,
Nýr Favorit
Ekki bara betri, heldur 548 sinnum betri!
Verð á Favorit LXi er aðeins kr. 598.000.- á götuna.
Nú er hann kominn til landsins, hinn nýi
Favorit. Eftir að Skoda verksmiðjurnar
sameinuðust Volkswagen samsteypunni hafa
þýskir tækni- og hugvitsmenn lagt nótt við
dag. Útkoman er glaesilegur fimm dyra
hlaðbakur, sem státar af 548 endurbótum,
stórum sem smáum.
Favorit er nú framleiddur samkvæmt
kröfum og stöðlum Volkswagen, sem tryggja
meiri gæði, aukið öryggi og betri endingu.
Vélin er með hvarfakút og tölvustýrðri
Bosch Motronic innspýtingu og kveikju, sem
er viðhaldsfrí og dregur úr bensíneyðslu. I
hurðum eru styrktarbitar, og innréttingar
eru nýjar. Það sama gildir um bremsukerfið,
rafkerfið og margt, margt fleira.
Hinir fjölmörgu aðdáendur Favorit hafa
því fengið 548 nýjar ástæður til þess að velja
þennan vinsæla bíl. Og er þá ein ótalin:
Nefnilega verðið!
Nýr framhjóladrifinn Favorit LXi, 5 dyra
og 5 gíra kostar kr. 598.000.- á götuna, og
fæst í 9 spennandi og frískum litum.
Komdu og reynsluaktu nýjum Favorit. Við
höfum opið virka daga frá 9-18 og laugardaga
frá 12-16.
Aukabúnaður á mynd: 15" álfelgur.
Nýbýlavegi 2, Kópavogi, sími 42600.