Dagblaðið Vísir - DV - 22.03.1994, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 22. MARS 1994
Fréttir
Magnea hefur haft fé af fjölda manns, segir lögreglan:
Heimsækir gamalt fólk
og stelur peningum þess
virðist stöðnuð í sendibilasögunni, segir húsvörður á sambýli aldraðra
„Hún virðist alveg stöðnuð í
sömu sögunni. Hún er alltaf að
flytja húsgögn. Hún kom aftur
hingað fyrir um tveimur vikum.
Konan sem hún ætlaöi að hafa pen-
inga af þá kannaðist við hana og
benti henni á húsvörðinn. Þá hljóp
hún út en hún náði um 40 þúsund-
um af einni konu sem hér býr
skömmu fyrir jól,“ sagði húsvörður
í einu af sambýlum aldraðra á höf-
uðborgarsvæðinu í samtali við DV.
í fréttum DV í gær var sagt frá
konu á sjötugsaldri sem varð fyrir
því óláni að veski var stolið úr íbúö
hennar. Konan hafði boðið annarri
konu, sem kynnti sig sem Magneu
og er 32 ára, inn til sín til að híða
eftir flutningabíl. Magnea stal frá
henni veski og henti því svo við
ruslatunnu í nágrenninu. Konan
fann svo veskiö seinna en þá vant-
aöi í það ávísanahefti og peninga.
Hún var ekki sú eina sem varð
fyrir þessu óláni því Magnea fór til
vinkonu hennar í næstu götu. Þar
bað hún roskna konu um að lána
sér 500 krónur. Konan varð við bón
Magneu og lánaði henni pening-
ana. Spurði þá Magnea konuna
hvort hún gæti gefið sér mjólkur-
glas því hún væri svo ósköp þyrst.
Konan varð við þeirri bón og fór
inn í eldhús til að ná í mjólkurglas-
ið. Þegar hún kom til baka var
Magnea á bak og burt með seðla-
veskið hennar.
Bæði máhn voru kærð til lög-
reglu en Magnea var ófundin þegar
síðast fréttist.
„Hún kom héma inn og bað konu
sem býr hér um 10 þúsund krónur,
sagðist vera að koma með húsgögn
til einhvers sem hún þekkti á efri
hæðinni. Hemmi Gunn var í sjón-
varpinu og þegar Hemmi var búinn
kom hún aftur og sagði að bíllinn
væri alveg aö koma með húsgögn-
in. Hún baö hana um mjólk í glas
og hvort hún mætti ekki nota sal-
emið. Gamla konan fór að ná í
mjólkurglasið en Magnea var búin
að sjá hvar veskið var geymt, náði
sér í meira og hljóp út. Hún virðist
alveg vera stöðnuð í þessari bíla-
sögu,“ segir húsvörðurinn á sam-
býlinu.
Húsvörðurinn segir gamalt fólk
grandalaust gagnvart svona lög-
uðu. „Þegar hún segist vera í hús-
inu þá gleypir gamla fólkið svona
lagað. Þaö er svo saklaust aö það
spáir ekki í þetta,“ segir húsvörð-
urinn.
Samkvæmt upplýsingum sem DV
hefur aflað sér hlaut Magnea fang-
elsisdóm í október 1992 fyrir að
stela tékkheftum og gefa út ávísan-
ir úr þeim. Síðan þá hefur hún
haldið uppi uppteknum hætti, sam-
kvæmt því sem lögreglan segir, og
lítið verið aðhafst í málum hennar.
Þá hefur hún oft komið viö sögu
fíkniefnalögreglu.
Samkvæmt upplýsingum DV em
mál á hendur henni til meðferðar
hjá ríkissaksóknaraembættinu en
ekki fékkst uppgefið hvort ákæra
væri væntanleg á hendur henni.
-PP
Kæruefni
ekki komið
fram ennþá
Réttað verður á morgun í máli tog-
arans Rex í eigu Skagstrendings á
Skagaströnd en hann var færður til
hafnar 1 Stomoway á Skotlandi í
gær. Ekki hefur verið gefið upp enn-
þá fyrir hvað skipstjórinn verður
kærður.
