Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1993, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1993
Útlönd____________________
Flóttamenn frá
Srebrenica tróó-
ustiilbana
Nokkrir tróðust til bana þegar
óbreyttir borgarar reyndu aö
troöast um borð í flutningaiest á
vegum Sameinuöu þjóöanna sem
var aö fara frá bænum Sre-
brenica í Bosníu í morgun. Serb-
ar sitja um bæinn sem er byggður
íslamstrúarmönnum.
Tom Eriksen, liðsforingi SÞ,
sagði að sér hefði verið sagt að
skelfmgin í bænum hefði verið
meiri en fyrir tveimur dögum
þegar tvö þúsund manns tróðust
upp í tlutningabíla SÞ sem fóru
frá Srebrenica.
Fjórtán bílar, sem komu með
neyðaraðstoð til Srebrenica í
gær, héldu í morgun áleiðis til
bæjarins Tuzla í austurhluta Bos-
níu.
Bankigerir
kaupsýslumann
óvart að milla
Breskur banki hefur viður-
kennt að hafa gert kaupsýslu-
mann óvart að milljónamæringi
i einn dag en rukkaði hann síðan
um fimm krónur fyrir mistökin.
Robert Coleman, skrifstofu-
stjóri frá Rochester, fékk þó aldr-
ei að njóta ríkidæroisins þvi
raunverulegir eigendur fjárins
voru ekkí seinir að kvarta.
Coleman komst að þvi að bank-
inn hefði lagt rúma eina milijón
sterlingspunda inn á reikning
hans en tekið peningana út strax
daginn eftir. Bankinn ætlar að
leiðrétta þetta með fimm krón-
urnar.
ísraelsmenn
loka hernumdu
svædunum
ísraelsk stjómvöld lokuðu
hernumdu svæöunum i gær og
sendu þangað fleiri hermenn tii
aðberjast við Palestínumenn sem
hafa drepiö þrettán ísraelsmenn
í þessum mánuði. Ekki hafa fleiri
verið drepnir á einum mánuði í
nærri fjögur ár.
Yitzhak Rabin fyrirskipaði lok-
unina og hann siakaði einnig á
reglunum um hvenær hermenn-
imir mættu hefja skothríð. Lok-
unin á að vara i óákveðinn tíma.
Vegna lokunar vesturbakkans
og Gazasvæðisins geta um eitt
hundrað þúsund Palestínumenn
ekki sótt vinnu sína í ísrael. Leið-
togar Palestínumanna fordæmdu
lokunina og sögðu að ísraels-
menn væm aðeins að gera illt
verra með henni. Margir efast um
að þessar aðgerðir verði til þess
að binda enda á ofbeldið á her-
numdu svæðunum. Reuter
Hugmyndir um að selja alla fiskvinnslu í Færeyjum imdir eitt fyrirtæki:
Af li dugar fyrir tvö
frystihús af tuttugu
- verður eins og gamla einokunarverslunin, segir forstjóri 1 Þórshöfn
Jens Jalsgaard, DV, Fasreyjum;
Tvö stærstu frystihúsin í Færeyj-
um geta annað verkun á öllu fiski
sem berst á land í eyjunum. Er þá
miðað við að unnið sé í átta stundir
á dag. Nú eru 22 frystihús í Færeyj-
um og hagkvæmast væri að loka tutt-
ugu þeirra.
Nemendur fiskvinnsluskólans í
Vestmanna hafa reiknað þetta út og
sýnir niðurstaðan _ vel hvemig
ástandiö er í eina umtalsverða at-
vinnuveginum í Færeyjum. Augljóst
er að loka verður mörgun húsum en
Tummas Arabo vill stofna eitt fisk-
vinnslufyrirtæki í Færeyjum.
ekkert samkomulag er um hvernig
staðið skuli að málum.
Tillaga hefur komið fram um að
Færeyjagrunnurinn, fjárfestinga-
sjóður Færeyja, taki við rekstri á öll-
um frystihúsum og með stofnun
öflugs hlutafélags. Sjóðnum er
stjómað af Dönum eftir síðustu
björgunaraðgeröimar í efnahags-
málum eyjanna.
