Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1993, Page 9
MIÐ VIKUDAGUR 31. MARS1993
9
Sænsk skóSa-
börn mótmæla
hvalveiðum
Norðmanna
Bekkur sænskra skólabama
mótmæltl áformum Norömanna
um aö hefja hvalveiðar í ágóða-
skyni aö nýju og afhenti undir-
skriftalista með nöfnum þúsunda
hvalveiðiandstæðinga á skrifstofu
norska forsætisráðherrans í gær.
„Umhverfisráðherrann okkar
undirritaði listann,'1 sagði Vanja
Andersson og rétti fram undir-
skrift Olofs Johanssons, um-
hverfisráðherra Svíþjóðar. Und-
irskriftunum var safnað um alla
Svíþjóð.
Barnahópurinn fékk. ekki að
hitta Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs, en af-
henti embættismanni hstann í
staðinn. Tæplega átján þúsund
skrifuðu undir mótmælin.
Litlar líkuráað
IRA fallist á
vopnahlé
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, pólitísks arms írska lýð-
veldishersins, IRA, telur litlar
likur á að skæruliðahópurinn
lýsi einhliða jftr vopnahléi í átök-
unum á Noröur-írlandi.
í viðtali við irska dagblaöið Ir-
ish Times í gær sagðist ekki sjá
neinn tilgang í aö fara frarn á slíkt
við IRA þar sem samtökin mundu
ekki fallast á það.
Mikil bylgja andúðar á IRA hef-
ur risið upp í kjölfar sprengjutil-
ræðis í Warrington á Englandi á
dögunum þar sem tveir ungir
drengir létu lífið. Um tuttugu
þúsund manns efndu til mótmæla
í Ðublin á sunnudag og kröfðust
fnðar.
Jafitaðarmenit
gegn einkavæð-
ingu raforkunnar
Sænskir jafnaðarmenn hafa
kúvent í afstöðu sinni til þess aö
dregið veröi úr eftirliti með raf-
orkuframleiðslu í landinu og eru
nú andvígir því, jafnframt sem
þeir eru andvígir einkavæðingu
ríktsraforkufyrirtækisins Vatt-
enfall.
Ætlunin með þessu var að við-
skiptavinimir, í reynd stórir
orkunotendur og dreifingarfyrir-
tæki, gætu valið afhendingarað-
ila og þar með komið á verðsam-
keppni.
Góðar líkur eru taldar á að jafn-
aðarmönnum takist að stöðva
frumvarpið. Undirbúningurinn
hefúr tafist og er ffumvarps
stjómarinnar fyrst aö vænta í
haust. Ný raforkulög gætu þvi
gengið í gfidi í fyrsta lagi 1994.
Orkuframleiöendur hafá að
undanfömu verið iðnir við að
kaupa upp dreífingarfyrlrtæki
sveitarfélaganna. Framganga
Vattenfalls hefur vakið sérstaka
athygll
Pia Gjellerup hefur sagt af sér
emfaætti dómsmálaráðherra í
dönsku stjórninni vegna ásakana
um misnotkun á almannafé og
slæma stiórnun á unglxðamiðstöð
jafnaðármanna. Gjellemp veitti
heimilinu forsjá áður en hún sett-
ist í ráðherrastólinn í janúar.
Erling Olsen, fyrrum hús-
næðisráöherra, tekur við dóms-
málaráöuneytínu í hennar stað.
Gjellerup sagði í yfirlýsingu aö
hún teldi sig ekki hafá aðhafst
neitt rangt en hún segöi af sér til
að koma ekki óorði á stjómina.
Beuter, TT og Ritzau
Mikill niöurskuröur herafla í Evrópu:
Herinn heim
Bill Clinton Bandaríkjaforseti hef-
ur ákveðið að hraða heimflutningi
herafla Bandaríkjamanna í Evrópu
frá því sem gert var ráð fyrir í tíllög-
um George Bush, fyrrverandi for-
seta, um afvopnun í Evrópu.
Nú vill Clinton ganga svo langt að
hafa aðeins 100 þúsund hermenn
undir vopnum í Evrópu árið 1996.
Árið 1988 vom þar 325 þúsund her-
menn þannig að fækkunin nemur 225
þúsund mönnum á þessu árabili.
Niðurskurðurinn stafar af fyrir-
ætlunum forsetans um að koma á
hallalausum fiárlögum á fyrsta kjör-
tímabfii sínu. Niðurskurðurinn hef-
ur verið kynntur ráðamönnm í öðr-
um ríkjum Atlantshafsbandalagsins
og mælist hann misjafnlega fyrir.