Togarinn var sá eini úr hópi nokk-
urra togara sem færður var til hafn-
ar en áhöfn flugvélar á vegum
strandgæslunnar bresku sá nokkra
togara á Hatton Rockall svæðinu á
sama tíma og Rex var staddur þar,
um 20 sjómílur fyrir innan þá fisk-
veiðilögsögu sem Bretar telja sig eiga
á svæðinu. Bresk yfirvöld telja veið-
ar skipa sem ekki hafa veiðiheimildir
ólöglegar séu þau stödd fyrir innan
200 mílna viðmiðunarlínu Rockall.
Talsmaður breskra yfirvalda sagði
í gær að í kjölfar þess að Rex var
færður til hafnar mundi skip verða
sent til þess að hafa eftirlit með veiði-
svæðum norðvestur af Skotlandi.
ÓTT
Markús Öm Antonsson:
ílausa-
mennskuí
fjölmiðlunum
„Ég er nú héma í lausa-
mennsku eða „freelance" eins og
það er kallaö. Ég kann ágætlega
viö mig að þessu tagi. Ég hef áöur
fengist viö kynningarstörf og
fjölmiölastörf af ýmsu tagi, þetta
er af þeim meiði og ég kann ágæt-
lega við það,“ segir Markús Órn
Antonsson, fyrrverandi borgar- |
sljóri, í samtali við DV.
Markús hefur hafiö störf hjá
Myndbæ hf. sem starfar að gerö
kynningarmyndbanda, auglýs-
ingagerð og fleiru. Hann segir aö
ástæöa þess aö hann hafi hafiö
störf þama sé sú aö hann hafi
lengi unniö með Jóhanni Briem,
framkvæmdastjóra fyrirtækis-
ins. „Viö höfum alltaf haft ágætis
samband og hann hefur verið að
sinna hér auknum verkefiium og
vantaði mann tii aö vinna að
þeim með sér,“ segir Markús.
Hann segist ekki lita á þetta sem
framtíöarstarf. Framtíöin sé al-
veg óráöin. Hins vegar hafi hann
ekki vihaö sitja auðum höndum
og því ákveöiö að slá til og hefia
störf hjá Myndbæ. *pp
Togarinn Rex efftir að hann var færður til hafnar í Stornoway á Skotlandi í gær.
Sérkermileg deila Flugleiða og lögregluyfirvalda á Keflavikurflugvelli:
Enginn vill borga
uppihald f lakkaranna
Upp er komin sérkennileg deila
milli Flugleiða og lögregluyfirvalda
á Keflavikurflugvelii sem snýst um
þaö hvor þessara aðila skuh sjá far-
borða svokölluðum flökkurum, sem
koma á stolnum eða fölsuðum vega-
bréfum inn í landið, á meðan þeir
dvelja hér.
Nýjasta dæmið er af Indverja sem
kom með Flugleiðum frá Amsterd-
am. Hann var með hoflenskt vega-
bréf og hugðist komast til New York
og biðjast þar hælis sem pólitískur
flóttamaður. Hann var stöðvaður og
látinn dvelja hér í nokkra sólar-
hringa áður en hann var sendur til
baka til Amsterdam.
Venjan hefur veriö sú aö lögreglan
hefur tekið þessa menn í vörslu og
sent Flugleiðum síðan reikning fyrir
þeim kostnaöi sem af dvölinni hefur
hlotist. Að sögn Þorgeirs Þorsteins-
sonar, lögreglustjóra á Keflavíkur-
flugvelli, er „einhver tregða hjá þeim
núna" að greiða slíka reikninga. Þess
vegna varð þessi fyrmefndi ind-
verski flakkari að dvelja í transit-
salnum í flugstööinni frá fimmtudegi
og fram á sunnudagsmorgun. Að
sögn Kolbeins Jóhannessonar, stöðv-
arstjóra hjá Flugleiöum, varö hann
sjálfur aö sjá sér fyrir viðurværi
„með þeim Utlu peningum sem hann
hafði“.