Þetta nýja félag myndi að öllum
líkindum láta loka 17 frystihúsum en
reyna að reka fimm áfram. Þá yrði
eitt frystihús á hverri af fimm
stærstu eyjunum.
Margir Færeyingar óttast að þessi
aðgerð myndi raska allri byggð á
eyjunum og Axel Hansen, forstjóri
stærsta frystihússins í Þórshöfn, seg-
ir aö stofnun nýja félagsins jafngildi
endurreisn gömlu konungseinokun-
arinnar á 18. öld.
Þingmenn Fólkaflokks, annars
stjórnarflokksins, era á móti þessari
hugmynd en jafnaðarmenn, með
Maritu Petersen lögmann, eru fylgj-
andi. Tummas Arabo, landsfjórnar-
maður fyrir jafnaðarmannaflokkinn,
hefur lýst yfir eindregnum stuðningi
við stofnun fiskvinnslurisans.
Moröin á gamla fólkinu í Tistedal í Noregi enn óráöin gáta:
Morðvopnið er rándýr saf ngripur
Þegar lík Pers Röd, 71 árs gamals eftirlaunaþega í Tistedal, var grafið upp í hans eigin garöi í fyrradag varð
lögreglunni Ijóst að hún átti í höggi við sjúkan fjöldamorðingja. Hann hefur að öllum líkindum þrjú önnur morð
á samviskunni. Simamynd Scanfolo
Norska lögreglan segir að hagla-
byssan, sem notuð var við að myrða
fjögur gamalmenni í Tistedal, sé
safngripur metinn á milli þrjú- og
fjögur hundruð þúsund íslenskar
krónur. Hún er sænsk af gerðinni
Husquarna 310.
Vopnið er ekki fundið en sérfræð-
ingar lögreglunnar segja að ekki fari
mifli mála aö við öll morðin hafi ein
og sama byssan verið notuð. Mjög
fáar haglabyssur af þessari gerð hafa
verið seldar og því vonast lögreglan
eftir að geta rakið slóð morðingjans
út frá byssunni.
Enn hafa engar vísbendingar kom-
ið fram um hver hinn seki er. Nú er
gengið út frá því sem vísu að sami
maður hafi verið að verki í öll skipt-
in. Hann skaut fólkið, stal öllu fé-
mætu á heimilum þess og gróf líkin
í görðunum við húsin.
Seinast var lík Pers Röd grafið upp
nú í vikunni. Hans hafði verið sakn-
að í-sjö mánuði. Eftir að lík Pers
fannst sannfærðist lögreglan um að
fjöldamorðingi gengi laus í Tistedal,
friðsælum smábæ nærri landamær-
um Sviþjóðar í suðri.
Lögreglan hafði áður reynt mikiö
til að upplýsa morð á þremur gamal-
mennum í Tistedal. Rannsóknin hef-
ur kostað ofljár og nú á að herða enn
á henni því talið er líklegt að morð-
inginn láti ekki staðar numið við
fjögurmorð. Reuter
Vinnið ferð til
Föstudaginn 2. opríl frnmsýnir
8
Páskamyndina í ár Fer&in til Las Vegas 1
(Honeymoon in Vegas) Ein besta grínmynd allra tíma.
ShortogKasp-
arovætlaað
teflaíLondon
Garríj Kasparov og Nigel Short
hafa fallist á tilboö Times dag-
blaðanna og hollensks hóps um
að heyja einvígiö um heimsmeist-
aratitilinn í skák í London í sept-
ember. Verölaunaféð mun nema
liðlega 160 milljónum íslenskra
króna, meira en nokkm sinni.
Með einvígi sínu ætla Kasparov
og Short að reyna að ná heims-
meistaraeinvíginu undan stjóm
Alþjóöa skáksambandsins FIDE
sem vildi að teflt yrði í Manchest-
er.
FEDE svipti Kasparov heims-
meistaratitlinum í síðustu viku
vegna þess aö hann neitaði að
tefla í Manchester. Kasparov
sagði í Helsinki í gær að þetta
yrði stórkostlegt einvígi.
Reuter