Að vísu er kalda stríðinu lokið en
NATO tekur vart við umfangsmiklu
friðargæslustarfi ef heraflinn verður
skorinn niður í lágmark. Þá þykir
mönnum ótímabært að fækka her-
mönnum svo mjög meðan óvissa rík-
ir um lýðræðisþróunina í lýðveldum
fyrrum Sovétríkjanna.
Útlönd
Samdráttur í herafla
Bandaríkjamanna í Evrópu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti ætlar að hafa 100 þúsund
hermenn í Evrópu árið 1996. Þetta er fækkun um 225
þúsund frá árinu 1988.
Heimild: International Institute (or Strategic Studies___________________USATODAY
Nýi bjórinn er alveg littaus en af
bragðinu fer engum sögum.
Símamynd Reuter
Litlaus og
léttur bjór
íbúar í þremur ríkjum Bandaríkj-
anna fá á föstudaginn að kynnast
nýju afbrigði af bjór. Nú skal ölið
vera litlaust og hitaeiningasnautt.
Þetta er svar bruggara hjá Miller,
öðrum stærsta bjórframleiðanda í
Bandaríkjunum, við kröfum manna
um heilsusamlegan mjöð.
í fyrstu veröur litlausi bjórinn að-
eins seldur í Austin í Texas, Rioch-
mond í Vigriniu og Minneapolis í
Minnesota. Viðbrögð neytenda á
þessum stöðum ráða úrslitum um
hvort litlausa öhð fer á almennan
markað. Reuter
Franska
ríkisstjórnin
brettirupp
Edouard Balladur, forsætisráð-
herra Frakklands, hittir nýja ríltís-
stjóm sína í dag til að undirbúa setu
íhaldsmanna á valdastólunum næstu
fiögur árin.
Balladur skipaði 29 menn í ríkis-
stjómina í gær og er meira en helm-
ingur þeirra að taka við ráðherra-
embætti í fyrsta sinn. Ráðherrar úr
hans eigin flokki gaullista em heldur
færri en úr röðum miðflokksins
UDF.
Stuðningsmenn samrunaferlisins í
Evrópubandalaginu em áberandi í
stjóm Balladurs og þykir það merki
um aö hann vilji hnökralausa sam-
búð með Mitterrand forseta.
Meðal ráðherra í hinni nýju stjóm
má nefna Siroone Veil, fyrrum for-
seta Evrópuþingsins. Hún fær eins
konar yfirráðuneyti heilbrigðis-, fé-
lags- og borgarmála. Alain Juppé,
aðalritari gaullistaflokksins, verður
utanríkisráðherra og vamarmála-
ráðuneytið kom í hlut Francois Léot-
ard. Reuter
iB
Eigendur
Britax- Freeway
bamabílstóla
Britax
athugið!
Við reglulegt gæðaeftirlit hjá Britax-Excelsior í Bretlandi,
framleiðanda Britax barnabílstóla, hefur komið í Ijós mögulegt
vandamál við þrengingu sætisóla í örfáum Britax-Freeway
barnabílstólum. Hugsanlegt er að stóll með þessum annmarka hafi verið seldur
hér á landi og þegar öryggi barna er annars vegar ber aó sýna fyllstu gætni.
Því hafa Britax-Excelsior og Skeljungur hf. ákveðið að skipta út Britax-
Freeway barnabílstólum með tilteknum framleiðslunúmerum.
i
Takmarkið er að ná til allra foreldra sem eiga Britax-
Freeway barnabílstól og fá hjá þeim framleiðslunúmer
stólsins. Séu einhver líkindi á að stóllinn hafi
fyrrgreindan annmarka komum við með nýjan stól heim
til viðkomandi innan sólarhrings sé heimilisfangið á höfuðborgarsvæðinu, 99.5038
annars innan þriggja sólarhringa. (Svarað alla
virka daga
frá kl. 9-18)
Grænt númer: 99 6038
Grænt númer
Skeljungs hf.
En þessu takmarki verður ekki náð nema með ykkar
hjálp. Því hvetjum við alla eigendur Britax-Freeway
barnabílstóla til að hafa samband við upplýsingasíma
Skeljungs hf. s: 99-6038. Þið verðið beðin um eftirfarandi
upplýsingar: Framleiðslu- og tegundarnúmer stólsins
(númerin eru undir áklæði við vinstra eyra barnsins),
nafn, heimilisfang og síma.
Öryggi barna - aldrei of varlega farið.
Skeljungurhf.