Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1993, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS1993
11
Fréttir
Heimir Steinsson segir brottrekstur Hraíns standast fullkomlega:
Hef ur gamla áminningu
á Hraf n á borði sínu
„Ég er búinn aö gefa frá mér stutt-
oröa fréttatilkynningu um málið og
ætla að láta hana nægja. Ég mun
taka til máls út af þessu ef mér þyk-
ir ástæða til þegar frá líður og þá
mun ég gera það að eigin frumkvæði
í blaðagrein. Þá verður ekkert undan
dregið," segir Heimir Steinsson út-
varpsstjóri aðspurður um brottvikn-
ingu Hrafns Gunnlaugssonar frá
Sjónvarpinu.
Að sögn Heimis er það alfarið hans
ákvörðun að segja Hrafni upp. Út-
varpsráði komi málið ekki við enda
heyri starfsmannamál ekki undir
það heldur einungis dagskrármál.
„Það er útvarpsstjóri einn sem
ræður þessu. Hins vegar hafði ég
fúllkomið samráð við framkvæmda-
stjóm útvarpsins sem er hin eigin-
lega stjóm stofnunarinnar.“
Heimir segir afráðið aö Sigmundur
Öm Amgrímsson, aðstoðarmaður
Sveins Einarssonar, taki við starfi
Hrafns sem innlendur dagskrárstjóri
næstu tvo mánuðina. Á þeim tima
verði staðan auglýst og ráðið í hana.
Heimir útilokar ekki að ýmsar
ákvarðanir, sem Hrafn hafi tekið á
undanfómum dögum, verði teknar
til endurskoðunar, til dæmis upp-
sagnir starfsmanna. Aðspurður
kveðst Heimir hafa leitað áhts hjá
lögfræðingi stofiiunarinnar um lög-
mæti uppsagnarinnar.
Alli ríki vann
Emil Thorarensen, DV, Eskifriði
Sveit Aðalsteins Jónssonar frá
Eskifíröi (Alli ríki) hafði sigur í aðal-
sveitakeppni Bridgefélags Reyðar- og
Eskifjarðar sem lauk fyrir skömmu.
Spilaðar vom 7 umferðir í undan-
keppni en fjórar efstu sveitimar
kepptu síðan um 1.-4. sætið.
Sveitin, sem varð í fyrsta sæti und-
ankeppninnar, valdi sér andstæðing
en hfiiar tvær léku síðan innbyrðis.
Vinningssveitimar kepptu síðan um
gull og silfur en þær sem töpuðu um
bronsið. Sveit Aðalsteins Jónssonar,
Eskifirði, vann sveit Jóhanns Þórar-
inssonar í keppninni um gullið,
18-12, en Sproti Icy vann sveit Jónas-
ar Jónssonar rnn bronsið, 20-10.
í sveit Aðalsteins em auk hans
Gísli Stefánsson, Magnús Bjamason,
Kristmann Jónsson og Búi Þór Birg-
isson. í sveit Jóhanns Þórarinssonar
era auk hans Atli V. Jóhannesson,
Svala Vignisdóttir og Ragna Hreins-
dóttir.
- segir ummæli Hrafns í DV „afskaplega“ smekkleg
„Uppsögnin stenst fullkomlega. Við
höfum okkar lögmann og höfðum
hann með 1 ráðum varöandi hvert
einasta skref sem við tókum.“
Að sögn Heimis þarf menntamála-
ráðherra ekki að óttast það ákvæði
laga að veita þurfi starfsmanni
manna Ríkisútvarpsins. Hins vegar
sé það svo að Hrafii hafi fengið mjög
stranga áminningu áður en hann fór
í frí. „Hún liggur hér á borðinu fyrir
framan mig,“ segir Heimir.
í viðtali við DV í gær sagði Hrafn
að sér fyndist eðlilegt að menn tækj-
ust á innan Ríkisútvarpsins, svo
fremi sem menn spörkuðu ekki í
punginn hver á öðmm. Fram kemur
að hann hafi treyst því að útvarps-
stjóri væri slíkur drengskaparmaður
að hann þyldi það að menn hefðu
ólíkar skoðanir í kringum hann. Því
komi uppsögnin á óvart.
„Þetta era afskaplega smekkleg
ummæli. Ástæðuna fyrir uppsögn-
inni þekkja allir. Við skulum segja
að umræðuþátturinn hafi rekið
smiðshöggið og aðalhöggið á þetta.“
-kaa
Heimir Steinsson, útvarpsstjóri.
áminningu áður en til uppsagnar
komi. Ákvæðið gildi einungis um þá
sem era ráðherraráðnir og nái því
ekki til Hrafns né annarra starfs-
MA BJOÐA MK
þennan ódýra, góða og heimilislega mat?
Lifúr er ódýrt hráefni sem fæst allt áriö um krmg. Það er tilvalið að lækka matarreikninginn með því að hafa rétti úr lifúr á borðum minnst einu
sinni í viku. Hér eru tvær góðar og einfaldar uppskriftir að ljúffengum og fljótlegum réttum úr lifur. Gerið svo vel og verði ykkur að góðu.
1 lifur, um 450 g
2 msk hveiti eba heilhveiti
salt ogpipar
1- 11/2 dl mjólk
2 laukar, í sneiðum
smjirrlíki éba olía
Hreinsið lifrina og hakkið.
Blandið saman við hana
hveiti, kryddi og mjólk.
Athugið að deigið er mjög
þunnt. I það er líka ágætt
að bæta I/2-l dl af
haframjöli.
Brúnið laukinn létt í
smjörlíki eða olíu og
geymið hann. Bætið við
feiti og setjið lifrardeigið á
pönnuna með skeið. Steikið
buffrn fallega brún í 2-3
mín. hvorurn megin.
Leggið laukinn ofan á
buffin og berið þau fram
heit með kartöflum og
soðnu grænmeti, og ef til
vill með bræddu smjöri.
Lifrarbuff er þægilegt að
eiga í frysti og fljótlegt að
hita það upp á pönnu eða í
ofni.
1 lambalifur, um 450 g
2 tsk hveiti
2 tsk sítrónusafi
2 msk sojasósa
1 eggjahvíta
1- 2 laukar, í sneibum
2- 3 msk olía
salt ogpipar
2'dl kjötsob (af teningi)
3 hvítlauksrif söxub smátt
jint maísmjöl (maisena)
Blandið saman í skál hveiti,
sítrónusafa, sojasósu og
eggjahvítu. Hreinsið lifrina
og skerið hana í þunnar
sneiðar. Veltið þeim upp úr
blöndunni og látið þær
liggja í henni í 20 mínútur.
Brúnið laukinn og hvít-
laukinn létt á pönnu og
geymið síðan.
Steikið lifrina í 2-3 mín.
hvorum megin, kryddið
hana með salti og pipar og
takið hana af pönnunni.
Hellið soðinu á pönnuna,
bætið lauknum við og
sjóðið í 3 mín. Þykkið soðið
hæfilega rneð fínu
maísmjöli hrærðu saman
við kalt vam og látið sjóða í
1-2 mín. Setjið lifrina út í
sósuna og látið hana sjóða
með, en alls ekki lengur en
nauðsynlegt er því að lifrin
á að vera mjúk og safarík.
Berið réttinn fram með
hrísgijónum og grænu
salati.
SAMSTARFSHÓPUR
UM SÖLU LAMBAKJÖTS