„Við teljum okkur ekki skylduga
til þess að sjá þessum mönnum far-
boröa,“ sagði Kolbeinn. „Lögreglan
hefur farið fram á aö viö gerum það
en viö neitum því. Við sjáum um að
koma þessum farþegum til baka og
teljum að það sé sú ábyrgö sem viö
eigum að bera. Við teijum að hið
opinbera eigi aö bera af þeim annan
kostnað meðan þeir dvelja hér. “
„Þessir menn eru ekkert á leiðinni
til íslands, heldur til Ameríku," sagði
Þorgeir. „Þeir hafa ekki gerst brot-
legir við íslensk lög á neinn hátt og
eru þvi alfarið á vegum Flugleiða
meöan þeir dvelja hér.“
-JSS
Fyrstu gestir til Djúpuvíkur um páskana
Regina 'Hiorarensen, DV, Selfosa:
Hótelstýran á Djúpuvík, Eva Sigur-
bjömsdóttir, á von á sínum fyrstu
hótelgestum í ár í páskavikunni. Það
er skiðafólk sem ætlar aö dvelja þar
í kyrrðinni um páskana.
Eva segir aö veturinn hafi verið
einmuna góður, besti veturinn frá
því hún hóf hótelrekstur á Djúpuvík.
Þau hjónin eru nú aö fella grá-
sleppunet og byrja að leggja þau 1.
apríl.
Heilsufar hefur veriö gott á Strönd-
um í vetur í hinu hreina og tæra lofti.
Stuttar fréttir
FyrsturíSmuguna
Togarinn Fisherman er kominn
til veiöa í Smugunni, fyrstur ís-
lenskra togara. Samkvæmt RÚV
hefur lítið veiðst vegna veöurs.
3,2 milljarðar töpuðust
Ríkisbankamir töpuðu samtals
3,2 milljörðum á síöasta ári. Tæp-
ar 700 milljónir vom afskrifaðar
vegna fiskeldis, um 640 milljónir
vegna sjávarútvegs, tæplega 590
milljónir vegna iðnaðar, um 860
vegna verslunar og þjónustu og
270 milljónir vegna einstaklinga.
Dýrari uppskipun
Uppskipunargjöld íslenskra
skipafélaga hafa hækkað vem-
lega undanfarin 5 ár. Samkvæmt
RUV hafa gjöldin ekki hækkað í
nágrannalöndunum á tímabilinu.
Alfred Joison látinn
Alfred J. Jolson, biskup ka-
þólsku kirkjunnar á íslandi, lést
í Bandaríkjunum i gær.
Höfuðborgarbúar í vanda
Staða sveitarfélaga á lands-
byggðinni hefúr batnað en versn-
aö á höfðuborgarsvæöinu. Skv.
Tímanum tvöfölduðust skuldir
höfuðborgarbúa á 3 árum.
Neikvæö raunávöxtun
Markaðsviröi hlutabréfa í Flug-
leiðum var 58% af bókfærðu eigin
fé. Samkvæmt Mbl. heftir raun-
ávöxtun hlutafiár verið neikvæð
um 11 til 28% á ári síöustu 3 ár.
Timasetning gagnrýnd
Foreldrasamtökin Heimili og
skóli mótmæla þeim áformum
kennara aö halda fulltrúaþing
sitt á starfstíma skóla í vor.
Afsláttur á bifreiðagjaldi
Þeir sem einungis nota bíla sina
hluta úr ári þurfa ekki að borga
kílóagjald að fUllu samkvæmt
hugmyndum sem fjármáfaráð-
herra kynnti á Alþingi í gær. Stöð
tvö skýrði frá þessu.
Nautakjöthækkar
Verð á nautakjöti til bænda
hækkar um 25% um mánaðar-
mótin. Sjónvarpið skýrði frá
Þessu- -kaa